Morgunblaðið - 13.11.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
45
Minning:
Guðlaugur Davíðsson
múrarameistari
Fæddur 23. desember 1909
Dáinn 27. október 1986
Mig langar til þess að minnast
frænda míns góða, Guðlaugs. Hann
var bróðir föður míns Marteins.
Frændi minn heitinn fæddist á
Hlemmiskeiði á Skeiðum í Árnes-
sýslu. Hann var sonur hjónanna
Mörtu Gestsdóttur og Davíðs Jóns-
sonar. Móðir Guðlaugs lést árið
1914, árið sem faðir minn fæddist.
Guðlaugur fór víða um sveitir á
sínum unglingsárum, og vann þá
við hin ýmsu störf eins og tíðkaðist
oft í þá daga. Síðar vann hann
mikið með föður sínum við múr-
verk. Guðlaugur eignaðist tvö böm,
Martein og síðar Ingibjörgu með
Ágústu Guðmundsdóttur, er hann
bjó með til fjölda ára. Ingibjörg lést
af slysförum fyrir nokkrum árum.
Ágústa kona Guðlaugs átti sex böm
og eru fjögur þeirra á lífi.
Davíð faðir Guðlaugs kvæntist
aftur Maríu Magnúsdóttur og eign-
uðust þau eina dóttur, Aldísi.
Guðlaugur var listrænn maður,
enda átti hann ekki langt að sækja
það frá föðurfólki sínu. Hann fékk
tilsögn í nokkra tíma hjá Ríkharði
Jónssyni listamanni, þá aðallega við
blýantsteikningar sem hann teikn-
aði sér tii skemmtunar og lýstu
myndir hans miklu hugmyndaflugi.
Guðlaugur var þúsundþjalasmið-
ur, eins og þeir menn nefnast, sem
allt leikur í höndunum á.
í minningargreinum er oft látið
sem að viðkomandi hafl verið galla-
laus, en það veit ég að við kynni
mín við Guðlaug frænda var hann
ávallt glaðvær og kvartaði aldrei,
þótt lífið hafi ekki alltaf verið dans
á rósum. Hann var nægjusamur,
sá vel fyrir sínum nánustu og bar
hag þeirra ávallt fyrir brjósti.
Slíkar persónur sem frændi var
fyrirhitta fáir í dag.
Þegar ég og frændi hittumst,
naut ég þess að heyra hann segja
frá lífinu, einsog það var á þeim
árum er hann var að alast upp.
Kunni hann frá mörgu skemmtilegu
og fróðlegu að segja.
Er Guðlaugur kom á heimili fjöl-
skyldu minnar þó að á þungbúnum
degi væri, var eins og sólin skini,
þvílíka birtu og hlýju bar hann með
sér hvar sem hann kom.
Ég vil þakka frænda góðu stund-
irnar.
Ég votta aðstandendum samúð
mína.
Hvíli Guðlaugur í friði og friður
Guðs hann blessi.
„Trúarinnar traust og styrkur
tendrar von í döpru hjarta.
Eilífðin er ekki myrkur,
eilifðin er ljósið bjarta."
(H. Sæmundsson)
Marta Br. Marteinsdóttir
VIÐSKIPTAViniR
Aö siðasti
pöntunardagur
fyrir jólapantanir
er 14. nóvember.
FUU.I.OOOPAGES
PONTUNARLISTINN
SIDUMULA 8 - SIMI 39370 ■ REYKJAVIK ■ OPIÐ 1—6
HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 • HAFNARFIRÐI • OPIÐ 9—6
... er ekki fitandi
I NutraSweet eru bragð og hitaeiningar eins og svart og hvítt.
Náttúruleg byggingarefni NutraSweet veita fullkomið sætubragð, en
hitaeiningarnar eru 99% færri en í sykri.
Öll sú umframorka, sem sykurinn gefur er ekki til staðar í
NutraSweet — Það er bara bragðið sem nýtur sín.
NutraSweet meltist náttúrulega, enda eru grunnefnin þau sömu og
í ávöxtum og grænmeti, svo dæmi séu tekin.
Ef þér er annt um línurnar, þá velur þú vörur með NutraSweet,
náttúrulega.
Þær vörur sem bera þetta merki, innihalda hið eina sanna NutraSweet