Morgunblaðið - 25.10.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
11
Leíkhópur Nemendaleikhússins
Listin og fyrir-
heitna landið
LEIKLIST
Jóhann Hjálmarsson
Leiklistarskóli íslands,
Nemendaleikhús
LEIKSLOK í SMYRNU
eftir Horst Laube.
Byggt á upprunalegri hugmynd
og verki eftir Carlo Goldoni.
Þýðandi: Árni Bergmann.
Leikstjóri: Kristín Jóhannes-
dottir.
Leikmynd, búningar og lýsing:
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir.
Aðstoðar- og tæknimaður: ÓI-
afur Örn Thoroddsen.
Tónlist: Hilmar Órn Hilmars-
son.
Eins og svo oft áður vekur það
athygli hve kraftmikið Nemenda-
leikhúsið er. Sá hópur sem nú
flytur Leikslok í Smyrnu í Lind-
arbæ hefur náð góðum árangri,
ræður yfír tækni og er búinn
þeirri sköpunarþörf sem æskileg
er. Leikritið er síður en svo létt
viðfangsefni, en það tókst að
koma því til skiia án skakkafalla
og án verulegra hnökra.
Horst Laube hefur endurvakið
heim Carlos Goldonis, óperuveröld
Feneyja. Verkið var frumflutt í
Miinchen í fyrra. Kristín Jóhann-
esdóttir leikstjóri kemst þannig
að orði um hlut Laubes að „hið
löngu liðna stefnumót á sviðinu
við augnablikið sem er að líða“.
Leikslok í Smymu er miskunn-
arlaus ádeila á prímadonnur og
tenóra, veröld söngvara og leik-
ara. Lasca greifi fær til liðs við
sig ungan Tyrkja, Alí að nafni, í
því skyni að ná sér niðri á fólki
sem hann telur að hafí vanvirt
óperuna. Lasca er kroppinbakur,
mikill aðdáandi óperuformsins, en
flytjendumir fara í taugamar á
honum. Sjálfselska þeirra og hé-
gómagimd sitja að hans dómi í
fyrirrúmi fyrir listinni. Hann vill
veita eftirminnilega ráðningu og
tekst það með hjálp Tyrkjans. En
það sem átti að vera leikur og
stríðni breytist í harmleik og
óperufólkið öðlast samúð áhorf-
andans vegna þess að það er
nákvæmlega jafn umkomulaust
og annað fólk í leit að þolanlegri
tilvem. Það verður ekkert úr ferð-
inni til Smymu þar sem á að
syngja í ópemhúsi sem reyndar
er ekki til. Sú Smyma sem alla
dreymir um er vitanlega hvergi á
þessari jarðkúlu, hið fyrirheitna
land verður aldrei annað en fyrir-
heitna landið.
Stefán Sturla Sigurjónsson
leikur Lasca greifa og nær góðum
tökum á þessu vandasama hlut-
verki. Leikstjórinn ýkir hlut
kroppinbaksins, en það er við
hæfi í þeirri gerviveröld sem dreg-
in er fram í verkinu.
Tyrkinn Alí er í höndum Val-
geirs Skagfjörð. Lucretiu leikur
Olafía Hrönn Jónsdóttir, Togninu
Ingrid Jónsdóttir og Anninu
Þórdís Amljótsdóttir. Þórarinn
Eyfjörð er Carluccio, Hjálmar
Hjáimarsson Pasqualino og Hall-
dór Bjömsson skáldið Maccario.
Gestaleikarar em Ingvar Eggert
Sigurðsson, nemandi í 1. bekk LÍ
og leikaramir Kristbjörg Kjeld og
Jón S. Gunnarsson.
Jón S. Gunnarsson naut sín vel
í hlutverki Beltrames veitinga-
manns og sama er að segja um
Kristbjörgu Kjeld sem lék móður
Anninu. Ekki er ástæða til að
gera upp á milli hinna ungu leik-
ara, en frammistaða þeirra allra
var til sóma.
Leikslok í Smymu er ekki bara
hreyfingar og annað leikrænt
táknmál, heldur snjall og víða
fyndinn texti. Hann hljómaði vel
í þýðingu Ama Bergmanns.
Tónar Hilmars Amar Hilmars-
sonar vom dramatískir og nokkuð
hástemmd}r í upphafi.
