Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 6

Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 ÚTVARP / SJÓNVARP Stjúpsystur Glettur Stjúpsystra. Guðrún Al- freðsdóttir, Guðrún Þórðar- dóttir og Saga Jónsdóttir glettast við áhorfendur ásamt Aðalsteini Bergdal. Þannig hljómaði nú dag- skrárkynningin og er ég ekki frá því að þeim stjúpsystrum hafi tek- ist að gantast við áhorfendur síðastliðið laugardagskveld, í það minnsta tókst þeim bærilega að byggja upp samfellda dagskrá er snérist um meginviðfangsefnið — konan í atvinnuleit í karlrembu- frumskóginum. Vel til fundið að skjóta á karlrembusvínin er ráða víða mannaráðningum. Háðsádeila Stjúpsystra varð beittari vegna þeirrar umræðu er formaður Vinnu- veitendasambandsins hefir nýlega vakið með háðulegum ummælum sínum í garð kvenna. Kannski væri ekki svo vitlaust að binda slíka karla við símaborð fyrirtækisins dagstund svona til að koma þeim í snertingu við veruleika lágíauna- kvennanna. Háðsádeila Stjúpsystra hitti sum sé í mark en dansatriðin voru hins vegar að mestu útí hött. Geisli Geisli — þáttur um listir og menningarmál á líðandi stundu. Umsjón: Karitas H. Gunnarsdóttir, Guðný Ragnarsdóttir og Matthías Viðar Sæmundsson. Þessi glænýi þáttur ríkissjónvarpsins er á dag- skrá á sunnudagskveldi. Eins og sjá má af dagskrárlýsingu er Geisli í hæsta máta menningarlegur og er það vel því með tilkomu nýrra útvarps- og sjónvarpsstöðva hrein- lega flóir léttmetið yfir bakka. Kosturinn við fjölrása ljósvakafjöl- miðla er náttúrulega fjölbreytnin og þar á hiklaust að blanda saman hámenningarlegu efni og sápuóper- um. Með tíð og tíma læra neytendur að velja og hafna rétt eins og þeg- ar þeir ganga niður Laugaveginn. Sumir leita þar uppi útsölumarkaði en aðrir láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna og láta ekki staðar numið fyrr en í Etienne Aigner. Öllum er jú fijálst að skoða fínerí- ið, ekki satt? Það er full snemmt að fella dóma um Geisla en þó finnst mér nú að það mætti deyfa lýsinguna ögn eða í það minnsta bæta lit á varir umsjónarmanna og vanga. Ég hafði gaman af umræð- unni um íslenska dægurlagatexta- gerð en fannst fullmikið gert af því að kynna dagskrá sjónvarps. Óperusöngurinn hljómaði prýðilega en uppstillingin afdönkuð. Máski er ekki úr vegi að hafa jógameist- ara við hendina til að róa þá er stíga inní bjartan „Geisla" sjón- varpsins. En vafalaust fer glímu- skjálftinn af fólki og svo sannarlega á Geisli erindi inní hálfrökkur islensks fjölmiðlasamfélags. '86 íslensk föt ’86 — Upptaka frá tískusýningu Pélags íslenskra iðn- rekenda í Broadway 19. október sl. Persónulega leist mér prýðilega á ýmsan þann fatnað er við sáum hjá fslensku hönnuðunum á laugardag- inn var. Fatnaðurinn var yfirleitt látlaus og alþýðlegur, ólíkur skrípa- fatnaðinum er ensku hönnuðumir sýndu í tískuþættinum á Stöð 2 fyrir helgi. Þá var tískusýningar- fólkið í sæmilegum holdum ólíkt enska sýningarfólkinu er ég hefði satt að segja álitið nýsloppið út úr fangabúðum nazista. En þó skyggðu níræðu yngismeyjamar er sýndu tískufötin í sjónvarpsfréttun- um á íslensku sýningarstúlkumar. Þessir glæsilegu merkisberar mik- illar lífsreynslu og þroska báru vel hina látlausu kjóla. Mættu tísku- hönnuðir að ósekju gefa meiri gaum að