Morgunblaðið - 15.08.1986, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
speki
Umsjón: Gunniaugur
Guömundsson
„Kæri umsjónarmaður. Eg
hef skrifað þér áður og óskað
eftir upplýsingum um mitt
stjömumerki en hef ekki
fengið svar. Viltu vera svo
vænn að svara núna. Ég er
fædd 29.01. 1960 rétt um 6
að morgni í Reykjavík. Ég
verð þá vonandi fróðari um
kosti mína og galla. Með fyrir-
fram þökk.“
Svan
Þú hefur Sól, Tungl og Merk-
úr í Vatnsbera, Venus, Mars
og Satúmus í Steingeit,
Rfsandi og Júpíter í Bogmanni
og Sporðdreka og Neptúnus
á Miðhimni.
4 höfuðþœttir
í korti þínu em §órir þættir
helst áberandi, eða Vatnsberi,
Steingeit, Bogmaður og Nept-
únus.
Vatnsberinn
Aðalmerki þitt er Vatnsberi.
Það táknar að innst inni ert
þú sjálfstæð, hugmyndarík og
föst fyrir. Þú vilt fara þínar
eigin leiðir og móta þér sjálf-
stæðan og persónulegan stíl.
Úranus er á móti Tunglinu
og táknar það að í þér býr
visst eirðarleysi og óþol gagn-
vart tilfinningalegum höml-
um. Daglegur lífsstfll þinn og
tilfinningalíf þarf því að vera
óvenjulegur og persónulegur.
Einkenni Vatnsberans er að
láta hugsun stjóma tilfinning-
um.
Bogmaðurinn
Rísandi Bogmaður táknar að
framkoma þín er opin og
ftjálsleg og að þú hefur gam-
an af því a_ð byrja á nýjum
verkefnum. í þér er visst eirð-
arieysi og þörf fyrir fjölbreyti-
leika. Ferðalög eiga t.d. vel
við þig.
Steingeitin
Mars og Venus í Steingeit
tákna í fyrsta lagi að þú ert
dugleg og skipulögð í vinnu
og í öðm lagi að þú þarft á
ákveðnu öryggi aið halda í
ástamálum. Þessi hlið er jarð-
bundin og hagsýn og m.a.
gefur hún þér góða skipulags-
hæfileika.
Neptúnus
Neptúnus á Miðhimni í Sporð-
dreka táknar að þú ert líkast
til heldur óviss um framtíð
þína og lífsstefnu. Ástæðan
fyrir því er sú að þú hefur
sterkt ímyndunarafl og sérð
marga möguleika, en skortir
kannski metnað og vilt ekki
fara hefðbundnar leiðir. Helst
er hægt að fá útrás fyrir
Neptúnus í listum eða mann-
úðarmálum.
Samtenging
Ef við reynum að tengja þessa
þætti saman sjáum við að þú
ert sjálfstæð, eirðarlaus,
skipulögð með sterkt ímynd-
unarafl. Hætta sem þú þarft
að varast er sú að sterkt
ímyndunarafl þarf að nota
eins og annað. Ef því er ekki
beint í ákveðinn farveg, safn-
ast það upp og leitar útrásar
eftir öðmm leiðum. I slíkum
tilvikum getur það táknað að
þú verður utan við þig og
lætur þig dreyma í stað þess
að framkvæma. Ef þú beitir
þér á listrænum sviðum, t.d.
málar, teiknar eða tekur ljós-
myndir þó ekki væri nema í
tómstundum færð þú jákvæða
útrás fyrir þessa orku.
Fjölbreytileiki
Ef við reynum að draga kort
þitt saman má segja að best
sé fyrir þig að vinna t.d. að
listrænum eða mannúðarleg-
um skipulagsstörfum sem fela
í sér hreyfingu og fjölbreyti-
leika.
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
UÓSKA
SMAFOLK
Ég kann vel við nýja tagl-
ið þitt, herra ...
Þakka þér fyrir, Magga
IN FACT, IT'5 L00KIN6
BETTEK BVTHE MINUTE.
Satt að segja lítur það
betur út þegar fram í
sækir____
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Svíning er ekki bara svíning.
Til em svo djúphugsaðar
svíningar að þær ættu með réttu
að kallast djúpsvíningar, ef það
nafn væri ekki upptekið undir
annað. Hér er spil þar sem djúp-
svíning kemur við sögu.
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 84
♦ ÁD3
♦ KD105
♦ G874
Vestur
♦ G10752
♦ G98
♦ G843
♦ 5
Austur
♦ ÁKD963
▼ K1076
♦ 96
♦ 6
Suður
♦ -
♦ 542
♦ Á72
♦ ÁKD10932
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 spaði 2 lauf
2 spaðar 5 lauf Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Vestur spilar út spaðagosa.
Hvemig á sagnhafi að tryggja
samninginn?
Það er svo sem einfalt að
svína fyrir tígulgosann þegar
maður sér allar hendur, en get-
urðu fundið gilda ástæðu til að
svína tíunni?
Ástæðan er þessi: Suður
trompar útspilið, fer inn á blind-
an á tromp og trompar seinni
spaða blinds. Spilar svo tígul-
kóng, tígli heim á ás og meiri
tígli á tíuna. Nú skiptir nákvæm-
lega engu máli hver á tígul-
gosann. Ef austur hefur byijað
með hann þriðja fær hann slag-
inn, en verður að gefa slag til
baka með því að spila upp í
hjartagaffalinn eða spaða út í
tvöfalda eyðu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Tallin í Eistlandi í vet-
ur, kom þessi staða upp í skák
sovézku meistaranna Voorema
og Malanjuk, sem hafði svart
og átti leik.
25 ... Hxc3! og hvítur gafst
upp, því eftir 26. Rxc3 - Bb4,
27. Bb3 — d4, vinnur svartur
auðveldlega á liðsmuninum.
69-11-00
Auglýsingar 22480
Afgreiðsla 83033