Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 50

Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 50
50 MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 Aldarminning: * Haraldur Arnason kaupmaður Ásdís og Haraldur suður á Ítalíu árið 1929. í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar á liðnu sumri var fróðleg sýning á Kjarvalsstöð- um á ýmsum atburðum úr sögu borgarinnar. Meðal annars gat þar að líta ljósmyndir er sýndu hversu grátt hinn mikli eldsvoði sumarið 1915 lék miðhluta Reykjavíkur, er margar byggingar brunnu þar til kaldra kola. Eitt af fyrirtækjum þeim, er misstu starfsaðstöðu sína í eldsvoð- anum, hafði á að skipa ungum og dugmiklum verslunarstjóra, sem ekki eingöngu gekk vasklega fram í því að bjarga vörum og bókhalds- gögnum úr eldhafínu, heldur gerði sér strax ljóst, að mikil ásókn yrði fljótlega í laust húsnæði. Fór hann því þegar um nóttina á stúfana að útvega fyrirtækinu húsnæði fyrir áframhaldandi rekstur. Og þegar aðrir fóru með morgninum sömu erinda hafði hann þegar fest besta húsnæðið, sem fáanlegt var. Hitt renndi hinn hugkvæma verslunarstjóra ekki grun í, að eig- andi verslunarinnar, sem jafnframt rak umfangsmikið útgerðarfyrir- tæki, hafði ákveðið vegna áfalls þess, sem bruninn olli, að hætta rekstri verslunar en beita sér þeim mun meir að útgerðarmálum. Þegai- verslunarstjórinn kom því á fund eigandans árla morguns til þess að fá samþykki hans fyrir gjörðum sinum um nóttina hlaut hann að vonum mikið lof fyrir en honum var jafnframt tjáð, að ef hann hefði áhuga á staeði honum til boða að kaupa verslunina. Verelunaretjór- inn ungi hugsaði sig ekki lengi um, . tók hinu vinsamlega boði og opnaði sína eigin verslun hinn 1. septem- ber 1915. Kenndi hann verslunina við nafn sitt og nefndi Verelun Haraldar Ámasonar, en fljótlega varð það nafn stytt í Haraldarbúð og það nafn bar hún það tæplega hálfrar aldar skeið, sem hún var rekin. í dag er ein öld liðin síðan Harald- ur Ámason fæddist. Það var á Akureyri hinn 4. nóvember 1886. Foreldrar hans vom þau hjónin Ámi Bjömsson, pósthússkrifari, og Kristín Bjömsdóttir. Dvölin á Akur- eyri varð þó ekki löng, því faðir hans andaðist á leið heim til íslands er Haraldur var á bamsaldri. Móðir hans giftist nokkm síðar á ný, nú Bimi Símonareyni, gullsmið á Sauð- árkróki. Bjuggu þau hjónin þar nokkur ár, eignuðust þar tvo sonu, Áma og Bjöm, en um aldamótin flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Þar settu þau hjónin upp gullsmíða- stofu í Vallarstræti, er Bjöm Símonarson rak, og brauðgerðarhús og verelun, er þau nefndu Bjöms- bakarí, og Kristín Bjömsdóttir veitti foretöðu. í þessu andrúmlofti verelunar, iðju og athafna ólst Haraldur upp og hvort sem það hefír verið vegna þessa umhverfis, meðfæddrar löng- unar og hæfileika eða allra þessara þátta saman, hneigðist hugur hans • snemma til verelunar. Lagði hann stund á tungumálanám svo og bók- j haldsgreinar, en tæplega tvítugur I að aldri sigldi hann til Englands og hóf þar nám í verslunarfræðum. Dvaldi hann ytra í 3 ár. Að námi loknu kom hann aftur til Reykjavík- ur, hóf fyrst störf í vereluninni Dagsbrún en varð fljótlega verelun- arstjóri í Vefnaðarvömverslun Th. Thorsteinsson í Ingólfshvoli og það var sú verslun er hann keypti eftir bmnann mikla. Haraldur rak verslun sína fyrst nokkur ár í Hafnarstræti, en árið 1919 keypti hann húseignina nr. 22 við Austuretræti, gamla presta- skólann, flutti verslunina þangað og þar var hún æ síðan. Haraldur Ámason var einn þeirra manna er kunnu sitt fag. Hann hafði notað námstíma sinn í Eng- landi vel. Hafði á stundum verið í London, sem var nafli viðskiptalífs- ins, kynnst úrvalsvörum frá öllum löndum og öðlast