Morgunblaðið - 21.08.1986, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
1. deild kvenna:
Stórsigur
Blikastúlkna
— ÍA sigraði KR í jöfnum leik
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild
kvenna i knattspyrnu á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld.
Breiðablik vann Hauka, 7—0, á
mánudagskvöld og Skagastúlk-
urnar sigruðu KR, 3—1, á þriðju-
dagskvöld.
UBK — Haukar 7:0
Yfirburðir UBK voru miklir eins
og tölurnar bera með sér. Staðan
í leikhléi var 4—0. Mörk Breiðabliks
gerðu Erla Rafnsdóttir 2, Lára
Asbergsdóttir, Magnea Magnús-
dóttir, Svava Tryggvadóttir, Sigríð-
ur Sigurðardóttir og Asta María
Reynisdóttir eitt mark hver.
ÍA — KR3:1
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og
spennandi án þess að mark væri
skorað. Kristín Reynisdóttir skor-
aði fyrsta mark ÍA á 55. mín. og
Sæunn Sigurðardóttir bætti öðru
markinu við stuttu síðar. Helena
Ólafsdóttir svarði fyrir KR en
síðasta orðið í leiknum átti Karítas
Jónsdóttir er hún skoraði þriðja
mark ÍA eftir að hafa komist inní
sendingu varnarmanna KR.
- KMJ.
Getrauna- spá MBL. Morgunblaðið Sunday Mirror Sunday People s 2 QL X UJ >. « TJ C 3 </> Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Man. Utd. 2 1 X X 2 1 2 2
Aston Villa — Tottenham X X 2 1 2 1 2 2
Charlton — Sheff. Wed. 2 X 1 X 2 1 2 2
Chelsea — Norwich 1 1 1 1 1 5 0 0
Everton — Nott’m Forest 1 1 1 1 1 5 0 0
Leicester — Luton X 2 X 2 X 0 3 2
Man. City — Wimbledon 1 X 2 1 X 2 2 1
Newcastle — Liverpool 2 2 2 2 2 0 0 5
Southampton — QPR 1 1 2 1 X 3 1 1
Watford — Oxford 1 1 1 1 1 S 0 a
West Ham — Coventry 1 1 1 1 X 4 1 0
Spennandi leikir
eftir í 1. deild
— deildin opin í báða enda
ÞEGAR þrjár umferðir eru eftir í
1. deild f knattspyrnu, eiga fjögur
lið tölfræðilega möguleika á ís-
landsmeistaratitlinum, eitt lið er
svo gott sem fallið og fjögur önn-
ur geta fallið, en aðeins eitt siglir
lygnan sjó. Úrslitin á toppnum eru
engan veginn ráðin og fallbarátt-
an er í algleymingi.
Valsmenn byrjuðu illa og töp-
uðu tveimur fyrstu leikjunum, en
síðan hefur verið um að ræða nær
samfellda sigurgöngu og er Valur
nú með eins stigs forystu. Liðið
hefur eflst með hverjum leik og
aðeins tapað 4 stigum síðan
Þorgrímur Þráinsson hóf að leika
með liðinu á ný í 8. umferð, en
hann hafði verið frá vegna meiðsla.
Aftasta vörn er aðall liðsins, and-
stæðingarnir hafa einungis náð að
skora 6 mörk hjá Val í sumar.
Sóknarmennirnir hafa einnig verið
skæðir, en leikmenn Vals hafa
skorað næst flest mörk i deildinni.
Valur á eftirtalda leiki eftir:
Víöir-Valur
Valur-KR
ÍA-Valur
Framarar voru taldir líklegastir
islandsmeistarar fyrir mót, byrjun-
in hjá þeim lofaði góðu og þeir
voru komnir með góða forystu rétt
eins og í fyrra. En þeir misstu flug-
ið í fríinu um verslunarmannahelg-
ina og hafa aðeins fengið eitt stig
úr síðustu tveimur leikjum, sem
þykir lítið í þeirra herbúðum. Um
leið hafa þeir misst forystuna í
deildinni og verða nú að treysta á
að einkum Valur og ÍBK tapi stigi
eða stigum á sama tíma og þeir
sjálfir komist á sigurbraut á ný.
Fram á eftirtalda leiki eftir-
ÍBV-Fram
Fram-Víðir
KR-Fram
Keflavík hefur komið einna
mest á óvart í sumar. Liöinu var
ekki spáð sérstaklega góðu gengi,
en Hólmbert Friðjónsson, þjálfari,
hefur enn einu sinni sannað hæfni
sína og náð því besta út úr leik-
mönnum sínum. Liðið er i þriðja
sæti og á álíka mikla möguleika á
titlinum og Fram.
Keflavík á eftirtalda leiki eftir:
KR-ÍBK
ÍBK-ÍA
Þór-ÍBK
Möguleikar ÍA á titlinum byggj-
ast á því að liðin, sem eru fyrir
ofan í stigatöflunni, tapi leikjunum
sem eftir eru, en ÍA vinni sína.
Langsóttur möguleiki, en von er
meðan er. ÍA er með gott lið, sem
hefur mikið styrkst við endurkomu
Péturs Péturssonar.
ÍA á eftirtalda leiki eftir:
ÍA-UBK
ÍBK-lA
ÍA-Valur
KR siglir lygnan sjó um miðja
deild og er hvorki í botn- né topp-
baráttu. Leikir KR, sem eftir eru,
skipta samt miklu máli um endan-
lega röð efstu liða, því KR-ingar
eiga eftir að leika gegn þremur
efstu liðunum og þess vegna geta
þeir haft mikil áhrif á, hverjir verða
Islandsmeistarar.
