Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 53
MORpUNBL^AÐlÐ, SUyNUPAGUR tf, ÁQý§T, 1886,
m m
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 11-12
FRÁMÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
REYKJAVIK200ARA
"» 1786-1986
Þessir hringdu . . .
Þættirnir „Á
hringveginum“ ekki
nógu vandaðir
Unnur á Akureyri hringdi:
„Ég hringi vegna þáttanna Á
hringveginum sem eru á dagskrá
rásar eitt.
Mér finnst hugmyndin að þess-
um þáttum góð og hef ég hlustað
á marga þáttanna. Það er at-
hyglisvert að reynt skuli að ná til
almennings með þessum hætti.
Þó finnst mér einn galli á gjöf
Njarðar. Stjórnendur þáttanna
mættu sýna meiri smekkvísi í
vali á spumingum og orðavali.
Spurningarnar eru oft út í bláinn
og málfar kjánalegt og leiðinlegt.
Þótt mér finnist framlag Önnu
Ringsted oft að mörgu leyti lífiegt
og skemmtilegt mætti hún sér-
staklega taka sig á að þessu leyti.
I heildina finnst mér ekki nógu
vel unnið úr þessari annars góðu
hugmynd og mættu þættirnir
gjaman vera vandaðri."
Sogsvegur
nánast ófær
Þreyttur ekkill skrifar:
„Ég get nú ekki lengur orða
bundist yfir því hve Sogsvegur
er hræðilegur. Hann er nánast
ófær.
Það virðist ekki vera unnið
neitt markvisst að því að halda
veginum þannig að hann sé fær
venjulegum bílum. Núna er hann
með allra versta móti, holóttur
og hulinn rykmekki ef minnsta
umferð er um veginn.
Ég hringdi í umdæmisstjóra
Vegagerðarinnar og hann tjáði
mér að vegurinn yrði ekki heflað-
ur fyrr en eftir nokkra daga.
Það verður varla unað við þetta
miklu lengur."
Guðmundur G.
Bárðarson var
Strandamaður
Gunnars um Guðmund G. Bárðar-
son jarðfræðing og menntaskóla-
kennara, sem hann telur hafa
haft mikil áhrif á sig á námsárun-
um. Hann segir: „Ég var oft með
Guðmundi Bárðarsyni. Hann var
einn af frumkvöðlum jarðfræði á
Islandi. Hann var bóndi norðan
úr Húnavatnssýslu." Hann minnt-
ist með hlýhug bóndans úr
Húnavatnssýslu sem kenndi hon-
um að „hugsa eins og jai-ðfræð-
ingur“. Þar sem heimilda er getið
er ávallt rétt að hafa það sem
sannara reynist.
Guðmundur G. Bárðarson var
ekki Húnvetningur, heldur
Strandamaður. Borinn og bam-
fæddur að Kollafjarðarnesi í
Steingrímsfirði 3. janúar 1880.
Foreldrar hans voru rótgrónir
Vestfirðingar.
Þau fluttu skömmu síðar að
Bæ í Hrútafirði í Strandasýslu þar
sem Guðmundur komst til vits og
þroska. Þótt ekki sé þessi missögn
saknæm frá almennu sjónarmiði,
þá er nú samt rétt að leiðrétta
hana „í vísindaskyni" og ekki síst
fyrir þá sök að ekki veitir Stranda-
mönnum af að halda til haga þeim
frægðarmönnum sem þeir hafa
eignast. Húnvetningar eiga nógu
marga fyrir. Þeir munu löngu
hættir að hagræða eyrnamörkum
annarra sér til hagsbóta og ekki
er það þeirra sök þótt hagrætt sé
eyrnamarki Guðmundar G. Bárð-
arsonar þeim í hag.
Liðinn er sá tími þegar mikil
freisting var að breyta marki
sauðkindarinnar. Hún er nú til
fárra fiska metin. Hvað verður
nú um hana vesalinginn? Lifir hún
af árásii' Alþýðuflokksins og DV?
Og nú er hvalurinn genginn í
fjandaflokkinn, hvar endar þetta?
„Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber“
verður eyrnamarki Guðmundar
G. Bárðarsonar ekki breytt."
Úr týndist í
Þórskaffi
Þorsteinn hringdi:
„Laugardaginn 9. ágúst fór ég
á ball í Þórscafé og þar varð ég
fyrir því óláni að ólin á Pierpoint-
úri sem ég var með slitnaði og
úrið datt af. Þetta hefur líklega
gerst á meðan ég var á dans-
gólfínu á neðri hæðinni.
Finnandi er vinsamlega beðinn
að hringja í síma 672078.“
Strandamaður hringdi:
„Föstudaginn áttunda þessa
mánaðar skrifa Sigrún Guð-
mundsdóttir og Jón Steinar
Guðmundsson grein í tilefni af
sjötugsafmæli Gunnars Böðvars-
sonar verkfræðings.
Þar vitna þau til ummæla
Eru vegirnir á
Snæfellsnesi
friðlýstir?
Kristín Þórðardóttir hringdi:
„í Morgunblaðinu miðvikudag-
inn 13. ágúst var frétt um að sjö
slys hefðu orðið á veginum frá
Vegamótum í Miklaholtshreppi að
Ólafsvík á síðustu tveimur mánuð-
um vegna slæms ástands vegar-
ins.
