Morgunblaðið - 25.10.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDÁGUR 25. OKTÓBER 1986
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson.
Bryggjuhúsið áður en niðurrif þess hófst.
Akranes:
Bryggjtihús hverfa
Akranes.
BÚIÐ ER að brjóta niður hluta af bryggjuhúsi á hafnargarðinum
við Sementsverksmiðjuna á Akranesi og er óhætt að segja að sjónar-
svip
[ þessu bryggjuhúsi voru staðsett
færibönd sem fluttu sementpokana
áleiðis til skips. í tímans rás hafa
verið tekin upp ný vinnubrögð og
því er hlutverki hússins og færi-
bandanna lokið og þau látin hverfa.
Það er fremsti hlutinn sem hefur
verið brotinn niður og skapast við
það betri aðstaða við hafnargarð-
inn. Ekki er ákveðið hvort það sem
eftir er af húsunum verði einnig
brotið niður í náinni framtíð.
- JG
Þannig er umhorfs á bryggjunni eftir að hluti hússins hefur verið
rifinn.
Ný hljóm-
plata Ket-
ils Jens-
sonar
ÚT ER komin þrettán laga ein-
söngshljómplata Ketils Jensson-
ar með píanóundirleik Jónas
Ingimundarsonar og Fritz Weiss-
happel. Þrjú laganna voru
hljóðrituð í Hlégarði í júlimánuði
1986 og fimm laganna voru upp-
haflega hljóðrituð i Ríkisútvarp-
inu á árunum 1954 til 1955 og
gefin út á 78 snúninga hljóm-
plötu af íslenskum tónum.
Ketill er fæddur árið 1925 í
Reykjavík. Hann hlaut sína fyrstu
tilsögn í söng hjá Pétri Á. Jónssyni
1947 og árið síðar söng hann ein-
sögn með Karlakór Reykjavíkur.
Til Ítalíu hélt Ketill snemma árs
1949 og dvaldi þar um þriggja ára
skeið við söngnám. Eftir heimkom-
una hélt hann nokkra tónleika í
Gamla Bíói og það sama ár, 1952,
söng hann í uppfærslu Þjóðleik-
hússins á Leðurblökunni eftir
Johann Strauss._ Enn lá leiðin til
frekara náms á Ítalíuþar sem hann
söng m.a. hlutverk Edgardos í Luc-
ia di Lammermoor eftir G. Doniz-
etti. Veturinn 1954-55 söng hann
svo hlutverk Turiddu í Cavalleria
Rusticana eftir P. Mascagni.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JUDY DEMPSEY
Ungveijaland:
Minningarnar um upp-
reisnina 1956 verða
ekki kveðnar niður
Um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin frá þvi að Sovétmenn komu
á skriðdrekum inn í Búdapest til að bæla niður uppreisn, sem
þar var í uppsiglingu. Ungverski Kommúnistaflokkurinn hefur
nú tekið af skarið með þvi að halda upp á þrítugsafmæli innrásar-
innar og segja að hún hafi verið gerð til að kæfa niður „gagn-
byltingu öfgaafla fasista*1.
Flokkurinn grípur til þessa
bragðs til að kippa fótum
undan stjómarandstöðunni, sem
segja má með vissu að hefði látið
í sér heyra ef stjómvöld hefðu
hvergi minnst á innrás Sovét-
manna 4. nóvember.
Umfjöllun til að koma í veg
fyrir gagnrýni
Yfirvöld fengu að kenna á því
í fyrra. Þá héldu svokölluð „rak-
part“ félög, sem eru leyfð opin-
berlega, viðræðufunda og
rökræðna um atburði ársins 1956.
Margir ræðumanna sögðu að það,
sem gerðist 1956, hefði verið bylt-
ing. Yfírvöld settu starfsemi
félaganna stólinn fyrir dymar.
Stefna stjómvalda var augljós.
Einu gildir hversu mikið svigrúm
ungverskir fjölmiðlar hafa á vor-
um dögum til að fjalla um umdeild
málefni: túlkun á því, sem gerðist
fyrir þijátíu árum, er á valdi kom-
múnistafíokksins eins.
Túlkun á uppreisninni og innrás
Sovétmanna er óneitanlega nauð-
synleg stjómvöldum þótt ekki
væri nema fyrir þá sök eina að
þeir atburðir, sem áttu sér stað í
Ungveijalandi í október og nóv-
ember 1956, em enn ofarlega í
hugum Ungvetja. Því hafa ung-
versk yfirvöld undanfarið lagt á
þá dijúga áherslu.
Fyrir rúmri viku síðan gafst
ungverskum sjónvarpsáhorfend-
um kostur á að fylgjast með
myndaflokki í sex þáttum, sem
ætlað er að „uppræta misskilning
fólksins og koma á hreint" hvað
gerðist um fyrir og eftir að Sovét-
menn komu á skriðbeltum inn í
Búdapest 4. nóvember fyrir
þijátíu ámm.
Naflaskoðun í útvarpi
og sjónvarpi
Sjónvarpsefnið sigldi í kjölfar á
útvarpsþáttum um málefnið, sem
oft og tíðum var tekið opinskáum
tökum, þótt forðast væri að nefna
viss atriði. Háttsettir embættis-
menn kommúnistaflokksins
ræddu í viðtölum um „mistök
ungverska flokksins", einkum og
sér í lagi handvammir leiðtogans,
sem þá var við völd og stjómaði
í anda Stalíns, Matyas Rakosi.
