Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 56
SEGÐU
RNARHÓLL
'ÞEGAR
^ÚEERÐ ÚTAÐ BORÐA
Sm 18833----------
STERKTB3RT
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Útvegsbankinn:
Tapið nam tæpum
100 milljónum
fyrstu 8 mánuðina
TÆPLEGA 100 milljón króna tap varð á rekstri Útvegsbank-
ans fyrstu átta mánuði þessa árs. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er eigið fé bankans nánast ekkert.
Seðlabankinn hefur lagt til að
Útvegsbankinn, Iðnaðarbankinn og
Verzlunarbankinn verði sameinaðir
í einn hlutafélagsbanka, eins og
komið hefur fram hér í Morgun-
blaðinu. Gert er ráð fyrir að hlutafé
þessa banka verði 1700 milljónir
króna, þar af 850 milljónir eigin
fjárframlag frá einkabönkunum
"'JlíVeimur. Ef hins vegar væru farnar
aðrar leiðir, s.s. sameining Búnað-
arbanka og Útvegsbanka er gert
ráð fyrir að ríkissjóður þurfi að
leggja fram a.m.k. 1000 milljónir
króna í eigið fé.
Ef hugmyndin um stofnun hluta-
félagsbanka verður farin yrði sá
banki annar stærsti bankinn hér á
landi, á eftir Landsbankanum.
Heildarinnlán í bönkunum þremur,
Útvegsbanka, Iðnaðarbanka, og
Verzlunarbanka, í lok síðasta árs
nam rúmum 8300 milljónum króna.
Sjá einnig Viðskiptablað, B—1.
Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki:
Fær 14 milljónir
"kr. í skaðabætur
NORSKA fyrirtækið Elkem, sem
framleiddi ofna í Steinullarverk-
smiðjuna á Suðárkróki, hefur
fallist á að greiða um 14 milljón-
ir króna ísl. í skaðabætur vegna
galla sem fram hafa komið.
Ofninn eyddi 25% meiri orku
miðað við útboðsgögn og hefur Jítið
verið hægt að draga úr því. Ámi
Guðmundsson stjómarformaður
sagði að í útboðsgögnunum væri
gert ráð fyrir að skaðabætur vegna
galla af þessu tagi næmu 25% af
kaupverði ofnsins auk kostnaðar
sem verksmiðjan hefði vegna gall-
ans. „Okkur finnst jjetta vera mjög
viðunandi," sagði Ámi.
Morgunblaðið/Júlíus
„Algjör vitleysa að reykja “
52 nemendur Fjölbrautaskóla Garðabæjar
drápu í síðustu sígarettunum á hádegi í gær
og stefnt er að því að skólaloftið verði fram-
vegis hreint og tært þótt enn eigi eftir að fá
nokkra nemendur og kennara skólans til að
hætta reykingum. í skólanum eru 370 nemend-
ur og munu um 95% þeirra sem reyktu í
skólanum, hafa drepið í siðustu vindlingunum
í gær. „Þeir sem byrja aftur á þessum ósóma,
munu þurfa að gefa skýringar á gjörðum sínum
héðan úr ræðupúlti skólans,“ sagði formaður
nemendafélagsins við skólasystkini sín í gær.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
Fylgi Alþýðuflokks 24,1%
- Sjálfstæðisflokks 33,6%
Sjörgnn hval-
bátanna kostar
rúma milljón
Köfunarstöðin h.f.
annast verkið
GENGIÐ hefur verið að tilboði
Köfunarstöðvarinnar h.f. um
björgun hvalbátanna tveggja í
Reykjavíkurhöfn. Tilboðið hljóð-
jgr upp á rúmar 1.1 milljón króna.
' Að sögn Kristbjöms Þórarinsson-
ar, kafara, er áætlað að hefja
björgunaraðgerðir í dag og gert ráð
fyrir að þeim verði lokið eftir helgi.
