Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 21

Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986 21 Hörmungimi Úganda ætlar seint að linna. 27 manns hafa látist úr svarta dauða í Uganda UGANDA hefur mátt þola margar hörmungar á undanförnum árum: einræðisherra, innrás, borgarastyrjöld og efnahags- hrun. Fáa hefði þó órað fyrir því að þetta land, sem eitt sinn var auðugasta land álfunnar og reyndar nefnt „Perla Afríku“, ætti eftir að verða svarta dauða að bráð, sjúkdómi, sem í hugum flestra heyrir fortíðinni til. Þessa skæða sjúkdóms, sem barst til íslands árið 1402 og lagði allt að þriðjung þjóðarinnar að velli, hefur ekki orðið vart lengi, ef marka má alþjóðaheilbrigðis- málastofnunina (WHO). Sjúk- dómurinn berst yfirleitt með rottum, þó svo að þær séu í raun ekki smitberinn, heldur flær sem á þeim lifa. Enn sem komið er hafa aðeins 27 manns látist svo vitað sé, en 252 aðrir hafa verið skráðir með sjúkdóminn í Nebbi-héraði, sem er skammt frá landamærum Úg- anda við Zaíre. Samkvæmt heilbrigðisráðherra landsins, Dr. Ruhakana Rugunda, var fyrsta tilfellis plágunnar vart í apríl og grípu stjómvöld þegar til aðgerða til þess að hefta út- breiðslu hennar. Ráðuneytið tilkynnti að sjúkdómurinn virtist einskorðast við landamærabæinn Paidha, en á hann heijar rottufar- aldur. Handan landamæranna í austurhluta Zaíre hafa borist óstaðfestar fregnir af enn frekari tilfellum sjúkdómsins. Heilbrigð- isfulltrúar beggja ríkja hafa mikið samstarf vegna þessa máls og hefur landamærum ríkjanna verið lokað í bili. I yfirlýsingu frá heil- brigðisráðuneyti Úganda sagði að ekki væri um að ræða meiri hátt- ar sjúkdómsfaraldur og að stjórn- völdum Úganda myndi takast að halda honum í skefjum. Svarti dauði er mjög smitandi. Fyrstu einkennin eru langvarandi hiti, verkir í höfði og útlimum, auk almenns slappleika. Dauði getur fylgt í kjölfarið skömmu síðar, jafnvel nokkmm klukku- stundum eftir að fyrstu einkenna verður vart. Vegna verkjanna og sótthitans héldu margir íbúar Nebbi-héraðs að göldrum væri um að kenna og tilkynntu því ekki um veikindi sín til sjúkrahúss. Vegna þessa hafa yfirvöld sett sig í samband við alla ættbálkahöfð- ingja og beðið þá um að láta hreinsa allar hugsanlegar gróðr- arstíur sóttarinnar og að koma öllum þeim sem mögulega gætu verið haidnir henni til sjúkrahúss. Mikið magn fúkkalyfja hefur verið sent frá Kampala til svæð- anna, sem veikinnar hefur orðið vart á, en einnig hafa allar tiltæk- ar birgðir af DDT verið sendar, svo freista megi að drepa flærn- ar. Skordýraeitrið DDT var mjög mikið notað til skamms tíma, en er nú víðast hvar bannað. Margir umhverfisverndarsinnar hafa mótmælt notkun DDT, þar sem þeir telja það muni hafa langvar- andi áhrif á vistkerfi héraðanna. Yfirvöld vona hins vegar að með eitrinu verði hægt að útrýma flónni á tiltölulega skömmum tíma, en með litlum neikvæðum áhrifum á vistkerfið, þegar til langs tíma er litið. ] NÁMSKEIÐ A ] VIS. DOS STÝRIKERFI ] EINKATÖLVA Innan þeirra fyrirtækja er nota einkatölvur er nauðsyn að hafa starfsmenn með þekkingu á innviðum og búnaði tölvukerfisins. Tilgangur MS. DOS- námskeiðanna er að gera starfsmenn sem hafa umsjón með einkatölvum sjálfstæða í meðferð búnaðarins. Þátttakendum er veitt innsýn í uppbyggingu stýrikerfa og hvernig þau starfa. Farið eryfir allar skipanir stýrikerfisin og hjálparforrit þess. Kennd verður tenging jaðartækja við stýrikerfi og vél og rætt um öryggisatriði og daglegan rekstur. Timi og staður: 1.-4. sept. kl. 13.30-17.30 Ánanaustum 15 Leiðbeinandi: Björn Guðmundsson, kerfisfræöingur. AStiórnunarfélaa Islands Ánanaustum 15 Sími: 621066 Dæmi um verð Burknar Eigum mikið magn af gtóum burknum. Mikill afsláttur. 440:- 242.- Pottahtífar Púsundir af fallegum pottahlífum. -Tilboðsverð- Okkar árlega haustútsaia er hafin. Nú seljum við allar pottaplöntur á útsölu. Missið ekki af þessu einstaka tsekifseri. Hér fást góðar plöntur á góðu verði. Srnciuo Grófturhúsinu viS Sigtún: Símar 36770-686340

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.