Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
„Ekki beri því að líta á
þá lækna sem deyðara“
eftirAsdísi
Erlingsdóttur
Fyrirsögn greinar minnar er tek-
in úr grein hr. Auðólfs Gunnarsson-
ar sérfræðings í kvensjúkdómum,
sem birtist í Mbl. 4/9 ’86 undir
heitinu: „Dæmið ekki. . .“ Grein
Au.G. er skrifuð vegna ummæla
biskups yfir íslandi, hr. Péturs Sig-
urgeirssonar, um fóstureyðingar en
í hirðisbréfí hans segir að stigsmun-
ur en ekki eðlismunur sé á útburði
bama er viðgekkst hérlendis í
heiðnum sið og fóstureyðingum sem
nú viðgangast hér á landi.
Grein Au.G. er skrifuð í hógværð-
aranda sérfræðings og er eftirtekt-
arverð og algjör nýlunda fyrir
almenning í landinu að fá slíka ein-
lægni og hreinskilni kvensjúk-
dómalæknis í svo viðkvæmu máli.
Hann á þakkir skilið og vil ég leyfa
mér að senda honum Ritn.grein
Orðskv. 21—29: „Óguðlegur maður
setur upp öruggan svip, en hinn
hreinskilni gjörir veg sinn örugg-
an.“
Au.G. segir: „Á undanfömum
ámm hefir það komið í minn hlut
að framkvæma fóstureyðingar og
hjálpa konum til að taka afstöðu
þar að lútandi, stundum vegna fyr-
irsjáanlegra sjúkdóma eða galla hjá
fóstri eða sjúkdóma hjá móður en
oftast vegna félagslegra vanda-
mála." Au.G. aðgreinir líf fósturs
um meðgöngutímann:
1. Líffræðilegt lif fósturs sem er
1. stig meðgöngutímans en mið-
taugakerfi 3 mánaða fósturs er
ekki nægilega þroskað til þess
að um geti verið að ræða nokkra
meðvitaða reynslu eða sjálfsvit-
und.
2. Hið andlega mannlega líf fóst-
urs, en þá hefir miðtaugakerfi
fóstursins náð talsverðum
þroska, og jafnvel möguleika á
sjálfstæðu lífi utan líkama móð-
urinnar, hefir skapast og kvikn-
ar raunar ekki a.m.k. fullkom-
lega, fyrr en eftir fæðingu.
Til samanburðar á skilgreiningu
hans á líffræðilegu lífi fósturs og
andlegu mannlegu lífi fósturs og
þroska á miðtaugakerfi fósturs,
tekur Au.G. dæmi um sjúkling sem
hefir orðið fyrir skemmdum á æðri
hlutum miðtaugakerfís og segir
hann sjúklinginn alls ófæran um
að svara umhverfi sínu enda þótt
vefír líkamans haldist lifandi í
líffræðilegu tilliti, vegna tækni sem
heldur blóðrás og öndun gangandi.
Síðan segir Au.G.: „Ekki beri því
að líta á þá lækna sem deyðara sem
taka úr sambandi þær vélar sem
halda öndun og blóðrás gangandi,
þegar miðtaugakerfi sjúklings er
það alvarlega skaddað að um and-
legt líf geti ekki verið að ræða eða
framkvæma fóstureyðingu snemma
á meðgöngutíma né þær konur er
láta framkvæma slíkar aðgerðir."
Að mínu mati er þessi samlíking
Au.G. ekki raunhæf vegna þess að
hið líffræðilega líf fósturs á fyrir
hendi lífsmöguleika ef það er ekki
tekið, en ekki sjúklingur sem er
andlega dáinn eða í óafturkræfu
dái. En ég verð að segja að ef ég
væri kvensjúkdómalæknir og leyfð-
ar væru fijálsar fóstureyðingar
mundi ég álíta mig best sleppa við
samviskuskellinn að framkvæma
fóstureyðingu á 1. stigi
meðgöngutí mans.
