Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 Fyrsti heiðursborgari Reykjavíkur Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup var fyrsti heiðursborgari Reykja- víkur og annar af tveimur frá upphafi. Á áttræðisafmæli sr. Bjama 21. október 1961 komu borgarstjóm og helstu embættismenn borg- arinnar til heimilis hans og konu hans, frú Áslaugar Ágústsdóttur, í Lækjargötu 6b. Það hús varð síðar eldi að bráð og er þar nú auð lóð. Afhenti Geir Hallgrímsson borgarstjóri séra Bjama heiðurs- skjal í þessu tilefni með ávarpi þar sem hann var gerður að fyrsta heiðursborgara Reykjavíkur. Óiafur K. Magnússon ljósmyndari Morgunblaðsins var að sjálf- sögðu viðstaddur og tók þessar myndir sem hér em birtar. Séra Bjarni flytur ávarp. Geir Hall- grímsson borgarstjóri sæmir sr. Bjarna titlin- um heidurs- borgari Reykjavíkur. Frú Áslaug er lengst til hægri á myndinni. Séra Bjarni í hópi borgarfulltrúa og embættismanna borgarinnar. taki dæmi þá hefur íþróttafélagið hér átt í mikilli samkeppni um fólk við gömlu og rótgrónu félögin í Reykjavík og leikfélag hefur átt mjög erfitt upp- dráttar hér, eins og reyndar í fleiri sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu." Vaxtarverkir vegna örrar fjölgnnar Hvað erfiðleika í uppbyggingu varðar bendir Kristján Guðmundsson á að í Kópavogi var íbúa- ijölgun mjög ör um tíma sbr. að fyrir 50 árum vom innan við 100 íbúar skráðir á svæðið, þegar bærinn hlaut kaupstaðarréttindi 1955 var íbúatalan um 3.700 manns, en í dag búa í Kópavogi nálægt 14.600 íbúar. „Fjölgunin hefur verið jafnari í seinni tíð og ekkert nema gott um það að segja því hér vom vissir vaxtarverkir um tíma og bæjarfélagið leið fyrir öra ijölgun. Sem dæmi má geta þess að það gerðist nokkur haust að í þessu litla bæjarfé- iagi hófu fleiri böm gmnnskólanám en í Reykjavík," segir Kristján. 57% höfuðborgarsvæðisbúa í viðskiptum og þjónustu Um atvinnumál svæðisins er hér vitnað í greinar- gerð Skipulagsstofa höfuðborgarsvæðisins, „Drög að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 1985- 2005“, sem kom út árið 1985. Þar er fjallað um svæðið í heild og kemur fram að í lok ársins 1983 vom alls starfandi rúmlega 69.000 manns á höfuð- borgarsvæðinu, þar af 31.000 konur, en á sama tíma var íbúafjöldi svæðisins 128.000 íbúar. Hlutfallsleg skipting íbúa höfuðborgarsvæðisins eftir atvinnugreinum hefur breyst mikið síðustu tvo áratugina, starfsmönnum í sjávarútvegi, bygging- ariðnaði, samgöngum farið fækkandi, en aukning orðið á sviði viðskipta og þjónustu. f þeim greinum starfa nú um 57% allra virkra framteljanda á höfuð- borgarsvæðinu, en í svokölluðum fmmgreinum, sjávarútvegi og landbúnaði, aðéins um 3-4%. Til samanburðar starfa á landinu öllu 22% virkra fram- teljenda í fmmgreinum. Landbúnaður með hliðsjón af nálægð þéttbýlis En þess ber þó að geta að á höfuðborgarsvæðinu em staðir þar sem hefðbundin landbúnaðarstörf em nær eingöngu stunduð, þ.e. í Kjósar- og Kjalames- hreppum. Þar bera þau þó keim af nálægð við höfuðborgarsvæðið, eins og Jón Ólafsson, oddviti í Kjalamesshreppi bendir á. „Fyrir rúmum tuttugu ámm var hér mikil mjólkurframleiðsla, en þróunin hefur orðið sú að núna er mjólkurframleiðsla ekki í neinu mæli nema á fjórum bæjum og sauðijár- rækt eiginlega ekki nema á tveimur. Landbúnaðar- greinamar hér em