Morgunblaðið - 15.08.1986, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
45
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
691100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/ur i/wwi
Þessir hringdu
Gleymdist að
lækka verðið á
98 oktana
bensíni?
Aðalsteinn hringdi:
„Það er ekki laust við að mér
hafi brugðið þegar ég ætlaði full-
ur ánægju að fylla bílinn minn
af ódýru bensíni um daginn þegar
fréttir bárust af þeirri rausnarlegu
ákvörðun að lækka verðið á
bensíni um eina krónu.
Sú gleði var nú samt fljót að
hverfa út í veður og vind þegar
ég uppgötvaði hvernig í pottinn
var búið. í öllum hamaganginum
hefur nefnilega „gleymst" að
lækka 98 oktana bensínið til jafns
við gamla sullið.
Fyrir verðbreytinguna var
munurinn 2.50 kr. á hvetjum lítra
af venjulegu bensíni og 98 oktana
bensíni en nú er hann orðinn 3.50
kr.
Þama er verið að mismuna
mönnum eftir því hvort bensínið
þeir velja og það er stór hópur
sem notar eingöngu 98 oktana
bensín.“
Hvar er hægt að
læra grísku?
Hinrik hringdi og vildi grennsl-
ast fyrir um hvar hægt væri að
læra grísku. Hann hefði hvergi
rekist á neinn sem tæki grísku-
kennslu að sér en langaði mikið
Ítil að læra grísku.
Líta blaðamenn
niður á f isk-
vinnsluna?
Starfsmaður í fiskiðnaði
hringdi:
„Eg var að lesa í Morgunblað-
inu þriðjudaginn 18. ágúst viðtal
við Vilberg Viggósson píanóleik-
ara og rakst þar á atriði sem fór
ákaflega í taugamar á mér.
Það var þegar blaðamaðurinn
spurði Vilberg: „Ertu hræddur um
að þurfa að fara að vinna í t.d.
fiski þegar þú lýkur námi?“
Þetta fínnst mér vera gott
dæmi um að litið er niður á fisk-
vinnsluna í landinu og fiskvinnslu-
fólk um leið. Ég hef oft orðið var
við þetta í dagblöðunum og fer
það mjög í taugamar á mér. Það
Árný Anna Sverrisdóttir
hringdi.
„Eg auglýsti í Velvakanda
laugardaginn 16. þessa mánaðar
eftir nokkmm hlutum sem ég
hafði týnt á þjóðhátíðinni í Vest-
mannaeyjum um verslunar-
mannahelgina. Maður nokkur
hringdi og sagðist hafa fundið
þessa hluti og sagði hann að hann
myndi koma hlutunum niður á
lögreglustöð. Ég hef hringt á lög-
reglustöðina í Eyjum og þeir
kannast ekki við þetta. Vil ég því
biðja manninn um að hringja aft-
ur í síma 74388.“
Hefur einhver
rekist á gull-
hring?
Ragnheiður Ágústsdóttir
hringdi:
„Síðastliðið laugardagskvöld
fór ég á dansleik á Hótel Borg.
Þar inni eða á ieiðinni þangað frá
Tómasarhaga týndi ég gullhring
sem ég var með á litlafingri. Þetta
er mjög verðmætur gullhringur
með litlum táknum á. Finnandi
er vinsamlega beðinn að hringja
í síma 42669.“
Brids skilíð
útundan
1798-7178 hringdi:
„Fyrr í sumar var haldið brids-
mót á Norðurlöndunum. Ekki fór
nú mikið fyrir fréttum af því í
útvarpinu og sjónvarpinu. Hins
vegar fékk skákmót sem fram fór
á sama tíma rækilega umfjöllun.
Það er kannski álitamál hvort telja
á brids íþrótt en það er greinilegt
að skák er talin það. Ég spila
ekki brids sjálfur en ég veit að
mörgum bridsmönnum sámaði
þetta.“
Hringdu aftur
er eins og sumir blaðamenn telji
það að vinna í fiski eitthvert neyð-
arúrræði.
