Morgunblaðið - 13.11.1986, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
. -W
KJOTMIÐSTOÐIN
Laugalæk 2,- sími 686511.
Haiti:
Tvöhundr-
uðdrukkna
tuttugn
bjargast
-í ferjuslysi
Port-au Prince, Haiti, AP, Reuter.
UM 200 manns drukknuðu og
20 var bjargað er ferja sökk
út af vesturströnd Haiti sl.
þriðjudag. Talið er að ferjan
hafi verið yfirhlaðin af fólki
og varningi.
Talsmenn stjómvalda á Haiti
segja að að feijan, The Okelele,
hafí verið í einni af sínum daglegu
ferðum milli höfuðborgarinnar
Port-au-Prince og eyjarinnar
Gonave, þegar frá henni barst
skyndilega neyðarkall. Björgunar-
lið lagði þegar af stað frá Gonave,
var feijan þá sokkin og tókst að
bjarga 20. manns úr sjónum. Talið
er að allir sem með feijunni voru
hafi verið íbúar á Gonave, sem er
harðbýl eyja um 70 km undan
strönd Haiti og búa þar nokkrir
tugir þúsunda. íbúar Gonave
stunda margir vinnu á Haiti og
ferðast því daglega með feijum þar
á milli. Auk þess flytja íbúamir
yfírleitt framleiðslu sína á markað
til Haiti.
Neyðarástand viðRín
Afleiðingar eitrunarinnar í ánni Rín verða stöðugt alvarlegri.
Þannig verða íbúar í vestur-þýzka bænum Unkel við Rín eins
og svo víða annars staðar meðfram ánni að fá drykkjarvatn
úr vatnstönkum brunaliðsins á staðnum. Enginn vafi leikur á,
að eiturefnin, sem runnu út í Rín fyrir nær 2 vikum, hafa vald-
ið mesta umhverfisskaða í Evrópu um árabil.
i
Úrval af gjafavörum
Alltá barnið.
Ef aðeins börnin gætu verið lítil eins lengi og
Carter's fötin þeirra endast.
í fötum frá
I \ líður barninu vel.
) 'B.OIdfsson &
j Bmidscn hf.
I J Langagerði 114, simi 34207.
Ónæmistæring á Bretlandi:
Stjórnin hefur mikla herferð
London, AP, Reuter.
BRESKA ríkisstjórnin ákvað á
þríðjudag að hefja umfangs-
mikla auglýsingaherferð í sjón-
varpi í því skyni að hefta
útbreiðslu ónæmistæringar.
Aukinheldur var afráðið að
senda upplýsingabæklinga inn á
hvert heimili í landinu.
Herferðinni verður einkum beint
að ungu fólki og verður lögð áhersla
á að lauslæti og íjöllyndi auki mjög
hættuna á sýkingu. Ríkisstjómin
hefur einnig uppi ráðagerðir um að
dreifa nálum til eiturljrfjasjúklinga
þeim að kostnaðarlausu og draga
þannig vemlega úr útbreiðslu sjúk-
dómsins meðal þessa þjóðfélags-
hóps.
Læknar hafa gagmýnt stjómvöld
á Bretlandi fyrir að vera ekki á
varðbergi gagnvart þessum vá-
gesti. Ríkisstjómin hefur m.a. sætt
gagnrýni vegna þess að ekki hefur
verið aflétt banni við auglýsingum
á smokkum í sjónvarpi.
Norman Fowler, félagsmálaráð-
herra, sagði ríkisstjómina telja
ónæmistæringu alvarlegustu ógnun
samtímans við heilsufar almennings
og kvaðst líta svo á að herferðin
sem nú væri hafín myndi standa
allt til aldamóta.
Ónæmistæring er nú hlutfalls-
lega jafn algegn á Bretlandi og hún
var í Bandaríkjunum fyrir fímm
árum. Samkvæmt opinberum tölum
hafa 250 menn látist af völdum
sjúkdómsins.
ÓK
15% vextir og verðtrygging
Kjörbókin sameinar kosti venjulegrar bankabókar, þar sem
sparifé er algjörlega óbundiö og kosti bundinna reikninga, sem
gefa háa ávöxtun. Hún ber háa vexti og til þess að tryggja að
Kjörbókareigendur njóti ávallt hagstæðustu kjara er ávöxtun
hennar borin saman viö ávöxtun 6 mánaða vísitölutryggðra
reikninga í lok hvers ársfjórðungs. Reynist ávöxtunin hærri á þeim
reikningum er greidd uppbót á innstæðu Kjörbókarinnar sem
nemur mismuninum.
Kjörbóklna semur þú sjálfur
Kjörbókin er sveigjanlegt og einfalt innlánsform, sem hver og einn
semur að sínum þörfum.
Kjörbók Landsbankans. Spennandi bók sem endar vel.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
■-h