KR á eftirtalda leiki eftir:
KR-ÍBK
Valur-KR
KR-Fram
Þór er um miðja deild og endar
þar líklega, þó tölfræðilegir mögu-
leikar á falli séu fyrir hendi. Leikir
liðsins hafa hins vegar áhrif á topp
og botn og víst er að Þórsarar
gefa ekkert eftir til mótsloka.
Þór á eftirtalda leiki eftir:
FH-Þór
UBK-Þór
Þór-ÍBK
Víðir lék í 1. deild í fyrsta skipti
í fyrra og hefur sannað tilverurétt
sinn í deildinni í ár. Liðið hefur leik-
ið vel í sumar, en er engu að síður
í botnbaráttunni. Víðismenn eiga
eftir tvö af þremur toppliðunum
og geta því sett strik í reikning
efstu liða.
Víðir á eftirtalda leiki eftir:
Víóir-Valur
Fram-Víðir
Víðir-ÍBV
FH er í þriðja neðsta sæti þegar
þrjár umferðir eru eftir, en var í
því efsta að loknum þremur um-
ferðum. FH-ingar eiga eftir að leika
gegn botnliðunum og sætið í 1.
deild er því í þeirra eigin höndum.
FH á eftirtalda leiki eftir:
FH-Þór
ÍBV-FH
FH-UBK
Leikmenn UBK hafa skorað
fæst mörk í 1. deild í sumar og
liðið er í næst neðsta sæti deildar-
innar. Breiðablik lék í 2. deild í fyrra
og hefur átt erfitt uppdráttar í ár.
Erfiðir leikir eru framundan, en þó
fallið blasi við, er of snemmt að
afskrifa liðið.
UBK á eftirtalda leiki eftir:
ÍA-UBK
UBK-Þór
FH-UBK
Eyjamenn eru svo gott sem
fallnir og ekkert nema kraftaverk
getur haldið þeim í 1. deild. Þeir
geta náð FH að stigum, tapi Hafn-
firðingarnir sínum leikjum, en
markatala ÍBV er ekkert til að
hrópa húrra fyrir. En eins og aðrir
leikir, sem eftir eru, skipta leikir
ÍBV miklu máli bæði á toppi og
botni.
ÍBV á eftirtalda leiki eftir:
ÍBV-Fram
ÍBV-FH
Víðir-ÍBV
Staðan í
1. deild
Valur 15 10 2 3 27:6 32
Fram 15 9 4 2 30:11 31
ÍBK 15 10 1 4 22:17 31
ÍA 15 7 3 5 26:16 24
KR 15 5 7 3 17:10 22
Þór 15 5 4 6 18:25 19
Víðir 15 4 4 7 16:19 16
FH 15 4 3 8 20:31 15
UBK 15 3 3 9 12:31 12
ÍBV 15 1 3 11 14:36 6
Markahæstu menn eru:
Guðm. Torfason, Fram 15
Valgeir Barðason, ÍA 9
Sigurjón Kristjánsson, Val 8
Ámundi Sigmundsson, Val 6
Grétar Einarsson, Víði 6
Guðm. Steinsson, Fram 6
Ingi Björn Albertsson, FH 6
Óli Þór Magnússon, ÍBK 6
Meistaramót hjá
Púttklúbbi Suðurnesja
Meistaramót Púttklúbbs Suð-
urnesja var haldið í Leirunni fyrir
nokkru. Spilað var í þremur flokk-
um, eldri flokki, yngri flokki og
kvennaflokki.
Úrslit í yngri flokki:
1. Jóhann Hannesson.
2. Jón Kr. Olsen.
3. Jón Kristinsson.
Úrslit í eldri flokki:
1. Vilhjálmur Halldórsson.
2. Jóhann Friðriksson.
3. Ragnar Magnússon.
Þetta er fimmta mótið í röð hjá
púttklúbbnum sem Vilhjálmur
Halldórsson sigrar í.
Kvennaflokkur:
1. Hrefna Sigurðardóttir.
2. Þuríður Þorgeirsdóttir.
3. Alís Fossárdal.
Tvísýn og skemmtileg keppni
var í öllum flokkum. Mótsstjórar
voru Ketill Vilhjálmsson og Vil-
hjálmur Þorgeirsson.
Getraunir af stað á ný
Næstkomandi laugardag verð-
ur leikin fyrsta umferð í ensku
knattspyrnunni á þessu keppnis-
timabili. Þá verður jafnframt
fyrsta leikvika hjá íslenskum get-
raunum á nýju starfsári. Seðlum
hefur nú þegar verið dreift til
umboðsmanna um allt land.
Sú nýbreytni verður nú tekin
upp að viðskiptavinum gefst nú
kostur á nýjum seðli þar sem hann
kýs sjálfur hversu margar raðir
hann kaupir. Þessi seðill kemur til
með að spara þeim vinnu sem
hafa áhuga á að spila mikið og
auka þannig vinningsmöguleikana.
Seðillinn fæst eingöngu hjá sér-
stökum sölumönnum íþrótta- og
ungmennafélaga auk þess hjá að-
alskrifstofu íslenskra getrauna.
Nú fyrir fyrstu leikviku flytur
aðalskrifstofan í íþróttamiðstöð-
inni sig milli húsa í Laugardalnum
og verður nú í miðhúsi hennar.
Fyrirtækið er nú komið í sitt eigið
húsnæði í fyrsta sinn í sögu þess.
Þar verður góð aðstaða fyrir þá
sem vilja koma í Laugardalinn, fá
sér seðil og fylla hann út á staðn-
um. Að þessu tilefni verður við-
skiptavinum boðið upp á kaffi og
með því á laugardaginn 23. ágúst
milli 9.00-14.00.