Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 30
38Gr H3SNiaVÖW .8t HU0ACIUTMMI3 .GKlAJaVUJOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
18
30
í, ----------------
Samtök eðlis-
fræðinga gegn
kjamorkuvá:
Erindi
og pall-
borðs-
umræður
SAMTÖK íslenskra eðlis-
fræðinga gegn kjamorkuvá
efna til almenns fundar í
húsi Verkfræði- og raunvís-
indadeildar háskólans í
kvöld. Framsöguerindi
flytja Tómas Jóhannesson
og Páll Einarsson.
í fréttatilkynningu samtak-
anna segir að þessa viku
gangast friðarsamtök vísinda-
manna um allan heim fyrir
fundum og uppákomum til að
vekja athygli á málstað sínum.
Eftir framsöguerindi Tóm-
asar og Páls verða pallborðs-
umræður, þar sem þátt taka
auk þeirraÁmi Bergmann,
Guðmundur Magnússon,
Gunnar Gunnarsson og Magn-
ús Torfi Ólafsson. Hans Kr.
Guðmundsson stjómar um-
ræðum.
Fundurinn hefst kl. 20.30 í
stofu 158.
Yfirmaður Rannsóknarlögreglunnar í Færeyjum:
„Sendum allar upplýsing-
ar imi mennina til Islands44
-segir rannsóknarlögreglan í Færeyjum
MIKIÐ hefur verið rætt og ritað
um þá menn sem taldir eru
standa að skemmdarverkunum á
hvalstöðinni og á bátum Hvals
hf. við Ægisgarð. Oftast er
nefndur til sögunnar Rodney
Coronado, sem er einn áhafnar-
meðlima Sea Shepherd, skips
samnefndra samtaka, en nafn
félaga hans virðist á reiki. Er
hann ýmist nefndur Nick Taylor
eða David Howard.
Þegar rannsókn málsins hófst
kom í ljós að Coronado hafði búið
á Hjálpræðishemum og þar var
einnig skráður sem gestur David
Howard. Efast menn um að sá hafi
verið skráður á réttu nafni heldur
sé um að ræða Nick Taylór, sem
einnig er félagi í Sea Shepherd.
Suni Vinther, yfirmaður rann-
sóknarlögreglunnar í Færeyjum,
sagði í gær að allar þær upplýsing-
ar sem færeysk yfirvöld hafi haft
um Sea Shepherd hafi verið sendar
íslenskum yfirvöldum, en ekki vildi
hann gefa neitt nánar upp um upp-
l’ysingar þessar. Hann sagði þó að
íslensk yfirvöld hafi haft uppl’ys-
ingar um bæði Coronado og Taylor
áður en til skemmdarverkanna kom,
en ekki kannaðist Suni við nafnið
Howard. Hann sagði að þeir félag-
amir Coronado og Taylor hafi látið
mjög að sér kveða við Færeyjar,
þegar skip Sea Shepherd var statt
þar í sumar.
„Við sendum rannsóknarlögreglu
íslenska ríkisins bréf og töluðum
við þá í síma“, sagði Suni. „Þá var
sent telex til dómsmálaráðuneytis-
ins, eða Interpol, það er víst það
sama hjá ykkur." Suni vísaði hér
til þess að telex-tækið sem tekur
við upplýsingum frá Interpol er
staðsett hjá dómsmálaráðuneytinu.