eldra fólkinu og þeim sérstæða þokka er fylgir háum aldri og mik- illi lífsreynslu. Ólafur M. Jóhannesson íslenskjot Rás 2: Jerry Lee Lewis kynntur í dag hefur á 1 rj 00 Rás 2 göngu 1 I — sína ný þáttaröð um banadríska söngvarann og píanóleikarann Jerry Lee Lewis, en hann kemur til íslands og mun skemmta gestum í veit- ingahúsinu Broadway næstkomandi helgi. Lewis var meðal vinsæl- ustu stjama frumrokksins og nýtur enn umtalsverðrar hylli víða um veröld. Hann þykir manna líflegastur og ekki hefur einkalífið verið dauflegra. Það hefur reyndar gjama verið meira til umræðu en tónlist Lew- is. Varð Lewis alræmdur á einni brúðkaupsnóttu fyrir nokkmm árum, en þá gift- ist hann frænku sinni sem var rétt tæpra fjórtán ára gömul. Þótti það ljót saga og á tímabili virtist Lewis ekki ætla að bera barr sitt eftir þá umfjöllun, sem hjónaband hans fékk. Það er Einar Kárason rithöfundur, sem gerir ævi og ferli Jerry Lee Lewis skil í þremur þáttum og verða seinni þættimir flutt- ir á fimmtudaginn á sama tíma, en þann dag verða fyrstu tónleikar Lewis, og á sunnudaginn klukkan 15:00. Jerry Lee Lewis Stöð tvö: Grín og spenna Á dagskrá Stöðvar tvö skiptist á gaman og spenna. Kl. 19:00 hefst bandaríski gamanþáttur: inn Allt er þá þrennt er. í kjölfar hans siglir breski gamanþátturinn Spéspeg- ill, en í honum er hæðst að fólki með brúðum, sem þykja meinlega líkar fyrir- myndunum. Eftir fréttir er á dagskrá þátturínn Morðgáta, en í honum fer Angela Lans- bury á kostum sem svar nútímans við Miss Marple, skáldsagnapersónu Agötu Christie. Eftir að trufluð útsend- ing hefst klukkan 21:30 verður þátturinn Þrumu- fuglinn sýndur, en hann íjallar tvo þyrluflugmenn á fiillkomnustu þyrlu heims. Þeir fást við verkefni, sem aðrir telja óleysanleg af hendi. Klukkan 23:00 verður svo endursýnd myndin Hættutímar (The Year of Living Dangerously), en hún ljallar um samband blaðakonu og bresks stjómarerindreka í Indó- nesfu árið 1965, en þá var landið á öðmm endanum og Sukamo-stjómin riðaði til falls. Myndinni leikstýrði Peter Weir, sá sami og leik- stýrði Picnic at Hanging Rock og Witness. UTVARP ÞRIÐJUDAGUR 4. nóvember 6.46 Veðurfregnir. Bœn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin Páll Benediktsson, Þorgrím- ur Gestsson og Lára Marteinsdóttir. Fréttir eru sagöar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 7.20 Daglegt mál Guömundur Sæmundsson flýtur þáttinn. 9.00 Fréttir 9.03 Morgunstund barn- anna: „Maddit" eftir Astrid Lindgren. Sigrún Árnadóttir þýddi. Þórey Aðalsteins- dóttir les (7). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesiö úr forystugreinum dagblaöanna. 9.46 Þingfréttir 10.00 Fréttir 10.10 Veöurfregnir 10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liönum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur Umsjón: Þórarinn Stefáns- son. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.46 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Heilsu- vernd. Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir og Berglind Gunnarsdóttir. 14.00 Miödegissagan: „ör- lagasteinninn" eftir Sigbjöm Hölmebakk. Siguröur Gunn- arsson byrjar lestur þýöing- ar sinnar. 14.30 Tónlistarmaöur vikunn- ar Gylfi Ægisson. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Landpósturinn Frá Vesturlandi. Umsjón: Ásþór Ragnarsson. 