Morgunblaðið - 21.08.1986, Blaðsíða 23
r\PPf T8Ú0Á f? 5rTDAGTrrMMI7 (7T(T-AJ8rfíTJD5IOM 0
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
Módelsmiðirnir, sem hönnuðu líkanið af suðvestur-
horni landsins:
„Vinnum eins og einn maður“
TUTTUGU fermetra líkan af suðvesturhomi landsins er eitt af
því, sem mesta athygli hefur vakið á tæknisýningunni í Borgar-
leikhúsinu, sem haldin er í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur.
Það voru þrír starfsmenn mód-
elverkstæðis Reykjavíkurborgar,
þeir Axel Helgason, Jónas Magn-
ússon og Kristján Sigurðsson, sem
sáu um smíði líkansins. Smíðin
hófst þann 4. desember 1984 og
lauk um miðjan júlí í sumar. Öðr-
um verkefnum var einnig sinnt á
þessum tíma, en að sögn Axels
Helgasonar hefði smíðin líklega
tekið um eitt ár ef engu öðru
hefði verið sinnt.
Eins og áður sagði, er líkanið
20 fermetrar að stærð og sýnir
það suðvesturhom landsins frá
Reykjanesi í vestri að Jökulsárlóni
austan við Öræfajökul í austri og
frá Vestmannaeyjum í suðri að
Oki í norðri. Líkanið er í hlutföll-
unum 1:50.000 í lengdarkvarða
og 1:25.000 í hæðarkvarða.
Líkanið er gert úr sérstökum
pappaplötum og fór verkið þannig
fram, að Jónas teiknaði hæðarlín-
ur, Axel skar út plötur og límdi
upp plötumar. Það var hins vegar
Sigurður Pálsson málarameistari,
sem málaði líkanið.
Þeir félagamir hafa lengi unnið
á módelverkstæði borgarinnar,
Axel lengst eða í ein 40 ár. „Við
vinnum mjög vel saman og erum
nánast eins og einn maður, enda
er það nauðsynlegt í módelsmíð-
inni,“ sagði Axel Helgason
módelsmiður að lokum.
MorgunDlaoio/ET I
Tveir smiðanna, sem unnu að gerð líkansins af suðvesturhorni
landsins, þeir Jónas Magnússon (t.v.) og Axel Helgason, standa
hér við verk sitt í Borgarleikhúsinu, en á myndina vantar þriðja
smiðinn, Kristján Sigurðsson.
Vd
KaiTitenmstamm
Fáar kvikmyndir hafa notið jafn
mikilla vinsælda og „The Kar-
ate Kid“. Nú gefst aðdáendum
Daniels og Miyagis tækifæri til
að kynnast þeim félögum enn
betur og ferðast með þeim yfir
hálfan heiminn á vit nýrra
ævintýra.
Aðalhlutverk:
Ralph Macchio — Noriyuki
„Pat“ Morita — Tamlyn
Tomita.
Leikstjóri John G. Arildsen.
Titillag myndarinnarThe glory of love
sungið af Peter Catera er ofarlega á vin-
sældalistum víða um heim.
Önnurtónlist í myndinni:
This is the time (Dennis de Young).
Let me at them (Mancrab).
Rock and roll over you (Southside Johnny).
Rock around the clock (Paul Rogers).
Earth angel (New Edition).
Two looking at one (Carly Simon).
KarkeKid
DOLBY STEREO
Part
0
Iþessarifrábærumyndsent
nú fer sigurför um allan
heim eru stórkostiegkarate-
aíriði, gúð tónlisfc og einstak-
urleikur.