Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
29
n=*
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
— Hvaða veganesti fékkst þú
frá föður þínum og afa þegar sýnt
þótti að þú héldir uppi merki fyrir-
tækisins eftir þeirra daga?
— Það er enginn vafi að það
dýrmætasta sem ég fékk í vega-
nesti frá þeim var traustið sem
þeir sýndu mér, þeir treystu mér
þó ég væri bæði ungur og óreynd-
ur. En það situr fastast í mér að
ég var alltaf látinn heyra það, að
fyrirtækið væri stofnað til að veita
atvinnu, það væri meginmarkmið-
ið. Sá sem hefði fólk í vinnu bæri
mikla ábyrgð, þess vegna er ég
kannski svona voðalega alvöru-
þrunginn á köflum, sagði Haraldur
og brosir.
En í framhaldi af þessu þá vil
ég geta þess að flölskyldan mín
öll hefur staðið þétt að baki mér
og einnig okkar reynda starfsfólk.
Það er þetta sem hefur vegið
þyngst.
Stjómendur úr fjölskyldunni. Frá vinstri: Sveinn Sturlaugsson, Haraldur Sturlaugsson, Rannveig
Böðvarsson og Sturlaugur Sturlaugsson.
Fyrirtækið hefur byggzt á
tryggð og trúmennsku fólks
Rætt við Harald Sturlaugsson, forstjóra
Haraldur Sturlaugsson for-
stjóri H.B. & Co hf. hefur verið
við stjórnvölinn í fyrirtækinu
frá 1976 þegar faðir hans féll
frá. Á undanförnum árum hefur
verið lagt kapp á að endur-
byggja húsakynni og tækjabún-
að hjá þeim og nú sér fyrir
endann á því. Annað sem vekur
athygli þeirra sem heimsækja
fyrirtækið er hve vel er haldið
til haga sögu gamla timans hjá
fyrirtækinu, slíkt er ómetanlegt
og sýnir hve þróunin hefur ver-
ið gifurleg á undanfömum
áratugum. Við heimsóttum Har-
ald og ræddum við hann um
starf hans og uppbyggingu
þessa elsta útgerðarfélags
landsins.
— Það sem mérf er nú og ávallt
efst í huga er þakklæti til alls
þess fjölmenna hóps sem hefur
með tryggð og trúmennsku gert
þetta fyrirtæki að því sem það er
í dag, sagði Haraldur Sturlaugsson
forstjóri H.B. & Co hf. á Akranesi
þegar hann var spurður hvað hon-
um væri efst í huga á 80 ára
afmæli fyrirtækisins.
— Nú hafa staðið yfir gagngerar
endurbætur á fyrirtækinu um
nokkurra ára skeið. Hveijar eru
helstu breytingar?
— Við erum að ljúka við verk-
efni sem við höfum unnið að á
undanfömum 8 árum. í stuttu
máli má segja að fyrirtækið hafi
tekið algjörum stakkaskiptum
hvað varðar húsakynni og tækjaút-
búnað.
Við höfum lagt mikla áherslu á
að gera starfsmannaaðstöðuna í
fyrirtækinu samkeppnisfæra við
það besta sem býðst á öðrum stöð-
um. Það hefur verið metnaðarmál
hjá mér að gera vinnustaðinn að-
laðandi því það er lífsspursmál
fyrir okkar þjóð að fólk vilji vinna
við fiskiðnað og til að fólk sækist
eftir því verðum við að gera eins
og við getum til að húsakynnin séu
eins heimilisleg og skemmtileg og
hægt er.
— Hvað ætlar fyrirtækið að
gera til að minnast tímamótanna?
— Við munum taka í notkun
hina nýju starfsmannaaðstöðu og
starfsfólki fyrr og nú og velunnur-
um fyrirtækisins er boðið í
afmæliskaffi á meðan húsrými
leyfir. Við eigum sögu fyrirtækis-
ins í myndum og þær munu liggja
frammi. Við vonumst til að geta
frumsýnt myndband sem við höf-
um látið gera fyrir okkur hjá
Myndbæ hf. Þar getur að líta sög-
una í 80 ár í máli og myndum.
Eflaust dettur okkur eitthvað fleira
í hug þegar þar að kemur, sagði
Haraldur Sturlaugsson að lokum.
JG
VATERM
VATNSVIRKINN HF.
