Morgunblaðið - 25.10.1986, Page 33
^vqGABDfGUfi ^.
m:
AKUREYRI
Gatan að Verk-
menntaskólanum:
Námsbraut
eða Eyrar-
landsholt?
SKÓLANEFND Verkmennta-
skólans hefur lagt tíl við
bæjarstjóm að bygginganefnd
Akureyrar verði falið að gefa
götunni sem liggur frá Þórunn-
arstræti, norðan bílastæðis
skólans á Eyrarlandsholti, tíl
vesturs, nafn.
í greinargerð skólanefndar segir
að nefnd gata hafí orðið að um-
ræðueftii á opinberum vettvangi,
sbr. fundargerð bæjarráðs 25.
september, fundargerð skipulags-
nefndar 23. september og frásögn
fréttamanns í svæðisfréttum í
RÚVAK miðvikudaginn 8. október,
svo dæmi séu tekin. Síðan segir:
“Gatan hefur enn ekki hlotið nafn
og var í áðumefndum tilvikum
kölluð „námsbraut". Nöfn eru m.a.
ætluð til að greina einn stað frá
öðrum, glæða umhverfí okkar lífí
og hafa menningarlegt gildi, sbr.
kvæði Tómasar. Þeim er og ætlað
að lifa um langan aldur. Að sjálf-
sögðu skulu þau falla að beyging-
ar- og merkingarkerfí tungunnar.
Orðið fellur að beygingarkerfi
íslensks máls, en ekki verður hið
sama sagt um merkingarlegu hlið-
ina í þessu tilviki. I Námsskrá
handa framhaldsskólum, náms-
brautir og áfangalýsingar,
Menntamálaráðuneytið, apríl
1986, er heitið „námsbraut" notað
um afmarkaða námsferla innan
framhaldsskólans. Hliðastæða
notkun orðsins er einnig að fínna
í Kennsluskrá Háskóla íslands,
Reykjavík 1986.
Fari svo, að „sjálfboðaliðum"
verði gefínn kostur á að nefna
götur og vegi, má nefna, að vegur
frá Þórunnarstræti að FSA gæti
allt eins heitið „Heilsugæslubraut"
... og vegstubbur frá Þingvalla-
stræti að Pálmholti, innan girðing-
ar, „Uppeldisbraut“.“
í lok fundargerðar skólanefndar
er minnt á tillögu að naftii, sem
fram hafí komið í bókun nefndar-
innar 8. mars 1984, en það var
nafnið Eyrarlandsholt. Nýbygg-
ingar skólans standa á samnefndu
holti, og tala skólamenn ætíð um
Verkmenntaskólann á Eyrarlands-
holti. Þess má geta að til eru götur
með endingunni -holt á Akureyri,
Stórholt, Lyngholt, Langholt og
fleiri - en þær eru að vísu í þorpinu.
Vetrardekkin sett undir
Morgunbladið/Sk&pti Hallgrímsson
ÞAÐ VAR mikið að gera á þjólbarðaverkstæðunum á Akureyri
í gær - jörð var alhvít er ibúar í höfuðstað Norðurlands nudduðu
stírumar úr augunum í gærmorgtm og þeir voru margir, sem
drifu sig árla dags til að setja vetrarhjólbarðana undir - eins og
sá á meðfylgjandi mynd. Enda eins gott að vera vel búinn, fjjúg-
andi hálka var á götum bæjarins í gær og urðu nokkrar árekstrar.
Að sögn lögreglu var þó enginn þeirra harður.
Starfsmenn Kaupfélagsins á Svalbarðseyrí eiga enn inni laun fyrir janúar, febrúar og mars:
Oljóst hvort þeir fá nokk-
uð borgað fyrr en í janúar
ALLIR starfsmenn Kaupfélags-
ins á Svalbarðseyri eiga enn inni
laun hjá félaginu fyrir janúar-
mánuð á þessu ári og nokkrir,
sem fóru ekki á launaskrá hjá
KEA þegar það tók félagið á
leigu 1. febrúar, eiga einnig inni
laun fyrir febrúar og mars.
Óljóst er hvort laun þessi fást
greidd fyrr en eftir skiptafund
í þrotabúi kaupfélagsins sem
verður 15. janúar á næsta ári.
Ríkisábyrgð er á launum og hef-
ur Ólafur B. Árnason lögmaður á
Akurejri séð um innheimtu þessara
launa fyrir Verkalýðsfélagið Ein-
ingu. Hann hefur nú þegar lýst
kröfum í janúar-launin og nam upp-
hæðin rúmum tveimur milljónum
króna þegar krafan var gerð. „Þetta
gengur þá leið að fyrst krefur mað-
ur ráðuneytið um launin og sendir
því þau gögn sem hafa fylgt með
til skiptaráðandans. Síðan sendir
ráðuneytið það aftur til skiptaráð-
anda til að fá svör við ákveðnum
spumingum. Eftir að hafa fengið
svör við þeim borga þeir,“ sagði
Ólafur í samtali við Morgunblaðið.
Hvernig er með sumarfri og
áunnið orlofT Eiga starfsmenn
að fá greitt fyrir það iíka?