Karoly Grosz, formaður kom-
múnistaflokksins, hefur aukin-
heldur látið í sér heyra á öldum
hljóðvakans. Þrátt fyrir raddir
gagnrýni er flokkslínan óbreytt:
uppreisnin 1956 var „gagnbylt-
ing“.
Opinberlega er þetta orðað svo:
„and-sósialísk öfl vildu kollsteypa
ríkjandi kerfí með aðstoð erlendra
óvina, sem í þokkabót reyndu að
hylma yfír aðild sína“.
Hvergi hefur verið minnst Ist-
van Bibo opinberlega. Hann var
ráðherra í stjóminni, sem sat
1956, og telja margir að hann
hafí verið mesti stjómmálahug-
suður Ungveija til þessa. Bibo
mótmælti fyrstur manna afskipt-
um Sovétmanna og fór fram á
að stórveldi heims skærust í leik-
inn. Ungveijar hafa, sagði hann,
„risið upp án stéttskiptingar og
trúarlegra fordóma gegn eriend-
um innrásarher og innlendum
böðlum hans“.
Bibo sat og færði mótmæli sín
í orð meðan Sovétmenn hertóku
Búdapest í innrásinni 4. nóvem-
ber. Nokkrum dögum eftir að
Sovétmenn höfðu fyrst afskipti
af stjómmálaástandinu í Ung-
veijalandi 23. október var því
haldið fram að Ungveijar stæðu
frammi fyrir „gagnbyltingu" og
fasistar hefðu lagt á ráðin um
hana. Bibo vísaði þessu alfarið á
bug.
Ráðherrann sat á skrifstofu
sinni og vélritaði mótmæli sín
þegar sovéskir hermenn ruddust
inn í þinghúsið. Hann kvaðst vera
ráðherra í ríkisstjóminni og þurfa
að sinna aðkallandi málum. Her-
mennimir leyfðu honum að halda
áfram störfum og skildu meira
að segja eftir vörð til þess að
hann gæti sinnt þeim óáreittur.
Eftir að hann hafði vélritað
mótmælin snyrtilega á blað gekk
hann út úr þinghúsinu, yfir torgið
og afhenti blaðið í bandaríska
sendiráðinu. Bibo var stungið í
fangelsi fyrir vikið og hlaut hann
ekki uppreisn æm þegar hann var
látinn laus.
Ákalli hans um aðstoð til að
tryggja sjálfstæði Ungveijalands
var aldrei svarað. Janos Kadar
var gerður að formanni flokksins
og hann er leiðtogi Ungveija enn
þann dag í dag.
Sovétmenn fengu sínu
framgengt
Sovétmenn höfðu fengið það,
sem þeir vildu. Rúmlega tvö þús-
und menn voru teknir af lífi og
tuttugu þúsund misstu atvinnuna
eða voru settir í fangelsi. Allar
tilraunir til endurbóta á kerfínu
voru kæfðar.
Kadar hefur að mörgu leyti
breytt þjóðfélaginu síðan 1956.
Hann hefur gert talsverðar um-
bætur í efnahagsmálum. Óttinn
hefur vikið fyrir neysluhyggju,
dregið hefur úr spennu í þjóð-
félaginu og Ungvetjum hefur
tekist að ávinna sér virðingu á
alþjóðlegum vettvangi. Margt hef-
ur breyst síðan 1956, en minning-
amar eru engu að síður áleitnar.
Þess vegna em ungversk yfir-
völd á varðbergi þegar atburði
ársins 1956 ber á góma. Ef þeir
einhvem tíma viðurkenna að Ung-
veijar vildu í raun flölræði á
ólgudögunum 1956 verður lög-
mæti þess kerfís, sem nú er við
lýði, auðveldlega vefengt. Að auki
yrði ekki hjá því komist að fjalla
um þá atburði, sem gerðust eftir
innrásina, einkum ógnaröldina,
sem gekk í garð. Bannað er að
fjalla um þetta tímabil ungverskr-
ar sögu í Ungveijalandi á vomm
dögum.
Enn fremur em óskráð lög að
ekki megi færa í tal að gömlu
stjómmálaflokkamir, sem störf
uðu áður en kommúnistar tóku
völdin í Ungveijalandi 1948, vom
endurreistir samkvæmt stjómar-
skrárbreytingu í október og
nóvember 1956. Þar á meðal var
Jafnaðarmannaflokkurinn og
Bændaflokkurinn. Istvan Bibo var
einn leiðtoga hans.
„Ungveijar vildu blása nýju lífi
í gamlar pólitískar hefðir," segir
sagnfræðingur frá Búdapest.
„Vitaskuld var Ungveijaland ekki
fyrirmyndar lýðræðisríki fyrir
byltinguna, en fjölræði í stjóm-
málum var fyrir hendi.“ Ekki var
minnst á það að aðrir stjóm-
málaflokkar en flokkur kommún-
ista hefðu verið komnir á skrið í
áðumefndum útvarpsviðtölum.
Og þessa flokka var trauðla hægt
að kenna við fasisma.
Að hyggju yfirvalda er ekki
rétti tíminn til þess nú að ræða
eða skrifa um þessi mál. Yfírvöld
hafa gert sér grein fyrir því að
ógemingur er að koma í veg fyrir
að fólkið hugsi um þau og reyna
því að breyta skilningi manna á
þeim atburðum, sem gerðust í
Ungveijalandi 1956.
Afsteypa af hðfði Stalíns liggur skörðótt & götu í Búdapest áríð
1956: Matyas Rakosi, scm var við völd þegar uppreisnin var gerð,
sótti stjómaraðferðir sínar í smiðju hins illræmda leiðtoga Sov-
étríkjanna.