fljótlega mikla vöraþekkingu. Hann var vandlátur um gæði þess vamings er hann verelaði með og smekkvís, svo af bar. Verslun hans varð því fljótlega vinsæl og vömr þær, sem hann hafði á boðstólum, mjög eftirsóttar. Vegnaði honum að því leyti mjög vel. En rekstur verelunar í þann tíð var ekki eintómur dans á rósum. Þá eins og nú skiptust á skin og skúrir í efnahagslífi þjóðarinnar og var hagur verelunar að sjálfsögðu í samræmi við það, hvemig ámaði hverju sinni. Séretaklega varð erfið- ur áratugurinn milli 1930 og 1940. Var þá mikið um innflutningshöft, atvinnuleysi og erfiðir tímar fyrir marga. Verelun dróst mikið saman og hefði verið eðlilegt að mæta þeim samdrætti með fækkun starfs- fólks, en Haraldur hafði í upphafí heitið sjálfum sér því, að segja aldrei upp starfsmanni sökum verk- efnaskorts. Flest af starfsfólki hans hafði auk þess ýmist unnið með honum í verelun Th. Thoreteinsson eða byijað komungt hjá honum sjálfum og vegna ríkjandi atvinnu- leysis höfðu fæstir að öðm að hverfa. Haraldi tókst þá með hug- kvæmni sinni að finna ráð til þess að fleyta versluninni yfír þetta erf- iðleikatímabil án þess að til upp- sagna þyrfti að koma. Gat hann þannig staðið við sitt gamla heit, enda vann flest starfsfólk hans hjá honum svo áratugum skipti, nema þá ef til vill kvenfólkið, en margir höfðu þá á orði, að besti giftingar- markaðurinn væri að starfa í Haraldarbúð. En vera má að það afí meira verið sagt í gamni en alvöra. Mjög var rómað hve Harald- ur hafí verið tillitssamur og hugsað vel um hag starfsfólks síns. Mun hann meðal annars hafa verið með- al þeirra fyrstu — ef ekki sá fyrsti — til þess að veita starfsfólkinu svonefnd vetrarfrí, enda taldi hann ekki síður ástæðu til að það nyti hvíldar í svartasta skammdeginu. Hinn 6. nóvember 1909 kvæntist Haraldur Amdísi, dóttur hjónanna Henriks J. Bartels og Söm V. Clausen. Amdís var fædd 15. októ- ber 1886 og hinn 15. fyrri mánaðar vom því liðin 100 ár frá fæðingu hennar. Amdís var fædd í Keflavík en fluttist hingað til Reykjavíkur 7 ára að aldri. Hún var mörgum góð- um kostum búin, hafði ágæta söngrödd og var listræn. Söng hún ámm saman í kór og lék í leikritum er sett vom á svið hér í borginni. Hún var Haraldi mjög samboðin, fyrirmyndar húsmóðir, stjómsöm og reyndist eiginmanni sínum vel í hvívetna. Þau hjón eignuðust fímm böm, sem öll em á lífí. Haraldur var alla tíð mjög störf- um hlaðinn enda var hann verkmað- ur góður að hvetju sem hann gekk. Á vegum stéttar sinnar vom honum falin ýmis trúnaðaretörf og miklum tíma varði hann til líknarstarfa. Vann hann m.a. mikið og gott starf við það að koma bömum til sum- ardvalar í sveit, sérstaklega meðan árásarhætta vofði hér yfír á stríðsámnum síðari. Lítill tími var því fyrir hann að sinna ýmsum áhugamálum öðmm, en hann hafði bæði gaman af golfi og sérstaklega þó laxveiðum, enda þótti hann bæði slyngur og laginn veiðimaður. Þegar Haraldur varð sextugur, ritaði Valtýr Stefánsson, ritstjóri, grein um hann. Segirþarm.a. svo: „Hann kunni sitt fag. Það þurfti ekki annað en koma inn í búðina hans til þess að sjá, að svo var. En vegna þess að ekki er víst að ég eigi eftir að skrifa grein um Harald öðm sinni, þá vil ég nota tækifærið til að þakka honum fyrir það með hve mikilli smekkvísi og samviskusemi hann hefír rækt og rekið vereluns sína öll þessi ár, síðan hann stofnaði sjálfstæða verelun. Alla tíð hefír hann lagt áherelu á að verelun hans hefði á boðstólum smekklegar vömr, en jafnframt hentugar fyrir alla staðhætti vora. Hann hefír talið það skyldi sína að stuðla að því, að viðskiptamenn hans yrði snyrtimenni í framgöngu og klæðaburði. Það hefír verið hon- um einlægt áhugamál að með því að menn skiptu við verelun