Morgunblaðið - 21.08.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
55
Heimsmet Beyer
UDO Beyer frá Austur-Þýska-
landi setti í gærkvöldi nýtt
heimsmet f kúluvarpi á frjálsí-
þróttamóti í Austur-Berlín.
Hann bætti eldra metið um tvo
sentimetra, kastaði 22,64
metra.
Gamla heimsmetið átti landi
hans Ulf Timmermann og setti
hann það í fyrra. Beyer setti
heimsmetið í sinni þriðju tilraun
og voru aðstæður í Austu-Berlín
ekki sem bestar, rigning og því
blautur kasthringurinn. Þetta var
síðasta mót hans fyrir Evrópu-
meistaramótið í Stuttgart sem
hefst í næstu viku. Beyer sem
nú er 31 árs, kastaði í fyrstu til-
raun 22,24 metra og síðan 22,58
• Udo Beyerfrá Austur-Þýska-
landi setti nýtt heimsmet i
kúluvarpi, kastaði 22,64 m.
metra. Þetta var í þriðja sinn sem
þessi sterki kúluvarpari setur
heimsmet.
Kvennaknattspyrna:
Leikið gegn
Sviss í kvöld
Ulfar annar
og fer
ÚLFAR Jónsson endaði í öðru
sæti á Doug Sanders-mótinu í
Skotlandi sem lauk i gær. Úlfar
lék völlinn á pari í gær, 71 höggi,
en Skotinn sem sigraði i mótinu
lék á 68 höggum.
Úlfar stóð sig eins og hetja á
þessu móti og skorið er mjög gott
hjá honum. Lék á 66-70-70-71 og
er því alls á 7 undir pari vallarins.
Skotinn lék á 71-69-65-68 og lék
á IMM
alls á 273 höggum sem er 11 högg-
um undir pari vallarins. Jafnir í
þriðja til fjórða sæti urðu Spán-
verji og Norömaður og léku þeir á
281 höggi.
Úlfar heldur í dag til Danmerkur
þar sem hann verður með íslensku
sveitinni sem keppir á Norður-
landamótinu í golfi sem hefst nú
um helgina.
Sleppur
ÞRÓTTUR vann í gær Einherja,
2:1, í 2. deildinni og var leikið
fyrir austan. Með þessum sigri
virðast Þróttarar ætla að hanga
í deildinni en Einherji hinsvegar
búinn að missa af lestinni í 1.
deild.
Daði Harðarson skoraði úr víta-
spyrnu í fyrri hálfleik og Sigurður
Hallvarðsson bætti öðru marki við
rétt eftir hlé áður en Hallgrímur
Þróttur?
Guðmundsson minnkaði muninn
fyrir heimamenn.
Hörkuleikur á Vopnafirði þar
sem heimamenn voru óheppnir að
skora ekki strax á fyrstu mínútu
leiksins og ef allt hefði verið með
felldu hefðu þeir átt að geta skorað
ein þrjú mörk fyrir hlé. Það tókst
ekki og Þróttarar virðast komnir á
skrið.
íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu leikur tvo landsleiki
við Svisslendinga og fer fyrri leik-
urinn fram í kvöld kl. 19.00 á
Laugardalsvelli. Síðan verður
leikið á Akranesi á laugardag.
Landsliðsþjálfarinn Sigurbergur
Sigsteinsson hefur valið eftirtalda
16 leikmenn fyrir leikina:
Markverður eru þær Erna
Lúðvíksdóttir, Val og Vala Úlfljóts-
dóttir, ÍA. Aðrir leikmenn: Arna
Steinsen, KR, Ásta B. Gunn-
laugsd., UBK, Ásta M. Reynis-
dóttir, ÚBK, Erla Rafnsdóttir, UBK,
Guðrún Sæmundsdóttir, Val,
Halldóra Gylfadóttir, ÍA, Ingibjörg
Jónsdóttir, Val, Laufey Sigurðar-
dóttir, Berg. Gladbach, Magnea
Magnúsdóttir, UBK, Karítas Jóns-
dóttir, ÍA, Katrín Eiríksdóttir, ÍBK,
Kristín Arnþórsdóttir, Val, Svava
Tryggvadóttir, UBK, Vanda Sigur-
geirsdóttir, ÍA.
ísiand lék viö Sviss á síðastliönu
ári og gerði þá jafntefli í fyrri leikn-
um, 3:3, og vann seinni leikinn 3:2.
Þessir tveir landsleikir við Sviss-
Maraþonið:
Skráningu
lýkur í dag
SKRÁNING þátttakenda í
Reykjavíkurmaraþon hefur geng-
ið vel, en síðasti skráningardagur
er í dag.
Skráningu í hlaupið átti að Ijúka
í gær, en ákveðið var að fram-
lengja tímann um einn dag. Þegar
hafa um þúsund manns skráð sig
í hlaupiö, sem er helmingi meiri
þátttaka en í fyrra.
Skráning ferfram hjá Ferðaskrif-
stofunni Úrval í Pósthússtræti.
lendinga eru síðustu verkefni
kvennalandsliösins á þessu ári.
Landsleikirnir við Færeyinga unn-
ust báðir, en fyrirfram var vitað
að landsleikirnir við V-Þjóðverja
sem fram fóru í júlí yrðu mjög erfið-
ir, enda töpuðust þeir báðir.