Sagði Suni að íslensk og færeysk
yfirvöld hefðu skipst á upplýsingum
oft síðan árið 1985. „Þá fengum
við upplýsingar frá útlendingaeftir-
litinu, þegar skip Shepherd-manna
var statt á íslandi. Eg man ekki
hveijir voru um borð þá, en það var
nokkum veginn sama áhöfn og var
á skipinu við Færeyjar í sumar.“
Ámi Siguijónsson, hjá utlend-
ingaeftirlitinu, sagðist efast um að
það væri rétt hjá Suni að Færeying-
ar hafí sent aljar upplýsingar um
þessa menn til íslands. „Þeir sendu
okkur skeyti þann 20. júní sl. þar
sem hvergi var minnst á þetta. Ef
skeyti hefðu komið til dómsmála-
ráðuneytisins um þessa menn, þá
hefði það komið til okkar. Það hef-
ur aldrei verið öðmvísi. Ef nöfn
þessara manna hefðu verið í þessum
skeytum þá hefðu þeir verið á skrá
hjá okkur.“ Það kom fram í sam-
tali við Áma að nafn Coronado var
í upplýsingum þeim sem útlend-
ingaeftirlitið sendi til Færeyja, en
þar sem hann hafi ekki brotið af
sér hér hafi nafn hans ekki komist
á skrá.
Samkvæmt upplýsingum Teits
Lámssonar, starfsmannastjóra hjá
Sláturfélagi Suðurlands, þar sem
Coronado starfaði, reyndist hann
ekki hafa atvinnuleyfi og kom mál
hans til kasta útlendingaeftirlitsins
sem einnig ræddi við David Howard
(Nick Taylor) vegna tíðra aðsetur-
skipta hér á landi. Ámi Siguijóns-
son hjá útlendingaeftirlitinu var
inntur eftir því hvort ekki hefðu
verið könnuð vegabréf mannanna
og sagði hann þá: „Sá sem hafði
með þetta að gera er nú ekki hér,
en einhver skjöl hefur hann séð.
Við könnum svona mál og sjáum
farseðla og annað."
Ámi sagði að ef Færeyingar
hefðu staðið rétt að málum hefðu
þeir auðvitað átt að vísa Coronado
úr landi eftir átökin við Færeyjar.
„Ef þeir hefðu gert það þá hefði
nafn hans komist sjálfkrafa á skrá
hjá okkur. Honum var hins vegar
ekki vísað brott og nafn hans er
ekki í brottvísunarbókinni hjá okk-
ur“, sagði Ámi.
Jón Thors, deildarstjóri í dóms-
málaráðuneytinu, sagði að í skeyti
Færeyinga frá 20. júní í ár, hafi
þeir sagt frá samskiptum sínum við
Sea Shepherd og spurt um olíuvið-
skipti skipsmanna hér fyrir ári.
Ekki hafi verið minnst á nöfn ann-
arra manna en Paul Watson.
Helgi Daníelsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, sagði að það hlyti að vera
einhver misskilningur sem fram
kæmi hjá Suni Vinther um að fær-
eyska lögreglan hafi haft samband
við RLR vegna Sea Shepherd. „Ég
hef aldrei heyrt á þetta minnst og
veit ekki við hvem hann hefur talað
hér um það,“ sagði Helgi.
Piskmarkaðurinn í Hull:
71 króna fyrir
kíló af þorski
„ TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn í Þýzkalandi og Bretlandi á
miðvikudag. Þau fengu bæði hátt
verð fyrir aflann.
Krossanes SU seldi 80,4 lestir,
mest þorsk í Hull. Heildarverð var
5.707.100 krónur, meðalverð 70,99.
Barði NK seldi 138,6 lestir, mest
karfa og ufsa í Bremerhaven. Heildar-
verð var 7.099.500 krónur, meðalverð
51,23.
Á þriðjudag voru seldar 188,4 lest-
ir úr gámum í Bretlandi. Heildarverð
var 12.730.900 krónur, meðalverð
67,59. 145,2 lestir voru af þorski á
68,19 krónur að meðaltali, 12,9 lestir
af ýsu á 73,48, 9 lestir af kola á
64,43 og 6 lestir af karfa á 39,31
krónu hvert kíló.
Dregið í happdrætti
Sjálf stæðisf lokksins
DREGIÐ var hjá borgarfógeta í
hausthappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins í gærkvöldi.
Upp komu eftirtalin vinnings-
númen42745, 50135, 70487,
40049, 69725, 77440, 20680, 5325,
2037, 78589, 29356, 44009,15957,
85334, 9165, 20462, 34112.
(Birt án ábyrgðar.)