Hann sagði að aðstæður væru góð-
ar til ná skipunum upp. Fyrst verður
botnlokum komið fyrir á sínum stað
og skipin þétt. Síðan verður sjónum
'tóelt úr þeim.
SAMKVÆMT skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskól-
ans hefur Alþýðuflokkurinn
aukið fylgi sitt verulega frá því
siðasta könnun stofnunarinnar
var gerð í vor og er nú næst
stærsti flokkur landsins. Sjálf-
stæðislokkurinn hefur hins
vegar tapað nokkru fylgi. Fram-
sóknarflokkurinn hefur bætt
stöðu sína, en stuðningur við
Alþýðubandalag og Kvennalista
minnkað lítillega. Fylgi Banda-
lags jafnaðarmanna heldur
áfram að hrapa.
Könnunin var gerð dagana 31.
október til 7. nóvember og var úr-
takið 1.500 manns á aldrinum
18-75 ára um land allt. Svör feng-
ust frá 1.130 manns eða 75,3%
þátttakenda.
Spurt var, hvaða stjómmála-
flokki eða lista þátttakendur myndu
greiða atkvæði ef alþingiskosningar
yrðu haldnar á morgun. Niðurstöð-
ur voru þær, að 24,1% af þeim sem
afstöðu tóku nefndu Alþýðuflokk-
inn; 17,3% Framsóknarflokkinn;
33,6% Sjálfstæðisflokkinn; 15,4%
Alþýðubandalagið; 0,5% Bandalag
jafnaðarmanna; 8,7% Kvennalist-
ann og 0,3% Flokk mannsins.'
í könnun sem Félagsvísinda-
stofnun framkvæmdi í maí s.l. var
fylgi flokkanna sem hér segir: Al-
þýðuflokkur 15,5%; Framsóknar-
flokkur 15,4%; Sjálfstæðisflokkur
39,8%; Alþýðubandalag 15,9%;
Bandatag jafnaðarmanna 3,7%;
Kvennalistinn 9,0% og Flokkur
mannsins 0,7%.
Sjá nánar á bls. 30
Bíiar skemmdust
við Holtagarða
TALSVERÐUR fjöldi bíla
skemmdist við Miklagarð um
miðjan dag í gær vegna gijót-
flugs. Unnið var við að sprengja
fyrir neðan verslunina og tókst
ekki betur til en þetta. Málið er
í rannsókn hjá RLR.
Kínveijar hafa misst
áhuga á álsamstarfi
Segja gjaldeyrisskort vera ástæður þess
KÍNVERJAR hafa lýst því yfir
að þeir hyggi ekki á samstarf
við íslendinga í bráð hvað
varðar rekstur eða byggingu
álverksmiðju hér á landi. Eins
og kunnugt er höfðu Kínveijar
lýst áhuga sínum á því að verða
þátttakendur í álverksmiðju-
rekstri hér á landi og var þá
einkum rætt um þátttöku
þeirra í stækkun álversins í
Straumsvík. Steingrímur Her-
mannsscn forsætisráðherra
sagði í samtaii við Morgun-
blaðið i gær, að þessi afstaða
Kínverja hefði komið fram í
viðræðum hans við forsætisráð-
herra Kína, Zhau, þegar hann
var í opinberri heimsókn í Kína.
„Eg ræddi þetta mál við forsæt-
isráðherra Kína, Zhau,“ sagði
Steingrímur, „en hann sagði að
þeir hefðu yfirleitt dregið til baka
hugmyndir sínar um fjárfestingu
erlendis, á þessu stigi, þar sem
þá skorti erlent Qármagn. Þeir
hefðu því ákveðið að Ieggja meiri
áherslu á það á næstunni, að fá
erlenda aðila til þess að flárfesta
innan Kína.“
Forsætisráðherra sagði að jafn-
framt hefði komið fram, að þetta
gæti einhvem tíma breyst, þar
sem Kínveija vantaði ál, en það
yrði alla vega ekki á næstunni.