Morgunblaðið - 13.11.1986, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
Meira en
peninganna virði
Aflinn fyrstu 10 mánuðina þó 16.936 lestum meiri
ÞRÁTT fyrir mun lakari afla í
október á þessu ári en þvi siðasta
er heiidarafli landsmanna fyrstu
10 mánuði ársins meiri nú en i
fyrra. Aflinn í október er 93.314
lestum minni en í fyrra, en heild-
arflinn eftir þann mánuð er
16.936 lestum meiri. Segja má,
að það séu veðurguðimir, sem
mestu hafi ráðið um aflabrögðin
i október nú því gæftir hafa verið
mjög stopular. Aflinn í október
nú varð 153.598 lestir, en 246.912
i fyrra. Heildaraflinn er orðinn
1.239.830 lestir en var á sama
tíma í fyrra 1.222.867.
Aflinn í október nú varð alls
153.598 lestir en var í fyrra
246.912 lestir. Afli togara varð
23.865 lestir en var í fyrra 26.204.
Þorskaflinn nú er 87 lestum meiri
en afli annarra tegunda 2.426 lest-
um minni. Þorskafli báta varð nú
3.695 lestir á móti 3.906 í fyrra,
annar botnfiskafli varð 4.336 lestir
nú en 2.738 í fyrra. Hins vegar
varð loðnuaflinn í mánuðinum að-
eins 106.598 lestir á móti 184.305
í fyrra. Þá varð síldarafli nú 15.700
lestum minni nú og veldur því með-
al annars óvissa um saltsfldarsölu
til Sovétríkjanna á sínum tíma.
Heildarafli bátanna varð alls
129.733 lestir á móti 220.708 lest-
um í fyrra. Heildarþorskafli í
mánuðinum er nánast sá sama og
sömu sögu er að segja um annan
botnfískafla.
Þorskaflinn fyrstu 10 mánuði
ársins er 307.351 lest, en var á
Stykkishóimi.
MILLI 50 og 60 læknanemar á
öllum námsstigum voru á ferð
sama tíma í fyrra 282.341 lest.
Afli af öðrum botnfiski er nú 11.200
lestum meiri, 15.726 lestum minni
af sfld, 23.326 lestum minni af
loðnu og 8.870 lestum meiri af
rækju.
Ifyrstu 10 mánuði ársins var
94.166 lestum landað erlendis,
12.466 af þorski, 17.469 af örðum
botnfíski og 64.231 lest af loðnu.
Á sama tíma í fyrra hafði 72.752
lestum verið landað erlendis, 10.820
af þorski, 18.652 af öðrum botn-
físki og 43.280 lestum af loðnu.
Aukningin milli ára liggur að mestu
leyti í loðnunni.
hér í Stykkishólmi um helgina.
Jafnframt því að þetta var
skemmti- og upplyftingarferð
var hún einnig til að kynna sér
staðinn og sjúkrahúsið hér, en
það er nú stærsta byggingin hér
á Snæfellsnesi og hefir viðbygg-
ing verið undanfarin ár í
smíðum. Er að koma að því að
smám saman verði vissir hlutar
hennar teknir í notkun.
Nemarnir skoðuðu sjúkrahús-
bygginguna um leið og þeir heilsuðu
upp á systumar sem reka þama
bæði sjúkra- og heilbrigðisstofnun.
Um stofnunina fylgdi Pálmi
Frímannsson héraðslæknir þeim og
sýndi þeim bæði aðstöðu í dag og
eins hvað væri hugað til fram-
tíðarinnar.
Læknanemamir sátu svo boð
hreppsnefndar og sveitarstjóra á
laugardagskvöldið, en héldu svo
heim á leið daginn eftir og höfðu
þá skoðað bæinn í fylgd Pálma
læknis. Þetta var skörulegur hópur
og vonandi að þeir þurfí ekki eins
og sumir að hasla sér völl á erlend-
um starfsvettvangi. Árni.
'
JH
KÁESS GJAFAVÖRUVERSLUN
Á ferð í Stykkishólmi
Aflinn í október 93.314
lestum minni en í fyrra
Útf ör Petrínu
Halldórsdóttur
gerð frá Stykkis-
hólmskirkiu
Stykkishólmi:
LAUGARDAGINN 1. nóvember
sl. var gerð frá Stykkishólmi
útför Petrínu Sæmundsdóttur
frá Seljum, fyrrum kennara en
hún lést að Elliheimilinu Grund
í Reykjavík, 93 ára að aldri, fædd
8.7 1893. Foreldrar hennar voru
Guðrún Káradóttir og maður
hennar Sæmundur Pétursson.
Petrína giftist Guðmundi Hall-
dórssyni 1921 og bjuggu þau á
Seljum í Helgafellssveit til 1944 að
þau fluttu í Hólminn. Mann sinn
missti Petrína 1950 en bjó ásamt
Guðrúnu dóttur sinni áfram í Hólm-
inum til 1967 að þau fluttu til
Reykjavíkur, þar sem Guðrún hefur
stundað kennslu, en áður var
Guðrún kennari í Stykkishólmi.
Petrína og Guðmundur eignuðust
§órar dætur og einn son. Petrína
var við nám í Kennaraskólanum
1916-1919. Hún var við nám þegar
spánska veikin geysaði í Reykjavík
með öllum sínum hörmungum og
fór því ekki varhluta af þeirri eld-
raun.
Hún var síðar kennari í Helga-
fellssveit og Eyrarsveit, en erfiðu
og athafnasömu búi stýrði hún
langan tíma og gekk þá eigi heil
til skógar. Petrína er minnistæð
þeim sem til þekktu, vönduð í þess
orðs fyllstu merkinu, skynsöm kona
sem gott var að ræða við um við-
horf dagsins. Séra Gísli H. Kolbeins
jarðsöng og var athöfnin látlaus og
virðuleg. Við sem áttum þess kost
að kynnast lífi og starfí Petrínu
geymum minningu hennar í þakk-
látum huga. Árni
KÁESS HÚSGAGNAVERSLUN
HABITAT
VANDAÐAR
SÉRVERSLANIR
AÐ LAUGAÆGI13
KRISUÁN SIGGEIRSSON
MOTHERCARE
Aðalfundur
Aðalfundur Samtaka grásleppuhrognaframleið-
enda verður haldin í Hamraborg 5 Kópavogi
sunnudaginn 16. nóv. 1986.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ákvörðun tekin um framtíð félagsins og laga-
breytingar þar að lútandi.
3. Önnur mál.
Stjórnin