hans, lærðu þeir að meta, hversu mikils virði það er að kunna að vera vel til fara og kunna að koma upp smekklegum, vistlegum heimilum." Haraldur andaðist hinn 8. októ- ber 1949 er hann var á leið hingað til lands með eiginkonu sinni. Var það í raun einkennileg tilviljun, þar eð faðir hans hafði, um 60 ámm áður, andast einnig á leið til ís- lands, báðir sennilega á mjög svipuðum slóðum, með þeim eina mun, að faðirinn var staddur á legi en sonurinn í lofti. Andlát Haraldar kom mjög á óvart. Hann hafði alla tíð verið mjög heilsuhraustur og nánast aldrei kennt sér meins. Magnús Kjaran komst m.a. svo að orði í minningargrein: „Eftir að hann hafði lokið verel- unamámi í Englandi varð hann hér verslunarstjori Dagsbrúnar á Hverfísgötunni, sem ekki var fjöl- farin i þá daga, en þessi nýja verelun setti blátt áfram nýjan svip á bæinn. Þann svip erfði svo Vefn- aðarvömverslun Th. Thoreteinsson- ar í Ingólfshvoli, þegar Haraldur tók þar við stjórn og hefír hann alla tíð fylgt hans eigin verslun í gamla prestaskólanum. Smekkvísi í vömvali, smekkvísi í vömsýning- um, smekkvísi í öllu, enda var hann valinn í nefnd til móttöku allra kon- ungsheimsókna og í sýningamefnd íslensku sýningarinnar í New York og leysti það allt af hendi með prýði. Hjálpfysin og hugsunareemin var annar megineðlisþáttur hans. Hann beinlínis leitaði að þörfum og óskum annarra og honum var hrein naut í að reyna að uppfylla þær. Aldrei hefði ég fyrir hitt nokkurn mann jafn ráðhollan og úrræðagóð- an. Þar sem öðmm fannst ófært, sá hann ótal leiðir og ávallt ein- hverja færa. Bjartsýnin var bjarg- föst og hugmyndafluginu lítil takmörk sett. Því held ég, að hann hafí hjálpað fleirum með ráði og dáð en beinum fjárframlögum, þótt þau hafí sjálfsagt verið mikil, en um þau vissi ég jafn lítið og hann sjálfur. Húsbóndi var Haraldur með ágætum. Hefí ég þar fyrir orð mágs míns og þriggja systra minna, er öll hafa unnið hjá honum frá því þau komust á legg. Hann var virtur og elskaður af öllu sínu starfsfólki, enda bar hann umhyggju fyrir því sem sínum eigin bömum. Var hugs- un hans og framkvæmd: „Gengi mitt er gengi fólks rníns". Haraldur Árnason var gæfumaður og sjálfur sinnar gæfu smiður. Hann byrjaði verslun sína með tvær hendur tóm- ar, mddi sér braut innan stéttar sinnar til mestu virðingar, sat í stjóm Verelunarráðs íslands ámm saman og aflaði þess fjár, sem með þurfti til að „geta lotið eðlis síns -hvöt“: Að láta gott af sér leiða í hvívetna." í annarri minningargrein, ritaðri af Einari Guðmundssyni, segir m.a.: „Haraldur Ámason var fyrir löngu þjóðkunnur maður og af öll- um, sem þekktu hann persónulega, var hann elskaður og virtur meira en aðrir menn og bar margt til þess. Hann var sérstaklega dreng- lyndur og vildi öllum gott gera og var alltaf tilbúinn að leysa vand- ræði þeirra, sem á hans vegi urðu. Glaðlyndi Haraldar var einstakt svo að hverjum þeim, sem áttu samræð- ur við hann, varð ætíð léttara í skapi en ella. Hann var hugkvæmur og ráðsnjall svo að ég hefi engan þekkt hans jafningja í því efni. Fyrir ættingja og vini lagði Harald- ur allt í sölumar. Hann átti svo létt með að vera öðmm til hjálpar og munu þau tilfelli vera óteljandi, þar sem hann leysti úr erfiðleikum annarra og var slíkt ætíð gjört af svo mikilli ljúfmennsku og dreng- lyndi að þeim, sem fyrir því urðu, var ætíð sérstök ánægja af liðveislu hans . . . Haraldur var með afbrigð- um friðsamur og allra manna færastur til að hafa bætandi áhrif á aðra. Hann fann ætíð nógar leið- ir til að jafna ágreining, ef hann kom sínum ráðum að . .. Vegna alls þessa og alls þess, sem ég hefí reynt af Haraldi Ámasyni, er hann sá maður, er ég sakna mest, þegar hann nú er horfinn af sjónarsviði þessa heims. En sé það rétt, að þegar þessu jarðneska lífi er lokið hittist menn í annarri dýrðlegri til- vem, veit ég, að margir, sem þekktu Harald, hlakka til samfunda við hann aftur í landi friðar og blessun- ar, því þar mun hann njóta sinna góðu hæfileika og kosta, ekki síður en í þessum jarðneska heimi.