Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 54
54 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 17. ÁGÚST 1986 4 Fólk myndað með falinni Hér hefur maður farið í búning og þykist vera api, sem á það til að þrifa í fólk. Viðbrögð veg- farenda eru hin ótrúlegustu. Allir hlógu sig máttlausa þegar þeir sáu Funny People eitt og tvö, myndirnar sem teknar voru með „faldri“ myndavél. Innan tíðar verður sýnd ein slík mynd í Bíóhöllinni, á ensku nefnist hún „You’re in the Movies" og ereftir Emil Nofal og ertekin í Suður-Afríku. Þarfá hvítir menn, svertingjar og nokkrar dýrategundir að spreyta sig fyrir framan myndavélina, án þess að hafa hugmynd um það. Nofal og félagar komu myndavélinni fyrir á ótrúlegustu stöðum, fundu upp á skrýtnum uppátækjum til þess eins að kanna viðbrögð fórnarlamb- anna. Þegar vel tókst fékk myndavél að ganga mínútum saman, en Nofal valdi þá aðeins tvö eða þrjú bestu viðbrögðin til að hafa í endan- legri gerð myndarinnar. Eitt það erfiðasta við gerð þess konar mynda er að láta fólkið vita eftir á að það hafi verið haft að fífli og fá síðan samþykki fórnarlambanna til að nota atriðin í myndina. í flestum tilvikum var húmorinn í lagi og menn leyfðu það, en þó kom fyrir að fólk harðneitaði og hótaði mál- sókn. Það kom meira að segja fyrir í einu atriðinu að eitt fórnarlambið, sem fannst það svo illa leikið, réðst á einn í kvikmyndatöluliðinu og hætti ekki barsmíðum fyrr en gangandi vegfarendur komu til hjálpar. Tim Curry leikur myrkrahöfðingjann i Ævintýrasögunni, hann er hið illa sem allt girn- ist. Baráttan við myrkrahöfdingjann — í kvikmynd Ridleys Scott, „Legend", sem tók fimm ár að gera Ridley Scott var búinn að vinna að kvikmyndinni „Legend" í fjögur ár áður en hann gat sett myndavélarnar í gang í marsmán- uði 1984. Það er ekki gott að skilja hvers vegna Ridley Scott gekk svona illa að byrja á myndinni, hvers vegna stóru kvikmyndaverin voru treg til að fjármagna mynd- ina, þar sem það var Ridley Scott sem átti heiðurinn að vinsælustu mynd ársins 1979, Alien. En svarið er víst ofureinfalt: geimvísinda- myndir og ævintýramyndir fjarlæg- ar í tíma og rúmi voru í mikilli lægð upp úr 1980, fólk var orðið leitt á þeim. En Ridley Scott lét það ekki á sig fá. Hann fékk rithöfundinn William Hjortsberg til að skrifa handritið, goðsögu, hjartnæmt ævintýri barmafullt af álfum og einhyrning- um. En það var ekki fyrr en Ridley komst í samband við mann að nafni Arnon Milchan, fyrrverandi lyfsala frá ísrael, að hjólin fóru að snúast. Arnon Milchan var nýtt afl í bandaríska kvikmyndaheiminum, hafði fengið ofurást á Robert De Niro og framleitt þrjár mynda hans: The King of Comedy, Einu sinni var í Ameríku og Brazil. Arn- on Milchan hafði góð sambönd og hann kom myndinni inn á fjár- hagsáætlun Universal. Risastórt og gífurlega flókið svið var reist í Pinewood-kvikmyndver- inu í Englandi, þar sem margar stórmyndir siðustu ára hafa verið gerðar, m.a. allar myndirnar um James Bond og Stjörnustriðs- myndirnar. Stúdíósviðið fyrir „Legend" var það stærsta sem hafði verið smíðað, og ekkert til sparað. En tveim dögum eftir að kvikmyndatökur hófust, braust út eldur í kvikmyndaverinu, það brann til kaldra kola. Kvikmynda- verið var endurreist og kostnaður- inn við Legend jókst og jókst. Endánlegur kostnaður er um það bil 30 milljónir dollara. Legend, eða Ævintýrasagan eins og hún er kölluð á íslensku, fjallar um hina sígildu baráttu góðs og ills, Ijóssins og myrkursins, og gerist því í goðsögulegum heimi, fjarri tíma og rúmi. Tim Curry leik- ur myrkrahöfðingjann sem hyggst brjóta allt undir ofurvald sitt. Óþekkt stúlka að nafni Mia Sara leikur prinsessuna Lilí, saklausu og fallegu stúlkuna sem myrkra- höfðinginn girnist. Ungu hetjuna Jack leikur Tom Cruise, sem er að verða einn alvinsælasti leikarinn af ungu kynslóðinni. Legend/Ævintýrasagan verður sýnd annað hvort í Bíóhöllinni eða Bíóhúsinu síðar í mánuðinum. Mia Sara leikur prinsessuna Lilí LL I I IV4I LVirMyNLANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.