Morgunblaðið - 21.08.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
17
r _ • VOTIU °"!"lgrlmurHcrnumnMonfor»æti<iráðhetr«i , . „! f-I
i^maTveiðThHvalveiðum h.,.<^tnle£ra 1
|_^P ^HurKo^j^frestad fram
'• íírí”"“VÍ“*ík“tr1111 áfondiH«ll.iór. ðlTWíu.
, ' í-20* fOiliiíTdjívs í Wtuhin*taii v '
Unnið við nýtt stýrishús Grettis.
Nýtt stýrihús sett á mb.
Gretti í Stykkishólmi
Hólmsteinn Brekkan
„Menn hafa verið
óhræddir við að láta í
ljós skoðun sína á ósýni-
lega risanum í vestri og
sýnist sitt hveijum.
Flestir virðast þó þeirr-
ar skoðunar að kúgnun
til undirgefni sé óþol-
andi og lái þeim enginn.
En gáfust forsvars-
menn okkar Islendinga
upp fyrirfram?“
Greenpeace
Greenpeace-samtökin og önnur
náttúruverndarsamtök sem stofnuð
voru á sínum tíma, í góðri trú, til
að bjarga deyjandi náttúru, eru orð-
in að stórgróða peningafyrirtækjum
og starfa á sviðum sem eru langt
frá upphaflegum tilgangi. Það er
augljóst að náttúruvemdaraðgerðir
þessara samtaka beinast aldrei
gegn peningastreyminu. Heldur eru
búin til saga um ljóta veiðimanninn
norður í íshafi sem drepur allt kvikt
sem hann sér í sjónum. Þannig er
öllum spjótum beint að fámennum
og lítilsmegnandi byggðarlögum
sem ekki geta borið hönd fyrir höf-
uð sér. Er rétt að bíða eftir
dauðadómnum?
Nei, íslendingar verða að bindast
samtökum með öðrum þjóðum sem
eiga allt sitt undir sjónum og saman
verðum við að kynna okkar mál á
sama vettvangi og náttúruvemdar-
samtök reka áróður gegn okkur.
Þessa niðurrifs einstefnu verður að
stöðva. Þegar við erum slegin utan-
undir getum við ekki endalaust
boðið hinn vangann.
Hver er sinnar gæfu
smiður
Af lestri dagblaða er auðvelt að
fá heildarmynd af gangi heimsmála
og með einfaldri tengingu frétta
má sjá hvemig við Islendingar erum
aðeins peð í stærra tafli. Skákin sem
við flæktumst í er óhagstæður vöru-
skiptajöfnuður Bandaríkjanna
gagnvart Japönum. Leikurinn sem
leikinn var 28. júlí sl. var greinilega
leikinn til að ógna Japönum.
Það getur hver maður séð að
viðskiptaráðherra Bandaríkjanna,
Malcolm Baldridge, er örvæntinga-
fullur pólitíkus í þröngri stöðu og
leikur af sér. Og sem skákþjóð
hefðu Islendingar einfaldlega getað
bent manninum á að skákin væri
töpuð og að besti leikurinn í stöð-
unni væri að segja af sér. En
heimsmálin eru því miður ekki
svona einföld.
Að eiga salt í grautinn
Hvalmálið hefur verið gott próf-
mál fyrir þjóðina þó svo að afleið-
ingamar séu ekki komnar í ljós.
Málið hefur orðið til þess að fólk
er farið að sjá nýjar hliðar á sam-
skiptum Islendinga við aðrar þjóðir.
Margir hafa orðið til þess að leggja
orð í belg og annars rólyndustu
menn hafa látið í sér heyra. Allt
er það af hinu góða.
En núna, og sérstaklega núna
þegar líða tekur að kosningum, vil
ég biðja alla íslendinga, hvar svo
sem í flokki þeir eru staddir, að
sýna sínum mönnum aðhald. Láta
þá vita að þjóðinni sé ails ekki sama
hvemig iandinu er stjómað. Þó svo
að menn og konur hafi mismunandi
pólitískar skoðanir þá verðum við
að muna það að við emm fyrst og
fremst íslendingar og þegar að
okkur er vegið verðum við að standa
saman.
Það væri grátlegt ef við ættum
eftir að tapa sjálfstæði okkar með
einu pennastriki eða kannski í skipt-
um fyrir gijónagraut.
Höfundur hefur starfað við hval-
skurð á sumrin og var kjörinn
trúnaðarmaður starfsmanna
Hvals hf. Hvalfirði 19S4.
Stykkishólmi.
BÁTARNIR eru nú hver af öðr-
um að koma úr sumarleyfi. Úti
á miðum bíður skelin og svo
annar sjávargróður til fanga.
Mb. Grettir hefir t.d. fengið
nýtt stýrishús í stað þess sem var
alveg búið að ganga sér til húðar.
Við þetta batnar öll aðstaða. Páll
Guðmundsson skipstjóri tjáði mér
að þessi endurbót hefði ekki þoiað
bið. Hann taldi að viðgerð á gamla
húsinu hefði verið skammgóður
vermir. Nýtt og traust væri það
sem margborgaði sig þegar til
lengdar lætur.
Þá hefir báturinn verið málaður
og er nú vel tilhafður og til í alla
veiðí. Og auðvitað hefir verið dytt-
að að öllu sem aflaga hefír farið
og má segja að nú sé hann sem nýr.
VIÐ KYNNUM
NÝTA BLÁA BORÐANN
Annað eins smjörlíki liefnr þú
aldrei bi'agðað. Stórkostiegt til
steikingar - bragðgott á bmuðið.
Við hlökkum til að heyra þitt álit.
B smjörlfki hf.