Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 23
Inngangur
í samanburði við OECD-lönd
hefur verðbólga á Islandi verið með
því sem mest gerist og erlend
skuldasöfnun einnig. Greiðslubyrði
af erlendum skuldum er alltof mik-
il enda hafa lán verið tekin til
rieyslu eða þeim varið til fjárfest-
inga, sem standa ekki undir
greiðslubyrðinni. Þjóðin stendur
enn frammi fyrir halla, bæði á ríkis-
búskapnum og í viðskiptum sínum
við útlönd. Deilur á vinnumarkaðn-
um eru tíðar og lífskjör hafa lítið
batnað síðastliðin 10 ár, þrátt fyrir
tilkomu byltingarkenndra tækninýj-
unga, sem bjóða upp á ótal
möguleika til að bæta afkomuna.
Landið er að ýmsu leyti vel sett
frá náttúrunnar hendi. Fiskimiðin
eru gjöful, mikil orka er í fallvötnum
og jarðvarma og landið liggur á
milli tveggja heimsálfa þar sem
blómleg viðskipti eiga sér stað.
Þjóðin er að auki vel menntuð.
Auðlindimar hafa samt ekki skapað
okkur þau lífskjör sem ætla mætti.
Fiskimið og hagbeit landsins eru
ofnýtt. Virkjun orku og markaðs-
setning hafa ekki haldist í hendur.
Möguleikar sem staðsetning lands-
ins býður eru vannýttir. Menntunin
kemur ekki að fullum notum. Allt
veldur þetta lakari lífskjörum en
efni standa til.
Heimatilbúinn vandi
Þessi niðurstaða er fyrst og
fremst afleiðing efnahagsstefnu
sem hefur ýtt undir óhagkvæma
ráðstöfun verðmæta og hindrar fólk
í að leita hagkvæmustu leiða. Ríkið
hefur valdið þenslu í peninga- og
ríkisfjármálum og haft óeðlileg af- ☆
skipti af verðlags-, launa og
gengismálum. Það hefur veitt viss-
um aðilum sérréttindi í formi
styrkja, niðurgreiddra vaxta, ríkis-
ábyrgða og einkaleyfa og ruglað
þar með arðsemisviðmiðunum og
dregið úr árvekni. Þá hefur hið
opinbera veitt almennningi þjónustu
á of dýru verði, bæði miðað við
gæði og ekki síður vegna þess
hvemig fjár hefur verið aflað til
hennar.
Þegar betur er að gáð, er ekki
að furða hvemig til hefur tekist:
☆ A fjármagnsmarkaði hafa
stjomvöld ákveðið vexti og haft
áhrif á hvemig fé er varið, t.d.
í gegnum fjárfestingasjóði og
með ríkistryggðum lánum. Með
því er ýtt undir óhagkvæmar
fjárfestingar, sem skattgreið-
endur þurfa að lokum að standa
skil á.
☆ Samningar um kaup og kjör
hafa að hluta verið úr tengslum
við verðmætasköpun fyrirtækja.
Samið hefur verið á breiðum
gmndvelli um sömu laun til
starfsmanna í sama stéttarfé-
lagi án tillits til afkomu fyrir-
tækjanna. Tíðar vinnudeiiur,
verkföll og mikla verðbólgu má
m.a. rekja til fyrirkomulags
Iqarasamninga.
☆ Verðmyndun á ýmsum vörum
og þjónustu er háð afskiptum
stjómvalda. Við opinbera verð-
ákvörðun er reynt að samræma
ósættanleg markmið, t.d. við
ákvörðun fisk- og búvöruverðs.
Þessu er síðan mætt með geng-
isfellingu vegna sjávarútvegs
en útflutningsbótum og niður-
greiðslum í landbúnaði.
Meðan gengið er háð ákvörðun-
um stjórnvalda, er ávallt hætta
á að atvinnulífíð beri skaða af
óraunhæfri skráningu. Strang-
ar reglur um gjaldeyrissölu og
-kaup valda óhagræði í viðskipt-
um.
☆ Náttúruauðlindir, fískimið og
afréttarlönd hafa verið ofnýtt.
Ofnýtingin skýrist af því að
auðlindimar eru sameign. Ein-
stakir notendur hafa ekki hag
af að takmarka eigin afnot, ef
aðrir gera ekki slíkt hið sama.
Við virkjun fallvatna og jarð-
varma hefur verið lagt út í
mikinn kostnað án þess að
tryggja markað fyrir orkuna.
Frjáls markadur og-
hlutverk hins opinbera
Það kann að virðast framandi
að skilgreina viðfangsefni íslensks
efnahagslífs með vísun til verð-
myndunar á markaði fjármagns,
vinnu, vöm og þjónustu. Þegar
grannt er skoðað, má þó rekja flest
vandamál í efnahagslífínu til af-
skipta stjómvalda af verði og
ákvörðunarþáttum þess.
