Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 36

Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 36
mftAvi Aukakjördæmisþing F’ramsóknarflokksins í Norðurlandi-eystra ÍTOM 36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 Guðmundur Bjarnason: Vona að ekki komi til sérframboðs Morgunblaöiö/Skapti Guðmundur Bjaraason þakkar fyrir sig eftir að hafa verið kjörinn í efsta sæti listans. Guðmundur efstur og- Stefán gekk út - Norður Þingeyingar fóru af fundi er þeirra maður tapaði kosninguí 2. sætið GUÐMUNDUR Bjarnason al- þingismaður hreppti fyrsta sætið á lista Framsðknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra við næstu alþingiskosningar. Loftið á hótelinu á Húsavík var þrungið spennu síðari hluta dags á sunnu- dag þegar atkvæði voru talin í kjöri miili hans og Stefáns Val- geirssonar um efsta sætið. Lokaniðurstaða varð sú að Guð- mundu hlaut 161 atkvæði en Stefán 131. Stefán hafði lýst því yfir að hann tæki ekki sæti á list- ' anum nema hann fengi fyrsta sætið - og er úrslit lágu fyrir sté hann í pontu og tilkynnti að hann yrði ekki i framboði fyrir flokk- inn. Greinilegt var að Stefán hefur allt eins átt von á þessari niðurstöðu þvi hann var með ræðuna tilbúna, vélritaða á blað. Ræðan er birt hér á síðunni. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á laugardag höfðu hótanir um sérframboð magnast meðal Framsóknarmanna í Norður-Þing- eyjarsýslu næði Stefán ekki fyrsta sætinu. Þeir höfðu einnig nefnt að fá að „ráðstafa" öðru sætinu næði Stefán ekki kjöri. Þar höfðu þeir í huga Þórólf Gíslason, kaupfélags- stjóra á Þórshöfn. Eftir að Valgerð- ur Sverrisdóttir hafði hlotið yfírburðakosningu í 2. sætið gekk hluti Norður-Þingeyinga úr salnum, þar á meðal Þórólfur - greinilega mjög óánægðir með þá niðurstöðu - og klöppuðu aðrir fundarmenn þá fyrir þeim er gengu út! „Það er mjög óeðlilegt að tveir Suður-Þingeyingar séu í öruggu sætunum. Það hefði átt að skipta þessu eins og alltaf hefur verið gert,“ sagði einn þeirr er gekk úr salnum við blaðamenn. „Framsókn- arflokkurinn tapar fylgi á þessu. Stefán Valgeirsson hefur gífurlegt persónulegt fylgi og það eru litlar líkur á að við styðjum flokkinn," sagði þessi sami. „Sérframboð? Það verður eflaust athugað - við sjáum til hvað Stefán gerir," sagði hann. Eins og áður sagði hlaut V algerð- ur Sverrisdóttir á Lómatjöm yfír- burðakosningu í 2. sætið. Hún hlaut 165 atkvæði, Þórólfur 71, Þora Hjaltadóttir á Akureyri 24, Jóhann- es Geir Sigurgeirsson á Ongulstöð- um 10 og aðrir færri. Þrívegis þurfti að kjósa í 3. sæt- ið. Skv. reglum þurfti sá sem flest atkvæði hlaut að fá 50% greiddra atkvæða til að hljóta gilda kosn- ingu. í 3. atrennu náði Jóhannes Geir Sigurgeirsson svo Iögmætri kosingu - fékk 127 atkvæði af 248. Valdimar Bragason frá Dalvík fékk 78 og Þóra Hjaltadóttir 40. Þóra var svo kjörin í 4. sæti, Valdimar í 5. sæti, Bragi V. Bergmann í 6. sæti og Egill Olgeirsson í 7. sæti. „ÉG ER auðvitað sérstaklega þakklátur því fólki sem hefur sýnt mér þennan stuðning og það traust sem fram kemur í þessu. Og einnig þvi fólki sem veitti mér brautargengi í skoð- anakönnuninni sem við háðum á dögunum sem kannski gerði útslagið á að ég ákvað að ég gaf kost á mér í fyrsta sætið,“ sagði Guðmundur Bjarnason í samtali við Morgunblaðið á sunnudaginn. Guðmundur sagði það ekki nýja ákvörðun að stefna á fyrsta sæt- ið. „Hún hefur búið um sig hjá mér á undanfömum mánuðum