Ég keyrði þennan veg um
síðustu helgi og get ekki orða
bundist yfír því hve hræðilegur
hann er. Það er ekki mönnum
bjóðandi að keyra þetta. Þessum
moldartroðningi ætti að loka hið
snarasta.
I fréttinni var haft eftir lög-
regluvarðstjóra að sum slysanna
hefðu orðið vegna hraðaksturs en
ég get nú ómögulega skilið það.
Það er gjörsamlega ómögulegt að
aka hratt á þessum vegi.
Mér finnst Snæfellsnesið sífellt
verða útundan þegar unnið er að
vegaframkvæmdum. Hvernig er
það, eru vegirnir á Snæfellsnesi
með öllum sínum holum og
hryggjum kannski friðlýstir?
Mér fínnst að vegamálastjóri
og þingmenn ættu að taka sig til
og skoða þessi ósköp, þá fengjust
þeir kannski til að gera eitthvað
í málunum. Eða verðum við
kannski að bíða eftir því að stjórn-
málamennimir þurfi á atkvæðun-
um okkar að halda? Þá stendur
nú ekki á loforðunum."
Verið með sýnis-
horn af bleyjunum
Bleyjukaupandi hringdi:
„Mig langar til að skora á allar
verslanir sem versla með bleyjur
að láta liggja frammi sýnishorn
af bleyjunum. Það getur orðið
ansi dýrt að kaupa pakka með
kannski 30 eða 40 bleyjum til
þess eins að komast að því að þær
eru alveg ómögulegar. Það eru
ekki nægar upplýsingar utan á
kössunum, þar stendur yfirleitt
bara fyrir hve þung böm bleyjurn-
ar eru ætlaðar."
Gvendur fyrir
gríttaher...
Þorvaldur hringdi:
„Ég var að lesa Velvakanda í
Morgunblaðinu miðvikudaginn
13. ágúst og sá þá vísu sem byij-
ar Gvendur á undan Gústa
er . . . Þama er rangt farið með
vísuna enda er hún merkingarlaus
eins og hún stendur í blaðinu.
Rétt er hún á þessa leið:
Gvendur fyrir gúttaher
gekk og bar sinn klafa
af því að hann á eftir sér
enginn vildi hafa.
Svona birtist hún til dæmis í
vísnasafni Jóhanns frá Flögu fyrir
þetta 20 til 30 árum.“
Gráu DBS-
hjóli stolið
Móðir í Vesturbergi skrifar:
„Fyrir skömmu var nýlegu, gráu
DBS-karlmannshjóli stolið úr hjóla-
geymslu íjölbýlishúss við Vestur-
berg í Breiðholti.
Um leið og ég vil biðja fólk sem
gæti gefíð einhveijar upplýsingar
um hjólið að hringja í síma 77922,
vil ég vara við því að hafa hjóla-
geymslur opnar því að ósvífni
sumra eru engin takmörk sett.
í þessu tilfelli var hjólið læst og
innst í geymslunni af 10 til 15 hjól-
um.
Þetta er sárt fyrir eigandann því
hann keypti þetta hjól fyrir ferm-
ingarpeningana sína.
Með von um að einhver sjái að
sér og skili hjólinu á sinn stað.“
Vísa vikunnar
Berlínar-
múrinn 25 ára1
Amorgun er aldarfjórð-
ungur liðinn frá þvi
| stjómvöld í Austur-Þýska-
landi hófu að reisa Berlínar-
múrinn til þess að koma í veg
fyrir, að þau sætu uppi með
ríki án þegna. En um leið og
bau lokuðu '
hluta til, að Austur-Þjóðveij-
ar hafa síðustu misserin haft I
milligöngu um að hleypa tug-1
um þúsunda flóttamanna frá I
Asíu og Afríku til Vestur-1
Þýskalands um Berlfn, en
austur-þýska ríkisflugféíagið |
er talið hafa hagnast vem
Kommúnistamúrinn himinhár
hefir kostað mörg og bitur tár.
Þar hefir fjöldi hnigið niður nár,
í nánd við frelsið hlotið banasár.
Hákur
Oskum borgarbúum og
landslýð öllum til ham-
ingju með afmælið.
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
HÚS VERSLUNARINNAR
108 REYKJAVÍK, SÍMI 83088
NOTAÐAR
VINNUVÉLAR
ATLAS 1702 hjólagrafa árgerð '78, gott útlit, 2
skóflur fylgja, greiðsluskilmálar.
CAT D4E jarðýta árgerð 1982 og 1984 með rippi-
er, skekkjanlegri tönn, tilt, rops hús. Mjög góðar
vélar, greiðsluskilmálar.
950 B hjólaskófla með öllum besta búnaði, ár-
gerð 1985. Greiðsluskilmálar.
Uppl. í véladeild.
Sími 695500.
Electrol ux
Electrolux
0] Electrol ux
MEÐ MAGNINNKAUPUM FENGUM VIÐ
NÆR 40% AFSLÁTT AF ELECTROLUX
BW 200 KING UPPÞVOTTAVÉLUM.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, hljóðlát — full-
komin þvottakerfi — öflugar vatnsdælur sem þvo úr 100
lítrum á mínútu — þrefalt yfirfallsöryggi — ryðfrítt 18/8 stál
í þvottahólfi — barnalæsing — rúmar borðbúnað fyrir
? 12—14 manns. A l
ELECTROLUX BW 200 KING uppþvottavél á verði
5 sem þú trúir varla — og ekkert vit er í afl sleppa.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1a. Sími 91-686117.