Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 38
38 'B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 Hvað segir landsbyggðarfólk um höfuðborgina? Einar Baldursson Einar Baldursson Reyðarfirði: Borgarríki við Faxaflóa veikir þjóðina Reydarfirði. „ÉG ER nokkuð stoltur af okkar höfuðborg-, þó hún mætti vera ögn hlýlegri og persónulegri. Þó hefur hún tekið miklum stakkaskiptum síðustu ár og má þar nefna göngu- götur og ýmis opin svæði, sem eru til fyrirmyndar,“ sagði Einar Bald- ursson framkvæmdastjóri á Reyð- arfn'ði. Einar ræddi fyrst nokkuð um byggingastíl og skipulagsmál í Reykjavík og sagði m.a.: „Maður saknar þess óneitanlega að eiga ekki merkilegri arf frá fyrri öldum og verður oft hugsað til þess, þegar maður skoðar margra alda gamlar byggingar erlendis sem fátt virðist geta grandað. Annars, ef litið er yfir borgina og byggingastíllinn skoðaður virðist mér hann ansi fjöl- breytilegur, eða jafnln-eytilegur, og það eru margar fallegar byggingar í Reykjavík. Hvað varðar skipulags- mál almennt, finnst mér byggðin alltof dreifð og óskipuleg. Það er eins og skipulagt hafi verið frá ári til árs og að skipulagsyfírvöld hafi ekki verið nógu framsýn." Um atvinnulífið sagði hann: „At- vinnulífið í borginni snýst fyrst og fremst um verslun og þjónustu, enda hefur borgin byggst upp sem aðal verslunar- og þjónustumiðstiið þjóðarinnar. Aðrar atvinnugreinar í borginni svo sem sjávarútvegur og iðnaður virðast frekar eiga und- ir högg að sækja. Það er skoðun mín, að það styrki þjóðina að eiga sterka höfuðborg, en við skulum líka gæta þess að hún vaxi okkur ekki yfir höfuð, því það veikir þjóð- ina ef upp rís borgríki við Faxaflóa og þá er hætt við að myndist menn- ingargjá í okkar ágæta landi. Yfirbyggingin má ekki verða ofviða undirstöðunni, þá rúllar allt um koll. Kannski erum við að nálgast þau hættumörk, það hefur verið óeðlilega mikill straumur fólks á suðvesturhornið." Einar sagði að lokum: „Ég vil leggja ríka áherslu á það, að þetta er höfuðborg okkar landsmanna allra og við viljum eiga skemmtilega borg, sem okkur þykir gaman að heimsækja og sem við minnumst með hlýhug. Því þykir okkur það mjög miður, þegar við lesum um það í blöðum og hlustum á íbúa borgarinnar fara heldur niðrandi orðum um okkur landsbyggðarfólk og það sem við erum að gera. Við skulum aldrei gleyma því að langstærstur hluti verðmætasköp- unar þjóðarinnar fer fram úti á landsbyggðinni og þar er og verður undirstaða velferðar í þessu þjóð- félagi. Góðir Reykvíkingar. Við skulum áfram sem hingað til lifa sem ein þjóð í einu landi og að lokum vil ég óska ykkur og öllum landsmönn- um til hamingju með borgina okkar.“ — Gréta Sveinn Isleifsson, Hvolsvelli Hver vill kanínuhúsí steiniístað frjálsræðis í þorpi? „ÞAÐ finnst mér dæmigert fyrir hraða uppbyggingu Reykjavíkur, að þegar ég fékk bílprófið mitt árið 1940 náði bundið slitlag ekki inn að Elliðaám. Mig minnir að það hafi náð inn að Steinhlíð. Þá var heldur ekkert sem hét að slá af á leiðinni upp Kamba. Nú er bundið slitlag alla leið frá miðbæ Reykjavíkur og heim að dyrum og maður getur þurft að slá af á leið upp Kambana," sagði Sveinn ísleifsson varðstjóri á Hvolsvelli, er