t.d. eggjaframleiðsla, kjúklinga- framleiðsla og svínakjötsframleiðsla og þar njótum við góðs af nálægðinni við höfuðborgarsvæðið." Nauðsyn að skapa 13.000-21.000 ný atvinnutækifæri Um þróun atvinnumála á svæðinu segir m.a. í fyrmefndri greinargerð Skipulagsstofunnar með tilliti til áætlaðrar mannfjöldaþróunar á svæðinu verði þörf á að skapa á bilinu 13.000-21.000 ný atvinnutækifæri á höfuðborgarsvæðinu fram til ársins 2005. f því sambandi er tekið fram að líklega séu þessar tölur þó of lágar því að í framreikning- um hafi ekki verið gert ráð fyrir því að skapa þurfi ný atvinnutækifæri fyrir einstaklinga sem missa störf vegna aukinnar hagræðingar og sjálfvirkni í rekstri. í greinargerðinni kemur einnig fram að meðalQöldi atvinnulausra á svæðinu hefur á sl. tíu ámm verið 2.500 á ári. Svo áfram sé fjallað um atvinnumálin má geta þess að á vegum SSH er starfandi sameiginleg atvinnumálanefnd með það að meginmarkmiði að efla samvinnu sveitarfélaganna í atvinnumálum og bæta tengsl atvinnurekenda og launþega. Þá er ennfremur í bígerð að sveitarfélögin níu komi sér upp sameiginlegum iðnþróunarsjóði til að efla ný- sköpun í atvinnulífinu. Að halda í unga fólkið En þegar um er að ræða eitt atvinnusvæði og nær samfellda byggð, hvemig gengur sveitarfélög- unum í kringum Reykjavík að halda í sitt yngra fólk, sem m.a. sækir skóla sveitarfélaganna í milli og framhaldsmenntun að miklu leyti til borgarinnar? Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri í Garðabæ kveður bæjaryfirvöld hafa komið til móts við yngri bæjar- búa með aukinni úthlutun lóða fyrir íjölbýlishús á liðnum árum, sem og það að bærinn bauð yngri Garðbæingum einbýlishúsalóðir á lægra verði en annars. Hann telur ennfremur að nýi miðbærinn og aukið dagvistunarpláss hafi átt talsverðan þátt í að hvetja yngri Garðbæinga til áframhaldandi búsetu í bæjarfélaginu, en á sl. fjórum árum jókst íbúatalan upp í 6.000 þegar að um 2.500 manns settust að í bænum á meðan 1.700 fluttu burt, þannig að með fæðingum fjölgaði í bænum um 900 íbúa. Hann bendir einnig á að á sama tíma hafí atvinnufyrirtækjum fjölgað í bænum úr 30 í á milli 80—90 og það haft talsverð áhrif Frá Seltjamamesi er ekki ósvipaða sögu að segja, þar þótti ljóst fyrir nokkmm ámm að byggð- in væri orðin nokkuð einhæf og lítið úrval húsnæðis fyrir yngra fólk. Bæjarfélagið gerði þá samning við Byggung um byggingu fjölbýlishúsa og kveður Sigurgeir Sigurðsson það skipulag sem hófst fyrir um 10 ámm með markmiðið að ná yngra fólki í bæjarfélagið hafa tekist vel. Innfæddir hafa aðrar kenndir til bæjarins í Kópavogi hafa verið um langt skeið starfandi tvö byggingarsamvinnufélög og segir Kristján bæj- arstjóri að margir ungir Kópavogsbúar hafí notfært sér sem og að þeir sem sæki um lóðir í bænum núorðið séu mikið til Kópavogsbúar í húð og hár, þ.e. afkomendur þeirra sem fluttu í bæinn í kring- um 1950. „Böm þessa fólks em núna orðnir sjálf- stæðir einstaklingar með sínar fjölskyldur og em að koma til starfa á vegum bæjarins, jafnvel sem bæjarfulltrúar og það er alveg nýtt. Þetta fólk heftir líka allt aðrar kenndir til bæjarins." í Hafnarfírði hefur lítið borið á vandamálum af þessum toga og er algengt að Hafnfírðingar búi í bænum til frambúðar, hvort sem þeir stunda sína
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.