GENGIS-
SKRANING
Nr. 215 - 12. nóvember 1986
Kr. Kr. ToU-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,600 40,720 40,750
St.pund 58,192 58,364 57,633
Kan.doliari 29,315 29,402 29,381
Dönsk kr. 5,3037 5,3194 5,3320
Norskkr. 5,4318 5,4479 5,5004
Sænskkr. 5,8442 5,8615 5,8620
Fi.mark 8,2303 8,2546 8,2465
Fr.franki 6,1204 6,1385 6,1384
Belg.franki 0,9639 0,9667 0,9660
Sv.franki 24,1566 24,2280 24,3400
Holl.gyllini 17,7177 17,7700 17,7575
V-þ. mark 20,0232 20,0824 20,0689
Ítlíra 0,02894 0,02903 0,02902
Austurr.sch. 2,8461 2,8545 2,8516
Port escudo 0,2729 0,2737 0,2740
Sp. peseti 0,2986 0,2994 0,2999
Jap.yen 0,25139 0,25214 0,25613
Irsktpunr 54,627 54,789 54,817
SDR (Sérst; 48,7331 48,8770 48,8751
ECU, Evrópum. 41,7855 41,9090 41,8564
Þjóðmálakönnun Félagsví sindastofnunar:
Alþýðuflokkurínn er nú
annar stærsti flokkurínn
HÉR FER á eftir í heild grein-
argerð Félagsvísindastofnun-
ar Háskóla íslands fyrir
þjóðmálakönnun þeirri sem
gerð var fyrir Morgunblaðið
dagana 31. október til 7. nóv-
ember sl.:
Þijár spumingar voru lagðar fyr-
ir alla svarendur um hvað þeir
myndu kjósa ef alþingiskosningar
yrðu haldnar á morgun. Fyrst voru
menn spurðir: Ef alþingiskosning-
ar væru haldnar á morgun,
hvaða flokk eða lista heldurðu
að þú myndir kjósa? Þeir sem
sögðu „veit ekki“ við þessari spum-
ingu voru spurðir áfram: En hvaða
flokk eða lista heldurðu að
líklegast sé að þú myndir kjósa?
Segðu menn enn „veit ekki“ voru
þeir spurðir: En hvort heldurðu
að það sé líklegra, að þú kjósir
Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern
annan flokk eða lista?
Tafla 1 sýnir niðurstöðumar, sem
fengust með fyrstu tveim spurning-
unum. Til samanburðar eru tölur
úr þjóðmálakönnun Félagsvísinda-
stofnunar frá því í maí 1986.
Eins og fyrr er getið vom þeir
sem sögðu „veit ekki“ við fyrstu
tveim spurningunum um alþingis-
kosningar spurðir hvort þeir teldu
líklegra að þeir kysu Sjálfstæðis-
flokkinn eða einhvem annan flokk.
Niðurstöðumar eru í töflu 2.
Taflan sýnir, að Sjálfstæðisflokk-
urinn virðist eiga minna fylgi hjá
þeim óráðnustu en meðal annarra.
Tafla 3 sýnir fylgi flokkanna þar
sem tekið er tillit til þessa. í töfl-
unni er þeim sem telja líklegra að
þeir kjósi Sjálfstæðisflokkinn (21)
bætt við fylgi flokksins. Þeim sem
segja líklegra að þeir kjósi annan
flokk en Sjálfstæðisflokkinn (122)
er hins vegar skipt á milli annarra
lista eftir hlutföllum þeirra í töflu 1.
Hugsanlegt er að form 3. spurn-
ingarinnar ýti heldur undir að menn
segist ætla að kjósa aðra flokka en
Sjálfstæðisflokkinn, vegna þess að
með því móti komast þeir hjá því
að nefna einn flokk. Auk þess getur
skipting þeirra óráðnustu sem segj-
ast ætla að kjósa aðra flokka en
Sjálfstæðisflokkurinn auðvitað ver-
ið önnur en sú sem fram kemur í
töflu 1. Það er því fróðlegt að skoða
hvað þeir kjósendur, sem svöruðu
síðustu spumingunni af eða á, segja
að þeir hafi kosið í alþingiskosning-
unum 1983.