blaðamaður ræddi við hann á skrif- stofu hans í nýju og glæsilegu húsnæði lögreglunnar á Hvolsvell. Um afstöðu sína til Reykjavíkur sagði hann m.a.: „Ég hef litið á hana sem okkar höfuðborg, en við töpum mikið af fólki þangað og höfum gert, aðallega vegna at- vinnutækifæra. Sérstaklega flytur fólk af láglaunasvæðunum. Þá er annað með Reykjavík, sem hefur verið alvarlegt mál, en það er að fullorðið fólk hefur verið svo að segja sent í geymslu til Reykjavík- ur. Borgin situr uppi með mikið af gömlu fólki. Þar hefur helst verið að fá þjónustu fyrir fullorðið fólk, en ég vonast til að þetta sé að breyt- ast. Það er til dæmls komin aðstaða bæði hér og á Hellu fyrir gamia fólkið, þannig að það getur dvalið áfram í sinni heimabyggð, ef það vill.“ Sveinn var spurður, hvort hann gæti hugsað sér að flytjast á mölina og eyða elliárunum í Reykjavík, þegar þar að kæmi. Hann svaraði: „Ég hef hugleitt það að flytjast til Reykjavíkur og hef átt kost á þvi. Ég hóf störf hér hjá Kaupfélaginu 1941 og annaðist allar tegundir aksturs milli Reykjavíkur og Hvols- vallar allt til 1962, er ég hóf störf í lögreglunni hér. í akstrinum kynntist ég Reykjavíkurborg vel. Mér fannst alltaf ágætt að koma þangað en ég er heimakær og mér h'ður best heima. Hvað varðar það að eyða ævi- kvöldinu í Reykjavík, þá er svo margt ódýrara þar en hér, til dæm- is verzlun, orka, þ.e. hitaveitan og fleira. En það er annað sem kemur þarna inn í dæmið. Þegar fólk vill fara að minnka við sig íbúðar- húsnæðið, það er fara úr stóru í minna þegar börnin eru flogin, þá eru nú fyrst sæmilegir möguleikar á skiptum hér heima. Ef maður selur gott einbýlishús hér, á einka- lóð með grónum garði, fengi maður aðeins tveggja herbergja íbúð í blokk í Reykjavík í staðinn. Hver vili skipta á kanínuhúsi í steini á malbiki fyrir frjálsræði í náttúrunni hér heima og í þorpum yfirleitt. - Ekki ég.“ Það er þvi nokkuð ljost sagði Sveinn, að hann flytur ekki til Reykjavíkur, ef hann kemst hjá því. Reykvíkinga sagði hann engan veginn öðru vísi en aðra lands- menn, hann ætti marga góða vini í Reykjavík og liti á þá nákvæmlega eins og aðra íslendinga. Afmælis- ósk til handa Reykaík sagði hann þá, að hún fengi að dafna áfram um ókomin ár og halda sínu striki sem höfuðborg. Hann sagði að lok- um: „Mér þykir í aðra röndina vænt um Reykjavík. Konan mín er það- an. Hún kom til vinnu í kaupfélag- inu hérna og þaðan fékk ég hana eins og allt annað gott sem ég hef fengið þar,“ sagði hann að lokum og brosti, augljóslega að frekari minningum sem hann riQaði upp með sjálfum sér. GuðmundurA. Hólmgeirsson, Húsavík: Kjördæmin fái sjálfræði og stofnanir færð- arútáland „Landsbyggðin ber án efa skarð- •an hlut frá borði miðað við Reykjavík, en hinsvegar er eðlilegt að fólk sæki í þjónustugreinarnar til Reykjavíkur þar sem þær virðast betur launaðar en hefðbundnar at- vinnugreinar okkar, en í raun eiga þær ekki að vera það,“ sagði Guð- mundur A. Hólmgeirsson, skipstjóri á Húsavík. „Atvinnutækifæri eru af skorn- um skammti úti á landi, en ef svo bregður við að litlu staðina vantar fjármagn til nýsköpunar atvinnulífs eða annarra framkvæmda þarf að ganga á milli manna og stofnana í