Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
3
Stykkishólmur:
Kúfiskveiðar
og vinnsla
að hefjast
KÚFISKVEIÐAR í samvinnu kú-
fisknefndar og Rækjuness í
Stykkishólmi munu væntanlega
hefjast um miðjan nóvember.
Undirbúningur hefur staðið yfir
frá skipan kúfisknefndar í árslok
1983. Fjárfesting vegna þess er
um 35 milljónir króna og náist
sá afli, sem reiknað hefur verið
með og aðrar forsendur stand-
ast, er arðsemi veiða og vinnslu
talin nokkuð góð.
Formaður kúfísknefndar er Finn-
ur Ingólfsson, aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra. Hann sagði
í samtali við Morgunblaðið, að talið
væri að mikið væri af kúfíski við
landið, en töluverðar veiðar og
vinnsla á kúfíski væri í Banda-
ríkjunum. Fyrsta skrefíð í þessu
máli hefði verið, að kanna hvort
íslenzki kúfískurinn væri væri sam-
bærilegur þeim bandaríska og
tilraunasending vestur um haf hefði
leitt í ljós að svo væri. Því væri
sala vestra möguleg. Hins vegar
hefði ekki verið vitað um veiðanlegt
magn, þar sem röng veiðarfæri
hefðu verið notuð. Því hefðu nefnd-
armenn og Siguijón Helgason,
eigandi rækjuness farið vestur til
að kynna sér veiðiaðferðir Banda-
ríkjamanna, en þeir notuðu við þær
sérstakan vatnsþrýstiplóg. Veiðar
með öðrum hætti virtust ekki mögu-
legar. Eftir að það hefði verið ljóst,
hefði Sigutjón Helgason lagt til
skip sitt Önnu SH 122. Því hefði
verið breytt og það styrkt til veiða
með plógnum. Hann ræki skel-
vinnslu og ætti því megnið af þeim
tækjum, sem þyrfti til vinnslunnar.
Með þeim hætti yrði fjárfesting
aðeins um 35 milljónir króna, en
ef bytja ætti frá grunni, væri kostn-
aður metinn um 100 milljónir.
Nefndarmenn og Sigutjón hefðu
síðan gengið út frá ákveðnum for-
sendum við arðsemisútreikninga.
Um fjögurra lesta afla á klukku-
stund þyrfti og nýting í vinnslu
þyrfti að vera 7 til 9%. Þá væri
miðað við 2,90 króna skiptaverð upp
Brotist inn í
skemmtistað
NOKKUÐ var um innbrot á
höfuðborgarsvæðinu um
helgina. Brotist var inn í
unglingaskemmtistaðinn
„Topp Tíu“ í Ármúla og stol-
ið þaðan hljómflutnings-
tækjum og um 400
hljómplötum.
Myndbandstæki var stolið úr
björgunarskipinu Goða, sem lá
við festar við Ægisgarð. Þá var
brotist inn í veitingastaðinn
Lækjarbrekku. Höfðu þjófamir
tekið til nokkuð magn af áfengi
er öryggisverðir frá Securitas
urðu þeirra varir og lögðu þjóf-
amir þá á flótta og skildu þýfið
eftir. Rannsóknarlögreglan vinn-
ur að rannsókn þessara mála.
Sautján til-
boð í Svín-
vetningabraut
FYRIRTÆKIÐ Hvítserkur á
Blönduósi átti iægsta tilboð í
lagningu hluta Svínvetninga-
brautar og Kjalvegar í Húna-
vatnssýslu. Sautján fyrirtæki
buðu í verkið og var tilboð
Hvitserks eitt undir kostnaðar-
áætlun. Lengd umrædds vegar
er 14,6 km. og á verktakinn að
sldla því fyrir 15. október 1987.
Kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar er 24,4 milljónir kr. Tilboð
Hvítserks var 24.157.400 krónur.