Allir vita að mikið af launum
þeirra sem vinna í fiski fer í að
framfleyta listamönnum og öðrum
slíkum og er í sjálfu sér ekki beint
hægt að setja út á það en það er
nú samt hart að þurfa horfa upp
á hofmóðinn í þeim sem ekki vinna
í fiski gagnvart þeim sem gera
það.“
Athugasemd frá fyrr-
verandi starfsmönn-
um Hótels Bifrastar
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
Laugardaginn 9. ágúst sl. birtist
frétt í Morgunblaðinu um uppsagn-
ir 12 starfsmanna á Hótel Bifröst
í Borgarfirði. Þar er m.a. rætt við
Hildi Jónsdóttur, deildarstjóra inn-
anlandsdeildar Samvinnuferða-
Landsýnar. Hún segir m.a: „Okkar
tillögur voru að reynt yrði að kom-
ast fyrir samskiptaörðugleikana.
Við báðum starfsmennina um að
ræða opinskátt um einstök vanda-
mál svo hægt væri að leysa þau
og halda starfinu áfram í sátt og
samlyndi. Þau féllust ekki á það,
þannig að svona fór.“
Hildur fer hér með rangt mál.
Hið rétta er að uppsagnir starfs-
manna voru afhentar fimmtudaginn
24. júlí á skrifstofu
Samvinnuferða-Landsýnar í
Reykjavík.
Engar viðræður fóru fram við
starfsfólkið af hálfu ferðaskrifstof-
unnar fyrr en laugardaginn 2.
ágúst. Þá kom Hildur Jónsdóttir
að Bifröst og hélt fund með starfs-
fólkinu. Einnig var mættur Jón
Agnar Eggertsson, formaður
Verkalýðsfélags Borgarness. Á
þessum fundi gerði starfsfólkið
rækilega gi-ein fyrir ástæðum upp-
sagnar. Hildur kom hins vegar
aðeins með eina tillögu, þá að hún
ræddi við stjórnendur hótelsins, þá
Jón Sigurðsson, hótelstjóra og Karl
Ómar Jónsson, matráðsmann, og
starfsfólkið yrði út starfstímabilið.
Staiísmenn samþykktu að taka sér
umhugsunarfrest til 5. ágúst. Lok
málsins eru kunn. Við hættum öll
12 að tölu þann 7. ágúst eftir lög-
legan uppsagnarfrest.
Greinilegt er að Hildur Jónsdóttir
vill gera lítið úr þeim samstarfsörð-
ugleikum stjórnenda og starfsfólks
sem verið hafa í sumar.
Allir geta sagt sér það sjálfir að
ekki er gripið til svona aðgerða af
tómri léttúð þar sem um verulegt
fjárhagstjón er að ræða, sérstak-
lega fyrir skólafólkið í hópnum.
Ennfremur má geta þess að
starfsfólkið er á aldrinum 20 til 40
ára, flestir með mikla reynslu af
störfum við hótel og veitingahús
og hluti þess hefur unnið á staðnum
í 10 ár.
Sú spurning hlýtur að vakna
hver sé afstaða stjórnar Samvinnu-
ferða-Landsýnar, sem m.a. er
skipuð fulltrúum Samvinnuhreyf-
ingarinnar og Verkalýðshreyfingar-
innar til þessa máls.
f.h. starfsfólks,
Björg Einarsdóttir,
Hulda Björg Baldvinsdóttir.
j
j
Taylor ísvélar
fyrirliggjanda
Hagstætt verð.
Góð ikjör
Eiríkur Ketilsson
Heildverslun, Vatnsstíg 3.
Símar: 23472, 25234, 19155.
Bladburðarfólk
óskast!
ÚTHVERFI KÓPAVOGUR
Melbær
Ármúli
Skólagerði
Kársnesbraut 2-56
Hvassaleiti
AUSTURBÆR
Grettisgata 37-63
Grettisgata 64-
VESTURBÆR
Ásvallargata
Öldugata 2-34
Holtsgata
■<