Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 31

Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986 31 smáauglýsingar smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Bækurtil sölu Kjósarmenn, ættarskrá, Kennslubók i bókbandi og smiðum, Á fslendingaslóöum í Kaupmannahöfn, fslenskar bók- menntir i fornöld, Rauðir pennar 1.-4., Pétur Gautur eftir Ibsen, Veröld sem var eftir Stephan Sweig o.m.fl. nýkomið. Kaupi einnig bækur. Bókavaröan, gamlar bækur og nýjar, Hverfisgata 46, Reykjavik, simi 29720. Dyrasímaþjónusta Gestur rafvirkjam. — S. 19637. Bókhaldsþjónusta Hagbót s. 622788 og 77166. Gamla þjóðleiðin yfir Hellisheiði til Reykjavíkur: Laugardagur 16. ágúst: Kl. 09.00 Reykjakot (f Ölfusi) - Hellisheiði - Kolviðarhóll - Lækjarbotnar. Gengiö með gömlu vörðuðu leiðinni yfir Hell- isheiði. Áð við Hellukofann. Verð 400 kr. Möguleiki að fara með rútunni frá Kolviðarhóli kl. 13.30 í bæinn, annars halda áfram í Lækjarbotna. Fararstj. Einar Egilsson. Kl. 13.00 Kolviðarhóll - Lækj- arbotnar. Gengið með vörðum milli þessara gömlu áningar- staða. Verð 300 kr. Fararstj. Þorleifur Guömundsson. Sunnudagur 17. ágúst: Kl. 10.30 Lækjarbotnar — Ártún - Elliðaárdalur - Grófin. Gamla þjóðleiðin lá um Reið- skarð hjá Ártúni. Hægt að stytta til 13.30 viö Elliðaárstöðina, en þá fer rúta þaðan. Verð 200 kr. Fararstj. Nanna Kaaber. Kl. 13.00 Gamla þjóðleiðin um Reykjavík. Gengið frá Elliðaán- um neðan Ártúns um Bústaða- holt, Öskjuhlíö, Skólavörðuholt og Arnarhól í Grófina. Verð 100 kr. fritt f. börn m. fullorönum. Fararstj. Kristján M. Baldursson. Brottför frá BSl, bensínsölu. Brottför 10 mfnútum fyrir aug- lýstan tfma úr Grófinni (Grófar- torgi). Gangið með Útivist um elstu þjóðleið landsins f tilefni 200 ára afmælis Reykjavikur- borgar. Allir geta verið með. Sjáumst! Hljómleikar á Akureyri verða í kvöld kl. 20.30 i Dyn- heimum. NSB-hljómsveitin frá Hjálpræð- ishernum í Noregi sér um söng og tónlist og kapteinn Danfel Óskarsson stjórnar. Aðgangur kr. 300, börn kr. 150. Söng- og hljómleikasamkoma verður á sama stað einnig laug- ardag kl. 17.30. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. UTIVISTARFERÐIR UTIVISTARFERÐIR Sumarleyfisferðir 21.-24. ágúst 1. Lakagígar — Leiðólfsfell — Holtsdalur — Eldgjá. Brottför fimmtud. kl. 8.00. Óvenjufjöl- breytt ferð m.a. utan þekktra ferðamannaleiöa. Gist við Blágil og Eldgjá. Ekið heim um Fjalla- baksleið nyrðri. Uppl. og farm. á skrifst., Gróflnnl 1, sfmar 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist. Helgaferðir 15.-17. ágúst 1. Þórsmörk — Goðaland. Upp- selt i báða Útivistarskálana nú um helgina. Ágæt tjaldstæði. Fararstjórar: Egill og Friða. Við minnum á sumardvöl i Básum t.d. frá sunnudegi til miðviku- dags eða frá miðvikudegi 20. ágúst. 2. Skógar — Fimmvörðuháls — Básar á laugardagsmorguninn. Fararstjóri: Páll Ólafsson. Gist i Básum. Einsdagsferð í Þórsmörk á sunnudag 17. ágúst kl. 8.00. Verð 800 kr. Stansað 3-4 klst. i Mörkinni. Uppl. og farm. á skrifst., Grófinni 1, simar 14606 og 23732. Ath. Núpsstaöar- skógarferðin verður 12. sept. Sjáumst! Útivist. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 15.-17. ágúst 1) Álftavatn — Laufafell — Skaftártungur. Gist í sæluhúsi F.l. við Álftavatn. Gengið á Laufafell. Ekin er Fjallabaksleið syöri aö Álftavatni og síðan til baka um Skaftártungur. 2) Landmannalaugar — Eldgjá. Ekið um Jökuldali i Eldgjá og geng- ið að Ófærufossi. Gist i sæluhúsi F.í. í Laugum. 3) Þórsmörk. Gist i Skagfjörös- skála. Fólk sem á eftir sumarleyfi ætti aö athuga dvöl i Þórsmörk. 4) Hveravellir - Þjófadallr - Hvftámes. Gist i sæluhúsi F.l. á Hveravöllum. Heitur pollur til baða og afar góö aðstaða. Farmiðasala og upplýsingar á skrif- stofunni, Öidugötu 3. Ferðafélag Islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir sunnu- daginn 17. ágúst: 1) Kl. 08.00 Þórsmörk — verð á dagsferð kr. 800. Möguleikar á mismunandi langri dvöl. Ferða- menn kunna að meta aöstööuna i Skagfjörðsskála. 2) Kl. 10.00 Frá Hjarðarholti f Kjós á Skálatind að Mógilsá. Nýstáríeg gönguferð yfir Esju. Verð kr. 500. 3) Kl. 10.00 Reykjavfk og ná- grenni — söguferð f tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Fararstjóri: Páll Lfndal. Verö kr. 250. ATH.: Breyttan brottfar- artfma, engin ferð kl. 13.00. