Morgunblaðið - 15.08.1986, Page 48
SEGÐU
RriARHÓLL
ÞEGAR
ÞÚ EERÐ ÚTAÐ BORÐA
----SÍMI18833---1
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Ungfrú
Bretland
kynnir
Svala
Yfir millj. fernur
seldar í Bretlandi
á einum mánuði
UNGFRÚ Bretland, sem verð-
ur krýnd á miðvikudaginn í
næstu viku, mun kynna svala-
drykkinn Svala á markaði í
heimalandi sínu eftir keppn-
ina. Framleiðandinn , Sól hf.,
hefur gert samning við fyrir-
tækið, sem stendur fyrir
keppninni, um þátttöku í
kostnaði gegn því að fá einka-
rétt á auglýsingum á keppninni
sjálfri og að nýta sér fegurðar-
drottninguna til að auglýsa
Svala eftir keppnina. Gert er
ráð fyrir að 10-12 milljónir
manna muni fylgjast með feg-
urðarsamkeppninni í sjón-
varpi.
Sól hf. hóf framleiðslu á Svala
fyrir markað í Bretlandi í júlí
síðastliðnum og hefur á einum
mánuði selt þangað yfír milljón
femur af svaladrykknum.
Sjá nánar frétt á bls. 4.
Enn lækka
kartöflumar
KARTÖFLURNAR lækka í verði
hjá Agæti í dag. Heildsöluverð á
einu kílói af premíer-kartöflum
lækkar úr 53 krónum í 47,30 eða
um rúm 10% og verð á gullauga
og rauðum úr 67 krónum í 61,50,
eða um rúm 8%.
Samkvæmt þessu má búast við
að algengt útsöluverð á premíer verði
54-59 krónur kílóið og 70-77 krónur
á gullauga og rauðum. Kartöflumar
lækkuðu einnig um 10-20% fyrr í
vikunni. Nýjar íslenskar gulrófur eru
að koma á markaðinn þessa dagana.
Heildsöluverð þeirra er nú í upphafi
75 krónur hjá Ágæti og má búast
við að útsöluverðið sé á bilinu 86 til
93 krónur kílóið.
Morgunbladið/JúlíUi
Aðalhátíðahöldin verða að venju í elsta hluta Reykjavíkur, Kvosinni. Skemmtun verður á Arnarhóli og þar hefur verið byggt stórt svið.
I Lækjargötu verður afmælistertan risastóra.
Allt að verða tilbúið fyrir afmælið:
Reikna með 40—60 þúsund
gestum ef veður verður gott
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„EF VEÐUR verður eins og
nú er spáð þá ímynda ég mér
að gestir í miðborginni geti
orðið á milli 40 og 60 þús-
und,“ sagði Davíð Oddsson,
borgarstjóri í Reykjavík, um
fyrirhugaða afmælishátíð
borgarinnar á mánudaginn.
„Standist spáin þá trúi ég að
hátíðin gæti orðið hin merk-
asta samkoma og að menn
upplifi ekki aftur annað
eins.“
Davíð sagði að vissulega
hefði veður þennan dag afskap-
lega mikið að segja fyrir
hvernig til tækist en nú væri
útlitið gott. „Allur undirbúning-
ur hefur miðast við að þátttak-
endur í hátíðahöldunum þennan
dag verði allt frá 20 þúsund og
upp í 60 þúsund manns. Þegar
maður skoðar dagskrána sýnist
ljóst, að allir muni fá eitthvað
við sitt hæfi, annaðhvort að
deginum eða á skemmtuninni
um kvöldið," sagði borgarstjóri.
Sjá dagskrá afmælis-
hátíðarinnar og kort á
bls. 18 og 19 og fréttir á
bls. 3, 10 og 27.
Morgunbladið/Sig. Jóns.
MJÓLKIN SKILIN
„Fólk að skilja um allar sveitir,“ var baksíðufyrirsögn í síðustu
viku og ráku þá margir upp stór augu.
En það var ekki orðum aukið. Mjólkurkvótinn hcfur valdið
því að í sveitum hefur fólk tekið fram gömlu skilvindurnar og
skilið mjólkina og notað til smjörgerðar fremur en hella henni.
Hér má sjá Dóru í Skarði í Landsveit við skilvinduna í mjólkur-
húsinu þar á bænum.
Viðtal við heimilisfólkið á Skarði er á bls. 4.
Landspítalinn:
Mjög góður árang-
ur hjartaaðgerða
Engin eftirköst, segir Grétar Ólafsson yfirlæknir
NÍU hjartaaðgerðir hafa nú
verið gerðar í Landspítalan-
um og eru allir sjúklingarnir
komnir heim.
Grétar Ólafsson, yfírlæknir á
Landspítalanum, sagði aðgerð-
imar allar hafa tekist vel og nú
væri búið að sanna að þessar
aðgerðir væri hægt að gera hér
á landi. „Allir sjúklingarnir eru
brattir og hressir og það hefur
aldrei komið upp ígerð eða önn-
ur eftirköst eftir aðgerðir.
Skurðaðgerðir og starfsemi á
gjörgæsludeild hafa gengið eins
og best verður á kosið,“ sagði
Grétar. „Núna hafa þessar að-
gerðir legið niðri um tíma vegna
sumarleyfa, en við byijum aftur
um miðjan september. Við reyn-
um að gera að minnsta kosti
tvær aðgerðir í viku, en vonandi
getum við brátt fjölgað þeim í
þijár, því full þörf virðist vera
á því. Það er þó vissum vand-
kvæðum bundið, því mikið álag
er á skurðdeildinni, sem er að
verða of lítil. Úr því rætist þó
þegar K-bygging Landspítalans
verður tekin í notkun, sem verð-
ur reyndar ekki strax. Nú er
verið að reisa þriðjung K-bygg-
ingar, en skurðdeildin þar
verður ekki tekin í notkun fyrr
en öll byggingin er risin,“ sagði
Gi'étar Ólafsson, yfirlæknir.