Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 16

Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986 Rýminaar sala Matar- og kaffistell á gjafverði Ýmsir keramikmunir -30-40% AFSLÆTTI! Höfðabakka 9 Opið frá kl. 9 -18 opið í hádeginu. ARNARHÓLL H Fordjörfun sálar, foreyðing þjóðar eftir Hólmstein Brekkan Margt hefur verið skráð og skraf- að um hvalveiðar íslendinga í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að fjölyrða um veiðam- ar sem slíkar en í umræðunni um hvalmálið undanfarið hefur margt athyglisvert komið upp á yfírborðið sem vert er að líta á nánar. Menn hafa verið óhræddir að láta í ljós skoðun sína á ósýnilega risan- um í vestri og sýnist sitt hveijum. Flestir virðast þó þeirrar skoðunar að kúgun til undirgefni sé óþolandi og lái þeim enginn. En gáfust fyrir- svarsmenn okkar íslendinga upp fyrirfram? Kveifarskapur eða stjórnkænska Hvalmálið, eins og það kemur fyrir, er aðeins toppurinn á ísjakan- um. Spumingin er um sjálfstæði Islands og sjálfsákvörðunarrétt þjóðar í sínum eigin málum. Oft í gegnum tíðina höfum við Islendingar þurft að beijast við margfalt ofurefli fyrir viðurlífi okk- ar. Alla tíð hafa orustur okkar og aðgerðir einkennst af drengskap og heiðarleika, þar sem einarðlega og af festu hefur verið haldið fram réttlæti baráttunnar. Aldreigi höf- um við gripið til beinna aðgerða. Nýfenginn sigur okkar er 200 mílna fískveiðilandhelgin, sem við eigum að heita að hafa yfír óskorðað vald, eða hvað? Er kannski fískveiðum og nýtingu lögsögu okkar stjórnað frá skrifborði í landbúnaðarráðu- neyti Bandaríkjanna? Það hefur verið vegið að fjöreggi þjóðarinnar og því verður að svara. Hvalmálið hefur sýnt okkur hvar íslenskir stjómmálamenn draga mörkin fyrir sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar. Markalínan er ekki í gegnum skrifstofu Bandaríkjafor- seta eins og halda mætti, heldur nær hún rétt að teygja sig upp á skrifborðið hjá viðskiptaráðherra Bandaríkjanna Malcolm Baldridge. Lesandi góður, hvar dregur þú mörkin? Það sem einkennt hefur aðgerðir íslenskra stjómvalda er fát og reiðuleysi. Enginn af þeim mönnum sem ráðnir em af þjóðinni, til þess að gæta hags hennar í orði og verki, hefur þorað að setja hnefann í borðið og segja, hingað og ekki lengra. Ekki er ég að bera á menn læpuskap heldur aðeins að hvetja fólk til umhugsunar. Vilji þjóðar I skoðanakönnun sem gerð var fyrr á árinu vom 80% þeirra sem tóku afstöðu fylgjandi hvalveiðum. Eftir að Bandaríkjamenn hófu þvingunaraðgerðir á hendur íslend- ingum þann 28. júlí sl. hefur þjóðin þjappað sér saman að vemda lýð- ræðið, Island, þankafrelsi okkar og réttinn til sjálfsákvarðana. Fyrirsvarsmönnum þjóðar sem vita hug hennar og gera reitt sig á fullkominn stuðning fólksins þeim á ekki að geta mistekist. En hvað skeður? Þann 28. júlí sl. hefst ein sú undarlegasta atburðarás í íslenskri stjórnmálasögu sem um getur. í stað þess að sýna festu og hvika ekki frá yfírlýstri stefnu þá er hlaupið upp til handa og fóta. Ollum fyrri áformum pakkað saman og hent upp í hillu. Hópur manna er sendur til Bandaríkjanna til svo- kallaðra „samningaviðræðna" sem í raun vom allt annað. Með því að undirrita svokallað „samkomulag" við Bandaríkjamenn höfum við Is- lendingar viðurkennt það á alþjóð- legum opinbemm vettvangi að við höfum ekki vald, né ráðum yfir okkar eigin lögsögu. Undirgefnisárátta íslenskra stjómmálamanna í garð Banda- ríkjanna er alveg með eindæmum eins og berlega hefur komið í ljós á undanförnum vikum. Ef undir- gefnisáráttunnar á eftir að gæta áfram, þá er þess ekki langt að bíða að landhelgi fslands færist úr 200 mílum í 200 metra. • • Orvænting og örbirgð Við íslendingar þurfum ekki að líta langt til að sjá þjóð sem stend- ur á barmi örvæntingar. Grænlend- ingar okkar ágætu nágrannar hafa orðið hrikalega fyrir barðinu á mis- skildum og öfgakenndum náttúm- vemdarsjónarmiðum. Ekki hefur aðeins verið vegið að Grænlending- um, heldur hefur fótunum verið kippt undan