Morgunblaðið - 13.11.1986, Page 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
256. tbl. 72. árg.________________________________FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mótmæli í Varsjá:
Lögregla dreifir
Samstöðugöngu
Varsjá, AP.
PÓLSK óeirðaJögregla dreifði á
mánudagskvöld göngu nokkurra
þúsunda Samstöðumanna. Hafði
fólldð safnast saman við messu
til að minnast þess, að 68 ár eru
liðin frá því Pólland varð sjálf-
stætt ríld árið 1918.
Um 7000 manns söfnuðust sam-
an við messu í Dómkirkju heilags
Jóhanns í gamla borgarhlutanum
og að henni lokinni gekk fólkið í
átt að gröf óþekkta hermannsins
skammt frá. Hrópaði það „við vilj-
um sjálfstæði", „ekkert frelsi án
Samstöðu" og nöfn Samstöðuleið-
toganna Lech Walesa og Zbigniew
Sea Shepherd;
Boða aðgerð-
ir í Noregi
Ósló, frá Jan Grik Laure, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SEA Shepherd-samtöldn hafa
áætlanir um skemmdarverk í
Noregi, á hvalbátum og
vinnslustöðvum í landi. Kemur
þetta fram i viðtali, sem ýmis
norsk blöð hafa átt við Paul
Watson, leiðtoga samtakanna.
„Við skipuleggjum okkar að-
gerðir mjög vel og óttumst hvorki
norsk yfírvöld né hvalveiðimenn-
ina. Það, sem við gerðum á
íslandi um helgina, sýnir, að við
getum gert það, sem okkur
líkar," sagði Watson. „Við mun-
um brátt láta til skarar skríða í
Noregi og ætlum okkur að stöðva
hvalveiðamar þar. Ég veit, að
margir hafa hneykslast á aðgerð-
um okkar á Islandi, en við tökum
ekkert tillit til þess. Norðmenn
verða bara að hætta hvalveiðun-
um og þá munu þeir sleppa.“
Svein Oppegaard, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðanáttúr-
vemdarsjóðsins í Noregi, segir,
að aldrei hafí neitt samstarf ver-
ið við Sea Shepherd og muni
aldrei verða. Segir hann, að í
bréfinu, sem sent var íslenskum
stjómvöldum og hvor tveggja
samtökin undirrita, hafí verið
látið liggja að efnahagslegum
refsiaðgerðum í Bandaríkjunum
en engar hótanir hafðar í frammi.
Norsk stjómvöld hafa nú
ákveðið að krefjast þess, að Sea
Shepherd-samtökin missi
áheymarfulltrúa sinn hjá Al-
þjóðahvalveiðiráðinu.
Bujak en lögreglumenn, gráir fyrir
jámum með tugi brynvarinna bif-
reiða, vömuðu fólki vegarins. Var
fjórum mönnum leyft að leggja
blóm á gröfína en síðan var
göngunni tvístrað. Nokkur hundmð
manna reyndu að ganga niður í
miðborgina en lögreglan réðst gegn
þeim og handtók nokkra.
Við messuna sagði presturinn,
séra Stanislaw Kur, að Pólveijar
ættu „að krefjast þess að fá að búa
í fijálsu og sjálfstæðu landi... og
beijast fyrir því. Þegar traðkað er
á frelsi fólksins er verið að bijóta
lögmál drottins".
Þúsundir manna gengu á
mánudagskvöld um gamla borg-
arhlutann í Varsjá og krafðist
fólldð frelsis og sjálfstæðis. Var
verið að minnast þess, að þjóðin
var einu sinni fijáls, frá 1918 og
þar til Þjóðveijar og síðar Rússar
lögðu landið undir sig.
AP/Símamynd.
Mengunarslysið í Sviss:
Biðjast afsökunar á
umhverfistj óninu
Zurich. frá Önnu Biaraadóttur. fréttaritara MonrunblaAains.
Zurich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Alfons Egli, forseti og innan-
rikisráðherra Sviss, bað í gær
umhverfismálaráðherra Vestur-
Þýskalands, Frakklands og
Hollands afsökunar á þeirri gif-
urlegu mengun, sem orðið hefur
i Rinarfljóti eftir stórbruna i
vörugeymslu svissneska efnafyr-
irtækisins Sandoz i Basel. Gerði
hann það á skyndifundi ráð-
herranna i Sviss. Á þessari
stundu getur enginn gert sér
grein fyrir því óskaplega tjóni,
sem eiturmengunin hefur valdið
og á eftir að valda en um skaða-
bótakröfur og frekari aðgerðir
verður rætt á framhaldsfundi,
sem verður væntanlega haldinn
i Haag i desember.
