Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 51

Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 51 Frá hugsjón tíl hagsmuna eftir Önnu Krisijáns- dóttur Það brá mörgum í brún þegar þeir lásu það í morgunblöðunum fyrir skömmu að Bandalag jafnað- armanna hefði verið lagt niður og þrir af þingmönnum Bandalagsins gengið til liðs við Alþýðuflokkinn. Skömmu síðar fréttist svo að Kristín Kvaran hefði gengið í Sjálfstæðis- flokkinn. Það út af fyrir sig var talsvert ruglandi því ég man ekki betur en hún hafi sagt sig úr þing- flokki BJ vegna þess að hún taldi flokksbræður sína of hægrisinnaða. Fólki hefur orðið tíðrætt um þessi umskipti í umræðu síðustu daga. Það er nefnilega svo að hugsjónir Vilmundar Gylfasonar áttu virðingu fólks í öllum flokkum og stéttum. Barátta hans gegn siðleysi og spill- ingu átti og á enn hljómgrunn meðal íslendinga. Þess vegna blöskraði fólki þegar þingmenn BJ sviku hug- sjónir hans og kjósenda sinna. Framkoma þingmanna BJ minnir mig á forystusauð sem faðir minn átti. Sá sauður tróð sér ætíð upp í forystu en ef vindar blésu stakk hann undir sig hausnum og rásaði í vitlausa átt. Þessum sauð var síðan slátrað svo aðrir kæmust að. Marg- ir eru þeirrar skoðunar að þingmenn BJ hafi slátrað sinni pólitísku framtíð. Það mun tíminn leiða í ljós. Þeir hafa hins vegar komið sér á spjöld sögunnar með þann stimpil sem alla tíð hefur þótt verstur allra stimpla: Svik við hugsjónir foringja síns og traust kjósenda sinna. Mað- ur skyldi ætla að eitthvað hafi þeir fengið fyrir. Ljóst er að Guðmundur Einars- son mun skipa efsta sæti á lista Alþýðuflokks á Austurlandi. Með tilliti til þess að skömmu áður en hann gekk til liðs við Alþýðuflokk- inn var hann stórorður í viðtali við Helgarpóstinn og kvað samruna af þessu tagi aldrei til greina koma. Þetta er ekki traustvekjandi fyrir kjósendur á Austurlandi því hvaða tryggingu hafa þeir fyrir því að hann gangi ekki í annan flokk, t.d. Sjálfstæðisflokkinn, að loknum kosningum, nái hann kjöri? Þegar þetta er skrifað hefur hið háa Alþingi, sem allir eiga að bera virðingu fyrir, ekki fjallað um brott- hlaup þingflokks BJ. Það verður að teljast mjög miður því hver á að hafa fordæmi um siðferði ef ekki Alþingi? Það lýsir ekki háu plani hjá Alþingismönnum að þetta mál hefur ekki fengið umræðu með tilliti til kosningalaga og stjómar- skrár. En í rauninni þarf enginn að vera hissa á því vegna þess að á Alþingi hefur ekkert skeð undanfar- in ár. Nokkrar lagagreinar hafa verið samþykktar síðustu daga fyr- ir jólafrí og þingslit að vori. Ekkert raunhæft til úrbóta fyrir þessa þjóð hefur verið til umræðu. Er t.d. nokkur sem minnist þess að lögð hafi verið fram frumvörp til laga gegn þeim mannréttinda- brotum sem framin eru í réttarkerf- inu hvem einasta virkan dag. Þar á eg við framkvæmd fjámáma og uppboða sem að nafninu til styðjast við 99 ára gömul lög. Man nokkur eftir frumvarpi til tryggingar réttaröryggi fólks svo sem réttarhjálp, fjölgun dómstiga og að dómar séu skipaðir til jafns löglærðu og ólöglærðu fólki. Þróun þessara mála er þó stolt annarra Heimsmeistaramót í hárgreiðslu og hárskurði: Island með í fyrsta skípti FYRIR skömmu fór fram heims- meistaramót í hárgreiðslu og hárskurði í Veróna á Ítalíu og tóku yfir 40 þjóðir þátt í keppn- inni. í fréttatilkynningu frá Sambandi hárgreiðslu - og hárskerameistara segir m.a.: „Að þessu sinni tóku íslendingar í fyrsta skipti þátt í keppninni og þrátt fyrir litla reynslu í keppnum stóðu þeir sig mjög vel. Hár- greiðsluliðið varð í 19. sæti og er það mjög góður árangur miðað við að heimsmeistaranir frá síðustu keppni urðu í 11. sæti. Landsliðið í hárskurði hafnaði í 31. sæti og er það mun betri árang- ur en menn bjuggust við vegna þess að í hárskurði er um mun jafn- ari og harðari keppni að ræða. Keppendur í hárgreiðslu voru: Dóróthea Magnúsdóttir, Hársnyrti- stofunni Papillu, Guðfínna Jóhanns- dóttir, Hárgreiðslustofunni Ýr, Helga Bjamadóttir, Hárgreiðslu- stofunni Carmen. Keppendur í hárskurði vora: Eiríkur Þorsteinsson, Rakara- stofunni Greifanum, Gísli V. Þóris- son, Rakarastofunni Hárlínunni, Hugrún Stefánsdóttir, Hársnyrti- stofunni Papillu. Dómarar fyrir ísland vora Am- fríður ísaksdóttir og Torfí Geir- mundsson. Þátttaka íslands í þessari keppni var mikil og góð landkynning og viljum við þakka öllum þeim sem veittu okkur fjár- styrk og gerðu þannig þátttöku okkar mögulega." Austur-Berlín: Svarta rásin gagnrýnir sljórnvöld Austur-Berlín, AP. SJÓRÆNINGJAÚTVARP hóf skyndilega útsendingar í Aust- ur-Berlín á föstudagskvöld og gagnrýndi þulur stöðvarinnar kjarnorkuáætlanir kommúnista- stjórnanna í Austur-Þýzkalandi og Sovétríkjunum milli þes sem hann Iék tónlist. Stöðin útvarpaði í hálfa klukku- stund og sagði þulurinn, sem kallaði stöðina „Svörtu rásina", að í framtí- ðinni yrði útvarpað síðasta föstudag í hverjum mánuði. Ekki yrði endi- lega útvarpað á sömu tíðni, heldur Anna Kristjánsdóttir „í síðustu kosningum voru kjósendur BJ tæp- lega tíu þúsund. Þessu fólki, svo og öðrum landsmönnum, vil ég segja að Bandalag jafn- aðarmanna er hvorki fallið, dáið né grafið.“ þjóða. En á íslandi stjómar stein- runnið embættismannakerfí lífí fólks og hefur að leiðarljósi forpok- aðan hugsunarhátt og fyrirlitningu á lýðræðislegum réttindum. Þingmenn hins vegar sitja í sínum fílabeinsturni og nenna ekki út á meðal fólksins og raunveraleik- ans. Þeir reyna að sjálfsögðu sínar fyrri blekkingar og dreifa um sig góðæris- og kaupmáttartölum, reiknaðar í prósentum frá Þjóð- hagsstofnun og mér sýnist að þessi góðærisumræða verði aðal uppi- staðan í kosningabaráttu ríkis- stjómarflokkanna. En hver viti borinn maður veit auðvitað að góðærið hefur ekki komið hinum almenna launamanni með ófalsaða skattaskýrslu til góða. Starfsmenn fógeta era enn á launa- skrá hjá honum. Sem kunnugt er var Island í sviðsljósi heimsins fyrir skömmu. íslenskir fjölmiðlar töluðu stöðugt um hina jákvæðu umfjöllun sem landið fengi erlendis. Ég hafði það á tilfínningunni að eigendur pólitísku íjölmiðlanna væru með öndina í hálsinum af hræðslu við að erlendir blaðamenn færa að íjalla um staðreyndir. T.d. færa þeir að kynna sér eignaupptökur sem kallaðar era uppboð til lúkning- ar skuldum, launamisréttið, vinnu- þrælkunina, útfærslu verðtrygging- ar, ættaða frá Seðlabanka, okurlánin og jafnvel raglið á pen- ingamarkaðinum. Sennilega hefur enginn verið hræddur um að sjóðakerfíð yrði til umræðu enda ekki fyrir fólk uppa- lið í löndum með þróað hagkerfi að setja sig inn í slíkt. En ég veit ekki betur en þing- menn og aðrir ráðamenn drauma- landsins hafí sloppið með skrekkinn enda lögð áhersla á umræðu um álfatrú. I síðustu