Morgunblaðið - 13.11.1986, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
Eysteinn Jónsson
fyrrverandi ráðherra
Eysteinn átt sæti í stjóm Menning-
arsjóðs Sambandsins um árabil.
Þekking og reynsla Eysteins
Jónssonar af þjóðmálum og starfs-
háttum víðsvegar um landið komu
að góðu liði við stjórnarstörf hans
í Sambandinu. Á Sambandsstjóm-
arfundum fór oft mikill tími í
umræður um málefni kaupfélag-
anna. Félögin leituðu oft til stjóm-
arinnar, þegar þau áttu við
vandamál að stríða í rekstrinum.
Eysteinn var bæði tillögu- og úr-
ræðagóður þegar leysa þurfti úr
vandamálum. Oftast var hann
hvetjandi þegar uppbyggingarstarf
var rætt.
íslensk samvinnuhreyfíng á Ey-
steini Jónssyni miklar þakkir að
gjalda. Brennandi áhugi hans á
málefnum samvinnufélaganna hef-
ur verið óþíjótandi. Með löngu starfí
í Sambandsstjóm hefur hann tengt
saman nútíð og fortíð. Reynsla hans
af störfum Alþingis og í störfum
ríkisstjóma hefur verið þýðingar-
mikil. Að eiga hann sem málsvara
í svona langan tíma hefur verið
samvinnuhrejrfíngunni ómetanlegt.
Ekki má ljúka afmælisgrein um
Eystein Jónsson, án þess að
minnast á hug hans til íslenskrar
náttúm. Eysteinn hefur verið
„náttúrubam", mikill útivistarmað-
ur, mikill náttúmskoðandi. Jafnvel
í mesta annríki stjómmálanna gaf
hann sér tíma til þess að ganga á
vit móður náttúm. Þangað sótti
hann andlega hvfld og styrk til að
takast á við vandamálin. Útiveran,
skíðaferðir og göngur á §öll hafa
ömgglega reynst mikil og góð
heilsubót, enda má sjá, að Eysteinn
hefur borið aldurinn vel, ekki síst
þegar tillit er tekið til þess andlega
álags sem fylgir því að vera í for-
ystu stjómmálanna.
Áhugi Eysteins fyrir íslenskri
náttúm varð til þess að hann hóf
afskipti af náttúmvemd og um-
hverfísmálum. Þessum málum
helgaði hann að hluta störf sín.
Hann hafði t.d. forystu um nýja
náttúruvemdarlöggjöf og varð
formaður náttúruvemdarráðs árið
1972. Því starfí gegndi hann í nokk-
ur ár.
Eysteinn hefur ferðast mikið um
landið og skoðað náttúm þess.
Hann þekkir þar margan krók og
kima, fjöll og dali. Gönguleiðimar
í kringum Reykjavík em kunningjar
hans. Þótt aldurinn hafí færst yfír
em útvemnni ekki gefín grið. Farið
er á skíði, þegar færi gefst, ekki
bara á gönguskíðin. Haldið er í
Bláfjöllin og farið þar í stærstu lyft-
unni upp á hæstu brekkumar. Þar
hafa menn séð Eystein renna sér í
rólegu svigi af miklu öryggi niður
hlíðamar.
Nú hefur nýr fjallstoppur verið
klifínn, - sá áttræði. Er það merkur
áfangi, mikið og merkilegt ævistarf
er að baki. Eysteinn getur glaður
litið yfír viðburðaríka ævi. En sagan
mun varðveita verkin hans. í einka-
lífí hefur Eysteinn verið mikill
gæfumaður, átt farsælt og ham-
ingjusamt heimilis- og fj'ölskyldulíf.
Sólveig kona hans hefur verið
styrkur lífsfömnautur, stjómað
heimilishaldinu með einstakri prýði.
Þá hefur barnalán aukið gæfu
þeirra hjóna.
Islenskir samvinnumenn flytja
Eysteini Jónssyni innilegar þakkir
fyrir mikil og góð störf í þágu sam-
vinnuhreyfíngarinnar og áma
honum, Sólveigu og fjölskyldunni
allra heilla á þessum merku tíma-
mótum. Persónulega færi ég
Eysteini bestu þakkir fyrir gott og
mikið samstarf á liðnum áratugum.
Við Margrét þökkum honum og
Sólveigu einlæga vináttu í gegnum
árin og sendum þeim og fjölskyld-
unni okkar bestu óskir um bjarta
framtíð.