Morgunblaðiö/Jóhanna Guðmundur A. Hólmgeirsson Reykjavík til að biðja um það fjár- magn sem að mestum hluta hefur skapast úti á landi. Sjómennskan er ekki eftirsóknarverð, en hún verður að vera það þar sem fiskút- flutningur er 80% af heildarútflutn- ingi landsmanna. Þingmenn einir eru ábyrgir fyrir þróun mála hér og finnst mér að skylda ætti þá til að eiga lögheimili í sínum eigin kjördæmum svo þeir gerðu sér betur grein fyrir ástandi mála á þeim stöðum sem J)eir eiga að vera að vinna fyrir. Ég tel að undirstöðuatvinnuvegirnir ættu að eiga fleiri fulltrúa inni á þingi en raunin er. Þá finnst mér að færa mætti opinberar stofnanir út á land enda ekkert skilyrði að þær séu allar í Reykjavík og fáránlegt að bera því við að ekki sé til starfsfólk annars staðar. Akureyri er t.d. höfuðstaður Norðurlands og væri vel athugandi að færa stofnanir þangað sbr. Byggðastofnun eins og um var rætt fyrir stuttu, en tveir þingmenn dreifbýlisins, sem í orði telja sig a.m.k. fulltrúa þess, greiddu at- kvæði gegn tillögunni. Höfuðborgin er allt of áhrifamik- il viðvíkjandi uppbyggingu úti á landi. Kjördæmin þurfa sjálf að fá að ráðstafa sínum tekjum - þeim tekjum sem þau sjálf hafa aflað. Það er bókstaflega öllu miðstýrt frá Reykjavík og atvinnuuppbygging strandar á fjármagni. Þá virðast útibússtjórar bankanna úti á landi áhrifalitlir þegar á reynir. Að öðru leyti er ég sáttur við Reykjavík sem höfuðborg, sögu hennar, fegurð og legu. Úr annálum Skylduvinna og góðgerðir Á fundi 27. apríl 1843 var sett gjaldskrá um leigu á hestvögnum og aktygjum, er bærinn átti og voru notuð við vegagerð. Leigan var nokkuð hærri, ef hestamir fylgdu með. Þá var einnig ákveðin leiga fyrir hjólbörur bæjar- gjaldkera (Kæmneriets Trillebörer. Annars var ákveðið 1839, að vegagerð væri skyldu- vinna, og þá settar reglur um, hvernig skylduvinna yrði leyst af hendi. Bæjarstjórn ákvað aftur 1845 samkvæmt áskorunarskjali frá bæjar- búum, að skylduvinnu yrði hætt, en í þess stað skyldu matsborgarar jafna niður á borgarbúa kostnaði við vega- gerðina. Eitthvað virðist þó hafa verið gert til að gera skyldu- vinnuna fýsilegri, því að 1843 er samþykkt í bæjar- stjóm, að eUci skuli „aftaka n\éð', ö)litrjn\néSr svonefndu gððE^gði^jj^.afebanai’ *víð þessá vínml;" Tíelcfur' tak: marka þær nokkuð. Verða lesendur að geta sér þess til, í hverju þessar „góðgerðir" hafa verið fólgnar. Dræm fundasókn Boðað var til borgarafund- ar 7. september 1859 samkvæmt fyrirmælum stiftamtmanns til að ræða það, hvort setja eigi einn næturvörð til viðbótar eins og bæjarstjórnin hafði sam- þykkt. Þótt fundurinn væri boð- aður bæði með auglýsingu og tmmbuslætti á götum bæjarins, hafði það ekki til- ætluð áhrif. Fundinn sóttu auk bæjarfógeta fjórir bæj- arfulltrúar og þrír borgarar. Eftir nokkrar umræður samþykktu borgaramir þrír þá ályktun bæjarstjórnar að ráða skyldi næturvörð. Ekki taldi stiftamtmaður nóg að gert, því að hann vildi, að ýtarlegri umræður færu fram um málið á borjgara- v fundi. Var fundMf,-! ,því Ixiðaður aftuc*?. ókfób?k>. Ekki var hann' fjofisrfttdía* en fyrri fundurinn, því að nú komu aðeins til fundar settur bæjarfógeti og tveir bæjar- fulltrúar. Enginn borgari