Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 17. ÁGÚST 1986
m » 35
KROSSGÁTA
Bt'oMH V 5 u ■ Urflfl flF Ll K- H LUT- flNK sreftM V óRfiP 1 R. ■ skvm rRfí '*• o\) ^0V hfítmr. HluPU L| P Pl lL WIH91 V Ú.ÐI 'outf ai- ftR 'of«- -rVfiK m $ KflRnflí,® /éJN f: fvu-
J1 1
/ fl’O' •f'iÐ' ifl imuf, ffltfld V 5fftú ufi. /4 j w
ÍKflí’Uf’. SBRfllt > ► n MeitJ- 1R fíF&AoT- \Ð
i/eim
*—*\ VitróN- uRrJflR. v 'flrr tflPB
ReiÐI- hlíó 0
HÚ5S PoGiÐ
eonm EX k' + P'iHTíf, N /• > R IMH- 5RKK-- I 1 ftT- LÖÓU
FlfU/Ni- KflFM 1 UlTltlN VREM - /dflN'líS AíflFN Dýrz URÚ
CÁLU<i((- R S Kffwn h > > —Y— ErJDifh rp'- HLJ.
WT SflMflLl. te/JtuF
ró'AD ÍKTdTuft vCirfl .. ífT irfoR
'i mm (K.) úei-T DRim KL«f- ivJM c,ue + '05R0 + quf> > > / >
KIULDI?- 1 R ÍKKI SfiMHDl M'h ð y Lr ND íW1’ C,£LT íflMHLX. • V » 1 LQV
MfieuR. LK MV-. Npflf (f* SÉÍSTfllC- ufl Rciru/ aRyprfl
r'/ m i 5\/R fc- PRÍifl V úuf>s
PPVKK- U R.
SrÚLKfl \ÍEl?tfl
Kt^ X eir/S K v £ N- /vflFN ) líuuu í? BWJ 1 Ð Hei%k fpz- SEThl- IFIfí Tv’iHlJ. —v— siom- flNM
sriur, Kun/JR- R- R Ktm
VoPbí- IP semtiLj. ríkTTfíST, > i HeÓFLR v 1 €?
L.IKOI- IPó<N
SK<,r. jKEr^MS> ) r/R FRKeut HflOuR +5flMflo: > P/E KW LR N D Kf Stgkk- u m
R’lKfí 'fl FF- ÓRflól
If,o- sr- \K9\ Þ ÖK K u -> V SflPHUT
fe 0 [ífrl?l
retflá L->
—> —> ÝífR- n&iR J>/z SUKK
t iMK'fí Nlii7flfl<
FpR'H brrí, Hirp
i fl V- ýeflflii- írflFi< SK IP U L'i nl fl Tfieffjp * > i/ V Uv'iLÞ
BflRR VIKDUR
r< o Friflífl- * i flm«a.
/° nmz
ruui- IM rj + Foft - > | k H/VDP-
AP/Simamynd
Benazir Bhutto, einn helsti leiðtogi stjórnarandstæðinga í Pakistan, hefur verið dæmd í 30 daga fang-
elsi fyrir að hvetja til uppþota. Hún var handtekin á fimmtudag og sýnir myndin hvar henni er ekið á brott
í Iögreglubíl.
Pakístan:
Uppþot og átök víða um landið
Sri Lanka:
Viðræður við
tamíla hafnar
Colombo, Sri Lanka, AP.
SEINNI lota samningaviðræðna
hófsamra tamíla og Juníusar
Jaywardene, forseta Sri Lanka,
hófust í gær. Að sögn ónafn-
greindra heimildarmanna verður
krafa tamila um sameiningu hér-
aða í norður- og austurhluta
landsins einkum til umræðu.
Tamílar eru í miklum meirihluta
í norðurhéruðunum en hinir ýmsu
kynþættir byggja austurhlutann.
Tamílar krefjast þess að svæðin verði
sameinuð og að tunga þeirra verði
lögleidd þar.
