Morgunblaðið - 21.08.1986, Síða 19

Morgunblaðið - 21.08.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986 19 m--IMSH6KMi-:S?N’TIR K i? LU> TTXSIOJ jj^* pJi Ctríð i 3 FR1ÐUS&* Dagblaðið Tíminn: Opnar r i )si j órnar skr if- stofur á 3 stöðum úti á landi Þrjár bæk- ur frá kilju- klúbbnum NÝLEGA sendi Uglan — íslenski kiljuklúbburinn annan bóka- pakka sinn út til áskrifenda. í honum eru þijár nýjar bækur: íslensk úrvalsævintýri, Trúðarn- ir eftir Graham Greene og Stríð og friður eftir Leo Tolstoj, annað bindi. Hallfreður Öm Eiríksson hafði umsjón með útgáfu íslenskra úr- valsævintýra, en þau hafa að geyma tuttugu ævintýri af ýmsum gerðum. Flest eru þau sígild og nokkur þeirra hafa verið hljóðrituð eftir sagnafólki og hafa aldrei birst áður á prenti. Bókin er 158 blaðsíður að stærð. Trúðamir er meðal þekktustu skáldsagna Graham Greene og kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku í þýðingu Magnúsar Kjartanssonar. Sagan gerist á Haítí um það leyti sem Papa Doc verður einraeðisherra þar og geymir magnaðar svip- myndir frá þessari eyju í Karíba- hafi. Eftir henni var á sfnum tíma gerð kvikmynd með Richard Burton og Elizabeth Taylor í aðalhlutverk- um. Bókin er 359 blaðsíður að stærð. Annað bindi af hinu mikla verki Tolstojs, Stríð og friður, er 203 blaðsíður að stærð, en fyrsta bindið kom í fyrsta pakka íslenska kilju- klúbbsins síðastliðið vor. Bækumar eru unnar í Prentstofu G. Benediktssonar. Verð alls pakk- ans er sem fyrr 498 krónur og gerir áskriftarkerfí íslenska kiljuklúbbsins þetta verð mögu- legt. Áskrifendur eru nú 4.400 talsins. (Fréttatilkynningr) DAGBLAÐIÐ Tíminn auglýsti nýverið eftir blaðamönnum til starfa hjá blaðinu, sem búsettir væru á eftirfarandi stöðum: Egil- stöðum, ísafirði og Akureyri. Níels Árni Lund ritstjóri Tímans var af því tilefni inntur eftir því hvort fyrir dyrum stæði breyting á ritstjórnarstefnu blaðsins og það ætlaði að einbeita sér frekar en hingað til að fréttum af dreif- býlinu. Níels sagði að ætlunin væri að fastráðnir blaðamenn hefðu skrif- stofuaðstöðu á þessum stöðum og myndu þeir sjá um frétta- og greinaskrif í sínum landsfjórðungi í samráði við fréttaritara blaðsins og væri það einnig hugmyndin að þeir tækju ljósmyndir fyrir blaðið. Að sögn Níelsar er ekki ætlunin að breyta ritstjómarstefnu blaðsins á neinn hátt. „Tíminn hefur ávallt lagt áherslu á það að sinna bæði dreifbýli og þéttbýli, en það er ljóst, að í landsmálablöðunum er mest fjallað um atburði er gerast í ná- grenni blaðanna, þ.e.a.s. í Reykjavík. Okkur þykir því ástæða til að taka fastar á málum á lands- byggðinni og er þetta liður í þessari viðleitni." Þessir þrír blaðamenn koma sem hrein viðbót við ritstjóm blaðsins og hafa í för með sér aukin út- gjöld, og var Níels spurður hvort staða Tímans væri það góð, að blað- ið gæti leyft sér slík aukaútgjöld. Níels kvaðst vera bjartsýnn á út- komuna, ef litið væri til reynslu síðustu sjö mánaða „og afkoma Tímans hlýtur að vera góð, úr því að stjóm blaðsins hefur ákveðið að stfga þetta skref.“ Níels vildi einnig taka það skýrt fram, að fjárhagur Tímans væri alveg óháður þeim skuldum, sem NT skildi eftir sig. „Það dæmi kemur ekki inn á Tímann," sagði Níels. Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Um óhóf sagði Oscar Wilde: „Ekki er þörf á að drekka allt vínið úr tunnunni til að komast að því hvort það sé af gömlum árgangi!" Meðfylgjandi réttur telst vart til óhófs, enda er aðaluppistaðan íslenskt fiskmeti. Þetta er mjög fljótlagaður réttur og bragðgóður með ágætum. Þetta er Bakaður sjávarréttur 300 gr rækjur, 300 gr hörpudiskur eða smálúða skorin í bita, 1 bolli mayonaise, 1 matsk. matarolía, V2 paprika græn, 1 lítill laukur, 1 matsk. worchestershire-sósa, ■/< tsk. salt, 1 matsk. smjörlíki, 2 matsk. brauðmylsna, ■A tsk. paprikuduft. 1. Matarolían er hituð í potti og eru saxaður laukurinn og niðurskorin paprikan látin krauma í feitinni að- eins þar til laukurinn er orðinn glær. 2. Því næst er blandað saman may- onaise, lauk og papriku, worchest- ershire-sósu, salti, rækjum og físki eða hörpudiski og sett í eldfast mót. 4. Smjörlíkið er hitað í potti og brauðmylsnan steikt létt í feitinni. Hún er síðan sett yfír fískinn í mót- inu og paprikudufti stráð yfír. 5. Bakað í ofni í 15—20 mín. við 200 gráða hita. Borið fram með sjávarréttinum hrásalat og gróft brauð. Gæði þessa réttar fara að sjálf- sögðu eftir hráefninu. Þess vegna skal þess gætt þegar rækjur eru keyptar að þær séu fallega bleikar, það er merki þess að þær séu nýjar. Hafi þær fengið hvítan lit eru þær gamlar og er þá oft af þeim vont fískbragð. Einnig ætti að forðast rækjur og önnur fryst matvæli í plastumbúðum sem íssalli hefur safnast fyrir í. Hann er tákn þess að matvælin séu þurr og hafí misst eðlilegan raka og þá oft vegna slæmra geymsluskilyrða. Á hátíðinni í fyrra komu 7. milljónir manna víðsvegar að úr heiminum saman, drukku ö'/z milljón lítra af þýskum gæðabjór, átu meðal annars 629.520 kjúklinga og skemmtu sér hreint stórkostlega vel. í ár gefst þér kostur á að slást í hópinn undir leiðsögn hinns kunna útvarpsmanns Arthúrs Björgvins Bollasonar, sem eröllum hnútum kunnugur á þessum slóðum. Verð aðeins krónur 29.700 með hóteli og morgunmat. Athugið takmarkað sætaframboð dttOMTMC FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580 Umboð a Islandi fynr DINERS CLUB INTERNATIONAL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.