Af þeim 21, sem telja líklegra
að þeir kjósi Sjálfstæðisflokkinn nú,
kusu 10 flokkinn 1983, 1 kaus
Framsóknarflokkinn, 5 höfðu ekki
kosningarétt, 1 skilaði auðu og 4
neituðu að segja hvað þeir kusu
síðast.
Af þeim 122, sem telja líklegra
að þeir kjósi annan flokk en Sjálf-
stæðisflokkinn nú, kusu 12 flokkinn
síðast, 12 kusu Alþýðuflokkinn, 19
kusu Framsóknarflokkinn, 16 kusu
Alþýðubandalagið, 7 kusu Kvenna-
listann, 16 höfðu ekki kosningarétt,
11 kusu ekki, 9 skiluðu auðu, 15
neituðu að svara og 5 mundu ekki
hvað þeir kusu síðast.
Tafla 2. Ef veit ekki við spurningu 1 og 2:
Sjálfstæðisflokk eða aðra?
Nóvember 1986 Maí 1986
Fjöldi Allir Kjósa flokk Fjöldi Allir Kjósa flokk
Líklegri til að kj.
Sjálfst.fl. 21 10,6% 14,7% 15 9,3% 17,9%
Líklegri til að kj. aðra 122 61,6% 85,3% 69 42,6% 82,1%
Neita að svara 6 3,0% 4 2,5%
Veit ekki 49 24,7% 74 45,7%
Samtals 198 100% 100% 162 100% 100%
Tafla 1. Hvað heldurðu að þú kjósir?
(Ef veit ekki: Hvað er líklegast?)
Nóvember 1986 Maí 1986
Fjöldi AlUr Kjósa Fjöldi Aliir Kjósa
flokk flokk
Alþýðuflokkur 177 15,7% 22,9% 109 9,8% 14,8%
Framsóknarfl. 127 11,2% 16,4% 108 9,7% 14,7%
Sjálfstæðisfl. 287 25,4% 37,1% 311 27,9% 42,3%
Alþýðubandalag 113 10,0% 14,6% 112 10,0% 15,2%
Bandal. jafnaðarm. 4 0,4% 0,5% 26 2,3% 3,5%
Kvennalistinn 64 5,7% 8,3% 64 5,7% 8,7%
Flokkur mannsins 2 0,2% 0,3% 5 0,4% 0,7%
Aðrir — — — 4 0,4%
Mun ekki kjósa 53 4,7% 70 6,3%
Skila auðu/ógildu 34 3,0% 53 4,7%
Neitar að svara 71 6,3% 92 8,2%
Veit ekki 198 17,5% 162 14,5%
Samtals 1130 100% 100% 1116 100% 100%
Tafla 3. Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum?
Samanlögð svör við þremur spurningum.
Nóvember 1986 Maí 1986
Fjöldi AUir Kjósa Fjöldi Allir Kjósa
flokk flokk
Alþýðuflokkur 221 19,6% 24,1% 127 11,4% 15,5%
Framsóknarfl. 159 14,1% 17,3% 126 11,3% 15,4%
Sjálfstæðisfl. 308 27,3% 33,6% 326 29,2% 39,8%
Alþýðubandalag 141 12,5% 15,4% 130 11,6% 15,9%
Bandal. jafnaðarm. 5 0,4% 0,5% 30 2,7% 3,7%
Kvennalistinn 80 7,1% 8,7% 74 6,6% 9,0%
Flokkur mannsins 3 0,3% 0,3% 6 0,5% 0,7%
Aðrir — — — 4 0,4%
Mun ekki kjósa 53 4,7% 70 6,3%
Skila auðu/ógildu 34 3,0% 53 4,7%
Neitar að svara 77 6,8% 96 8,6%
Veit ekki 49 4,3% 74 6,6%
Samtals 1130 100% 100% 1116 100% 100%