Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
39
smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ræstingar í boði
Vinnútími 20.00-24.00.
Tilboð sendist augldeild Mbl.
merkt: „C - 5574".
Listskreytingahönnun
Myndir, skilti, plaköt og fl.
Listmálarinn Karvel s. 77164.
Hilmar Foss
lögg, skjalaþýð. og dómt.,
Hafnarstræti 11,
simar 14824 og 621464.
Múrvinna — flísalagnir
Svavar Guðni Svavarsson,
múrarameistari, simi 71835.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
Raflagnir — Viðgerðir
S.: 687199 og 75299
AD-KFUK
Bænastund kl. 20.00. Kvöldvaka
kl. 20.30. Kaffi.
Allar konur velkomnar.
□ Edda 59861147 - 1. Atkgr.
□ Helgafell 59861147 VI — 2
I.O.O.F. Rb. 4 = 1361148V2
- G.H.
Fimirfætur
Dansæfing verður i Hreyfils-
húsinu sunnudaginn 9. nóv. kl.
21.00. Mætið tímanlega. Nýir
félagar ávallt velkomnir.
Upplýsingar i síma 74170.
Frá Sálarrannsóknar-
félagi íslands
Félagsfundur verður haloinn
fimmtudaginn 6. nóv.
Sveinn Ólafsson flytur erindi.
Stjórnin.
Aðstoða námsfólk
i islensku og erlendum málum.
Sigurður Skúlason magister,
Hrannarstíg 3, simi 12526.
radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar \
Slysavarna-
deild kvenna í
Reykjavík
Fundur verður haldinn í kvöld í Slysavarna-
félagshúsinu Grandagarði kl. 20.30. Meðal
annars efnis verður ostakynning. Mætum vel.
Stjórnin.
Skrifstofa yfirkjörmats
ríkisins
er flutt í Arnarhvol, 150 Reykjavík, sími
29695.
Landbúnaðarráðuneytið,
31. okt. 1986.
Björn Árdal
Hef flutt læknastofu mína í Hafnarstræti 11.
Björn Árdal,
barnalæknir, ofnæmis- og
klínísk ónæmisfræði.
Útgerðarmenn
— skipstjórar
Nýbyggingar — úrfelling
Forráðamenn skipasmíðastöðvarinnar
Cochrane Shipbuilders Ltd., Selby, Eng-
landi, koma til landsins miðvikudaginn 5.
nóv. nk. og verða hér í nokkra daga til við-
tals um nýbyggingar. Opnast geta möguleik-
ar að taka eldri skip uppí.
Hringið og pantið tíma. Símar 26280-26204.
Sjávarvörur hf.,
Skúlagötu 26, Reykjavík.
Kópavogur — Spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður i Sjálfstæðishúsinu
Hamraborg 1, þriðjudaginn 4. nóvember kl. 21.00 stundvislega.
Mætum öll.
Stjómin
Aðalfundur Týs
Aðalfundur Týs, félags ungra sjálfstæðismanna i Kópavogi, veröur
haldinn miðvikudaginn 5. nóvember nk. kl. 20.00.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Úrslit kosninga.
Ingimundur Magnússon rekstrarráðgjafi verður með framsögu-
erindi.
3. Önnur mál.
Félagar mætið tímanlega.
Stjórnin
Vestlendingar
Kjördæmisráð sjálfstæðisfélaganna í Vest-
urlandskjördæmi efnir til skoðanakönnunar
um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins i kjördæminu fyrir næstu alþingiskosn-
ingar í Hótel Borgarnesi laugardaginn 8.
nóvember kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Kjörfundur settur, fyrri umferð.
2. Ráöstefna um landbúnaðarmál.
Frummælendur dr. Stefán Aöalsteins-
son og Óðinn Sigþórsson, bóndi Einars-
nesi.
3. Ráðstefna í öðrum sal um iðnaöar- og
sjávarútvegsmál. Frummælendur Birgir
Isleifur Gunnarsson alþingismaður og Björn Dagbjartsson al-
þingismaður.
4. Seinni kjörfundur settur kl. 18.00.
Að loknum fundi verður sameiginlegt borðhald fulltrua ásamt mökum
þeirra. Að loknu borðhaldi verður stiginn dans. Hljómsveit leikur
fyrir dansi.
Undirbúningsnefnd.
