Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
31
Valur Arnþórsson um umsögn
Bankaeftirlitsins:
Til greina kem-
ur að efla Trygg-
ingarsjóðinn
Svona umsagnir geta grafið undan trausti
„Það vill svo til að í næstu viku
verður aðalfundur Trygginga-
sjóðs innlánsdeilda kaupfélagana,
þar sem staða mála verður könn-
uð og rætt hvort efla beri sjóðinn
frá því sem nú er. Það kemur vel
til greina að mínu mati. Auðvitað
er okkur umhugað um að fé það
sem lagt er inn hjá innlánsdeild-
unum sé tryggt á viðunandi hátt,“
sagði Valur Amþórsson, stjórnar-
formaður Sambands íslenskra
samvinnufélaga, er hann var innt-
ur álits á þeirri niðurstöðu
bankaeftirlits Seðlabanka Islands
að nauðsynlegt væri að tryggja
betur innistæður í innlánsdeildum
samvinnufélagana.
Þetta kom fram í svari Matthíasar
Bjamasonar, viðskiptaráðherra, við
fyrirspum Halldórs Blöndal, alþing-
ismanns um innlánsdeildir sam-
vinnufélagana. Valur sagði að til
viðbótar Tryggingasjóðnum væm
innlánsdeildimar með sama bindifé
í Seðlabankanum og aðrar innláns-
stofnanir. Þá sagðist hann vilja taka
það fram að þó staða kaupfélagana
væri misjöfn fjárhagslega, þá væm
sum þeirra svo sterk að þau ættu
meira eigið fé heldur en margar
starfandi innlánsstofnanir.
„Ég vil reyndar segja það að
umsögn bankaeftirlits Seðlabankans
kemur mér á óvart, því bankaeftirlit-
ið hefur ekki gert okkur viðvart um
að ástæða væri til að leita leiða til
þess að tryggja betur féð í innláns-
deildunum. Mér hefði fundist eðlileg-
ast að bankaeftirlitið hefði gert
okkur viðvart fremur en að gefa út
opinbera umsögn, sem augljóslega
getur grafið undan trausti á þessari
tilteknu tegund innlánsstofnana. Ég
hef ekki áður orðið var við að banka-
erftirlitið gæfi út umsagnir sem
augljóslega gætu rýrt traust spari-
fjáreigenda á innlánsstofnunum,"
sagði Valur Amþórsson að lokum.
Jazzvakning
með hljómleika
að Hótel Borg
JAZZVAKNING efnir til hljóm-
leika að Hótel Borg í kvöld,
fimmtudagskvöld. Þar koma
fram þeir Bubbi Morthens, Hauk-
ur Morthens og Megas. Þeir
munu syngja við undirleik hljóm-
sveitar Guðmundar Ingólfssonar.
Auk þeirra koma fram ýmsar
sveitir djassmanna, tríó_ Egils B.
Hreinssonar, hljómsveit Árna Sche-
ving, tríó Guðmundar Ingólfssonar,
hljómsveitin Súld og fleiri. Hljóm-
leikarnir hefjast kl. 21.30.
Meirihluti áhorfenda
vill fréttir kl. átta
NIÐURSTAÐA skoðanakönnunar, sem Félagsvísindadeild Há-
skólans gerði fyrir útvarpsráð, er sú samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, að meirihluti áhorfenda rikissjónvarpsins, eða
um 60%, vill hafa fréttir klukkan 20.00 en minnihlutinn, eða
rúmlega 20%, vill hafa fréttatímann klukkan 19.30, eins og nú er.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar verða væntanlega lagðar
fyrir fund útvarpsráðs n.k. föstu-
dag, en á fundi sínum 25. október
s.l. voru útvarpsráðsfulltrúar nær
einhuga um að flytja fréttatíma
sjónvarps til klukkan 20.00, en
láta samt fara fram könnun um
vilja sjónvarpsáhorfenda áður.