18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.16 Veöurfregnir. 16.20 Barnaútvarpió Stjórnendur: Kristín Helga- dóttir og Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Síödegistónleikar a. Konsert í D-dúr eftir An- tonio Vivaldi. Monica Huggett og Jakob Lindbert leika á víólu d’amore og lútu meö Barokksveit Drottning- arhólms. b. Divertimento eftir Micha- el Haydn. Rodney Slatford, Stephan Shingles og Kenn- eth Heath leika á bassa, víólu og selló með St. Mart- in-in-the-Fields-hljómsveit- inni; Neville Marriner stjórnar. c. Sónata í a-moll op. 1 nr. 4 eftir Georg Friedrich Hándel. Hana Maria Kan- eihs, Michael Radulescu og Michael Kaiser ’leika á blokkflautu, sembal og selló. 17.40 Torgiö — Samfélagsmál Umsjón: Bjarni Sigtryggs- son. Tilkynningar. 18.46 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 19.35 Synoduserindi Séra Jón Bjarman flytur. 20.00 Tætlur Umræöuþáttur um málefni unglinga. Stjómendur: Sig- rún Proppé og Ásgeir Helgason. 20.40 Iþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur Hannesson og Samúel Örn Erlingsson. 21.00 Perlur Nana Mouskouri og Harry Belafonte syngja. 21.30 Útvarpssagan: „Ef sverö þitt er stutt” eftii Agnar Þórðarson. Höfundui les (11). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg undagsins. Orö kvöldsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.20 Víkingar á Englandi - hetjur eöa hermdarverka menn. Dr. Magnús Fjallda SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 4. nóvember 17.55 Fréttaágrip á táknmáli 18.00 Húsin viö Hæöargarö (To hus tett i tett). Fimmti þáttur. Norskur barna- myndaflokkur í sjö þáttum. . Þýðandi Guöni Kolbeins- son. Sögumaöur Guðrún Marinósdóttir. (Nordvision — Norska sjónvarpiö). 18.20 Tommi og Jenni Bandarísk teiknimynd. 18.26 Dagfinnur dýralæknir (Dr. Doolittle). 3. Einbúinn. Teiknimyndaflokkur geröur eftir vinsælum barnabókum eftir Hugh Lofting. Þýöandi Rannveig Tryggvadóttir. 18.60 Auglýsingar og dagskrá 19.00 í fullu fjöri (Fresh Fields). Lokaþáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur. Þýöandi Jóhanna Þráins- dóttir. 19.30 Fréttir og veöur 20.00 Auglýsingar 20.10 í örlagastraumi (Maelstrom). Nýr flokkur — Fyrsti þáttur. Breskur fram- haldsmyndaflokkur i sex þáttum eftir Michael J. Bird. Leikstjóri: David Maloney. Aöalhlutverk: Tusse Sil- berg, David Bearnes, Susan Gilmore, Cristopher Scoul- ar, Edita Brychta og Ann Todd. Atvinnulaus skrif- stofustúlka af norskum ættum fær óvæntan arf eftir auömann í Álasundi. Henni er hulin ráðgáta hvers vegna hún hefur oröiö fyrir valinu en heldur til Noregs til aö vitja arfsins og grafast fyrir um tengsl sín viö hinn látna. Þýöandi Bogi Arnar Finnbogason. 21.06 Peter Ustinov í Rúss- landi 5. Stríö og bylting. Kanadískur myndaflokkur í sex þáttum. Þýðandi Jón O. Edwald. 21.60 Seinni fréttir 22.00 Kastljós Þáttur um erlend málefni. Umsjón: Guðni Bragason og Stefán L. Stefánsson. 22.46 Dagskrárlok STOD7VO ÞRIÐJUDAGUR 4. nóvember 17.30 Myndrokk. 18.00 Teiknimyndir. 19.30 Allt er þá þrennt er (Three is Company). Bandarískur gamanþáttur. 19.30 Spéspegill (Spitting Image). Breskur gamanþáttur. 20.00 Fréttir. 20.30 Morögáta (Murder she wrote) — sakamálaþáttur í Agötu Christie-stll með Angela Lansbury í aöalhlut- verki. 