Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
Mótmæli sljórnarand-
stæðinga halda áfram
Islamabad, AF.
AÐ MINNSTA KOSTI einn maður lét lífið í bardögum milli
lögregiu og stjórnarandstæðinga i Pakistan í gær. Lögreglan
beitti táragasi og kylfum til að dreifa mannfjölda sem safn-
ast hafði í mörgum héruðum og borgum landsins til að
mótmæla stefnu stjórnarinnar.
Her landsins hefur verið kvadd-
ur á vettvang þar sem óeirðir hafa
verið síðustu vikuna, en nokkur
röskun vai-ð á samgöngum þegar
mótmælendur rifu upp járnbraut-
arteina og reistu götuvígi.
Nú hafa 27 manns týnt lífi í
óeirðum í Pakistan síðan á mið-
vikudag og nokkrir tugir særst.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
hétu því í gær að halda áfram
mótmælum gegn stjóminni og
ítrekuðu að markmiðið væri að
bola forseta landsins Zia Ul-Haq
frá völdum. Hópur manna réðst
einnig að ýmsum stjórnarbygging-
um í Islamabad, en aðeins
smávægilegar skemmdir urðu á
þeim.
Skarst í odda milli lögreglu og
mótmælenda í Sind-héraði með
þeim afleiðingum að einn maður
lét lífið í skotbardaga. Mótmælend-
ur köstuðu grjóti og öðru lauslegu
að lögreglu, sem svaraði með því
að beita táragasi og kylfum. Tveir
lögreglumenn særðust í bardögun-
um.
í mótmælagöngu kvenna í Dadu
særðist ein lítil stúlka þegar hún
varð fyrir táragaskúlu. Um fimm
þúsund manns tóku einnig þátt í
mótmælaðgerðum í Lahore, en lög-
reglan reyndi ekki að koma í veg
fynr þær.
I Karaehi brutust út átök þegar
um 500 ungmenni réðust á bensín-
stöð og köstuðu gijóti að strætis-
vögnum, en fljótlega tókst að
dreifa þeim.
Benazir Bhutto, leiðtogi Þjóðar-
flokks Pakistans, er enn í haldi sem
og margir helstu ráðgjafar hennar.
Einnig var skýrt frá því í gær að
stjórnin hygðist sækja fjóra
frammámenn í flokknum til saka
fyrir að hafa hafið skothríð á fólk,
sem safnast hafði saman til stuðn-
ings stjórninni. Þar létu flórir lífið,
en sjónarvottar segja að þeir hafi
fallið í átökum við lögreglu.
225 milljón ára gamlir fuglar
í Texas í Bandaríkjunum hafa fundist steingervingar af
fuglum, sem taldir eru 225 milljón ára gamlir. Eru þetta
elstu steingerðu fuglar, sem fundist hafa. Fuglunum
hefur verið gefið tegundarheitið „Protoavis" (frumfygl-
ið). Margir vísindamenn telja að fundur þessi styrki
kenningar um að fuglar hafi þróast af risaeðlum.
Áströlsku fjárlögin lögð fram:
Pakistan:
Símamynd/AP
Lögreglumenn í Pakistan beija mótmælanda áður en þeir handtóku
hann í gær.
Israelar enn
bjartsýnir um
árangur viðræðna
Tel Aviv og Jerúsalem, AP.
Mikill niðurskurður og
skattalækkunum frestað
Canberra, Sydney, Ástralíu, AP.
ÁSTRALSKA ríkisstjórnin lagði í fyrradag fram fjárlög fyrir næsta
fjárhagsár og gætir þar miklu meira aðhalds en búist hafði verið
við. Samkvæmt þeim verður útgjöldum haldið í skefjum, skattalækk-
unum frestað og hemill hafður á launahækkunum. Talsmenn stjórn-
arandstöðunnar, Frjálslynda flokksins, hafa farið hörðum orðum
um fjárlögin en ýmis stórblöð og aðrir fjölmiðlar segja, að þannig
sé komið í efnahagsmálunum, að róttækra ráðstafana sé þörf og
lofa stjórn Verkamannaflokksins fyrir hugrekki.