Ég þekki tvær konur sem lentu
í þeim þrengingum að fá blæðingar
um meðgöngutímann. Önnur lá
rúmföst og mátti sig varla hreyfa í
2 mánuði, ef ske kynni að hún
fæddi bam sitt lifandi. En hin fékk
blæðingar þegar hún var aðeins
komin 2 mánuði á leið og fór hún
á sjúkrahús og lá þar ca. 5 vikur,
en þá var henni boðin fóstureyðing.
En hún tímdi ekki að láta eyða
fóstrinu og sagði hún fæðingar-
lækninum frá því og reyndist hann
henni mjög vel. En eins og hún
sagði við mig þraukaði hún með
Guðs hjálp út meðgöngutímann og
fæddi heilbrigðan dreng sem er
mesti myndarpiltur nú í dag.
Gömlu fóstureyðingarlögin heim-
iluðu rýmkun laganna á banni gegn
fótureyðingum. En framkvæmdin
var bágborin, t.d. ef konur voru í
neyð þá kom fyrir að þær biðu allt-
of lengi eftir úrskurði. En ég spyr
Hvað var Alþingi að hafa afskipti
af slíkum málum ef um var að
ræða sjúkleika verðandi móður eða
fósturs? Það er að sjálfsögðu einka-
mál stúlku eða konu þegar um
sjúkleika er að ræða um ákvörðun-
artöku í samráði við fæðingarlækni,
prest eða félagsráðgjafaþjónustu.
En heilbrigð stúlka eða kona með
heilbrigt fóstur á ekki að fá fóstu-
reyðingu. Engar félagslegar kring-
umstæður réttlæta það. En
samkvæmt orðum Au.G. eru lang-
flestar fóstureyðingar út frá félags-
legum vandamálum. Alþingi og
stjórnvöld eiga að standa vörð um
lífsmöguleika þjóðarbrotsins en
ekki setja lög sem opna leiðir til
að fækka þjóðinni.
Jafnframt banni á fóstureyðing-
um heilbrigðra kvenna þarf að gjöra
átak og finna leiðir til að hjálpa
verðandi mæðrum um meðgöngutí-
mann. En mörg eru vandamálin t.d.:
1) Bamsfaðir bregst, fjárhags-
vandi. 2) Lítillækkun að fæða bam
í lausaleik? 3) Töf vegna menntun-
ar. 4) Gift kona eða í sambúð,
jafnvel ómegð fyrir en karlinn er
óreglusamur, varla fyrirvinna. Lem-
ur konu sína?
Þessi hjálpar- og þagnarskyldu-
þjónusta þarf að fá inni í kerfinu
til að aðstoða þær heilbrigðu sem
hyggja á fóstureyðingu eða treysta
Ásdís Erlingsdóttir
„Þessi hjálpar- og
þagnarskylduþjónusta
þarf að fá inni í kerfinu
til að aðstoða þær heil-
brigðu sem hyggja á
fóstureyðingu eða
treysta sér ekki til að
sjá um bamið eftir fæð-
ingu.“
sér ekki til að sjá um bamið eftir
fæðingu. Einnig væri þessi þjónusta
tengiliður fyrir hjón eða sambúðar-
fólk sem getur ekki eignast böm
Blaöburðarfólk
óskast!
'““zgitr //r— ..........^
~~ ~ fifnnitiiriA
1986
rA,íí>,
tíkgatölin frá lyiúlalundi eru ómissandi áöll
skrifborö. '5 /
Þau eru með lausum blööum sem auövelt er aö
merRjainn á og fást í mörgum litum.
/f Merkingar eru prentaðar á dagatölin fyrir þá sem
þess óska/ .7...—r- -- /
Ódýr og góð lausn fyrir pá sem þurfaalltaf að haf£
dagataliöviö hendina.
samlegá hafið samband við sölumenn
ekkarseTmyfsUyohægt sé aö ganga
tirhárnrjiiuiíulcöntunun
Múlalundur
Hátún 10c • Símar 38450 og 38667
AUSTURBÆR
Óðinsgata
Síðumúli
BREIÐHOLT
Hléskógar
KOPAVOGUR
Birkihvammur
Hlíðarvegur 1-29 o.fl.
