Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
Skoðanakönnun Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi:
Þorsteinn efstur, Eggert
og Arni skipta um sæti
Selskrokkar á dekki bátsins við komuna til Akraness.
Trillubáts saknað:
Fannst við Þormóðssker
Akranesi.
TRILLUBÁTURINN Emma ÍS,
sem leitað var síðastliðinn laugar-
dag út af Mýrum, fannst síðdegis
á laugardag. Á bátnum voru tveir
menn og sakaði þá ekki.
Báturinn hélt út í Hvalseyjar á
fímmtudag og lét ekkert vita af sér.
Slysavamarfélagið hóf eftirgrennslan
á laugardagsmorgun og hófst leit í
framhaldi af því. Björgunarsveitir
voru kallaðar út og þyrla Landhelgis-
gæslunnar hóf leit um hádegisbilið.
1/EÐUR
Þyrlan fann bátinn og var allt í góðu
lagi um borð.
Báturinn kom síðan drekkhalðinn
til hafnar á Akranesi á laugardags-
kvöldið, en áhöfn hans hafði verið á
selaveiðum. Auk þess sem skipið var
vel hlaðið var það einnig með tvo
seli á síðunni og er talin mikil mildi,
að hann skuli hafa náð til Akraness
því veður hafði versnað með kvöldinu.
JG
SKOÐAN AKÖNNUN um fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi fór fram
um síðustu helgi. Atkvæði
greiddu aðalfulltrúar í kjördæ-
misráði, varafulltrúar þeirra og
fulltrúar frá félögum og fulltrú-
aráðum til jafns við aðalfulltrú-
ana. Full þáttaka var í
atkvæðagreiðslunni. Þorsteinn
Pálsson, fjármálaráðherra, hlaut
kosningu í fyrsta sæti listans.
Eggert Haukdal, alþingismaður,
sem var í þriðja sæti við síðustu
alþingiskosningar færðist upp í
annað sætið, en Arni Johnsen,
alþingismaður hafnaði í þriðja
sæti.
í lok mánaðarins, 22. nóvemb-
er, mun aðalfundur kjördæmis-
ráðs taka ákvörðun _ um
endanlega röðun á lista. „Ég tel
algjörlega óhugsandi að kjördæ-
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðursiofa fslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi (gær: Yfir norðaustanverðu Grænlandi er 1014
millibara hæð. Um 300 km noröaustur af Langanesi er 990 milli-
bara djúp smálægð og önnur álíka við norðausturströnd landsins,
báðar á leiö noröaustur.
SPÁ: Úrkomubelti fer austur yfir landið og upp úr hádegi verður
komin suðvestanátt með hvössum slydduéljum sunnanlands og
vestan. Þegar líður á daginn léttir til á norðaustur- og austur-
landi. Hiti á bilinu 1 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVIKUDAGUR: Víða suðvestanátt með snjó- eða slydduéljum
og hiti nálægt frostmarki um vestanvert landið, en bjart veöur
austanlands.
FIMMTUDAGUR: Vindur snýst til sunnan- eða suðaustanáttar með
rigningu sunnanlands og vestan. Þegar líður á daginn þykknar upp
á norðausturlandi. Heldur hlýnandi veður í bili.
TÁKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
A
Hálfskýjað
A
m Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■|0o Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V H
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[<[ Þrumuveður
misráðið breyti röðun manna á
listann" sagði Óskar Magnússon,
formaður kjördæmisráðsins í
samtali við Morgunblaðið. „Menn
urðu sáttir um að nota þessi úr-
slit.“
Prófkjörið breytir röð þriggja
efstu manna á listanum. Þor-
steinn hlaut 252 atkvæði í 1.
sæti og 270 atkvæði alls, Eggert
fékk 151 atkvæði í 2. sætið og
270 alls og Ami fékk alls 235
atkvæði, en 226 atkvæði í þriðja
sætið. Næstu menn eru Aradís
Jónsdóttir, Selfossi, með 170 at-
kvæði alls og 130 í 4. sætið, Óli
Þ. Guðbjartsson, Selfossi, með
145 atkvæði en 136 í 5. sætið.
Sæmundur Runólfsson, Vík, varð
í 6. sæti með 171 atkvæði.
„Þakka það traust
sem mér er sýnt“
- segir Þorsteinn Pálsson
„ÉG er þakklátur fyrir það ótví-
ræða traust sem mér var sýnt í
þessari skoðanakönnun," sagði
Þorsteinn Pálsson sem hafnaði í
1. sæti i skoðanakönnun Sjálf-
stæðisflokksins i Suðurlands-
kjördæmi.
„Varðandi niðurstöðuna er fyrst
til þess að taka að 2. og 3. sætið
víxlast. Nýr frambjóðandi kemur
síðan í 4. sætið og við væntum
góðs af þátttöku hennar. Það að
kona sé á listanum verður honum
tvímælalaust til framdráttar." Þor-
steinn sagði að hann hefði vissulega
ekki haft á móti því að kona yrði
ofar á listanum, en frá því sem
áður var væri þetta verulegur
áfangi.