Líklegt er talið að stjórnvöld geti
fellt sig við þessa hugmynd um sam-
einingu að því tilskyldu að svæðið
taki eingöngu til þeirra þorpa eystri
hlutans, sem tamílar byggja. Shin-
halesar í eystri hlutanum eru öldung-
is andvígir sameiningu við tamfla á
norðurhluta eyjarinnar. Múhameðs-
trúarmenn sem byggja eystri hlutann
munu ekki vera á eitt sáttir hvað
varðar sameininguna.
16 milljónir manna búa á Sri
Lanka og eru tamflar 16% þjóðarinn-
ar. Tamflar hafa krafist sjálfsstjómar
á norðurhluta eyjarinnar og hafa
hryðjuverkamenn úr þeirra röðum
látið til sín taka í fjölmörgum hémð-
um.
Stjómvöld vonast til að friðarvið-
ræðumar verði til þess að tamflar
láti af kröfum sínum um aðskilnað
og sjálfsstjóm og að endir verði
bundinn á hryðjuverkastarfsemi
þeirra.
Suður-Kórea:
Pólitískir fangar fá frelsi
Lahore, Pakistan, AP.
MIKLAR óeirðir urðu í Pakistan
annan daginn í röð eftir að
stjórnarandstæðingar höfðu
hvatt landsmenn til að efna til
mótmæla gegn stjómvöldum. í
borginni Phatta í suðurhluta
landsins létust fjórir menn í skot-
bardaga eftir að óeirðalögregla
hafði sundrað fjölmennri göngu
stjómarandstæðinga.Tveir
mannanna eru taldir í lífshættu.
í Karachi, höfuðborg Pakistan,
komu stjómarandstæðingar upp
götuvígum oggrýttu lögreglumenn,
sem svömðu árásinni með táragas-
sprengjum.
Þeir leiðtogar stjómarandstöð-
unnar sem em í felum hvöttu til
allsheijarverkfalls og hermdu frétt-
ir að fjölmargir verslunareigendur
í Karachi hefðu lokað verslunum
sínum.
Múgur og margmenni réðst gegn
opinbemm byggingum í Phatta og
kveikti í þeim. Fólkinu tókst að
frelsa 24 andspyrnumenn úr fang-
elsi og að því loknu var kveikt í
byggingunni.
Stjómarandstæðingar hafa gefið
Zia UL-Haq frest þar til 20. septem-
ber til að láta af völdum. Að sögn
ónafngreindra heimildarmanna
hafa leiðtogar andspyrnuhreyfing-
arinnar átt fundi þar sem frekari
aðgerðir gegn stjóm forsetans hafa
verið ræddar.
Zia UL-Haq hefur sagt að ekki
verði boðað til kosninga fyrr en
árið 1990. Benazir Bhutto, helsti
leiðtogi andspymumanna, situr nú
í fangelsi þar sem hún afplánar 30
daga dóm fyrir að hafa hvatt til
uppþota.
Seoul, Suður-Kóreu, AP.
STJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu
sögðu á miðvikudag að 885
pólitískir fangar yrðu látnir lausir
í tilefni þess að 41 ár er Iiðið frá
því landið fékk sjálfstæði frá Jap-
an. I þessum hópi eru 46 andófs-
menn, sem stjómvöld telja halla
undir kommúníska hugmynda-
fræði.
í tilkynningu frá dómsmálaráðu-
neytinu sagði að þetta væri gert „í
nafni þjóðarsáttar".
Lýðræðisflokkurinn, flokkur Chun
Doo-Hwan, forseta Suður-Kóreu, og
stjómarandstöðuflokkamir gerðu
nýlega með sér samkomulag um drög
að nýiri stjómarskrá þar sem einkum
er miðað að breytingum í lýðræðisátt.
í tilkynningu dómsmálaráðuneyt-
isins sagði ennfremur að „róttækum“
námsmönnum, sem andmælt hefðu
stefnu stjómvalda eða tekið opin-
berar byggingar á sitt vald, yrði
ekki sleppt úr haldi.