Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 B 21 Ljósm.: Magnús Ólafsson Búðir haf a löngum verið margar og miklar í miðbæ Reykjavíkur. Hér sjáum við inn í Skóverslun Lárusar Lúðvíkssonar sem var við Banka- strætið, J»ar sem V erslunarbank- inn er nú til húsa. Lúðvik er sjáLfur á myndinni en verslun hans var ein stærsta sérverslun sem verið hefur á íslandi fyrr og síðar. á milli þeirra í bænum og tendraði á þeim á kvöldin. Síðar var byijað að leiða rafmagn í hús, menn bytjuðu á því að nota það til að lýsa upp húsakynni sín. Því næst tóku litlar rafmagnsplötur að ryðja sér til rúms á kostnað kolaeldavélanna. En þetta var hæg þróun og alveg fram í stríð, og jafnvel lengur, notuðu Reykvíking- ar kolaeldavélina til að elda sér mat á og að einhveiju leyti til að að hita upp hýbýli sín. Vatnið varð að bera í húsin „Og þá var nú ekki hlaupið í kranann að ná sér í vatn,“ segir Rósa. Það varð að sækja vatnið í vatnspósta sem voru nokkrir í bænum. Aðalbrunnurinn var Prent- smiðjupósturinn við Aðalstræti 9. Ýmist voru vatnsföturn- ar fluttar á handvögnum eða bomar á vatnsgrindum. Hægt var að leigja fólk til að ná í vatnið „og það voru bæði konur og karlar í því starfí þó erfitt væri“. En vegna þess að vatnið rann þá ekki jafn greiðlega um hús manna og það gerir núna voru kamrar á hvetju strái, sem ekki voru ýkja hátimbraðar byggingar. Inni í þeim var fata og tréskál umhverfis, yfir þessu var lok. Ákveðnir menn sáu um að tæma föturnar en þær voru losaðar í vagna „og ætli innihaldið hafí ekki verið notað sem áburður“, segir Rósa kímileit. Laugarnar Lengi vel var hvorki rafmagn né rennandi vatn í hús- um Reykvíkinga. Rafmagnstæki nútímans voru óþekkt og flest varð að gera í höndunum. Tæki til að þvo í þvott heyrðu framtíðinni til en líklega hefur enginn einn hlutur valdið viðlíka byltingu á heimilinu og einmitt þvottavélin, þessi staðreynd fer að vísu oft framhjá karlmönnum. Ég spyr því Rósu hvernig þessum málum hafí verið háttað í hennar ungdæmi? „Þá var farið í Laugarnar, svarar hún, sumir komu þangað gangandi með óhreina þvottinn á handbörum en aðrir keyrandi á hestvögnum. Það voru náttúrulega ein- hvetjir sem höfðu ráð á því að hita vatnið heima hjá sér og þurftu því ekki í Laugar en í fyrra stríði neyddust held ég flestir til að fara þangað með þvott því þá varð mikill hörgull á kolum hér.“ Það sem gerði Laugardalinn þá svona góðan þvotta- stað fyrir húsmæður Reykjavíkur og bóndabýlanna í kring, voru heitu uppspretturnar sem þar voru. Byggð höfðu verið tvö þvottahús á staðnum, inn í þau bar kven- fólkið heitt hveravatnið, þvegið var á bretti og sápan óspart notuð. Fyrir utan var kaldur lækur og þar var skolað úr þvottinum og síðan var hægt að hengja hann upp á grindur sem þarna voru. „Margir þvoðu af sér sjálf- ir en á staðnum var einnig sérstakt þvottafólk sem tók að sér þvotta gegn borgun.“ Þá var dansað í Gúttó Á ungdómsárum Rósu var Reykjavík lítið annað en miðbærinn, þó voru bæði Laugavegur og Hverfisgata farnar að teygja sig austur í bæ, en um þétta byggð austan lækjar var þó ekki að ræða. Við Aðalstræti voru verslanir í hverju húsi, mest voru það danskættaðir menn sem ráku þær. Tún voru á allar hendur og voru þau yfirleitt kölluð eftir eigendunum, svo sem Geirstún, bisk- upstún og Olsenstún. Dansað var í Gúttó, sem stóð þar sem bílastæði þing- manna er nú við Alþingishúsið, og í Bárunni við Vonar- stræti. Stundum var spilað undir á harmoníku og stundum sáu hljómsveitir um undirspil, „en ég var nú aldrei dug- leg að sækja þessa staði", segir Rósa. J.H. REYKJAVK ✓ / 1786-1986 □PEL GM m Við verðum með lokað frá hádegi 18. ágúst og tökum þátt ] í hátíðarhöldunum. | BiLVANGUR st= HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 DOUBLE RELAX psss*-, i*,, ■ “t:-..! Samú ski itstofiipi ýi)i Nú hefur aldeilis hlaupið á snœrið hjá skrifstofufólki. Þreytan er horfin og bakverkurinn líka - þökk sé nýja Dauphin skrifborðsstólnum. Þeir sem setjast í stól frá Dauphin kynnast ótrúlegri hönnun. Stólbakið heldur hryggsúiunni í réttri stöðu, líkaminn verður afslappaður og vinnan verður auðveldari í stól frá Dauphin. í Hljómbœ eru Dauphin skrifborðsstólarnir í fjölbreyftu úrvali, litafjöldinn er mikill og verðið er frá kr. 6,990.- Dauphin - stílhreinir stólar, sannkölluð skrifstofuprýði. DQUpHIN HLJOMBÆR HVERFISGÖTU 103, SlMI 28766
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.