Morgunblaðið - 13.11.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
25
Austur-Þýzkaland:
Oku vörubíl gegn-
um landamærahlið
Hanover. AP.
TVEIR Austur-Þjóðveijar flýðu
yfir til Vestur-Þýzkalands i
fyrradag með því að keyra vöru-
bifreið gegnum stálgrindur
austan megin. Bifreiðin stað-
næmdist reyndar eftir ákeyrzl-
una um 200 metrum frá
vestur-þýzkri landamærastöð og
hlupu mennimir þvi síðasta spöl-
inn.
Flóttinn átti sér stað í Harz-fjöll-
unum í um 80 km fjarlægð frá
Hanover, en þar eru ekki jafn
rammgerir táimar á veginum og
víðast hvar annars staðar á landa-
mærum Austur-Þýzkalands.
Mennimir eru 29 og 30 ára, báðir
vélvirkjar. Þeir sögðust hafa flúið
vegna óánægju með stjómmála- og
efnahagsástandið í hinu kommún-
istíska föðurlandi sínu.
Mennimir sögðu að austur-þýzk-
ir landamæraverðir hefðu skotið á
sig á flóttanum en vestur-þýzka
landamæralögreglan kveðst enga
skothvelli hafa heyrt.
Á sunnudag stmku þrír austur-
þýzkir unglingalandsliðsmenn í
handknattleik úr hóteli liðsins í
Munchen og báðu um pólitískt hæli
í Vestur-Þýzkalandi. Um helgina
tókst tveimur Austur-Þjóðveijum
að flýja til Vestur-Þýzkalands, ann-
ar þeirra yfir austur-þýzku landa-
mærin og hinn yfír tékknesku
landamærin. Loks flýði austur-
þýzkur landamæravörður yfír til
Vestur-Berlínar á mánudagskvöld.
Kina:
5000 ára gömul
lækningaaðferð öðl-
ast viðurkenmngu
Peking, AP.
„QIGONG", en svo nefnist 5000
ára gömul kinversk öndunarað-
ferð, hefur öðlast viðurkenn-
ingu þarlendra vísindamanna
sem áhrifamikil lækningarað-
ferð. Þeir sem náð hafa fullum
tökum á „Qigong" fullyrða að
þeir geti veitt lækningu við
hjartasjúkdómum, of háum
blóðþrýstingi, taugaveiklun,
lifrarbólgu og ýmsum melting-
arsjúkdómum. Áhugamenn um
þessi fornu fræði fullyrða að
ástundun þeirra auki lífslíkur
manna.
„Qigong“-öndun er þríþætt;
hugleiðsla, einbeiting og stjómun
andardráttar. Sú heimspeki sem
að baki hennar liggur svipar mjög
til kenninga Zen-búddista. Önd-
unaraðferð þessi er sögð slaka á
spennu, auka blóðstreymi og
stuðla aðjafnvægi frumkraftanna
tveggja „Yin“ og „Yang" en sam-
kvæmt fomum hugmyndum
kínverskum er orsaka sjúkdóma
að leita í misvægi þeirra krafta.
Þeir sem fullnuma em í fræðum
þessum kveðast geta beint líkams-
orku, sem á máli þeirra nefnist
„Qi“, til ákveðinna líkamshluta.
Aukinheldur segjast þeir geta
læknað sjúka með því að beina
Jákvæðum straumum" að sýkt-
um líkamspörtum. í krafti líkams-
orkunnar kveðast „Qigong“-
meistarar geta gert ótrúlegustu
hluti; sofíð á strekktum köðlum
og staðið á eggjum svo fátt eitt
sé nefnt.
Rannsóknir kínverskra vísinda-
manna hafa leitt í ljós að þeir sem
iðka öndunaraðferð þessa gefa frá
sér innrauða geisla. Dr. David
Eisenberg, sem leggur stund á
kínverska læknisfræði við Harv-
ard-háskóla, segir að ekki liggi
ljóst fyrir hvort útgeislunin sé í
raun „orkustraumur“ frá „Qig-
ong“-meisturunum eða einfald-
lega eðlileg afleiðing aukins
líkamshita vegna djúprar öndun-
ar. Vísindaakademía Shanghai
birti nýlega skýrslu þar sem sagði
að „Qi“ væri innrauðar rafsegul-
bylgjur með lága tíðni.
