Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
29
Bandarískir tollgæslumenn lögðu fyrir skömmu hald á mesta stærsta
kókaínfarm, sem um getur þar í landi, rúmlega 4000 pund. Var eitrið
sýnt fréttamönnum á Miami í síðustu viku en það fannst í gámi, sem
átti að geyma húsgögn og kom frá Venezúela.
Stærsti kókaínfarmurinn
Vínarráðstefnan um öryggi
og samvinnu í Evrópu:
Útlit fyrir mik-
mn agreimng
Vín, AP.
VÍNARRÁÐSTEFNA 35 þjóða
um öryggi og samvinnu í Evrópu
hefst i dag, þriðjudag. Ljóst er,
að mikill ágreiningur er með
Sovétmönnum og Bandaríkja-
mönnum um dagskrárefnin. Vilja
þeir fyrmefndu, að ekki verði
um annað rætt en afvopnunar-
mál en þeir síðarnefndu segja,
að aukin virðing fyrir almennum
mannréttindum séu sá grundvöll-
ur, sem gagnkvæmt traust og
bætt samskipti þjóða i milli verði
að byggjast á.
Warren Zimmermann, formaður
bandarísku sendinefndarinnar,
skoraði í gær á Sovétmenn að auka
mannréttindi þegna sinna og ann-
arra undirsáta eins og þeir hefðu
skuldbundið sig til með undirritun
Helsinki-sáttmálans. Sagði hann,
að þeir hefðu hingað til „einfaldlega
virt hann að vettugi". Fyrst eftir
undirritunina í Helsinki áríð 1975
hefði að vísu verið slakað nokkuð
á klónni en síðan hefði aftur sótt í
gamla farið. 1979 hefði 51.000
gyðingum verið leyft að fara úr
landi en aðeins 1000 í fyrra og nú
sæti í fangelsi 41 félagi sovésku
Helsinki-nefndanna, sem reyndu að
fylgjast með að við sáttmálann
væri staðið. Sagði Zimmermann,
að það gæti aukið tiltrú vestrænna
manna og flýtt fyrir umfangsmik-
illi afvopnun ef Sovétstjómin virti
betur almenn mannréttindi.
Sovétmenn ætla ekki að ræða
um annað á ráðstefnunni en af-
vopnunarmál og í fjölmiðlum þeirra
og annarra Austur-Evrópuríkja eru
Vesturlönd harðlega gagnrýnd fyrir
að ætla að vekja máls á mannrétt-
indum. Vínarráðstefna er haldin á
grundvelli Helsinki-sáttmálans en
meginefni hans eru bætt samskipti
austurs og vesturs, aukin mannrétt-
indi og meiri efnahags- og .menn-
ingarsamvinna. Búist er við, að
ráðstefnan standi til vors.
Aðalfundi Rauða
krossins lauk í
sátt og samlyndi
ZUrich. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EINING rikti á tuttugasta og
fimmta þingi eða aðalfundi Al-
þjóða rauða krossins og hálf-
mánans þegar þvi lauk í Genf
fyrir helgina. Fundurinn fór illa
af stað og óttast var um framtíð
samtakanna þegar meirihluti
fundarmanna ákváð að vísa full-
trúum ríkisstjórnar Suður-
Afríku af fundi. En fundarstörf
gengu vel alla vikuna og ieið-
togar Rauða krossins vona að um
einstætt atvik í sögu samtakanna
hafi verið að ræða.
Fundarmenn samþykktu tillögur
sem tvær starfsnefndir á fundinum
sömdu með lófataki undir lok hans
á föstudag. Tillögumar varða ann-
ars vegar samræmingu á starfi
Alþjóðanefndar rauða krossins og
Rauða kross félaganna og eru hins
vegar skref í átt að samþykkt laga
um mannúðarmál. Sameiginleg
nefnd Alþjóðanefndarinnar og fé-
laganna var einnig kosin, en hún
mun starfa fram að næsta alþjóða-
þingi sem verður haldið í Kólumbíu
að fjórum árum liðnum. Fulltrúar
frá Jórdaníu, Vestur-Þýskalandi,
Ungveijalandi, Brasilíu og Simbab-
wi voru kjömir í nefndina auk
fulltrúa Alþjóðanefndar rauða
krossins og Rauða kross félaganna.
