Morgunblaðið - 13.11.1986, Síða 14
3L4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
Lögfrœðileg mistök
Lítils háttar gáleysi eða aðgerðarleysi af hálfu lögfræðings
getur valdið skjólstæðingi hans verulegu fjárhagstjóni.
Slík lögfræðileg mistök geta síðan leitt til þess að
lögfræðingurinn þarf að greiða skaðabætur.
Pá kemur starfsábyrgðartrygging SJOVA til skjalanna.
Hún er trygging gegn bótaskyldu
sem fellur á vátryggingartakann í slíku tilviki.
Starfsábyrgðartryggingar SJÓVÁ eru ný tegund trygginga á íslandi.
Trygging sem enginn lögfræðingur
ætti að vera án og ýmsar aðrar
starfsstéttir munu taka fegins hendi.
Markaðsdeild SJÓVÁ veitir allar
nánari upplýsingar um
Starfsábyrgðartryggingarnar.
Tryggingarfélag í einu og öllu.
Sjóvátryggingarfélag islands, Suðurlandst
Byggðanefnd
þingflokkanna:
Varanlegt mis-
vægi á milli höf-
uðborgarsvæðis
og landsbyggðar
— ef öfugþróuninni
verður ekki snúið við
BYGGÐANEFND þingflokkanna
komst að þeirri niðurstöðu að nú
séu þáttaskil í byggðaþróun.
Nefndin telur þá röskun byggðar
sem orðið hefur undanfarin ár
þjóðfélaginu til skaða sem lýsir
sér í verulegum félagslegum
vanda og beina og óbeina vannýt-
ingu verðmæta. Ef þessari
öfugþróun verður ekki snúið við
fljótlega verður að mati nefndar-
innar komið upp varanlegt
misvægi milli höfuðborgarsvæð-
isins og landsbyggðar. Nefndin
telur að afleiðingar núverandi
viðhorfa í atvinnumálum gætu
orðið þær að verulegur hluti þess
unga fólks, sem nú er að alast
upp á landsbyggðinni, þurfi að
flytjast til höfuðborgarsvæðisins
til þess að fá atvinnu við hæfi.
Byggðanefnd þingflokkanna var
skipuð vorið 1984 í kjölfar af-
greiðslu Alþingis á frumvarpi til
breytinga á stjómarskrá lýðveldis-
ins, sem meðal annars hafa í för
með sér breytingar á vægi atkvæða
eftir landshlutum. Nefndin skilaði
skýslu til þingflokkanna í júlímánuði
síðastliðnum og hefur skýrslan nú
verið gefin út af Byggðastofnun.
Ein meginniðurstaða nefndarinn-
ar, að því er stjómsýsluna varðar
er sú, að ekki sé hægt að leggja
til, að umtalsverð verkefni séu að
óbreyttu færð frá ríkinu til sveitar-
félaganna, vegna þess hve mörg
þeirra em fámenn og veikar stjóm-
unareiningar, jafnvel þótt auknir
tekjustofnar kæmu til. Víða er
landið orðið svo stijálbýlt, að sam-
eining fámennra sveitarfélaga leysir
ekki vandann þrátt fyrir batnandi
samgöngur. Telur nefndin að þriðja
stjómsýslustigið þurfi til að ná þeim
markmiðum sem nefndinni var sett.
Um þetta var nefndin sammála, en
ekki er fullmótað hversu langt eigi
að ganga á þessu sviði og hvort
þetta stjómsýslustig eigi í eðli sínu
að byggjast á samstarfí sveitar-
stjómarmanna í lýðræðislega
lögskipuðu formi, eða vera sjálf-
stætt þriðja stjómsýslustig.
Nefndin skilaði ekki fullbúnum
tillögum, en mótaði almennar tillög-
ur í þeim tilgangi að unnt væri að
ræða málin skipulega innan þing-
flokkanna, ásamt gögnum þeim sem
nefndin leggur til grundvallar niður-
stöðum sínum. Er nefndarálitið ekki
síst hugsað sem upplýsingasafn til
grundvallar umraeðu um aukna
valddreifíngu og aukin áhrif lands-
manna í eigin málum. Telur nefndin
að sú umræða þurfí að fara fram
sem viðast í þjóðfélaginu, sérstak-
lega í ljósi þess hversu afdrifaríkar
aðgerðir, — eða aðgerðarleysi — í
þessu efni mun reynast á alla fram-
vindu þjóðmála næstu ár og áratugi.
Blettina burt!
Það er algjör óþarfi að gera
stórmál úr smámáli.
BIOTEX. Leysir Utlu
vandamálin.
HALLDOR JÓNSSON h/f
Dugguvogi 8-10 Sími 686066
104 Reykjavík