mætti. Var beðið í klukku- tíma, áður en fundi væri slitið. Bæjarsjóðurinn í læstri kistu Nokkur sérstæð ákvæði vom (í reglugerð 1846) um varðveizlu á bæjarsjóðnum. Hann skyldi geymdur í vel læstri kistu, sem bæjargjald- keri varðveitti. Fyrir kistunni áttu að vera þijár læsingar, hver með sínu móti; skyldi bæjarfógeti hafa lykil að einni, bæjargjaldkeri að ann- arri og sérstaklega kjörinn bæjarfulltrúi hinn þriðja. Heinúlt var þó, að bæjar- gjaldkeri hefði í vörzlum sínum allt að 100 ríkisdali utan kistu til að inna af hendi minni háttar greiðslur. Ávís- anir á bæjarsjóð skyldu undirritaðar af bæjarfógeta •ogæinuip bæjarfulltrúa. Bæj- ,--árstjómin . rátti ■ að K. Igösa' 'Væjárgjaídfcera. Mykjuhaug-urinn í Hafnarstræti Ditlev Thomsen kaup- maður var kosinn í bæjar- stjóm 1856. Árið 1854 hafði komið til ágreinings milli hans og bæjarfógeta út af mykju- haugi kaupmanns í Hafnar- stræti. Þrútnaði af þessu mikil óvild þeirra milli. Þijózkaðist kaupmaður við að íjarlægja hauginn, þótt fyrirskipað væri, og hafði uppi miður góð orð um bæjarfógeta. Var þá höfðað opinbert mál gegn honum. Er honum þá vikið úr bæjarstjórn um stundar- sakir ... (Páll Líndal.) Hverf isgata af Skuggahverfi HVERFISGATA dregur nafn sitt af Skuggahverfi, en svo var um skcið kölluð öll byggðin frá Arnarhóli inn að Rauðará. Þetta er fyrsta gatan, sem gerð var' sarm hliða„-. jSáfil&íftræíi Laugavegí og áttrað v&ð'a aðalgatan austur úr bænum. Byggðist fyrst við Hverf- isgötu inni í Skuggahverfi, en nokkuð stóð á því að hún fengist framlengd yfír Am- arhólstúnið. Þar sem hún liggur yfír gömlu Arnar- hólstraðirnar var fyrsta húsið reist við framlenging- una að norðaverðu — Landsbókasafnið. Hafnarstræti dregur auð- vitað nafn sitt af höfninni, en fyrst hét Hafnarstræti Rebslagerbanen, vegna þess að þar höfðu verksmiðjurnar kaðalsnúning. Sumir halda og að það hafí einu sinni verið kallað Tværgaden, en það nafn hygg ég að hafí verið á vesturendanum á Austurstræti upphaflega. Lengi hét gatan svo Strandgaden og síðar Strandgata. Skuggsjá Reykjavíkur eft- ir Árna Óla Ur bæ í borg REYK.IAVÍK breyttist form- 'Jega úr bæ ; í borg með ,'JsVjjitórsl!j4f7fái|Ögunum ft;á 1058 tií 1961serh tóku gildi 1. janúar 1962. Þar segir að framvegis skuli í stað bæjar- stjórnar heita borgarstjórn og í stað bæjarfulltrúa borg- arfulltrúar o.s.frv. Allt frá árinu 1908 hafði þó verið borgarstjóri við völd hér í Reykjavík, en ekki bæjarstjóri. Talið er að það hafi komið úr dönsku, „borg- mester“. Þá var allt frá árinu 1930 til „eftirlaunasjóður starfsmanna Reykjavíkur- borgar“, eins voru til borgar- ritari og borgarlæknir fyrir setningu sveitarstjórnarlag- anna 1962. Þrátt fyrir þessa breytingu er enn í dag talað um bæjarútgerð og reyndar er enn talað um bæjarþing, en þetta tvennt mun vera það eina sem ekki breyttist. Um það hvenær Reykjavík var talin höfuðborg eru fræðimenn sammála um að erfitt sé að miða við einn ákveðinn tíma, en ljóst er að litið hefur verið á Reykjavík sem höfuðborg mjög lengi. ’ Árið 1771 er í tillögu lands- . nefndar; sem starfaði 1770_ til 17Tl,'.rætL unj'að’gép Reykjavík að höfuðstað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.