Frelsissamtök Palestínumanna,
PLO, sóttu um sæti á alþjóðaþing-
inu áður en það hófst. Svissneskum
þingforsetum tókst að koma í veg
fyrir að umsókn PLO yrði rædd á
aðalfundinum og vísuðu umsókn-
inni til nefndar. Ottast var að
ísraelar og Bandaríkjamenn gengju
af fundi ef PLO fengi að sitja hann.
Formaður svissneska Rauða kross-
ins sagði eftir þingið, að fulltrúum
ríkisstjómar Suður-Afríku hefði
aðeins verið vísað af fundinum í
Genf og þeir yrðu boðaðir á næsta
aðalfund líknarsamtakanna.
ERLENT
Breti fær gervihjarta
London, AP.
FYRSTI Bretinn, sem fær gervi-
hjarta, brosti til hjúkrunar-
kvennanna, eftir að hann komst
til meðvitundar í gær. Var líðan
hans sæmileg eftir aðgerðina,
sem stóð í 5 klukkustundir og
20 mínútur. Skýrði John Ed-
wards, talsmaður Papworth-
sjúkrahússins í London, frá þessu
í gær. Ekki var greint frá nafni
gervihjartaþegans, en hann mun
vera um fertugt.
Læknamir Terence English og
Francis Wells stjómuðu hóp 13 sér-
fræðinga, sem settu gervihjarta af
Jarvikgerð í manninn. Þetta er
bráðabirgðaráðstöfun þangað til
mannshjarta fæst, sem unnt verður
að græða í manninn. Hann var flutt-
ur á sjúkrahús 31. október sl. mjög
alvarlega veikur eftir hjartaáfall.
Allt var þá gert til að útvega hjarta
í hann, en þar sem það var hvergi
fyrirliggjandi, var ákveðið að setja
í hann gervihjarta til þess að bjarga
lífi hans í von um að rétt hjarta
fáist bráðlega.
Fyrstur manna til að fá gervi-
hjarta var dr. Bamey Clark,
bandarískur tannlæknir, sem lifði í
112 daga eftir aðgerðina, sem fram
fór í desember 1982. Þeir fímm
menn, sem gervihjarta var sett í,
er vera skyldi til frambúðar, eru
allir dánir. Sá, sem lifði lengst, var
William Shroeder frá Louisville í
Manila, AP.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, lýsti í gær tilboði
kommúnista um vopnahlé sem
„skrefi fram á við“ og sagði, að
samninganefnd hennar myndi
svara tilboði þeirra eftir tvo
daga.
Ramon Mitra, einn af þremur í
samninganefnd stjómarinnar,
kvaðst í gær vera bjartsýnn á, að
vonahlé kæmist á. Sagði hann þetta
eftir, að menn úr stjóm og her
landsins höfðu rætt tilboð um 100
daga vopnahlé, sem sett var fram
á laugardaginn af Þjóðlegu lýðræð-
isfylkingunni, þar sem kommúnist-
ar em alls ráðandi.
Haft var eftir Teodoro Benigno,
Bandaríkjunum, en hann lifði í 620
daga. Í síðasta mánuði lézt eina
konan, sem gervihjarta hefur verið
sett í. Hún lifði í 10 mánuði með
gervihjartað.
talsmanni Corazon Aquino, að NDF
hefði stigið skref fram á við með
því að fallast á vopnahléstillögur
þær, sem hún bar fram, áður en
hún fór í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna. Samkvæmt tillög-
um kommúnista á vopnahléð að
ganga í gildi í næsta mánuði og
vera í gildi 23. janúar, en þá á að
fara fram þjóðaratkvaiðagreiðsla
um nýja stjómarskrá í landinu.
Vopnahléð á síðan að standa fram
yfír 25. febrúar, en þá verður ár
liðið frá því að Aquino tók við völd-
um á Filippseyjum.
Sautján ár em nú liðin, síðan
kommúnistar hófu vopnaða upp-
reisn á Filippseyjum.
Vaxandi bjartsýni um
vopnahlé á Filippseyjum
SÓLEYJAR
Sigtúni 9.
Símar: 687701, 687801
^|
Wirt^lfmmaDmumwnrieom
nýkomnar-...
Sendum í póstkröfu
Opnunartími Itl. 15—22