Erlendur Einarsson
Tíminn er iðinn og árunum fjölgar
og nú er Eysteinn Jónsson orðinn
áttræður. Hann er hinn hressasti, fer
á skíði og er fullur áhuga fyrir vel-
ferð manns og lands. Þetta fellur
ekki allskostar að hefðbundinni
ímynd áttræðs manns. En það þarf
ekki að koma okkur á óvart sem átt
höfum með honum langa samleið.
Það er nefnilega orðið nokkuð langt
síðan hann gerðist fulltrúi okkar
Sunnmýlinga á Alþingi 1933. En
nálega jafnskjótt var hann skipaður
ráðherra, og hann hafði þá einnig
tekið sér stöðu í fremstu víglínu á
orustuvelli landsmálanna. Um
síðustu helgi sat Eysteinn flokksþing
með félögum sínum og bar ekki á
öðru en honum entist þróttur til að
sitja langa fundi og leggja nokkuð
það til mála sem menn skildu.
Þótt Eysteinn Jónsson sé þannig
búinn að vera með í leiknum í ein
sextíu ár og litlu skemur í fram-
varðasveitinni, full fjörtíu ár á
Alþingi og ráðherra hálfan þann
tíma, þá er það nú annað en hár
þjónustualdur sem gerir stjómmála-
feril hans eftirminnilegan. Að minni
hyggju er það annars vegar vinnu-
brögð og framganga. Hann er
ákaflega fylginn sér að hverju verki,
var einn harðastur baráttumaður á
málþingum, en einnig mjög laginn
og þrautseigur samningamaður. Á
hinn bóginn er svo það hversu vel
honum hefur tekist hvort tveggja,
að beita sér um árabil að yfírgrips-
miklu viðfangsefni, fjármálastjóm
ríkisins og öðrum þáttum efnahags-
mála, og taka jafnframt hressilega
til hendi á mörgum öðmm sviðum.
Nægir þar að nefna sem dæmi sam-
vinnumál, og frumkvæði og forystu
um náttúmvemd og skipulega land-
nýtingu.
Eysteinn „sló í gegn“ þegar stjóm-
málaumræðum var útvarpað fyrsta
sinn hér á landi vorið 1931 og varð
þegar landskunnur. Hann hefur allt-
af verið ferðagarpur og ferðaðist um
landið þvert og endilangt að kynna
stefnu og störf Framsóknarflokksins.
Nýttist það honum vel til að öðlast
haldgóða þekkingu á högum þjóðar-
innar og störfum og áhugamálum
fólks í öllum landshlutum.
Til hliðar við þau ijölmörgu við-
fangsefni Eysteins Jónssonar sem
nú mundu vera kölluð „landsvlð" —
og vom það — liggur verksviðs sem
stundum gleymist þegar hugað er
að ferli stjómmálamannsins. En það
er „kjördæmi þingmannsins" og það
er því fylgir og fylgja ber. Eysteinn
var þingmaður Sunnmýlinga í fjórð-
ung aldar, og síðan allra Austfírðinga
í fímmtán ár. Þann þátt langar mig
að drepa á í tilefni afmælisins.
Þetta tímabil varð í meira lagi
viðburðaríkt á Austfjörðum, eins og
annars staðar í okkar kæra landi. I
hveiju byggðarlagi var sótt fram til
betri lífskjara með margháttaðri upp-
byggingu. Forvígismenn á héraði —
á fjölmörgum sviðum — eiga þar
merka sögu að baki. Á margan hátt
tengdist framfarasókn héraðanna
löggjöf, fjárveitingum og fleiri að-
gerðum stjómvalda. Þannig koma
alþingismenn sjálfkrafa og eðlilega
að þessari sögu með stuðning og
stundum fmmkvæði. Þeir sem mest- -
ir em atgerfísmenn reynast þá jafnan
átakamiklir þótt mörg önnur störf
hvíli þeim á herðum.
Þetta bar yður að gjöra og hitt
eigi ógjört láta. Aldrei hef ég nú
heyrt Eystein Jónsson hafa yfír þenn-
an ritningarstað. En í stjómmálabar-
áttunni fór hann nákvæmlega eftir
þessum hörðu fyrirmælum! Lýsti það
sér meðal annars í því hversu mikla
alúð hann lagði við tengslin austur
á þeim ámm sem hann hafði hvað
mest að sýsla í höfuðstöðvunum, á
Alþingi og f ríkisstjóm, að ógleymd-
um störfum ritara og seinna for-
manns Framsóknarflokksins.
