Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
Úr annálum
Þessa mynd málaði Jón Helgason biskup eftir ljósmynd af miðbænum, séð f rá
þaksvölunum á Glasgow, 1868.
Lifandi myndir
í Bárubúð
- Titra minna eríáður
(12.1.1906) „Lifandi myndir hafa
verið sýndar hér þtjú kvöld í Báru-
búð, og tekizt mjög vel, engu síður
en hjá hinum norsku, er sýndu hér
lifandi myndir í hittifyrra, og sumt
enda betur en hjá þeim. Húsfyllir
hefur verið þessi kvöld, sem sýning-
arnar hafa verið haldnar, og
skemmtunin þótt hin bezta. Það er
félag eitt hér í bænum, Ólafur John-
son og Co., sem stendur fyrir þessu
og hefur fengið myndirnar eða rúll-
urnar („filmur", sem kallaðar eru)
að láni frá útlöndum fyrir ákveðna
leigu um vissan tíma.
Uppfunding þessi, sem er ein af
uppfundingum Edisons, er tiltölu-
lega ný. A síðustu árum hefur
uppfundingin verið endurbætt mik-
ið, einkum í þá átt að gera myndirn-
ar skýrari og stöðugri fyrir augað,
enda titra þær nú langtum minna
en áður . (l!r Öldinni okkar)
167 sdlir heim-
ilisfastar
Með auglýsingu dagsettri 18.
ágúst 1786 var gefið fyi'irheit um
verslunarfrelsi, sem lengi hafði ver-
ið þráð af landsmönnum, en með
sömu auglýsingu var Reykjavík og
5 kaupstöðum öðrum veitt kaup-
staðarréttindi. Þegai’ auglýsingin
var útgefin vonj í Reykjavík 167
sálir heimilisfastar, en að meðtöldu
næsta umhverfi kaupstaðarins, er
taldist til Reykjavíkursóknar, voru
íbúarnir 302 (en á öllu landinu voru
íbúar alls 38.363).
Allur þorri íbúa hins væntanlega
kaupstaðar var verkafólk að ein-
hvetju leyti í þjónustu innrétting-
anna og alþýðufólk, sem lifði á
handafla sínum. Aðal virðingamað-
ur þorpsins var forstjóri konungs-
verslunarinnar og um leið innrétt-
inganna, Christian Sunehenberg og
næstir honum að virðingu voru tveir
„assistentar“ og hinn dansk/þýski
verkstjóri Giese. Um „mennta-
menn“ var alls ekki að ræða á
kaupstaðarlóðinni væntanlega aðra
en tugthúsráðsmanninn Guðmund
stúdent Vigfússon og Gunnar stúd-
ent Sigurðsson, fræðara tugthús-
limanna.
(Jón Helgason: Árbækur
Reykjavíkur 1786-1936)
Vafalaust
versti stað-
urinn á
íslandi
Henderson prestur enski dvaldi
í Reykjavík vetrarlangt 1814-15 og
átti fundi með nokkrum prestum
og veraldlegum embættismönnum
um stofnum biblíufélags. Um vetr-
ardvölina segir hann m.a. í ferðabók
sinni:
„Reykjavík er vafalaust versti
staðurinn á íslandi, er menn geta
dvalið í að vetrarlagi. Félagsbragur-
inn er hinn auvirðilegasti, sem
hugsast getur. Þar er samkomu-
staður ýmissa útlendinga, eru
flestir þeirra alveg ómenntaðir og
dveljast á íslandi aðeins í gróða-
skyni. 'Þar er ekki aðeins hörmuleg
auðn fyrir trúaða menn, heldur og
algjör vöntun á sérhverri upp-
sprettu andlegrar menntunar-. Þar
eru haldnir 2-3 dansleikir á hverjum
vetri og stundum leika helstu íbúar
sjónleika; í þessum tilgangi leggja
þeir undir sig yfirréttarhúsið og
flytja hiklaust bekki úr dómkirkj-
unni, til að eitthvað sé að setjast á.“
Jón Helgason: Árbækur
Reykjavíkur 1786-1936)
Leif s búð
(Auglýsing úr Þjóðólfi árið
1902)
„Komdu í Leifs búð: hann Leifur er þar
og leikur við sérhvem sinn fingur.
Við raðir af ostum og rúsinumar
og riklinginn glaður hann syngur.
Og „confect" hann selur með ástarbragð alt,
og epli og vínber hann hefur, ■
og trosið svo ágætt og „elegant" salt
hann alt að því fólkinu gefur.
Þar haframjöl knúsað á heiltunnum fæst
og hræðileg ósköp af kæfu,
eldhústau, leirtau svo Ijómandi glæst
og lifandi fimin af gæfu.
En gangir þú aleinn um örlagahjam
og ógni þér heimslífsins vígvél,
þá eignastu lítið og litfagurt bam:
hjá Leifí fást handa því stígvél".
Hjá Leifi fást skínandi kærleikans kort
um kandísin rauða ég segi,
að sá sem að etur hann elskar sport
og óvíst er bara’ að hann deyi.
Og stúlkumar hlæja og hvískra þar dátt,
á himneskum sætindum smjatta.
En strákamir bijóstsykur bryðja þar hátt
og botna ekkert í þessum skratta.
(Úr Öldinni okkar.)
jaaaifitiinioniKim
Dmttet
Borgarleikhúsið
REYKJAVK
1786-1986
Lentur
í Reykjavík
fann
Tæknisýninguna |
í Borgarleikhusinu
Byggingadeild
endurbyggíngu
tækniþjónustu
Byggino-
við H:
Borr
um nýbyggingu, viðhald og
veítir öðrum stotnunum
alarheimilis aldraðra
ýbyggingar fyrír
Þekkingargetraun
TÆKNISÝNING
REYKJAVÍKURBORGAR
OPIÐ KL. 5-22 í DAG 17. ÁGÚST
Fiarstýrðir bátar