og kannski allt frá því 1983. Þá fékk ég mjög góðan stuðning er við völdum á listann og síðan hefur mér verið fengin ýmis konar trún- aður í flokksstarfínu; ég á meðal annars sæti í stjóm flokksins, sem hefur auðvitað ýtt undir það að ég gæti óskað eftir því að skipa fyrsta sætið." Hvað um þessi viðbrögð Stef- áns? „Ég skil það auðvitað að eftir svona glímu hljóti einhver sárindi að verða. Menn em auðvitað ekki sáttir við það að tapa - en ég vænti þess þó að þegar staðið er að þessu á þennan hátt; við ákváð- um á kjördæmisþingi fyrir ári síðan að hafa þennan háttinn á, þá geti menn átt von á því að alltaf geti orðið einhver átök um einstök sæti á listanum og menn verði að sæta þeirri lýðræðislegu niðurstöðu sem út úr þessu kem- ur. Ég tel að við höfíim viðhaft þau vinnubrögð að menn verði menn að meiri ef þeir sætta sig við þær niðurstöður sem svona em fengnar." Heldur þú að viðbrögð Stef- áns eigi eftir að leiða til Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri á Þórshöfn: Margir sem hafa áhuga á að sérframboði Stefáns „ÞEGAR ljóst var að þessi meiri- hluti þingfulltrúa ætlaði að halda áfram á sömu braut þá litum við svo á að við hefðum ekkert meira að gera þarna,“ sagði Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á Þórshöfn, og einn þeirra sem gengu út af þingi Framsóknar- manna á sunnudaginn, í samtali við Morgunblaðið í gær. Þórólfur sagði að þegar búið var að fella Stefán hefðu þeir Norður- Þingeyingar talið mjög eðlilegt að fá sterkan Akureyring í annað sæt- ið og sterkan dreifbýlismann í þriðja sætið. „En Akureyringar höfðu engum manni fram að tefla og þeg- ar okkur sýndist að það ætti að halda áfram að raða Húsvíkingum og Suður-Þingeyingum á listann þá höfðum við ekki trú á að það næðist breidd og þeir vildu ekki taka mikið tillit til okkar sjónar- miða. Að Stefáni frágengnum, sem allir vita að hefur verið mikill dreif- býlistalsmaður, leist okkur ekkert á að þetta höfðaði mikið til okkar fólks héma.“ Þórólfur sagði hina hörðu stuðn- ingsmenn Guðmundar hafa fylgt sigrinum svo fast eftir til að „menn vissu hvar Davíð keypti ölið. Með þvi voru þeir að kalla yfír sig ákveð- in vandamál." Ertu með þessu að segja að sterklega komi til greina að þið farið af stað með sérframboð? „ Við vitum af því að hér er ákveð- in hreyfíng manna sem leggur mjög hart að Stefáni að fara fram. Ég veit ekki annað en að þeir séu að undirbúa stuðingsjrfírlýsingu við Stefán og hvetja hann til þess að reyna eftir öðrum leiðum að verða í þingliði kjördæmisins eftir næstu kosningar." Þórólfur sagði Norður-Þingey- inga ekki hafa verið í neinum vafa hvað Guðmundur hefði átt að gera. „Guðmundur telur sig vera foringja, og það er rétt að hann er ritari flokksins. Sem foringi, sem er með tvær fylkingar á öndverðum meiði og fyrirsjáanlegt var að vandræði yrðu að stilla saman strengina, átti hann að standa upp og gefa kost á sér í annað sætið þar sem þetta yrði í síðasta skipti sem Stefán Vageirsson færi fram, og skora á menn að standa fast að listanum. Ef hann sem foringi ætlaði að leiða liðið til sigurs, því prófkosning er bara forleikurinn. Aðalmálið er að fá eitthvað upp úr kjörkössunum." Þórólfur sagðist telja að „hinir hörðu Guðmundarmenn" hefðu lagt höfuðáherslu á að koma Stefáni frá þannig að eftir að ljóst varð að hann næði ekki fyrsta sætinu hefði hann ekki átt möguleika á öðru sæti. „Það er bara blekking að halda því fram,“ sagði Þórólfur. klofnings í Framsóknarflokkn- um í kjördæminu fyrir komandi kosningar? „Óeining um framboðslistann hlýtur auðvitað að verða okkur erfið ef framhald verður á því. Ég geri mér hins vegar enn vonir um það að þegar menn hafa feng- ið tíma til að átta sig og aðeins hefur liðið frá þessu uppgjöri sem hér hefur auðvitað átt sér stað þá jafni tíminn það.