kosningum voru kjós- endur BJ tæplega tíu þúsund. Þessu fólki, svo og öðrum landsmönnum, vil ég segja að Bandalag jafnaðar- manna er hvorki fallið, dáið né grafíð. Stjórnmálasamtökin sem slík hafa orðið fómarlamb blekk- inga og svika. Það hefur orðið dýrkeypt reynsla. En hugsjón getur ekki dáið. Hún á rætur að rekja til manns á borð við Vilmund Gylfason. Annað fólk er komið til liðs við hans tryggu fylgismenn. Við mun- um beijast fyrir þeim málefnum sem BJ var stofnað um á sínum tíma og öðram sem bæst hafa við síðan í síðustu kosningum. Við munum heyja harða kosningabar- áttú þar sem ekki verður töluð tæpitunga, þar mun sannleikurinn verða sagður — allur. Við biðjum landsmenn að hlusta vel því nú gefst hverjum og einum tækifæri til að taka þátt og móta stefnu sem gerir þetta þjóðfélag manneskjulegt og réttlátt þar sem einstaklingurinn situr í fyrirrúmi en ekki óraunhæfar tölur frá Þjóðhagsstofnun og öðram hagstjómartækjum síðustu ára. Höfiundur er bankastarfsmadur í Reykjavík og fyrrverandi formað- ur Lögvemdar. yrðu menn að „snúa skífunni og leita“ milli 22 og 22,30. Þulurinn sagði að stöðin mundi valda hvelli og æra valdhafana og nánustu sam- starfsmenn þeirra óstöðuga. Ekki fékkst staðfest frá hlutlaus- um aðila hvort raunveralega hafí verið útvarpað frá austurhluta Berlínar eða vesturhlutanum. Þó er vitað að bæklingi var dreyft í nokkram hverfum Austur-Berlínar 7. október sl. þar sem skýrt var ffrá því að sjóræningjastöð myndi útvarpa í borginni 31. október, eins og síðar varð raunin. Á þessu námskeiði er kynnt ný aðferð við hönnun hugbúnaðar, sem tengir hin ýmsu hjálpartæki sem notuð eru í þessu skyni [ eina samstæða heild. Aðferðin er auðlærð, og hún er mjög þægileg og hagkvæm í notkun. Aðferðin er sambland bestu atriða úr ýmsum kerfishönnunaraðferðum, þau eru samhæfð þ. e. þau byggja á sömu grundvallarreglunum. Árangurinn er meiri afköst, færri villur, eðlileg og aðgengileg skjalagerð og minna viðhald. Forrit sem skrifuð eru eftir þessari aðferð eru hnitmiðuð, hagkvæm og auðlesin. í þessari aðferð eru ýmis myndræn hjálpartæki óspart notuð. Námskeiðið byggist að miklu leyti á æfingum og vinnu f hópum. Þetta gerir þátttak- endum kleift að laga það forritunarmál sem þeir nota að þessari nýju og betri aðferð við hugbúnaöarframleiðslu. Eli Þátttakendur læra að: — hanna og skrifa rétt forrit í fyrstu tilraun. — læra betri samskipti við notendur og samverkamenn. — finna villur á fyrstu stigum greiningar, hönnunar og forritunar. — nota myndræn hjálpartæki (gagnaflæðirit, Wamier/Orr, klasauppdrætti) til að gera hönnunina fljótari, skýrari og mótaðri. — útbúa skjöl sem auðvelda viðhald. — útbúa notendahandbók fyrr í kerfisferlinu. — auka afköst og stárfsánægju forritara. — minnka kostnað við hugbúnaðargerð og -viðhald. Þátttttkendun Forritarar með a. m. k. tveggja ára starfsreynslu, kerfisfræðingar og verkefnastjórar sem vilja kynnast bestu aðferðum við hönnun hugbúnaðar. iilllðliitiiiijl Don J. Wessels, ráðgjafi og fyrirlesari hjá Wessels Intemational. Don J. Wessels hefur haldið námskeið hjá Stórnunarfélaginu með góðum árangri, nú síðast námskeið um verkefnastjómun í hönnun hugbúnaðar. illil 10.-12. nóvember 1986, kl. 08.30—17.00. Stjórnunarfelag Islands TÖLVUSKÓU Ánanaustum 15 ■ Sfmi: 621066

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.