21.30 Þrumufuglinn (Air Wolf). Bandariskur framhaldsþátt- ur meö Jan Michael Vinc- ent, Ernest Borgnine og Alex Cord í aðalhlutverkum. 23.00 Hættutímar (The Year Of Living Dangerously). Bandarísk kvikmynd frá MGM. Myndin á sér staö í Indónesíu áriö 1965. Aöalhlutverk: Mel Gibson, Linda Hunt og Sigourney Weaver. Endursýning. 01.00 Dagskrárlok. tók saman dagskrána. Les ari meö honum: Helgi Má Baröason. (Áöur útvarpat 5. f.m.). 23.20 íslensk tónlist a. Andante op. 41 eftir Kar O. Runólfsson. Pétur Þor valdsson og Gísli Magnús son leika á selló og píanó. b. Sónata fyrir sembal eftir Jón Ásgeirsson. Helga Ing- ólfsdóttir leikur. c. Dúó fyrir víólu og selló eftir Hafliöa Hallgrímsson. Ingvar Jónasson og höfund- urinn leika. d. Svita nr. 2 i rímnalagastíl eftir Sigursvein D. Kristins- son. Björn Ólafsson leikur á fiðlu meö Sinfóníuhljóm- sveit (slands; Páll P. Páls- son stjórnar. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 4. nóvember 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs- dóttur og Siguröar Þórs Salvarssonar. Guöríöur Har- aldsdóttir sér um barnadag- bók aö loknum fréttum kl. 10.00. 12.00 Hádegisútvarp meö fréttum og léttri tónlist i umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Skammtaö úr hnefa Stjómandi: Jónatan Garðars- son. 15.00 ( gegnum tíðina • Þáttur um íslenska dægurtón- list í umsjá Vignis Sveinsson- ar. 16.00 I hringnum Gunnlaugur Helgason kynnir lög frá áttunda og niunda ára- tugnum. 17.00 Rokkarinn Jerry Lee Lewis Fyrsti þáttur af þremur um skemmtikraftinn og tónlist hans. Umsjón: Einar Kárason. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. S VÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30—18.30 Svæöisútvarp fyr- ir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 18.00—19.00 Svæðisútvarp fyr- ir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. Trönur Umsjón Finnur Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningarlíf og mannlíf al- mennt á Akureyri og nærsveitum. M.a. er rætt við myndlistarmanninn Valgerði Erlendsdóttur á Siglufirði. 989 ÞRIÐJUDAGUR 4. nóvember 06.00—07.00 Tónlist i morg- unsáriö. Fréttir kl. 7.00. 07.00—09.00 Á fætur með Siguröi G. Tómassyni. Létt tónlist meö morgunkaffinu. Sigurður litur yfir blööin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin og ræðir við hlustendur til há- degis. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Haröar- dóttur. Jóhanna leikur létta tónlist, spjallar um neytendamál og stýrirflóamarkaði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson ( Reykjavík sfödegis. Hallgrímur leikur tónlist, Ktur yfir fréttirnar og spjallar viö fólk sem kemur viö sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00. 19.00—20.00 Tónlist meö léttum takti. 20.00—21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vin- sælustu lögin. 21.00-23.00 Vilborg Hall- dórsdóttir spilar og spjallar. Vilborg sníöur dagskrána viö hæfi unglinga á öllum aldri, tónlistin er í góöu lagi og gestirnir líka. 23.00-24.00 Vökulok. Frétta- menn Bylgjunnar fjalla um fréttatengt efni og leika þægilega tónlist. 24.00—01.00 Inn ( nóttina með Bylgjunni. Ljúf tónlist fyrir svefninn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.