Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 31

Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 31 Af sögn utanríkis- ráðherra Eþíópíu: Segir kúgun og ofríki hafa vaxið dag frá degi GOSHU WOLDE, utanrítósráð- herra Eþíópíu, sagði af sér mánudaginn 27. október en hann var þá staddur i New York. Afsögn hans er mitóð áfall fyrir Eþíópíu- stjórn en nú hin síðustu ár hafa fjölmargir þekktir borgarar flúið harðstjórn Mengistu Haile Maríam leiðtoga Eþíópíu. Eiginkona Goshu Wolde og böm hafa um nokkurt skeið búið í Banda- ríkjunum en Wolde hefur ekki viljað tjá sig um hvort hann muni biðja um pólitískt hæli þar. Aldrei fyrr hefur jafnháttsettur embættismaður flúið Eþíópíu en ástæður afsagnar sinnar sagði Wolde vera „skammsýni og harðstjóm hinnar marxísku ríkis- stjómar landsins." Á þessu ári hafa tveir háttsettir embættismenn, sendiherra Eþíópfu f Frakklandi og sex bestu liðsmenn Goshu Wolde. unglingalandsliðsins f knattspymu flúið frá Eþíópíu. í síðasta mánuði tilkynnti stjómin f Addis Ababa að Eþíópía myndi framvegis ekki taka þátt í alþjóðlegum knattspymumót- um. Þá var ennfremur tilkynnt að framvegis myndu knattspymumenn frá Eþíópíu einungis etja kappi við landslið „vinveittra" þjóða. Embætt- ismenn í Addis Ababa telja þetta merkja að knattspymumennimir muni einungis fara til ríkja sem skila eþíópískum flóttamönnum aftur til síns heima. Goshu Wolde, sem er 45 ára gam- all, lauk lögfræðiprófi frá Yale- háskóla og var almennt talinn einn hæfasti ráðamaður þjóðar sinnar. { yfírlýsingu hans sagði að stjóm landsins hundsaði vilja þjóðarinnar og kúgun og ofríki færi stöðugt vax- andi.„Eg hef horft á harðstjómina aukast dag frá degi og ekkert fengið að gert. Ohjákvæmilegar afleiðingar hennar eru kúgun og mannréttinda- /brot,“ sagði Goshu Wolde. Fjölmargir flóttamenn frá Eþíópíu hafa tilgreint svipaðar ástæður og Wolde. Dawit Wolde Giorgis, sem var formaður Hjálparstofnunar Eþíópíu áður en hann flúði til Bandaríkjanna í fyrra, sagði stjóm Mengistus bera ábyrgð á hungursneyðinni í landinu á árun- um 1984 og 1985. Berhane Deressa, aðstoðarmaður Dawit Giorgis, flúði til Bandaríkjanna í júni á þessu ári og kvaðst ekki lengur geta starfað fyrir stjóm „sem hefur sett sér það höfuðmarkmið að þröngva framandi hugmyndafræði og annarlegu þjóð- félagskerfí upp á þjóðina." Árið 1977 sneri Eþíópíustjóm sér til Sovétríkjanna og bað um hemað- araðstoð til að veijast innrás Sómalíu- manna. Bandaríkjastjóm var einnig beðin um aðstoð en þeirri bón var hafnað þar sem stjóm Eþíópíu þótti vera vinstri-sinnuð auk þess sem hún hafði orðið uppvís að mannréttinda- brotum. Frá því að stjómin vingaðist við Sovétmenn hafa tök hennar á landinu styrkst til muna. Almennt er talið að engin hinna fjölmörgu hreyf- inga skæruliða í landinu eigi mögu- leika á að steypa stjóm Mengistus. *ríf,u'”$g7rZÚta,“pt ÆyMTYRALECUR ORBYUUUOm Hefurþú uppgötvad hjálparhelluna frá Sharp, örbylgjuofninn sem gerireldamennskuna aö léttum leik. Ofninn erauðveldurínotkun, þú seturhráefnið fhann, stillirhann og útkoman ergirnilegurmatursem bragðast Sharp örbylgjuofnarnir henta jafn vel fyrirallan jafntstórar steikursemléttsnarl. Öllum örbylgjuofnunum frá Sharp fylgir ókeypis matreiðslunámskeið fyriralla fjölskylduna og að aukifær kaupandinn þykka myndskreytta matreiðslubók sérað kostnaðarlausu í Hljómbæ ermikið úrval örbylgjuofna og allireru þeirfráSharp, þaðtryggirgæðin. Verðiðerfrá: KR. 12,900.- FáðuþérSharp - gæðanna vegna. HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, KEA Akureyri, Radiover Húsavík, Skógar Egilsstööum, Kaupfélag Héraösbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjardar Reyðarfirði, Ennco Neskaupsstað, Djúpið Djúpavogi, Hornabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi, Rás Þorlákshöfn, Fataval Keflavík, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL Húsið Reykjavík. JltofgMtt&ljifrife Gódan daginn!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.