Ráðuneytisstjóri ísraelska
utanríkisráðuneytisins sagðist
ekki álíta að endir væri bund-
inn á viðræður Israela og
Sovétmanna þrátt fyrir ófrið-
legar yfirlýsingar hinna
síðarnefndu að undanförnu.
Samtök gyðinga í Banda-
ríkjunum tilkynntu á miðviku-
dag að þau myndu angra
sovéska sendiráðsstarfsmenn
í Washington á ýmsan hátt, til
þess að þrýsta á að gyðingar
í Sovétríkjunum fái frelsi til
þess að flytjast til fyrirheitna
landsins.
David Kimche, ráðuneytisstjóri,
skýrði afstöðu Israela við heim-
komu sína frá Helsinki. „Ég held
ekki að sú staðreynd að við reifuð-
um málefni gyðinga í Sovétríkjun-
um muni leiða af sér algjört
sambandsleysi milli landanna. Ég
er þess fullviss að Sovétmenn vissu
vel að við myndum færa þau mál
í tal,“ sagði Kimche í viðtali við
ísraelska sjónvarpið.
Gyðingasamtök í Bandaríkjun-
um hyggjast trufla sovéska stjórn-
arerindreka í Bandaríkjunum á
ýmsan hátt, til þess að minna á
að enn eru um 400.000 gyðingar
í Sovétríkjunum, sem ekki fá að
flytjast úr landi til ísrael. Hyggj-
ast þeir m.a. hringja viðstöðulaust
í sendiráðið svo ógjömingur verði
að ná símasambandi við það. Einn-
ig munu þeir elta sendiráðsstarfs-
menn, „á sama hátt og gyðinglegir
andófsmenn eru eltir í Sovétríkjun-
um“.
Kiaus Citron, fulltrúi Vestur-
Þjóðveija á ráðstefnunni, sagði á
blaðamannafundi í gær, að fagna
bæri sérstaklega þeirri yfirlýsingu
Olegs Grinevsky, fulltrúa Sovét-
manna, að stjórn hans gæti fallist
á lágmarkseftirlit með heræfingum,
sem ella kynnu að vekja tortryggni
Paul Keating, fjármálaráðherra,
sagði þegar hann kynnti fjárlögin,
að skattahækkanir og útgjalda-
lækkun væru nauðsynlegar til að
örva ástralskt efnahagslíf, sem orð-
ið hefði fyrir miklum hnekki vegna
verðfalls á heimsmarkaði. Sagði
hann, að hallinn á fjárlögum síðasta
fjárhagsárs, sem lauk 30. júní sl.,
hefði verið 3,5 milljarðar dollara (í
Bandaríkjadollurum) en nú væri að
því stefnt, að hann yrði 2,2 milljarð-
ar fram til sama tíma að ári. Útgjöld
til ýmissa opinberra framkvæmda
yrðu því skorin niður um nærri 1,8
milljarða dollara.
Söluskattur á ýmsum munaðar-
varningi, t.d. víni og glæsibifreið-
um, verður hækkaður og einnig á
bensíni og olíu. Sagði Keating, að
reynt yrði að sjá svo til, að almenn-
ar launahækkanir, sem verða um
áramót, verði tveimur prósentum
minni en verðbólgustigið eða um
það bil þær sömu og á síðasta fjár-
hagsári. Gert hafði verið ráð fyrir
tekjuskattslækkun 1. septembernk.
en Keating sagði, að henni yrði
frestað til 1. desember. Staðið verð-
annarra þjóða manna. Breska
stjómin hefur einnig tekið í sama
streng. Öryggisráðstefnunni lýkur
eftir fimm vikur og er nú unnið
kappsamlega að því að ná sam-
komulagi um lokaályktun.
Öryggismálaráðstefnan á rætur
sínar að rekja til Helsinki-sátt-
ur þó við að lækka hámarkstekju-
skattinn úr 49% í 40%. Um framlög
til varnarmála sagði Keating, að
þau myndu hækka um 1% miðað
við verðbólgu.
John Howard, leiðtogi stjómar-
andstöðunnar, sagði um fjárlögin,
að þau væm „mesta skattaáþján
sögunnar". Væri það vissulega
fagnaðarefni ef unnt yrði að lækka
fjárlagahallann en ljóst væri líka,
að það ætti að gera með því að
auka skattana, ekki með því að
skera niður opinber útgjöld og
bmðl.
