Morgunblaðið - 21.08.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
45
Sara er lifandi eftir-
mynd móður sinnar
Romy Schneider
Leikkonan Romy Schneider var
aðeins 43ja ára er hún lést.
Dánarorsökin var sögð hjartaáfall,
en allir sem hana þekktu, vissu að
orsök þess að hjartað brast voru
ótal vonbrigði, ástarsorgir og tak-
markalaus tilfinningatogstreita.
Hver skýjaborg hennar á fætur
annarri hafði hrunið til grunna og
þrátt fyrir velgengni sína á sviðinu,
vinsældir og virðingu var langt frá
því að henni liði vel. Ástarmálin
voru í rúst. Mennirnir yfirgáfu hana
allir, fyrst franski leikarinn, Alain
Delon, sem hún elskaði mjög heitt
— síðan þýski leikhússtjórinn Harry
Mayen, sem var 15 árum eldri en
hún. Eftir þann skilnað flutti Romy
aftur til Frakklands og tók með sér
son þeirra Meyen, David. Þegar hún
svo loks giftist einkaritara sínum,
Daniel Biasini, vantaði ekki viðvar-
animar. Hann var 10 árum yngri
en hún og þótti flestum ráðahagur-
inn algert glapræði. Engu að síður
áttu þau saman dótturina, Söru, og
um stund virtist hamingjan ætla
að verða þeim hliðholl. En þá gerð-
ist það, eina ferðina enn, Romy var
skilin eftir ein og yfírgefin, er eigin-
maðurinn hljópst á brott með yngri
konu. Eftir það veiktist Romy alvar-
lega, hún lá á spítala mánuðum
saman og gekkst undir fjöldann
allan af aðgerðum. Á meðan bjuggu
börnin hjá foreldrum Daniels Bias-
ini. Þá gerðist það dag einn, er
sonur hennar kom heim úr skólan-
um, að hann ætlaði að klifra yfir
girðinguna, sem umkringdi hús
Biasini hjónanna. Yfír komst hann
ekki, hann datt niður af grindverk-
inu og lést samstundis. Eftir þann
hörmulega atburð voru örlög
Schneiders ráðin. Hún hellti sér út
í drykkju og eiturlyf og tíu mánuð-
um síðar var hún öll. Eftir dauða
hennar var Söru litlu komið fyrir
hjá afa sínum og ömmu. Hún þykir
hreint ótnílega lík móður sinni, er
hlý, viðkvæm og blátt áfram í allri
framkomu. Samband hennar við
föður sinn er líka mjög náið og
segist hún vona að hann muni
kvænast aftur, því hana langi til
að eignast einhver systkini. „Það
er enginn vafi á því að Sara hefur
erft fleira en útlitið frá móður sinni“
segir faðirinn, Daniel Biasini. „Hún
hefur listræna hæfileika, er feiki-
góður dansari og syngur eins og
engill. Enn sem komið er hefur hún
þó fengið frið fyrir þeim, sem eru
á höttunum eftir hæfileikafólki —
en spurningin er ekki hvort, heldur
hvenær hún fer að troða upp“ bæt-
ir hann við. Svo trúlega verður þess
ekki langt að bíða uns nafn Söru
Biasini verður á hvers manns vör-
um.
Þær eru sláandi likar mæðgum-
ar i útliti sem og innræti því
verður ekki neitað. Romy
Schneider og Sara Biasini.
Samband þeirra feðginanna er
með eindæmum gott — Sara
ásamt föður sínum, Daniel Bias-
ini.
bæjarfulltrúarnir engan veginn
sæst á neina þá hugmynd, sem upp
kom. Það var ekki fyrr en einn at-
hugull nefndarmaður benti á, að
trúlega byggju í þeirra bæ ein-
hverjar myndarlegustu konur
veraldar, sem hreyfíng komst á
málið. Það var satt, kvenmennirnir
í Eastbourne voru afskaplega bú-
sældarlegir, höfðu svolítið mikið af
öllu. Um þetta voru allir sammála.
Nokkrum konum var því safnað
saman í skyndi og þær ljósmyndað-
ar í bak og fyrir. Síðan var gefínn
út fjöldinn allur af ferðabæklingum,
auglýsingar hannaðar og fleira í
þeim dúr. Slagorðin, sem notuð
voru gengu öll út á örlæti bæjarbúa
og velmegun og hversu vel allt
væri þar útilátið meira að segja
kvenfólkið væri meira og myndar-
legra en gengi og gerðist í örðum
bæjum. Við birtum til gamans „sýn-
ishom" af þessu stolti íbúa East-
bourne og tökum heilshugar undir
með bæjarstjóminni.
COSPER
Er þér kalt? Það er engin furða, þú
situr á ístertunni minni.
Lady of Paris
Vorum að taka
upp nýjarvörur
Lady of Paris
Laugavegi 84.
2. hæð. Sími 12858.
VELDU ÞER
Kjúklingur er hollur, góður og síðast en ekki síst
ódýr matur.
Við viljum að allir borði kjúkling að minnsta kosti
einu sinni í viku og velji sér kjúklingadag.
Hér birtist spennandi uppskrift úr samkeppni
(SFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu
uppskriftina.
KJUKLINGUR MEÐ ANANAS
SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR
'JÓHANNA G. R. ÓLAFSSÓN
(Fyrir 4- 5.)
2 kjúklingar (frá ísfugl)
1 lítil dós ananas í eigin safa
(t.d. Del Monte)
1 bolli sneiddir nýir sveppir
1 bolli rifinn ostur (26%)
1 dl rjómi í sósuna
Krydd: salt.svarturpiparog karrý.
Kjúklingarnir eru kryddaðir og ofnsteiktir. Þá eru þeir
hlutaðir sundur og settir í ofnfast fat. Ananas er skorinn í
bita og sett yfir kjúklingabitana. Þá er búin til sósa úr
kjúklingasoðinu + ananassafa, gjarnan bökuð upp og
rjóma bætt út í ásamt sveppunum. Nokkru af sósunni er
svo hellt yfir kjúklingabitana og ananas og osti dreift yfir.
Bakað í ofni uns osturinn er vel bráðinn. Borið fram með
frönskum kartöflum, góðu hrásalati og afganginum af
sósunni.
Tilbrigði: Til að gera sósuna enn betri má setja eitt lítið
box af rjómaosti með ananasbragði. Þá er haft
minna af rjóma eða honum alveg sleppt.
Verðiykkurað góðu!
ísfugl
Sími: 666103
G0TT-H0LLT
OGÓDÝRT