Haft var eftir Helga H. Jóns-
syni, varafréttastjóra sjónvarpsins
í Morgunblaðinu 24. október, að
þar rigndi inn óánægjubréfum,
kvörtunum og símtölum um að
færa fréttatímann frá klukkan
19.30 til 20.00, og það yrði aðeins
tímaspursmál hvenær fréttatím-
anum verði breytt. Morgunblaðið
spurði Helga í gær hvort skoðan-
ir fréttastofunnar hefðu eitthvað
breyst, nú þegar meiri reynsla
væri komin á núverandi frétta-
tíma: „Það er spuming hvort þessi
reynslutími er nógu langur," sagði
Helgi, „Það var að vísu mikið
kvartað í upphafi en það heyrist
alltaf hæst í þeim óánægðu. Og
það hlýtur að spila mikið inn í að
Stöð 2 færði sínar fréttir á okkar
gamla tíma. Er þá ekki ágætt að
fá fréttir þessara tveggja sjón-
varpsstöðva á sitt hvorum tíman-
um?“
Fjölbrautarskólinn á Selfossi:
Fjórum föngum
gert að hætta námi?
Selfossi.
FJÓRUM föngum af vinnuhælinu
á Litla Hrauni sem stundað hafa
framhaldsnám við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi,
verður að öllum líkindum gert að
hætta því í kjölfar agabrots á
samkomu á vegum skólans.
Föngunum hefur í vetur verið
ekið frá vinnuhælinu til skólans þar
sem þeir hafa stundað nám og verið
ekið til baka eftir skólalok. Síðastlið-
inn föstudag tóku nemendur Fjöl-
brautaskóians á móti fyölbrautanem-
endum úr Garðabæ. Á samkomu í
íþróttahúsinu þurfti að hafa afskipti
af föngunum og fleirum vegna
áfengisnotkunar. Þegar meina átti
þeim aðgang að húsinu hafði einn
þeirraí hótunum við umsjónarmann
íþróttahússins. Ekki kom til neinna
átaka og var mönnunum hleypt inn
en þeir síðan leiddir á brott af skóla-
yfirvöldum.
Líklegt er að þessi atburður stöðvi
skólagöngu mannanna a.m.k. í bili
en þeir hafa ekki áður verið svo
margir í námi við skólann í einu.
Þeir hófu skólagöngu á vinnuhælinu
en fengu síðar leyfi til framhalds-
náms við Fjölbrautaskólann og hefur
gengið það þokkalega og hnökra-
laust.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll Háaleitisbraut
1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öilum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
LAUGARDAGINN 15. NÓVEMBER VERÐA TIL VIÐTALS
Júlíus Hafstein formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, umhverfismálaráðs og ferðamála-
nefndar, Helga Jóhannsdóttir í stjórn umferðarnefndar og SVR og Sigurjón Fjeldsted formaður
stjórnar straetisvagna Reykjavíkur og í stjórn skólanefndar og fræðsluráðs.
<
CO
■2
I
ímiÉmiim-
laiis
útflutningur
a eici:a
feknskuni
jélttm
0
Hvar sem Islendingar eru niðurkomnir á jarðkringlunni
gera þeir ætíð sitt besta til að skapa þjóðlega stemningu á jólunum.
Ekkert er jafn nauðsynlegt við myndun þeirrar stemningar eins og
ekta íslenskur jólamatur.
Við hjá SS bjóðum þér að annast umstangið og senda jólamatinn til vina
og venslamanna erlendis. Þú kemur bara til okkar í SS-búðirnar
tínir kræsingarnar I körfuna og smegir jólakortinu með - við sjáum
svo um afganginn. Og nú er eins gott að taka fljótt við sér
ef enginn á að fara í jólaköttinn, allt sem á að fara með flugi eða skipi
til Evrópu þarfað vera klárt í síðasta lagi 6. desember - einnig flugpóstur
til N-Ameríku, en síðasta jólaskipið vestur um haf fer 22. nóvember.
Gleymum ekki þeim sem þurfa að dvelja fjarri heimaslóðum
um hátíðirnar - sendum þeim hagikjöt í pottinn!
AUSTURVERI — GLÆSIBÆ — HAFNARSTRÆTI — VIÐ HLEMM
HRINGDU
greiðslukortareikning
þinn mánaðarlega.
SIMINN ER
691140 691141
Sig Jóns.