Margir ástralskir fjölmiðlar fara
lofsamlegum orðum um fjárlög
Verkamannaflokksins en vara þó
við of mikilli bjartsýni á árangur-
inn. í The Sydney Moming Herald
sagði, að fjárlögin kæmu illa við
marga þrönga sérhagsmunahópa
en væm aftur á móti fagnaðarefni
fyrir atvinnu- og fjármálalífið. Ef
dæmið gengi upp myndi gengi ástr-
alska dollarans komast í jafnvægi,
vextir lækka og ríkisstjómin jafnvel
lifa af næstu kosningar. Ef ekkert
yrði af vaxtalækkun, yrði heldur
málans árið 1975, en í honum er
þess krafist að skýrt sé frá öllum
heræfingum, sem fleiri en 25.000
hermenn taka þátt í. Citron, vest-
ur-þýski fulltrúinn, sagði, að vest-
rænar þjóðir gætu alls ekki fallist
á að lækka þessa tölu aðeins niður
í 18.000 hermenn eins og Varsjár-
bandalagslöndin legðu til. NATO-
ríkin gætu kannski fallist á að hafa
töluna 10.000, ekki 6.000 eins og
tillaga þeirra er um, en mestu skipti
að skýra fyrr frá þeim heræfingum,
sem halda ætti.
ekkert af auknum hagvexti og dag-
ar stjórnarinnar þar með taldir. The
Sydney Daily Telegraph og The
Australian tóku í svipaðan streng
og sagði síðarnefnda blaðið, að á
þessari stundu a.m.k. ætti ríkis-
stjórnin hrós skilið fyrir hugrekki.
Efnahagserfiðleikarnir í Ástralíu
stafa aðallega af því, að á heims-
markaði hefur orðið allnokkurt
verðfall á ýmsum hráefnum, sem
vega þungt í útflutningi lands-
manna. Fyrir skömmu tók Paul
Keating, fjármálaráðherra þannig
til orða, að Ástralíu biði það eitt
að verða að „bananalýðveldi" ef
ekki yrði gripið í taumana. Fjárlög-
in, sem lögð voru fram í fyrradag,
verða ekki að lögum fyrr en þingið
hefur samþykkt þau.
Veður
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyri 9 skýjaö
Amsterdam 11 19 skýjað
Aþena 21 37 heiðskirt
Barcelona 26 skýjað
Berlín 10 16 skýjað
Brussel 12 21 skýjað
Chicago 14 27 skýjað
Dublin 9 19 heiðskírt
Feneyjar 27 heiðskirt
Frankfurt 10 18 rigning
Genf 16 22 heiðskírt
Helsinki 12 18 skýjað
Hong Kong 26 28 rigning
Jerúsalem 17 28 heiðskirt
Kaupmannah. 12 17 rigning
Las Palmas 25 léttskýjað
Lissabon 18 26 heiðskírt
London 11 20 heiðskirt
Los Angeles 25 36 heiðskírt
Lúxemborg 15 skýjað
Malaga 27 heiðskirt
Mallorca 29 léttskýjað
Miami 25 30 rigning
Montreal 16 25 skýjað
Moskva 10 22 heiðskírt
New Vork 22 27 léttskýjað
Osló 10 18 heiðskirt
Paris 11 18 skýjað
Peking 19 28 heiðskirt
Reykjavík 9 léttskýjað
Ríóde Janeiro 12 20 skýjað
Rómaborg 21 34 heiðskírt
Stokkhólmur 10 17 skýjað
Sydney 7 20 heiðskírt
Tókýó 24 29 heiðskírt
Vínarborg 18 29 skýjað
Þórshöfn 10 hálfskýjað
Öryggismálaráðstefnan í Stokkhólmi:
Fagna yfirlýsingu
um aukíð eftirlit
Stokkhólmi, AP.
FULLTRÚAR frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins á Öryggismálaráð-
stefnunni í Stokkhólmi hafa margir orðið til að fagna þeirri yfirlýs-
ingu Sovétmanna, að þeir væru tilbúnir til að fallast á eftirlit með
heræfingum. Ríkir nú nokkur bjartsýni á, að um þetta megi ná sam-
komulagi.