Afskiptin bera þess merki, að
stjórnvöld hafa ekki gert sér grein
fyrir gildi fijáls markaðar fyrir
bætt lífskjör. Verð á fijálsum mark-
aði gegnir mikilvægu hlutverki. Það
er eins konar upplýsingamiðill sem
segir til um skort eða ofgnótt og
við þessu er bmgðist með þeim
hætti, að jafnvægi komist á. Með
því að grípa inn í þetta ferli fijálsr-
ar verðmyndunar gefa stjómvöld
rangar upplýsingar um hvað er
hagkvæmt, hvað borgar sig.
Auk þess að nota fé í því skyni
að leiðrétta misfellur, sem afskiptin
leiða af sér, hafa stjómvöld iðulega
samþykkt lög, án þess að áætla
fyrir útgjöldum. Ríkisafskiptin hafa
un Jið upp á sig án úttektar á kostn-
aði eða tekjuöflun og útheimt sífellt
hærri skatta. Skattamir hafa þó
ekki dugað. Gripið hefúr verið til
síaukinnar erlendrar lántöku til að
brúa bilið.
Ríkið hefur vissulega hlutverki
að gegna, en það má ekki standa
í vegi fyrir einstaklingum í sókn
þeirra til bættra lífskjara. Dæmin
sanna, að eigi einstaklingamir
möguleika á því að njóta sín á eig-
in ábyrgð, skilar framtakssemi
þeirra sér um allt efnahagslífíð í
betri lífskjömm. Markaðurinn leysir
flest vandamál, sem stjómvöld telja
sig sífellt þurfa að fást við.
Ríkið á að styðja fijálsan markað
og verðmyndun, ekki með styrkjum
eða annarri mismunun, heldur með
því að vemda eignarrétt, örva sam-
keppni og hindra einokun. A þeim
sviðum, sem samkeppni fær ekki
þrifíst, vegna eðlis vöm eða þjón-
ustu, liggur beint við að hið opin-
bera komi til sögunnar, þó fremur
sem eftirlits- en rekstraraðili. Opin-
ber rekstur nýtur ekki sama aðhalds
og önnur rekstrarform. Því ber að
nýta kosti einkarekstrar á þeim
sviðum, sem unnt er.
Eðlilegt er, að hið opinbera styðji
þá sem ekki em færir um að taka
þátt í atvinnustarfseminni og sjái
ennfremur til þess að allir hafí tæki-
færi til menntunar og heilsugæslu.
Þar með er ekki sjálfgefíð, að ríki
og sveitarfélög reki t.d. skóla og
sjúkrahús.
Flokkur mannsins:
Mótmælir
óhóflegum
launahækkunum
alþingismanna
SÍÐUSTU daga hefur Flokkur
mannsins beitt sér fyrir mótmælum
vegna hinna óhóflegu launahækk-
ana sem alþingismenn og aðrir
forráðamenn þjóðarinnar hafa tekið
sér umfram aðra. Á meðan þeir
bjóða vinnuveitendum sínum —
launþegum landsins — laun sem
ekki er hægt að lifa af.
Mótmælaaðgerðimar hafa falist
í því að hvetja fólk til þess að undir-
rita meðfylgjandi áskorun til
þingmanna.
Flokkur mannsins skorar á alla
skattgreiðendur sem eru sammála
þessum aðgerðum að senda sjálfír
mótmælabréf til alþingismanna.
Fjölmargir hafa þegar sent bréf
til alþingismanna og þátttaka verið
góð, meðal annars á ýmsum stórum
vinnustöðum s.s. Granda hf.,
Áburðarverksmiðjunni, Sláturfélagi
Suðurlands og meðal hafnarverka-
manna í Sundahöfn.
Einnig eru hafnar samskonar
aðgerðir í öllum kjördæmum lands-
ins.
Stefna Flokks mannsins er að
alþingismenn starfi á alþingi af
hugsjón en ekki í eiginhagsmuna-
skyni og að laun þeirra séu þau
sömu og lágmarkslaunin í landinu
hveiju sinni, enda séu þau hækkuð
þannig að hægt sé að lifa af þeim
mannsæmandi lífí fyrir 8 stunda
vinnudag.
Ef alþingismenn væru sjálfír á
lágmarkslaunum myndi það örugg-
lega kveikja áhuga þeirra að skapa
öllum mannsæmandi kjör.
(Fréttatilkynning.)
RUMGÓÐUR
OG ÞÆGILEGUR
TERŒL4WD
Meðþvíað setjast undirstýriá Tercei 4WD
geturðu sannprófað að hann er rúmgóður,
þægilegur og skemmtilegur bíll í akstri.
Hann er kjörinn bíll fyrir íslenskar
aðstæður, jafnt á hraðbrautum sem
erfiðum malarvegum.
Þegar færð og veður gera
akstur erfiðan ekur þú leiðar
þinnar áhyggjulaus og það
fervelum bæði þig
og farþegana.
&MÉÉÉÍÉ