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Fritt fyrir böm i fylgd fullorö- inna. Feröafélag islands. atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Laus staða Frá Bændaskólanum á Hvanneyri Við mötuneyti skólans er laus til umsóknar staða bryta. Umóknir óskast sendar til: Bændaskólans á Hvanneyri, 311 Borgarnes. Nánari upplýsingar í síma 93-7500 á skrif- stofutíma. Kennara vantar að Varmalandsskóla Mýrasýslu. Gott húsnæði, frír hiti. Upplýsingar veitir skóla- stjóri í síma 54979 15. ágúst kl. 18.00-20.00, 16. og 17 ágúst kl. 13.00-15.00 en eftir 19. ágúst í símum 93-5302 og 93-5300. Tískuverslun óskar eftir að ráða starfskraft í heilsdags- starf. Umsækjandi þarf að vera á aldrinum 18-35 ára og geta hafið störf mjög fljótlega. Skriflegar umsóknir með uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist augldeild Mbl. fyrir 21. ágúst merktar: „Ö — 293“. Öllum umsóknum verður svarað. Frystihús Starfsmann vantar að litlu frystihúsi á Reykjavíkursvæðinu, með reynslu og mats- reftindi. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer ásamt uppl. um fyrri störf á augld. Mbl. merkt: „F — 0295“ fyrir 19. ágúst. Frá Skólaskrifstofu Kópavogs Ritari Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir eftir rit- ara. Verkefni ritarans eru að tölvufæra gögn skólans og annast almenn skrifstofustörf. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst nk. Frerkari upplýsingar í skólanum í símum 43861 og 46865. Kennari Kennara vantar við Þinghólsskóla. Kennslu- greinar eðlisfræði og líffræði. Upplýsingar hjá skólastjóra í símum 41132 og 42530. Skólafulltrúi. Umsóknarfrestur um áður auglýst starf sér- kennara (2/3 stöðu) sem ætlað er að starfa með forstöðumanni lesvers við Æfinga og tilraunaskóla Kennaraháskóla íslands er hér með framlengdur til 22. ágúst nk. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf sendist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Menntamáiaráöuneytiö, 14. ágúst 1986. Verkamenn óskast Menn vanir byggingarvinnu óskast til starfa í Reykjavík strax. Upplýsingar í síma 51207. Kennarar Kennara vantar að Héraðsskólanum að Reykjum. Æskilegar kennslugreinar íþróttir og tungumál. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 95-1000 og 95-1001. Arneshreppur: Fiðluleikur við messu í fyrsta sinn í 40 ár Árnesi. VEÐRÁTTA hefur lengst af verið stirð fram að þessu, en nú blása suðlægir vindar, svo bændur hafa þurrkað nokkur hey að undan- förnu, og heyskapur er langt kominn. Spretta hefur þó verið ærið misjöfn og tún kalið víða, en slíkt telst vart til tíðinda hér í sveit. Um verslunarmannahelgina, þann 3. ágúst, var guðsþjónusta í Ámeskirkju, og önnuðust tónlistar- flutning þau Guðný Guðmunds- dóttir, fiðluleikari, Gunnar Kvaran, sellóleikari, auk Guðmundar Haf- liða Guðjónssonar frá Kjörvogi, sem nú er organisti í Vestmannaeyjum. Var þar um að ræða einleik svo og samleik. Húsfyllir var og gerðu menn góðan róm að þessari óvæntu nýbreytni, enda ekki á hveijum degi að slíkir listamenn láti í sér heyra hér norður við ysta haf. Láta mun nærri að 40 ár séu síðan síðast heyrðist í fiðlu í Ámeskirkju, og selló hefur verið framandi gripur hér á norðurslóðum allt til þessa. Að hinu leytinu var listafólkið mjög hrifið af því að leika í þessari öldnu kirkju sem nú er 136 ára gömul og er í hópi tíu merkustu timburkirkna á íslandi. Kirkjan hef- ur liðið mjög vegna viðhaldsleysis síðustu áratuga, en vonir standa til að úr rætist á næstunni. Skylt er einnig að geta þess að ný kirkju- bygging hefur verið samþykkt af söfnuðinum. Af framkvæmdum kann ég fátt að nefna, utan hvað sláturhúsið nýja tekur óðum á sig endanlegan svip, en hér í sveit er slátrað um 3.500 dilkum árlega. Eitthvað hefur borist á land af fiski til saltverkun- ar, en grásleppuvertíðin brást með öllu. Menn saga hér rekavið niður í girðingarstaura að vanda, en markaður gerist nú tregur fyrir þá vöm, verðið hefur haldist nær óbreytt síðustu þijú árin. Mættu þau kaupfélög sem hafa innflutta staura á boðstólum athuga sinn gang, ef þau vilja standa undir nafni og vera útverðir byggðastefnu á íslandi. - Einar ii 1 Sr. Einar Jónsson, Guðmundur Hafliði Guðjónsson, Védis Guðmunds- dóttir, Dagný Pétursdóttir, kona Guðmundar, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran fyrir kirkjudyrum á Ámeskirkju, sem er farin að láta á sjá, en hún er 134 ára gömul.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.