Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARPAGUR 25, OKTÓBER 1986
Þessir hringdu . . .
Óliðlegheit í
útibúi Lands-
bankans,
Laugavegi 77
Utanbæjarmaður hringdi:
S.l. vetur átti ég leið um Lauga-
veginn og leit þá inn í útibú
Landsbankans að Laugavegi 77.
Mig vantaði ávísanahefti, reikning-
urinn er að vísu í aðalbanka
Landasbankans, en ég hélt að það
gæti ekki orðið neinn ásteytingar-
steinn. En það var nú eitthvað
annað. Hvemig sem ég bað þá fékk
ég ekki ávísanaheftið. Og þegar ég
bað um að fá að hringja niður (
aðalbankann, eftir að afgreiðslu-
maðurinn hafði neitað að gera það
fyrir mig, þá var ekki við það kom-
andi. Síminn var aðeins fyrir þá er
sátu fyrir innan borðið. Ávísanahef-
tið fékk ég ekki.
Rás 2 að kristi-
legu útvarpi
Ein úr hjörðinni hringdi og stakk
upp á því að Rás 2 yrði gerð að
kristilegri útvarpsstöð. Kristileg fé-
lög gætu þá tekið höndum saman
um rekstur hennar en við það myndi
kveða við alveg nýjan tón í útvörp-
um landsmanna.
Hver fann
keðjurnar?
Ragnhildur hringdi:
Á laugardaginn 4. okt. töpuðust
bílakeðjur, liklega við Miklatorg.
Þetta voru tvær keðrjur í strigapoka
og er finnandi beðinn að hringja í
s. 666433. Fundarlaun
Þökkum
komið á
framfæri
Sveinn Sveinsson á Hrafnistu
hringdi og vildi fyrir hönd Helgu
Jónsdóttur koma á framfæri þakk-
læti til starfsfólks á Borgarspítalan-
um og Grensásdeildinni fyrir góða
ummönnun.
BMX hjólið mitt
ertýnt
Fyrir um það bil tveimur vikum
týndist hjólið mitt, blátt BMX reið-
hjól, hjá Grýtubakka 2. Það er með
gulum púðum, gulu framdekki og
8vörtu afturdekki.
DBS Cross reið-
hjóltekið
ófrjálsri hendi
Ifyrir um mánuði var DBS Cross
reiðhjól tekið frá Efstahjalla í Kópa-
vogi. Þeir sem kynnu að vita hvar
hjólið er nú niðurkomið vinsamleg-
ast hafið samband við Ástu í s.
45234. Þetta er drengjareiðhjól,
dekkin blá og stellið hvítt en púðar
bláir. Hjólinu svipar mjög til BMX
hjóla. Hvarf þess hefur valdið mik-
illi sorg og er því fundarlaunum
heitið.
Fynr nokkru ræddu mætir menn
um það i sjónvarpi, að ísland hafi
fengið ómetanlega auglýsingu f
heimspressunni sem þyrfti að nýta
í sambandi við ferðamannaiðnað-
inn, en þessir sómamenn sem sátu
fyrir svörum í sjónvarpinu gleymdu
einu: hvers vegna ísland var valið
sem fundarstaður risaveldana í ann-
að sinn? Ætla má að fyrrverandi
sendiherra Sovétríkjanna á íslandi,
sá sem var í för með Gorbachev í
Genf, hafi haft áhrif þar um. Og
hvers vegna? Ætla má að sendi-
menn erlendra ríkja, sem víða hafa
verið, taki eftir því að í Reykjavík
er ekki sá óhugnanlegi lýður sem
nú fyrirfinn8t í höfuðborgum Norð-
urlanda, að Helsinki undanskildri.
Og ætla má að þeir láti yfirvöld (
sínu landi vita ef breyting til hins
verra á sér stað. Því hlýtur það að
vera geysilegt atriði fyrir okkur
íslendinga að Reykjavík verði aldrei
friðarstaður lýðs sem flækist milli
landa, hvort sem þeim þóknast að
kalla sig flóttamenn eða eitthvað
annað. Við verðum að vera vel á
verði. Allir þeir sem komið hafa til
annarra landa hljóta að hafa séð lýð
þennan, sem sum lönd hafa hleypt
inn fyrir landamæri sín. Við eigum
að efla útlendingaeftirlitið og alls
ekki hleypa hveijum sem er inn (
landið ef við viljum að alþjóðaráð-
stefnur og stórveldafundir verði
haldnir hér ( framtíðinni.
Ég vil að lokum hvetja ríkisstjóm
íslands, sem er sú besta sem völ
er á, að herða allt eftirlit með hugs-
anlegum vandræðagemlingum.
Vissulega var gott að Island var í
heimspressunni. Enn vitum við þó
alls ekki hvort leiðtogafundurinn
hefur haft þau jákvæðu áhrif sem
við vonum. Sómi íslands er ávalt
fyrir mestu - vonandi gleymir því
enginn.
Kristinn Sigurðsson
Sem alþjóð veit þá var Bjarni Felixson eitt sinn i fótboltaliði.
Sumuin finnst þetta áhugamál hans enn eiga óþarflega sterk
itök i honum sem fréttamanni sjónvarps, þar sé knattspyrnunni
skipað til öndvegis á kostnað annarra íþróttagreina.
Frjálsar íþróttir
eiga undir h ögg að
sækja í sjónvarpinu
Háttvirti Velvakandi staklega ftjálsar íþróttir.
Enn leita ég til þ(n með hugar- Fréttamanni ber að gæta vissr-
angur mitt. Þannig er mál með ar óhlutdrægni í fréttaflutningi,
vexti að íþróttir hafa alla tíð ver- ekki síður Bjama en öðmm. Þessa
ið í miklu uppáhaldi hjá mér sem gætir hann þó ekki, fótboltinn á
fleirum landanum. Séstaklega em hug hans aílan, og fátt annað
það þó fijálsu íþróttimar sem kemst að. Ég óttast það helst að
vekja áhuga minn. Knattspymu verði ekki breytt um stefnu í þess-
kann ég þó líka að meta og tel um málum þá leggist frjálsar
ég að Bjarai Félixson eigi sérstak- íþróttir jafnvel niður hér á landi.
ar þakkir skilið fyrir að koma Væri nú ekki hægt að skipta
knattspymunni jafn vel til skiia tímanum örlítið jafnar milli
og hann gerir. En aðrar íþróttir íþróttagreina?
hafa þurft að líða fyrir þetta, sér-
Hvers vegna völdu
Sovétmenn Reykjavík?
53
VANTAR ÞIG VEISLUSAL?
fundi eðapnínan mannfagnað.
Hafið þá samband við okkur
og látið okkursjá um herleg-
heitin. WW
VEISLUSALURINN
SuAuriandsbraut 30,6. hæð,
sfml«8866B.
Rúnar Þ. Ámason, sfml 40843.
Bladburöarfólk
óskast!
KÓPAVOGUR AUSTURBÆR
Bræðratunga Óðinsgata
Hlíðarvegur 1-29 o.fl.
Hlíðarvegur 30-57
HARVEY
SKJALASKÁPAR
er vönduð ensk framleiðsla á
hagstæðu verði...
2 — 3 — 4 — 5 skúffu skápar.
Einnig skjalabúnaður í fjöl-
breyttu úrvali.
(SOÍ&KO
Síðumúla 32. simi 38000