150 bændur vilja selja eða
leigja fullvirðisrétt sinn
FLESTIR þeir bændur sem óskað hafa eftir að njóta aðstoðar Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins til að hætta eða minnka við sig í hefð-
bundnum búskap vilja leiga fullvirðisrétt sinn, en ekki selja. Síminn
hjá Arna Jónassyni hjá Framleiðsluráði, sem svarar fyrirspurnum
um búháttabreytingar Framleiðnisjóðs, hefur varla þagnað síðan
átakið var kynnt. í síðustu viku var hann kominn með 170 bændur
á skrá sem líklega þátttakendur, þar af 130 alveg ákveðna, og að
minnsta kosti 22 bætast við vegna átaks sem Sauðfjárveikivarnir
standa fyrir vegna svæðisbundins niðurskurðar sauðfjár vegna riðu.
úr sjó og afurðaverð 1 Bandaríkja-
dal á hvert pund.
„Við höfum kosið að fara okkur
hægt að halda fjárfestingu í lág-
marki,“ sagði Finnur. „Með því
móti verður skellurinn minni, ef
dæmið gengur ekki upp og skip og
búnað til vinnslu má nota í annað,
ef illa fer. Tilraunaveiðar og vinnsla
hefjast um miðjan nóvember og
standist gefnar forsendur, á þetta
að vera komið í fullan og góðan
gang næsta vor,“ sagði Finnur Ing-
ólfsson.
Flestir eru bændumir að hætta
eða minnka við sig í sauðfjárbú-
skap, enda liggur meira á ákvörðun
í því efni. Mjólkurframleiðendur
hafa frest fram eftir næsta ári til
að ákveða samdrátt í mjólkurfram-
leiðslu á verðlagsárinu 1987-88 sem
samdráttarátakið miðast við. Ami
hefur ekki tekið saman yfirlit um
hvemig búháttabreytingin dreifíst
um landið, en hann telur að hún
dreifist misjafnlega, og sé ef til vill
mest áberandi í bestu landbúnaðar-
héruðunum, til dæmis Suðurlandi.
Aðspurður um hvaða bændur
væru komnir á skrá Framleiðnisjóðs
sagði Árni að í grófum dráttum
væri hægt að skipta þeim í fímm
eftirfarandi hópa: I fyrsta lagi aldr-
að fólk sem ekki hefði viðtakendur
að búum sínum, en vildi þó ekki
yfirgefa jarðirnar. í öðm lagi fólk
sem byggi á jörðum sem ekki hefðu
framtíðarbúskaparaðstöðu, til
dæmis vegna lélegra landkosta eða
bygginga. I þriðja lagi þeir sem
ættu við sjúkdóma að stríða í bú-
stofni sínum, svo sem riðu eða
gamaveiki. í fjórða lagi vilja nokkr-
ir bændur hætta vegna erfiðrar
fjárhagsstöðu, til dæmis menn sem
lagt hafa í fjárfestingar sem þeir
ekki ráða við og ætla að hvíla sig
í nokkur ár eða hætta alveg. Þá
nefndi Ámi í fímmta lagi að tal-
svert væri um að menn notuðu þetta
tækifæri til sérhæfíngar á búum
sínum, til dæmis menn sem væm
með tiltölulega litla kindakjöts-
framleiðslu samhliða kúabúum, þeir
hættu þá alveg með sauðféð.
Ámi sagðist hafa átt von á einum
hópnum enn, það er bændum á
miðjum aldri sem væm búnir að
koma sér vel fyrir. Kannski mönn-
um sem væm með allstór bú sem
þeir ættu skuldlítil en hefðu haft
það óþarflega erfítt. Sagðist Ámi
hafa átt von á að einhvetjar menn
í þessum hópi hefðu viljað minnka
við sig, en það hefði ekki gerst.
Gerðu ráð fyrir
Ora
á diskinum!
ora
Nú fœst Ora-rauðkál í nýjum og betri umbúðum.