“ Norður-Þingeyingar sögðu eftir að kosning um 2. sætið lauk að þeir gætu ekki sætt sig við tvo Suður-Þingeyinga í efstu sætunum. „Ég vonast nú til að menn geri ekki of mikið úr þessari svæða- skiptingu kjördæmisins. Ég tel að ég hafí gert mitt besta fyrir allt kjördæmið í mínu starfi og við áttum margt mjög gott samstarf við Stefán Valgeirsson við að vinna að málefnum þessa kjör- dæmis, ég vil leggja áherslu á það. Ég veit þó að það er dálítið ríkt í hugum fólks ennþá að miða við gömlu kjördæmin og stilla list- anum þannig upp. Við þessa ákvarðanatöku situr lqami flokks- fólks í kjördæminu sem hefur í gegnum árin stutt samvinnuflokk- inn sem hefur haft félagshyggju og samvinnuhugsjón að leiðar- ljósi. Ég trúi því ekki að það fólk lúti ekki lýðræðislegum vinnu- brögðum, að það sætti sig ekki við þann lista sem við veljum á þennan hátt. Ég treysti því ein- dregið að svo verði og hvað sérframboð varðar þá get ég auð- vitað lítið eða ekkert sagt um það. Ég vona hins vegar einnig að til þess komi ekki, að minnsta kosti að þetta fólk sem hér hefur tekið þátt í starfí flokksins og staðið með okkur í raun að ákveða þessa aðferð og framkalla þessa niðurstöðu að það sætti sig við hana og starfí með okkur af heil- indum og beijist fyrir þessum lista og geri veg hans sem mestan í kosningunum." Hvernig túlkaðir þú orð Stef- áns í ræðunni - var hann óbeint að segja að hann færi í sérfram- boð og var hann að deila á þig? „Ég læt það algjörlega liggja á milli hluta eins og er að vera nokk- uð að túlka eða skýra hans orð. Ef menn skilja þau ekki eins og hann setur þau fram sjálfur held ég að hann verði sjálfur að gefa á þeim nánari skýringu." Jóhannes Geir Sigurgeirsson: Stefán lagði allt undir - og tapaði „ÉG ER ánægður með listann eins og hann kom út en í huga mér er engin gleði eftir það sem þaraa fór fram,“ sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson, sem skipar 3. sæti á lista Framsóknarmanna. Fram kom í Morgunblaðinu á laugardaginn að Jóhannes hygðist jafnvel draga sig til baka - gefa ekki kost á sér. Það færi eftir því hvemig andrúmsloftið yrði á þing- inu. „Ef Stefán hefði náð fyrsta sæt- inu hefði ég ekki farið svona ofarlega á lista, menn skipta þessu niður í atvinnustéttir og héruð og svo framvegis og við stöndum fyrir ansi lík sjónarmið." Snérist kjöríð um persónur eða voru þetta frekar átök milli byggðarlaga að þínu mati? „Kjörið snerist fyrst og fremst um persónur held ég. Menn verða að gera sér grein fyrir því að það voru ekki allir Norður-Þingeyingar sem gengu út - heldur aðeins hluti Norður-Þingeyinga austan heiða. Annars vil ég helst losna við að tala um þessa skiptingu kjördæmis- ins og tala um það sem eina heild." Hefurður trú á að Stefán fari í sérframboð? „Ég er ekki farin að meta orð Stefáns ennþá. Ég veit það ekki. Þama var tekin pólitísk áhætta - allt lagt undir - og hann tapaði í algjörlega lýðræðislegri kosningu, þannig að þegar frá líður held ég að menn sætti sig við þessi úrslit," sagði Jóhannes Geir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.