„Tel listann vera
sigurstranglegan“
- segir Eggert Haukdal
„ÉG FAGNA þessum úrslitum,
ekki síst hinni góðu kosningu
formanns flokksins, og því að
kona er nú í fjórða sæti,“ sagði
Eggert Haukdal sem varð í öðru
sæti í skoðanakönnun Sjálfstæð-
ismanna á Suðurlandi. „Ég tel
að við séum hér komnir með
ákaflega sigurstranglegan lista.
Úrslitin eru afgerandi, og ég
vona að við stöndum okkur ekki
síður en í síðustu kosningum.“
Eggert sagðist vilja þakka þeim
innilega sem hefðu stutt sig. Hann
sagðist hafa unnið að því að afla
sér trausts stuðnings, í ljósi þess að
í prófkjöri við síðustu Alþingiskosn-
ingar skildu aðeins þijú atkvæði að
hann og Arna Johnsen sem var í
öðru sæti. Það hefði skilað árangri.
’Wí f r
7
1fEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í aær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 4 rigning
Reykjavík 4 haglél
Bergen 6 rigning
Helsinkl 2 léttskýjað
ian Mayen 3 rignlng
Kaupmannah. 7 skýjað
Narssarasuaq -4 léttskjýjað
Nuuk -5 snjókoma
Osló 1 skýjað
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Þórshðfn 6 skúr
Algarve 22 skýjað
Amstordam 10 skýjað
Aþena 19 skýjað
Barcolona 14 skýjað
Berlín 8 léttskýjað
Chicago 1 alskýjað
Glasgow 11 skúr
Feneyjar 14 skýjað
Frankfurt 6 skýjað
Hamborg 8 skýjað
LasPalmas 23 skýjaö
London 11 skýjað
LosAngeles 17 heiðskfrt
Lúxemborg 6 skýjað
Madríd 13 léttskýjað
Malaga 23 hélfskýjað
Mallorca 18 hátfskýjað
Miami 22 þokumóða
Montreal 1 skýjað
Nice 20 skýjað
NewYork 4 lóttskýjað
París 10 hálfskýjað
Róm 18 skýjað
Vfn 7 léttskýjað
Washington 6 léttskýjað
Komin upp vígstaða til
að halda þremur mönnum
- segir Óli Þ. Guðbjartsson
„ÞESSI úrslit komu mér ekki á
óvart og ég er ánægður með
minn hlut“, sagði Óli Þ. Guð-
bjartsson, sem varð í fimmta
sæti í skoðanakönnun Sjálfstæð-
ismanna á Suðurlandi. „Ég kem
betur út núna en síðast, þegar
ég skipaði 6. sætið, og á meðan
maður er á uppleið er ekki
ástæða til annars en að vera án-
ægður.“
„Að vísu hefði ég kosið að það
hefði verið staðið á annan veg að
þessu vali, það er að það hefði ve-
rið opið prófkjör", sagði hann. „Ég
hef lengi verið þeirrar skoðunar að
opin prófkjör séu besta leiðin við
val á framboðslistann, fyrir alla
aðila. En ég er í sjálfu sér ánægður
með minn hlut að þessu sinni og
það sem skiptir mestu máli er að
það er komin upp vígstaða til mark-
vissrar vinnu til að halda þremur
mönnum inni“, sagði Óli Þ. Guð-
bjartsson.
„Vísbending um að kon-
ur geta náð árangri“
- segir Arndís Jónsdóttir
„ÉG er mjög ánægð með þessa
útkomu sem gefur vísbendingu
um að konur geta náð árangri
ef þær vilja sækja fram á sama
grundvelli og karlar", sagði
Arndís Jónsdóttir, sem varð í
fjórða sæti í skoðanakönnun
Sjálfstæðismanna á Suðurlandi.
„Mitt sjónarmið er að konur eigi
að sækja fram á sömu vígstöðv-
um og karlar, það er innan
stjórnmálaflokkanna, og þessi
úrslit sýna að það er hægt“.
„Þetta er í fyrsta skipti sem kona
nær svona ofarlega á lista Sjálf-
stæðismanna í Suðurlandskjördæmi
og það er vissulega fagnaðarefni
og vonandi á það eftir að ryðja
brautina fyrir konur í framtíðinni",
sagði Amdís ennfremur.
Hún kvaðst telja listann sigur-
stranglegan, en taldi þó ekki von
til þess að fjórða sætið dygði til
þingsetu að þessu sinni. „Á þessari
stundu er þakklæti mér efst í huga
til þeirra sem stuðluðu að kjöri
mínu í fjórða sæti og ég vona að
sem víðtækust samstaða náist með-
al Sjálfstæðismanna í komandi
kosningum", sagði Amdís.