Landsmálafélagið Vörður
— Félagsfundur
Landsmálafélagið Vörður heldur almennan félagsfund miövikudaginn
5. nóvember 1986 kl. 20.30 í sjálfstæöishúsinu Valhöll.
Dagskrá:
1. Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar vegna aðalfundar.
2. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins fjallar um stjórn-
málaviðhorf i þingbyrjun.
3. Önnur mál.
Stjórn Varðar.
Vestfjarðakjördæmi
Fundur verður haldinn í kjördæmisráði Sjálfstæöisflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi laugardaginn 22. nóvember nk. Fundurinn hefst kl.
13.30 á Hótel ísafiröi 5. hæð.
Fundarefni:
Ákvörðun um framboðslista Sjálfstæöisflokksins i Vestfjarðakjör-
dæmi við næstu alþingiskosningar.
Stjórn kjördaemisráðs.
Hlíða- og Holtahverfi
Aðalfundur
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna i Hliða- og Holtahverfi verður
haldinn þriðjudaginn 4. nóv. nk. kl. 18.00 i sjálfstæðishúsinu Valhöll.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Almennur félagsfundur
Hvatar
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna i Reykjavík
heldur almennan félagsfund í kjallarasal
Valhallar fimmtudaginn 6. nóv. nk. kl. 12.00.
Dagskrá:
1. Kosning uppstillingarnefndar fyrir aðal-
fund félagsins 18. nóv. nk.
2. Gestur fundarins verður Sólveig Péturs-
dóttir lögfræðingur.
Léttur hádegisverður verður á boðstólum.
Sjálfstæðiskonur fjölmennið og takið meö
ykkur gesti.
Stjórnin.
Bakka- og Stekkjahverfi
Aðalfundur
Aðalfundur Félags sjálfstæöismanna i Bakka- og Stekkjahverfi verö-
ur haldinn þriðjudaginn 11. nóvember nk. kl. 18.00 í Sjálfstæöishúsinu
Valhöll.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Gestur fundarins er Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar.
Stjómin.
{
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra:
Stórbætt ytri skilyrði nýtt til hagsbóta fyrir launafólk
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins í Norður-
landskjördæmi eystra var hald-
inn á Akureyri 18. október
síðastliðinn. í stjómmálaályktun
fundarins, sem samþykkt var ein-
róma, er m.a. lögð áhersla á að
stórbætt ytri skilyrði verði nýtt
vinnandi alþýðu til hagsbóta.
í ályktuninni segir m.a.: „Auka
verður kaupmátt almennra launa,
bæði með tilfærslum innan þjóð-
félagsins til jöfnunar og einnig með
beinum hækkunum kauptaxta.
Einnig þarf að heíja að nýju sókn
í stað undanhalds á sviði félags-
og velferðarmála.“
Þá segir í ályktuninni: „Ljóst er
að núverandi ríkisstjórn hefur
hvorki vilja né getu til að ráðstafa
auknum þjóðartekjum til þess fólks
sem verðmætin skapar með vinnu
sinni. Enn síður hefur þessi ríkis-
stjóm áhuga á að byggja upp og
bæta þjónustu við almenning. I
nýrri þjóðhagsáætlun ríkisstjórnar-
innar er beinlínis gert ráð fyrir því
að kaupmáttur kauptaxta lækki á
næsta ári þrátt fyrir spár um áfram-
haldandi góðæri. Ríkisstjóm pen-
ingaaflanna hyggst þannig í engu
hvika frá þeirri láglaunastefnu sem
hún hefur rekið síðan hún komst
til valda. Öll loforð um að fómir
almennings yrðu tímabundnar hafa
verið svikin", segir í ályktuninni.
Þá mótmælir Kjördæmisþingið
„óráðsíu og skuldasöfnun hjá ríkis-
sjóði og varar við þeim hættum sem
eru því samfara að reka ríkissjóð
ár eftir ár með stórfelldum halla
sem komandi kynslóðum er ætlað
að greiða", eins og segir í ályktun-
inni. Þá mótmælir þingið harðlega
hvemig ráðist hafi verið að al-
mennri velferð fólks og bendir í því
sambandi á niðurskurð til heilsu-
gæslu og skólamála og þeirrar
sameiginlegu þjónustu sem ljóst sé
að mikill meirihluti þjóðarinnar telji
mikilvæga og vilji halda í, að því
er segir í ályktun aðalfundar Kjör-
dæmisráðs Alþýðubandalagsins í
Norðurlandskjördæmi eystra.