Mikil reiði hefur gripið um sig í
V estur-Þýskaland:
Rau íhugaði að hætta
sem kanslaraefni
Bonn, Reuter.
JOHANNES Rau, kanslaraefni
vestur-þýskra jafnaðarmanna í
kosningunum í janúar, velti þvi
fyrir sér eftir ósigur flokksins í
Hamborg að segja af sér. Nú hef-
ur hann hins vegar ákveðið að
beijast til þrautar.
A blaðamannafundi, þeim fyrsta
eftir afhroð jafnaðarmanna í Ham-
borg, sagði Rau, að hann hefði spurt
sig þeirrar spumingar hvort hann
ætti að hætta sem kanslaraefni en
loks komist að þeirri niðurstöðu, að
honum bæri að beijast. Eru stjórn-
málaskýrendur sammála um, að
ósigurinn í Hamborg, fjarvera Raus
dagana á eftir og þessar vangaveltur
hans geri endanlega út um mögu-
leika jafnaðarmannaflokksins í
janúarkosningunum.
AP/Slmamynd.
Til að meta mengunina í Rín eru fiskar notaðir sem tilraunadýr en
hún hefur nú þegar drepið mestallan fisk i stórum hluta árinnar.
Eitrið er nú komið til Hollands og farið að berast út í Norðursjó.
Sviss og nágrannalöndunum vegna
brunans í Sandoz. Stjórnendur fyr-
irtækisins eru sakaðir um kæruleysi
og óánægja rikir með upplýsinga-
miðlun efnafyrirtækja í Basel.
Græningjar i Vestur-Þýskalandi
birtu fyrr i vikunni skjöl, sem sýna,
að svissneska'' tryggingafélagið
Zúrich vissi þegar árið 1981, að
umhverfinu stafaði veruleg hætta
af hugsanlegum bruna i vöru-
geymslu Sandoz. Sandoz var tryggt
hjá Zúrich á þeim tíma. Skýrslan
lýsir í smáatriðum þvi, sem gæti
gerst ef kviknaði í vörugeymslunni.
Sagði hún fyrir um það, sem gerð
ist aðfararnótt 1. nóvember þegar.
vörugeymslan brann: loftmengun
og verulegt umhverfístjón i Rinar-
fljóti þegar vatnið, sem var notað
í baráttunni við eldinn, rann út í
ána.
Skýrslan var innanhússskýrsla
tryggingafélagsins og ekki er vitað
hvort starfsmenn Sandoz vissu af
henni. Fyrirtækið hefur ekki viljað
tjá sig um skjöl Græningjanna en
fréttaskýrendur telja, að stjómend-
ur þess hljóti að hafa vitað af
yfírvofandi hættu ef kviknaði i
vörugeymslunni fyrst tryggingafé-
lagið vissi af henni.
Svisslendingar létu nágranna-
lönd sin ekki vita opinberlega af
brunanum í Sandoz fyrr en einum
eða tveimur dögum eftir að eldurinn
var slökktur. Rannsókn hefur nú
leitt í ljós, að það var lögreglu-
manni i Basel að kenna en hann
átti að sjá um alþjóðavarnarkerfí
Rinarlanda i sambandi við Sandoz-
brunann.
Illgresiseitur kom í ljós við mæl-
ingar á Rín i Vestur-Þýskalandi nú
I vikunni. Það var ekki meðal eitur-
efnanna í Sandozgeymslunni en
Ciba Geigy, annað efnafyrirtæki i
Basel, hefur gengist við, að 400 lítr-
ar eiturs hafí runnið út í ána daginn
fyrir brunann. Fyrirtækið greindi
ekki frá slysinu ogtelur að eiturefn-
in hafí ekki skaðað vistfræðilegt
jafnvægi fljótsins.
Ókunnur maður hringdi í gær í
svissneska sjónvarpsstöð og sagði,
að hryðjuverkasamtökin Rauða her-
deildin í Vestur-Þýskalandi bæru
ábyrgð á brunanum í Sandoz-
geymslunni en lögreglan telur það
ekki líklegt að svo stöddu.