“ Amdís, eiginkona Haraldar, and- aðist hinn 16. janúar 1950. Hafði hún átt við veikindi að stríða um nokkurt skeið. Þau hjónin höfðu snemma bundist tryggðaböndum, hjónabnd þeirra verið þeim báðum fareælt og að lokum varð aðskilnað- ur þeirra skammur. En hvað varð svo um Haraldar- búð? Hún galt þess, að hún hafði aldrei eignast þak yfír höfuðið. Það kom auðvitað ekki að sök meðan Haraldur átti verelunina einn. En eftir lát þeirra hjóna varð að sjálf- sögðu breyting á þessu. Húsin nr. 2 við Lækjargötu og 22 við Aust- uretæti höfðu skipst milli bama þeirra hjóna og hafði verið sam- vinna um rekstur eignanna. Búið var að endurbyggja og lagfæra húsið nr. 2 við Lækjargötu og kom- ið að sams konar stórframkvæmd- um á Austurstræti 22. Vegna þess hve lengi verslunin hafði verið þama til húsa hafði verið boðið upp á það, að eign, sem var til sölu við Laugaveg, og talin henta vel til rekstrar verelunarinnar, yrði keypt og leigð versluninni til áframhald- andi rekstrar, en af hálfu forráða- manna verelunarinnar var því tilboði ekki sinnt. Var því ekki um annað að ræða en leggja reksturinn niður, sem þó ekki var sársaukalaust. Þó dró það mikið úr, að tvær yngri dætur Har- aldar höfðu þá ákveðið að halda áfram hluta af verslunaretarfi föður síns, þ.e. dömudeild og snyrtivöm- versluninni. Hinn 1. október 1960 var herradeildin lögð niður en dömudeildinni var hins vegar haldið opinni til áramóta, enda var ætlun systranna að flytja hana þá í húsið nr. 2 við Lækjargötu. En í byijun nóvember hröpuðu tvö systkini þeirra að sölu á því húsi. Kom það eins og þmma úr heiðskím lofti og kollvarpaði fyrirætlunum systranna algerlega. Ég hygg að ekki sé á neinn hall- að, þótt fullyrt sé, að Haraldarbúð hafí um langt skeið verið fremst í flokki verslana á sínu sviði. Kom þar margt til. Fyrst og fremst mik- il leikni og kunnátta eigandans samfara smekkvísi í vömvali. Góð staðsetning verslunarinnar í hjarta borgarinnar stuðlaði og mjög að vexti hennar og viðgangi. En ekki síst var það starfsfólkið, sem setti svip sinn á reksturinn. Er þar fyret til að nefna Kristján L. Gestsson er var samstarfsmaður Haraldar við Thorsteinsson-verslunina. Varð hann verslunarstjóri hjá Haraldi og starfaði þar uns heildverslun Har- aldar Ámasonar var stofnuð, en henni veitti hann frá upphafi for- stöðu og allt til andláts síns. Við starfi Kristjáns tók Sveinbjöm Ámason er hafði starfað við verel- unina frá unga aldri við afgreiðslu og einnig séð um gluggaútstillingar af mikillj smekkvísi, síðar með góðri aðstoð Ólafs Maríussonar er sömu- leiðis starfaði lengi við verelunina við góðan orðstír. Margir aðrir störfuðu þar með ágætum og má nefna Sigurð Jafets- son, Pál Kr. Ámason, Jón Sveinsson og Kjaranssystur, að ógleymdri Guðrúnu Ámadóttur, sem einnig hafði starfað með Haraldi í Thor- steinsson-verslun og starfaði síðan um áratugi í herradeildinni, mjög minnisstæð öllum er nutu hennar alúðlegu og frábæm afgreiðslu. Margir minnast og hins séretæða afgreiðslukerfis varðandi greiðslur, hins svonefnda Lamson loftpósts er sogaði til sín féð og þeytti af- ganginum til baka með örskots- hraða. Hafði Haraldur kynnst þessu í Englandi og tekið upp í verslun sinni. Er það kerfí enn notað í dag, bæði í Englandi og víðar. Jón Bjarnason Haraldarbúð — verslun Haraldar Árnasonar á fyrstu dögum hennar í Austurstræti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.