Örðugt er að gefa til kynna um-
fang kjördæmismála frá 1933 til
1974, en nefna má nokkra þætti.
Víðtæk löggjöf gildir um atvinnu-
vegi okkar eins og allir vita, og
margvísleg afskipti stjómvalda koma
til greina. Fyrsta þingmál Eysteins
fjallaði til dæmis um byggingu sfldar-
verksmiðju í Neskaupstað. Á fyrstu
þingmannsárum hans stóðu Áust-
firðingar í bátakaupum og byggðu
sín fyrstu „hraðfrystihús". Þau
þörfnuðust auðvitað endurbóta á
sínum tíma, og í þann mund sem
Eystcinn hætti þingmennsku var að
ljúka nýbyggingu frystihúsa um alla
Austfírði. Fiskiskipaflotinn stækkaði
jafnt og þétt að því marki sem nú
er hann — og var ekki alltaf auðvelt
við að eiga.
Stærsta breytingin í sjávarútvegs-
málum í þingmannstíð Eysteins
Jónssonar var sú, að vertíða-formið
var úr sögunni og við tók „heils árs“
atvinnurekstur, með tilkomu stórra
veiðiskipa og öflugra og vel búinna
vinnslustöðva.
Á þeim áratugum sem hér um
ræðir gekk landbúnaður á Austur-
landi í gegnum mikla örðugleika af
völdum harðæra og sauðfjársjúk-
dóma. Engu að síður varð stórfelld
uppbygging í sveitum og var ræktun-
arátak áranna um og uppúr 1950
undirstaðan. Mikið var byggt heima-
við, vélvæðst af kappi og reistar
vinnslustöðvar fyrir afíirðimar.
Nátengdar atvinnulífínu eru svo
opinberar framkvæmdir í raforku-
og samgöngumálum og fjarskiptum.
A þeim sviðum öllum var flest óunn-
ið þegar kynslóð Eysteins kom til
starfa. Eftir fíörtíu ár var nánast
erfítt að þekkja sig eins og sagt er.
Orkuver höfðu verið byggð, lands-
hlutar tengdir og orkuveitumar
teygðu arma sína um allar byggðir
og inn á hvert heimili, einnig sími,
útvarp og sjónvarp. Slíkt hið sama
gildir um vegakerfið sem við gagn-
rýnum daglega en var nánast ekki
til á Austurlandi um 1930. Og hring-
vegurinn var einmitt opnaður árið
sem Eysteinn Jónsson lét af þing-
mennsku. — Vitanlega var enginn
flugvöllur til 1933, og ekkert af þeim
hafnarmannvirkjum sem notuð eru í
dag. Og nærri liggur að sama megi
segja um sjúkrahús og heilsugæslu-
stöðvar og jafnvel skólabyggingar.
Ég ætla ekki að lengja þessa upp-
ri§an. Allt blasir þetta við augum
ef maður stingur við fótum og litast
um. Hraði framkvæmda er umdeilan-
legur og mikið vill meira. En það
varð hlutskipti Eysteins sem áhrifa-
manns á Alþingi og í ríkisstjóm að
koma með einum eða öðrum hætti
að þessum viðfangsefnu og leggja
þeim lið. Það tók sinn tíma og því
fylgdi auðvitað erill og erfíði. En það
er ærin umbun hveijum sem heil-
brigða hugsun hefur, að fylgjast með
þróun af þessum toga og verða á
stundum þátttakandi í gleði þeirra
sem síðan nutu ávaxta gagnlegra
framkvæmda á heimaslóð. Það ætla
ég og að sá „yndisarður" hafí reynst
Eysteini drýgri en ella vegna traustra
og oft persónulegra tengsla við fólk-
ið heima í kjördæmi.
Ég hef haldið til haga nokkrum
dæmum frá samskiptum Eysteins
Jónssonar við Sunnmýlinga og
seinna Austfírðinga á þingmannsár-
unum og sagt frá sumum þeirra á
öðrum vettvangi. Eftirminnilegast er
mér „samtal" hans við daufdumba
manninn og gleði beggja þegar þeim
varð ljóst að báðir skildu! En um-
mæli Sigurðar á Hamri lýsa þvi
trúnaðarsambandi sem var svo
ríkjandi: Einhvem veginn er það nú
svona. Alltaf skil ég Eystein best.