„Já, það er ríkisábyrgð á þvi líka,
á orlofsgreiðslunum. Eg held þvf
fram að ríkið eigi að taka það á
sig líka, að það séu laun,“ sagði
Ólafur, en þessi atriði voru ekki
inni í upphæðinni sem gerð hefur
verið krafa um - það voru einungis
vinnulaun fyrir janúar.
Halldór Krístinsson, sýslumaður
á Húsavík, sagðist f samtali við
Morgunblaðið vera búinn að fá bréf
frá féiagsmálaráðuneytinu þar sem
spurt er hvort þessar kröfur f laun-
in verði teknar til greina. „Það
liggur ekki fyrir fyrr en eftir kröfu-
lýsingarfrest og sennilega ekki fyrr
en á skiptafundi 15. janúar,“ sagði
Halldór. „Félagsmálaráðuneytið á
að borga þetta og ég býst við að
ráðuneytið vilji fá kröfumar viður-
kenndar."
Kröfulýsingarfrestur er þrír
mánuðir frá birtingu auglýsingar í
Lögbirtingarblaðinu, 10. septemb-
er, „og eftir að allar kröfumar em
komnar verður að fara að vinna að
því að taka afstöðu til þeirra," sagði
Halldór. Að sögn Halldórs verður
skrá með kröfum í búið að liggja
frammi sfðustu vikuna fyrir skipta-
fund. „Það geta hugsanlega komið
fram mótmæli við þessar kröfur á
skiptafúndi þannig að mér fínnst
ólíklegt að nokkuð liggi fyrir fyrr
en eftir skiptafund," sagði Halldór
sýsjumaður.
Óskar Hallgrímsson í vinnumála-
deild Félagsmálaráðuneytisins
sagði í samtali við Morgunblaðið
að kröfur í búið væm til umsagnar
hjá skiptaráðanda - „hann er ekki
farinn að svara fyrir sitt leyti enn-
þá. Annað hvort bíður hann eftir
skiptalokum eða hann afgreiðir
málið frá sér með því að lýsa þvf
yfír að hann muni leggja ti á skipta-
fundi að krafan verði viðurkennd.
Ef það er gert er það venjulega
látið duga.“
Þannig að ef sýslumaður lýsi
þvi yfir að hann ætli að mælast
til þess á skiptafundi að launa-
kröfumar verði greiddar þá
greiðið þið fólkinu strax?
„Já, svo framarlega sem hann
viðurkennir kröfumar sem for-
gangskröfur þá er það venjulega
látið duga þannig að ríkissjóður
leysir þær kröfiir til sfn, í bili að
minnsta kosti."
Eru greiddir einhveijir vextir
á launakröfurnar?
„Ríkisábyrgðin tekur aðeins til
almennra sparisjóðsvaxta,“ sagði
Ólafur.
IforgunblaAið/Skapti Hallgrfmsson
Ein mynda Sigurðar á sýningunni í Útvegsbankanum.
Sigurður Hallmarsson sýnir
í Útvegsbankanum
SIGURÐUR Hallmarsson, hinn fjölhæfi listamaður þeirra Hús-
víkinga, er nú með myndlistarsýningu f Útvegasbankanum á
Akureyri.
Sigurður, sem er skólastjóri á Húsavík og landskunnur leikari, sýnir
9 stórar vatnslitamyndir og em þær allar til sölu. Þetta er 5. sýning
Sigurðar og stendur hún út nóvember.
Byggðastofnun:
Fyrsta sljórnsýslu-
míðstöðin á Akureyri
SAMÞYKKT var á stjóraarfundi
f Byggðastofnun f fyrradag að
stofnunin hefði forgöngu um að
stofna stjórnsýslumiðstöðvar f
kjördæmum landsins. Stjórnin
telur rétt að byijað verði á þvf
að koma upp þessum miðstöðvum
Verksmiðja
Istess í gang
í janúar
HÚS fóðurverksmiðju ístess f
Krossanesi er nú að verða til-
búið. í vikunni hafa verið hffar
vélar inn f húsið og verður þf
hægt að loka þvf ffjótlega.
Að sögn Guðmundar Stefánsson-
ar, framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins, fer verksmiðjan væntanlega af
stað um miðjan janúar. Hún mun
framleiða fiskifóður, aðallega laxa-
fóður, fyrir innanlandsmarkað en
einnig til útflutnings.
f þeim kjördæmum sem fjærst
eru Reykjavfk. tsafjörður, Akur-
eyri og Egilstaðir eru þeir staðir
sem eru efst á blaði og er kveðið
skýrt á um að Akureyri verði
fyrst f röðinni.
- Það var Stefán Guðmundsson,
formaður stjómar Byggðastofnun-
ar, sem bar upp tillögu þessa á
stjómarfundinum og var hún sam-
þykkt samhliða. Stjómsýslumið-
stöðvar þessar em hugsaðar til þess
að dreifa opinberri þjónustu um
landið.
Húsmæður
á Akureyri
Hafið þið áhuga á að fá ykkur morgungöngu
sem borgar sig? Hafið þá samband við af-
greiðslu Morgunblaðsins á Akureyri. Sími
23905.
Morgunblaðið á Akureyri
Hafnarstræti 85,
sími23905.