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir
hefur með leikmynd sinni og bún-
ingum unnið gott verk og er með
ólíkindum hve vel tekst að nýta
húsnæðið í Lindarbæ.
Leikslok í Smymu færa okkur
andrúmsloft hins liðna en líka
samtímann, hugmyndheim Gol-
donis í nýju og áleitnu ljósi.
Viðleitni til að kort-
leggja veruleikann
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Kristinn Guðbrandur Harðarson:
Eilifir sólargeislar
Reykjavík 1986
Kristinn Guðbrandur Harðarson
er myndlistarmaður, en fylgir nú
margra fordæmi og sendir frá sér
ljóðabók.
í fyrsta hluta Eilífra sólargeisla
em yfirleitt stutt ljóð, fáeinar línur
sem rifla upp mannkynssögu,
stundum eins og klipptar út úr
kennslubókum:
Dareios Persakonungur
mold og vatn (jarteikn)
vitur maður, víðsýnn og kappsfullur
öflugur herskipafloti
blómleg verslunarborg
herskipaflotinn tvístraðist í ofsaveðri
straumar í þröngu sundinu
(479 f. Kr.) 488 f. Kr.
landleið vestur Litlu-Asíu
Xerxes Persakonungur.
(Jarteikn)
Svo á Kristinn Guðbrandur til
rómantík sem lýsir sér í orðalagi
eins og „litskrúðugt ævintýraland"
og „leikfang/ í glatkistu/ eilífs dá-
semdarlands", bæði dæmin úr ljóði
samnefndu bókinni.
Einna best tekst í lokakafla bók-
arinnar þegar gripið er til opins
ljóðstíls í ljóðum sem nefnast
Sveitapilturinn byssan og bifreiðin,
30/8 ’85 (suður) og Við ystu mörk.
Þessi ljóð verða ekki talin mark-
verður skáldskapur (að minnsta
kosti ekki af undirrituðum), en það
er í þeim viðleitni til að kortleggja
vemleikann, draga upp myndir og
mæla fram hálfkveðnar vísur:
hátt stillt útvarp um miðnætti
um 8-10 km kl. 03.00; heim um kl. 04.00
íburðarmikið heimili á afskekktum stað
hegðun um kvöld
orðrómur í húsi
hámálar, púðurdósir og kvenmannsflíkur
sama kvöldið í kommóðuskúffu
um kl. 4 eða 5, síðan kl. 23.45 úr skurðinum
í vasa; úr vinstri skónum
100 km suðaustan við heimabyggðina
á fímmtudeginum
grátið við axlir seinna um kvöldið
flugeldar í rigningu
beðið á tröppunum
(Sveitapilturinn byssan og biffeiðin)
Kristinn Guðbrandur Harðarson
hefur tileinkað sér tjáningu sem
grundvallast á upptalningu og að
fanga sem mest af því sem er á
yfirborðinu. Það sem ljóðin skortir
er dýpt, sú krafa sem gera verður
tl skálda um að velja og hafna.
Skáldskapur er ekki fólginn í því
að láta allt fljóta með, en það má
yrkja góð ljóð með því hugarfari
að þau líti út eins og skáldið hafi
ekki reynt að takmarka sig. Til
þess að slík ljóð heppnist þarf fyrst
og fremst ögun hversu mótsagna-
kennt sem það kann að hljóma.
Það er tilvalið að koma í JL Byggingavörur við Hringbraut eða Stórhöfða.
Þiggja góð ráð frá sérfræðingum um allt mögulegt sem lýtur að
húsbyggingum, breytingum og viðhaldi húseigna.
Við höfum ætíð heitt kaffi á könnunni.
Laugardaginn 25. október verður kynningu háttað sem hér segir:
JL Byggingavörur, Stórhöfða.
Laugardaginn 25. októberkl. 10-16.
LÉTTSTEYPAN HF. MÝVATNSSVEIT
Útveggja- og milliveggja kalksteinn.
Milliveggjahellur, gangstéttarhellur
og skrautflísar.
KYNNINGARAFSLÁTTUR.
JL Byggingavörur v/Hringbraut.
Laugardaginn 25. októberkl. 10-16.
Kynning á ROKAL blöndunartækjum.
Vesturþýsk gæðavara.
KYNNINGARAFSLÁTTUR
Komið, skoðið, fræðist
BYGGINGAVORUR
2 góðar byggingavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100 • v/Hringbraut, sími 28600