Það sem auðveldaði Eysteini að
rækja persónuleg kynni við fólk á
Austurlandi, auk eðlislægra mann-
kosta, var það að hann er fæddur
og alinn upp í austfirsku þorpi þar
sem bjargræði var sótt bæði til sjós
og lands og bömin tóku þátt í störf-
um fullorðna fólksins frá fyrstu tíð.
Hann nauðaþekkti því lífskjör og lifn-
aðarhætti og gat rætt við fólkið um
daglegu störfín jafnt og önnur
áhugamál eðlilega og þvingunar-
laust.
Þegar ég tók að setja línur á blað
vegna áttræðisafmælis Eysteins
Jónssonar ákvað ég strax að vekja
athygli á „kjördæmaþættinum" í.
hans pólitíska starfí, því ég held að
sá þáttur sé, af alveg eðlilegum
ástæðum, óljósastur í vitund almenn-
ings. En án hans vantar sterkan drátt
í myndina af starfsferli þessarar
öldnu kempu. Því þessi þáttur er að
minni hyggju stórmerkur og í alla
staði heilbrigður og eðlilegur.
Eldri Austfírðingar muna auðvitað
vel samskiptin við Eystein um vel-
ferðarmál byggðanna og hugsa vel
til hans á afmælinu þeirra vegna.
En hér fer sem forðum að góðar
þykja gjafímar og þó vináttan meira
virði. Og þá verður okkur einnig
hugsað til Sólveigar. Heim til þeirra
Sólveigar og Eysteins er ætíð gott
að koma. Sum okkar dvöldu þar dög-
um oftar. Við skildum það þá, að
skörungsskapur húsfreyjunnar gerði
húsbóndanum kleyft að sinna einnig
okkar aðskiljanlegum erindum meira-
og betur en ella. Og meðal annarra
orða: Það em aðeins ellefu dagar
síðan hún Sólveig fyllti áttunda tug-
inn að hálfu, því hún varð 75 ára
2. nóvember. Áfmælisóskir okkar í
dag beinast þvi til hjónanna beggja.
Eg ætla ekki í þessari afmælis-
kveðju að ræða samstarf okkar
Eysteins. Síðustu 25 árin sem hann
sat á Alþingi var ég þar við hús,
lengst af sem þingmaður en líka
varamaður. Og marga ferðina fómm
v:ð saman um fagrar byggðir Austur-
lands, allt frá því að ég reiddi hann
yfír Mjóafjarðarheiði á rauðum
hrossum skömmu eftir að hann var
kjörinn þingmaður Sunnmýlinga og
þar til við ókum suðurleiðina ásamt
eiginkonum okkar ekki alls fyrir
löngu. Vil ég geta þess hér, að allar
okkar ferðir „um kjördæmið" fómm
við, með leyfi að segja, í „himinsins-
dýrðar- blessaðri- blíðu" eins og
komist er að orði í dagbók látinna
sveitunga. Þetta kann að þykja ótrú-
legt, en svona var það nú samt! Og
í hátt við þetta vom öll okkar sam-
skipti. Ég á því margs að minnast
og margt að þakka þeim áttræða.
En samskiptum okkar er raunar ekk-
ert lokið!“ Og formlega framlengdum
við þau þegar báðir vom hættir þing-
mennsku — um nákvæmlega eitt
kjörtímabil! Á þeim missemm skráði
ég ágrip af sögu Eysteins í þremur
bindum, en hann veitti mér ómetan-
lega aðstoð við öflun heimilda og
upprifjan löngu liðinna atburða.
Ég veit það mæli ég fyrir munn
allra Austfírðinga, sem kynnst hafa
Sólveigu og Eysteini, þegar ég nú
áma þeim allra heilla með afmælin
og bið þeim blessunar í framtíðinni.
Vilhjálmur Hjálmarsson
Eysteinn verður að heiman.
NoackAB
er í fremstu röð fyrirtækja sem framleiða rafgeyma og
hleðslutæki
Smith & Norland
seiur rafgeyma fyrir allar gerðir lyftara, hleðslutæki og
stöðugeyma frá þessu viðurkennda fyrirtæki
Biðjið
tæknimenn okkar
um frekari
upplýsingar
Smith & IMorland
Nóatúni 4, Reykjavík, sími 91-28300