Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
‘‘NEl, K) HETUR Ml%bKILlí> ÞETTR, JÖN. ÞÚ QrETUR EKKI SELT HHNR"
Færum fréttatímann aftur
til 20.00 og höldum ró okkar
Ríkisútvarpið hefúr á liðnum
árum og áratugum verið ómetan-
legur tengill fólksins í stijálbýlu
landi og átt ást og virðingu allra.
Svo gróin velvild er fátíð. Fólkið,
sem á ríkisútvarpið, hefur horft
mildum augum á glöp þeira sem
ráða ferðinni en sérhvcer mælir
fyllist að lokum. Nú er svo komið
að rólyndustu menn eru famir að
roðna af reíði.
Fullyrt er að útvarpið okkar sé
eina ríkisútvarpið í veröldinni sem
dembir yfír fólk sitt fréttum á er-
lendu máli. Það er sjálfsagt að vera
með fréttir fyrir útlendinga, yfir
ferðamannatímann, en rakinn
dónaskapur að vera með þær frétt-
ir á sömu rás og valin hefur verið
fyrir fólkið í landinu.
Miklar breytingar hafa orðið í
fjölmiðlamálum þessa lands, hver
rásin af annarri sprettur upp og er
ekkert nema gott um það að segja,
ef þær eru kostaðar af þeim sem
fara af stað með slíkar framkvæmd-
ir. Fijáls samkeppni er góð þar sem
hún á við en ríkisútvarpið hefur
ekkert umboð til að taka þátt í slíku
kapphlaupi. Ef það samt sem áður
gerir það þá verður að leysa fólk
undan greiðslu skyldunni, það velur
þá hveijum það borgar og hveijum
ekki.
Mér er fullkunnugt um að marg-
ir í sveitunum áttu fullerfitt með
að sjá fréttir kl. 20, hvað þá kl.
19.30. Ég tel mig tala fyrir munn
flestra og skora því á forráðamenn
ríkisútvarpsins að færa fréttatí-
mann á sinn gamla góða stað og
láta ekki nýju stöðina ræna sig
rónni.
Ég vona að ekki verði lagt út á
þá óheillabraut að neyða almenning
til að halda þessum nýju stöðvum
uppi. Var annars verið að fella nið-
ur einhveija tolla fyrir þær? Hver
borgar það?
Með vinsemd
Gísli Rúnar Marísson
VÍSA VIKUNNAR
Þessi vísa varð til þegar fréttin barst um að Stefán Valgeirsson
hefði gengið af þingi á Húsavík:
Lentí undir Lómatjörn
labbaði burt af þingi.
Læst er síðan kjaftakvörn
á kunnum Hörgdælingi.
Þessir hringdu .. .
Spilið
Reykjavíkurlag-
ið oftar
Sólveig hringdi og bað um að
Reykjavíkurlagið, þetta eina
sanna sem vann í kepninni um
slíkt lag, væri oftar spilað í út-
varpi. Sagði hún að það heyrðist
varla lengur á öldum ljósvakans
og það væri synd því lagið er gott.
Straumleiðari
fundinn
Birgir hafði samband og sagð-
ist hafa fundið JVC straumleiðara
á dögunum. Eigandi er beðinn að
hringja í s. 24251 eftir kl. 17.
Er offramboð á
öllum tegundum
lækna
Hulda hringdi:
Mig langar til að spyija hversu
margir húðsjúkdómalæknar eru
starfandi á íslandi? Ég spyr vegna
umtals um offramboð á læknum,
er þetta offramboð á öllum sviðum
læknisfræðinnar eða sækja lækn-
ar í eina tegund sérfræðináms
umfram aðrar? Mín fjölskylda
hefur þurft að eiga nokkur skipti
við húðsjúkdómalækna en ávallt
þarf að bíða í mánuð eða lengur
eftir viðtalstíma hjá þeim. Ætli
þetta sé vegna þess að þeir eru
færri en aðrir sérfræðimenntaðir
læknar þess lands?
Osmekklega
spurt
Anna hringdi: í þættinum, í takt
við tímann, spurði Jón Hákon
Magnússon einn sálfræðinema og
tvo lögfræðinema ákaflega ósmekk-
legra spuminga. Sálfræðinemann,
sem var kvenmaður, spurði hann
að því af hveiju hún hefði ekki far-
ið í hárgreiðslunám og lögfræði-
nemana að því hvers vegna þeir
hefðu ekki valið _ að fara í físk-
vinnsluskólann. í spumingunum
fannst mér, og raunar fleimm sem
ég hef rætt við, leyndast illa dulið
háð í garð hárgreiðslumanna og
fískvinnsluskólans. Það er ekki rétt
að gera lítið úr einni stétt manna
á kostnað annarra, það ætti Jón
framvegis að hafa hugfast.
59
límtré
sparar f yrir þig
Límtré fyrirliggjandi úr furu, eik og brenni.
Tilvalið efini fyrir þig til að smíða úr sjálfúm þér til ánægju -
og svo sparar þú stórfé um leið!
Hringdu í síma 621566 og við veitum
fúslega allar nánari upplýsingar.
Og nú erum við í Borgartúni 28
FJARMAL
FYRIRTÆKJA
Markmið: Markmið námskeiósins er aó kynna þátt-
takendum ýmis hugtök fjármálafræðinga. Megin-
áhersla veröur þó lögð á fjárfestingarreikninga.
Efni: Á námskeiðinu verður aðallega fjallað um
aðferðir við að meta arösemi fjárfestinga. Einnig
verður fjallaö um ákvarðanir um fjáröflun og arðs-
úthlutun. Fjallaö verður um ýmis hugtök s. s. nú-
virði, afkastavexti, greiðsluraðir, vaxtareikning, arð-
semi og áhættu fjárfestingar.
Fjallaö verður um tölvutækni sem hjálþartæki
við ýmsa fjármálalega útreikninga og kynnt verða
nokkur forrit I þvf samþandi.
Þátttakendur: Námskeiðið er einkum ætlað þeim
sem vinna við eða ætla að vinna við fjármálalega
útreikninga og vilja kynnast aðferðum og kenn-
ingum á sviði fjármálafræði.
Leiðbeinandi: Gfsli S. Arason
rekstrarhagfræðingur. Rekur
eigiðrekstrarráögjafarfyrirtæki,
Stuöul hf., og er stundakennari
viö Háskóla Islands.
Tími: 10.—12. nóvember 1986,
ki. 13.30—17.30.
A
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66