þeim og menning þeirra lögð í rúst. Vonleysi þjóðar- innar er svo til algert. Eigum við íslendingar kannski eftir að standa í sömu sporum og Grænlendingar standa í dag? Góð aðsókn á endurmenntunar- námskeið Kennaraháskólans ENDURMENNTUN Kennarahá- skóla íslands hefur í sumar staðið fyrir margskonar nám- skeiðum. AIls hafa verið eða verða haldin 25 námskeið i sum- ar. Fimm þeirra standa yfir vikuna 18. - 22. ágúst. Að sögn Rósu Bjarkar Þorbjam- ardóttur, endurmenntunarstjóra, hefur þátttakan á námskeið sum- arsins verið mjög góð. Alls hafa um 900-1.000 kennarar sótt þau en starfandi kennarar em tæplega 3.000. Sérstaklega var ásóknin mikil í tölvumenntunamámskeiðin og komust þar færri að en vildu. Eftirtalin námskeið standa yfír í þessari viku: Stærðfræði fyrir kennara 6-12 ára bama: Fjallað verður almennt um stærðfræðinám í yngri bekkj- um gmnnskólans og verður megináherslan lögð á breytta kennsluhætti og notkun hjálpar- gagna. Umsjón með námskeiðinu heftir Guðný H. Gunnarsdóttir. Álitamál: Rætt verður um mis- munandi viðhorf til náms, kennslu og uppeldis og hvemig þau birtast í kennslufræði, kennsluaðferðum og námsgögnum. Dæmi verða sótt í kristinfræði, líffræði, heimspeki og samfélagsfræði. Umsjón með VJterkurog k/ hagkvæmur auglýsingamiðill! námskeiðinu hafa þau Erla Krist- jánsdóttir og Ólafur H. Jóhannes- son. Námskeið fyrir heimilisfræði- kennara efri bekkja gmnnskóla: Kynnt verður nýtt námskeið í heimilisfræði fyrir 7.-9. bekk. Umsjón með því hafa þau Aðal- heiður Auðunsdóttir og Anna Guðmundsdóttir. Mynd- og handmennt í yngri bekkjum gmnnskóla: Fjallað verð- ur um hlutverk mynd- og hand- menntar í skólastarfí og bent á Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson The Concise Oxford Dictionary of English Etymology. Edited by T.F. Hoad. Oxford 1986. Etymologia — orðsiQafræði — um uppmna og þróun orða. Þessi bók gmndvallast á Oxford Diction- ary of English Etymology, sem C.T. Onions setti saman og út kom 1966. Sú bók hefur síðan verið talin höfuð heimild um uppmna enskra orða. Tilgangurinn með þessari bók er að rekja uppmna algengra og not- aðra enskra orða, og getur því verið handhæg uppflettibók ásamt venju- legum enskum orðabókum, þar sem uppmna er ekki sérstaklega getið. Orðaskýringum er sleppt á þeim orðum, sem hafa svo til engum breytingum tekið í ensku, og hver maður skilur. Orðsifjafræði er fom fræðigrein, stunduð til foma og skýringarnar vildu oft verða undarlegar, sbr. Orðabók Jóns Gmnnvíkings. Fom og fræg skýring á Venus, var sú leiðir til að tengja og nýta þessa grein í almennri bekkjarkennslu. Umsjón með námskeiðinu hafa þeir Bjarni Daníelsson og Þórir Sigurðsson. Fræðsla um fíknivamir — ný viðhorf: Meðal annars verður fjall- að um gildismat og hvemig hægt sé að byggja upp sjálfsöryggi ungl- inga og þol til að standast hóp- þrýstinginn. Dr. Ulla Marklund, sálfræðingur við uppeldisstofnun Gautaborgarháskóla, verður aðal- leiðbeinandi námskeiðsins. að orðið væri dregið af lat. sögn- inni venire, „quia ad omnes venit" (af því að hún kemur til allra). Með rannsóknum A.F. Pott: „Etymologische Forschungen" (1833-36) komu upp nýjar rann- sóknaraðferðir urp uppmna og þróun orða. Þar komu til áhrif róm- antíkurinnar og þeirra Grimms- bræðra. Bækur varðandi orðsiíja- fræði ráku hver aðra og þessum efnum vom gerð góð skil í hinum stóm orðasöfnum og orðabókum Grimms-bræðra, Littré og Murrays. Saga orðanna eykur skilning á tungumálinu og mörg em þau orð, sem verða ekki fullkomlega skilin án upprunans. Því em bækur sem þessi mjög nauðsynlegar og notkun þeirra brýn. Málið verður aldrei lært, e.t.v. á þar við að því meira sem menn átta sig á málinu, því augljósara verður hversu lítið menn kunna. Rilke sagði einhvem tímann, að menn mættu vera ánægðir ef tækist að setja saman nokkrar Ijóðlínur sem mættu kallast góðar. En bækur sem þessi eykur skilninginn og einnig skilninginn á því sem vant er. ORÐSIFJAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.