ARMÚU 21 - PÓSTHÓlf 8620 - 128 REYKJAVÍK
■I SiMAIl VERSLUN 686455. SKRIFSlófA 685966
■ VÖNDOÐ VINNA - VANDAD VERK ——
60-70 MANNS EIGA
30-50 ÁRA STARFSALDUR
Margir starfsmenn HB & Co. eiga að baki langan og merkan
starfsaldur hjá fyrirtækinu. Það er mesta gæfa þess og hefur skipt
sköpum i rekstrinum, hve heppið það hefur verið með starfsfólk og
er sama hvort iitið er til skipstjórnar- og sjómanna eða manna í
landi. Agnar Sigurðsson er sá sem hefur lengstan starfsaldur eða
60 ár. Hann hefur unnið á skrifstofunni um 30 ár og þar á undan
við verslunarstörf. Þess má geta að Agnar vann sem sendill í versl-
un hjá Böðvari Þorvaldssyni föður Haraldar, og hefur því unnið
fyrir fjóra ættliði.
Magnús Guðmundsson kom til
starfa 19 ára gamall beint úr Versl-
unarskólanum fyrir réttum 40
árum. Magnús er fjármálastjóri fyr-
irtækisins.
Jóhann Guðmundsson vann fyrst
við verslunarstörf, en frá 1952 hef-
ur hann gegnt mikilvægu hlutverki
á skrifstofunni, fært bókhald og
veitt afgreiðslu Eimskips forstöðu.
Ásmundur Bjamason byrjaði 1918,
þá fjórtán ára, í fiski hjá fyrirtæk-
inu á þeim tíma sem fiskur var
fluttur úr Sandgerði til Akraness
og verkaður þar og þurrkaður.
Síðan gerðist hann sjómaður og
hefur hann verið viðloðandi fyrir-
tækið yfir sextíu ár, frá 1950 hefur
hann m.a. metið alla skreið fyrir-
tækisins.
Soffanías Guðmundsson er elsti
starfsmaður fyrirtækisins, 87 ára
gamall. Hann vann lengi við versl-
unarstörf en annast nú merkingu
umbúða. Sú saga er sögð af Soff-
aníasi að hann þurfti að liggja í
sjúkrahúsi í nokkra mánuði en þeg-
ar hann komst heim, sagðist hann
þurfa að drífa sig í vinnuna vegna
þess að hann væri svo slappur.
Fleiri er hægt að nefna með lang-
an starfsaldur. Gunnlaugur Gunn-
arsson, vörubflstjóri, hefur fjörutfu
ár að baki. Sigurður Gíslason, verk-
stjóri, vann fyrst hjá fyrirtækinu
sem sjómaður 1927, en frá 1945
hefur hann verið verkstjóri yfir
síldarsöltun, saltfísks- og skreiðar-
vinnslu. Katrín Gísladóttir hefur
starfað yfir 40 ár og sér nú um
húsmóðurhlutverkið í frystihúsinu.
Þetta er nú aðeins svipmynd af
þeim fjölda starfsmanna sem unnið
hafa fyrirtækinu svo vel á löngum
starfsaldri, en upptalningin gæti
verið enn meiri því hvorki fleiri né
færri en 60—70 starfsmenn eiga
30—50 ára starfsaldur innan fyrir-
tækisins. Þetta sýnir ljóst þá festu
sem þar hefur rflrt.
Soffanías Guðmundsson er elsti
starfsmaður HB & Co., 87 ára
gamall. Hann var lengi verslun-
arstjóri en hefur hin síðari ár
unnið við merkingu umbúða.
Það hafa margir komið í lúguna
lijá Agnari á löngum starfsaldri
hans hjá fyrirtækinu. Agnar hef-
ur unnið hjá HB & Co. í 60 ár.
Magnús Guðmundsson fjármála-
stjóri HB & Co. hefur starfað
hjá fyrirtækinu í rösk 40 ár. Kom
beint úr Verslunarskóla og hefur
gegfnt lykilhlutverki alla tíð
síðan.
Jóhann Guðmundsson hefur ver-
ið hjá fyrirtækinu í rösk 40 ár
fyrst sem versiunarmaður og frá
1952 á skrifstofunni, fært bók-
hald og veitt afgreiðslu Eim-
skipafélags íslands á Akranesi
forstöðu.
HITASTÝRÐ
BLÖNDUNARTÆKI
FYRIR STURTU OG
BAÐKER
Hitastýrðu blöndunartœkin frá
VÁRGÁRDA eru með afar
nákvœma hita- og flœðistýr-
ingu, sem bregst fljótt við þegar
setja á hvaða hitastig sem er.
Sparar líka heitt vatn.
HAGSTÆTT VERÐ