Hlíðarvegur 30-57
en vilja ættleiða böm. Slík aðstoð
þarf fjármagn og aðstöðu til fyrir-
greiðslu, t.d. góða lánafyrirgreiðslu
og álít ég skattpeningum vel varið
í slíku lífsvemdunarmáli.
Au.G.. segir einnig: „Nú til dags
er hægt að framkvæma fijóvgun
eggs utan líkamans og koma því
síðan aftur fyrir í legi móðurinnar
og framkvæma þannig vísi að nýj-
um einstaklingi sem ella hefði ekki
orðið til.“ En ég leyfi mér að segja:
Það er af Guði áskapað ef úr verð-
ur getnaður eftir samfarir og hljóta
þá egg konunnar og sæði mannsins
að þurfa m.a. ákveðið hitastig fyrir
getnaðinn. En að frysta, geyma eða
færa á milli, sbr. glasabamagetnað-
ur, er slík tilfærsla óhugnanlegt
virðingarleysi gagnvart eðlilegu lífí
náttúmlögmálsins.
Hver getur séð fram í tímann eða
fyrir endann á þessu vísindakukli?
Ér ekki nóg til af hijáðum og van-
nærðum bömum sem þurfa
umhyggju og öryggi eða nóg af
hjónum eða sambúðarfólki sem geta
ekki eignast afkvæmi? En sem elska
hvort annað og vilja ættleiða böm.
Ég vil þakka hr. Pétri Sigurgeirs-
syni biskupi fyrir hans djörfung í
þessu máli, einnig hr. Þorvaldi
Garðari Kristjánssyni alþm. sem
hefir um árabil barist gegn fijálsum
fóstureyðingum og Huldu Jens-
dóttur forstöðukonu og kvenform-
anni Lífsvonar er einnig berst gegn
fijálsum fóstureyðingum.
Höfundur er húsmóðir í Garðabæ.
Þjóðleikhúskjallarinn:
Valborg
og bekkur-
inn aftur
á fjalirnar
DANSKA leikritið „Valborg og
bekkurinn" verður að nýju tekið
til sýninga, í Þjóðleikhúskjallar-
anum, nk. fimmtudagskvöld.
Leikritið var frumsýnt í lok mars
á siðasta ári, og sýnt 32 sinnum
það vor. Með aðalhlutverkin fara
Guðrún Þ. Stephensen og Karl
Ágúst Úlfsson. Leikstjóri er
Borgar Garðarsson, en leik-
myndahönnuður Stígur Stein-
þórsson.
Leikritið fjallar um ekkjuna Val-
borgu sem spjallar við garðbekk
um líf sitt, ástir og hjónaband.
Garðbekkurinn hjálpar til við að
rifya upp ýmis smáatriði og bregður
sér í hlutverk þeirra sem koma við
sögu. Öll frásögnin er krydduð
þekktum alþýðusöngvum. Höfund-
ur leikritsins er Finn Methling, en
Þrándur Thoroddsen gerði þýðing-
una.
Fyrir sýningu er boðið upp á
veitingar að dönskum hæti, heita
máltíð á kvöldsýningum, en kaffi-
veitingar á eftirmiðdagssýningum.
Sigurður Alfonsson, harmonikuleik-
ari, leikur undir borðum og í
söngatriðum sýningarinnar.
Leigubíla-
þjónusta fyrir
flugfarþega
TVÆR leigubifreiðastöðvar,
glæsivagnaþjónusta Pálmarssona
og bifreiðastjórar á Aðalstöðinni
I Keflavík, hafa tekið upp sam-
starf við flutning flugfarþega
milli Keflavikurflugvallar og
Reykjaíkur.
í fréttatilkynningu þeirra segir að
farþegar á leið úr landi séu sóttir til
síns heima, en þeim sem koma til
landsins er ekið til áfangastaðar á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Kostar
aksturinn 550 krónur fyrir hvern
farþega, hvora leið. Bílamir sem
notaðir eru til þessa aksturs taka
5-9 farþega í sæti. Til þess að geta
notfært sér þessa þjónustu þurfa
farþegar að panta bílinn eigi síðar
en kl. 21.00 kvöldið fyrir brottför.