Talið er að um tíu milljónir
Kínveija leggi stund á „Qigong"
en þeir sem gleggst til þekkja
segja að það taki menn fimm ár
að ná fullum tökum á fræðunum.
26 „Qigong-lækningastofur" eru
nú starfræktar víðs vegar um
Kína. N ýlega skýrði Xinhua, hin
opinbera fréttastofa Kína, frá því
að „Qigong“-meistarar hefðu
hjálpað fötluðum og þroskaheft-
um bömum með mjög góðum
árangri. „Aðeins örfáir geta veitt
öðrum hjálp með því að beita Qig-
ong. Hins vegar eru margir sem
láta blekkjast af sögusögnum og
trúa að þeir geti öðlast yfírnátt-
úrulega hæfíleika með því að
leggja stund á fræði þessi,“ sagði
í fréttinni.
Stjóm kínverska kommúnista-
flokksins hefur lagt blessun sína
yfír ýmsar fomar lækningarað-
ferðir svo sem „Qigong" og
nálastungulækningar. Ef til vill
er það sökum þess að Maó for-
maður hafði óbilandi trú á gildi
þeirra.
Flugránstilraunin í Karachi:
Verk Líbýustjórnar ?
New York.Reuter.
STERKAR líkur benda til þess,
að Líbýustjórn hafi staðið að
baki tilrauninni til þess að ræna
flugvélinni frá bandaríska flug-
félaginu Pan Am, á Karachiflug-
velli í Pakistan i september sl.
er 21 létu lífið.
Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS,
hefur þessar upplýsingar eftir
ónafngreindum bandarískum aðila,
er segir að þó að fjórir ungir Pa-
lestínumenn hafí tekið þátt í flug-
ránstilrauninni, hafi Líbýumaður,
Salman Taraki, stjómað aðgerð-
inni. Er Reuterfréttastofan hafði
samband við Hvíta húsið í gær-
kveldi, vildu talsmenn þar ekki
segja neitt um málið.
I frétt CBS var sagt, að Taraki
hafí verið handtekinn í Pakistan og
að stjórnvöld gruni hann um aðild
að málinu, en segi sig skorta sann-
anir fyrir tengslum hans við
Líbýustjóm. Hafi forseti Pakistan,
Zia ul-Haq, sagt að Gaddafi, Líbýu-
leiðtogi, hafí lýst því yfir við hann
persónulega, að stjóm sín ætti eng-
an þátt í þessu hryðjuverki.
CBS segir að um svipað leyti og
flugránstilraunin var gerð, hafi
Taraki haft samband við líbýska
sendiráðsstarfsmenn, þar sem
vegabréfsáritun hans var að renna
út og sagt þeim að hann væri í
sérstökum erindagjörðum fyrir
stjórn sína. Sendiráðsmennimir
sögðust ekki geta aðstoðað hann
og var hann síðar handtekinn er í
Ijós kom að vegabréfsáritunin var
útrunnin.
hitakönnur
og brúsar
Góð hitaeinangrun.
Fyrirliggjandi varahlutir.
Mikið úrval, gott verð.
Fæst í helstu búsáhalda- og mat-
vöruverslunum.
Heildsöludreifing:
JÓHANN ÓLAFSS0N & C0
Sundaborg 13.
Sími 688588.
$
GinS4MG115
Skólavörðustíg 1 Siml: 22966 101 Reykjavík.
AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST
Ef þú sefur illa og ert úrillur á morgnana, lœfur
umferðina fara í faugarnar ó þér, ótt erfitt með
að einbeita þér að verkefnum dagsins, skalfu
líta við í Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í
allan sannleikann um GinsdrMGn5
Éh