Svisslendingar eiga mjög gott
og leikandi lið og er því spennandi
að sjá íslenska liðið spreyta sig við
það svissneska.
„ÉG SKIL ekkert í stjórnarmönn-
um þessara félaga. Svo virðist
sem þeir geri sér ekki grein fyrir,
að knattspyrnuleikur fer fram á
vellinum og þar ráðast úrslitin,
en ekki á fundum einhvers staðar
úti í bæ,“ sagði Jim Barron, þjálf-
ari ÍA, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins vegna Péturs-
málsins svonefnda.
„Ég er þjálfari og vel liðið hverju
sinni úr ákveðnum hópi leikmanna,
sem eru í ÍA. Við fengum bréf frá
KSÍ varðandi Pétur Pétursson, þar
sem segir að hann sé löglegur með
okkur. KSÍ væri ekki að senda okk-
ur bréf um að Pótur sé löglegur
til þess eins að menn í héraði
dæmdu hann ólöglegan. Ákvörð-
unin og valdið hlýtur að vera hjá
KSÍ og því skil ég ekkert í þessum
kærum.
Við lékum okkar besta leik í
sumar í undanúrslitum Mjólkur-
Úrslit í
ÞRÍR leikir voru í úrslitakeppni
4. deildar í gærkvöldi. Afturelding
tryggði sér endanlega sigur í
sfnum riðli og leika f 3. deild að
ári er þeir unnu Hauka 1:0 í Hafn-
arfirði.
Bolungarvík og Leiknir skildu
• Jim Barron
bikarkeppninnar og svo eyðileggja
Valsmenn ánægjuna með því að
4. deild
jöfn fyrir vestan, hvoru liði tókst
að skora þrjú mörk í leiknum.
HSÞ-b vann Hvöt með tveimur
mörkum gegn engu í hinum riðlin-
um og eru þeir nú með forystu í
riölinum.
kæra. Ekki leikmennirnir, ekki lan
Ross, þjálfari, heldur stjórnar-
menn. Ég hef átt ánægjuleg
samskipti við Val og þess vegna
kom þessi kæra mér mjög á óvart.
Áhorfendur vilja sjá góða leik-
menn og menn eins og Pétur efla
þá sem fyrir eru. Valur notaði
Sævar Jónsson í fyrra og FH Janus
Guðlaugsson. Þá var allt í lagi.
Pétur hefur verið einn af lykilmönn-
um landsliðsins, en var ekki í neinu
liði. Þá kom hann til okkar og sagð-
ist vilja leika með ÍA. Landsliðið á
mikilvæga leiki fyrir höndum í
haust og það hlýtur að vera allra
hagur, að leikmennirnir séu í sem
bestri leikæfingu. Þvi ættu menn
að gleðjast yfir því að Pétur leiki,
þar sem hann er löglegur, í stað
þess að vera síkvartandi. Kærumál
eins og þessi gera ekkert annað
en skemma fyrir þeim sem kæra,“
sagði Jim Barron.
Ákvörðunin og valdið
hlýtur að vera hjáKSÍ
— segir Jim Barron, þjálfari ÍA
Athugasemd frá Val vegna
ummæla formanns KSÍ
ROYAL ANTWEr'?FOOTBALL CLUB
Vegna ummæla sem formað- 2.
ur KSI Ellert B. Schram viðhafði
í Mbl. síðastliðinn laugardag
vill Knd. Vals taka fram eftirfar-
andi:
1. Það getur vart talist sæma
stöðu Ellerts B. Schram sem
formanns KSÍ að gefa yfirlýs-
ingar af því tagi sem gert var
varðandi óútkljáð kærumál.
Það er dómstóla að segja þar
álit sitt en ekki formanns KSÍ.
Hafi hann skoöun á málinu
getur hann látið hana i Ijós
er dómur er genginn en ekki
fyrr.
Það er alrangt hjá formanni
KSÍ að félagaskipti Péturs
Péturssonar séu sambærileg
við félagaskipti Péturs
Ormslev, Janusar Guðlaugs-
sonar og Sævars Jónssonar.
Því til stuðnings er birt hér á
síðunni Ijósrit af samkomulagi
ÍA og Antwerpen þar sem
kemur skýrt fram að Pétur
telst leikmaður Antwerpen en
fær einungis tímabundið leyfi
til að spila með ÍA frá 2. ágúst
til 15. okt. Engin slík skilyrði
voru til staðar varöandi fé-
lagaskipti Péturs, Sævars og
Janusar. Auk þess skapa
framkvæmdir KSÍ í slíkum
málum ekki fordæmi heldur
niðurstöður dómstóla.
3. Það er líka alrangt hjá for-
manni KSÍ að stjórn KSI hafi
veriö veitt lagalegt og form-
legt umboð til að kveða á um
hvenær leikmenn eru hlut-
gengir eftir keppnisþátttöku
erlendis og að KSI taki fyrir-
fram ábyrgð á hlutgengi
þeirra. Ef svo er til hvers er
þá dómstóll KSÍ?
Knattspyrnudeild Vals.
«1»]
precision
hjörulids-
krossar
«iNö
pgyNS^
pjóN
USTA
pEI<
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
Sf
ÖRKIN/SÍA