Morgunblaðið - 16.11.1986, Side 43

Morgunblaðið - 16.11.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 43 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON markmiðum á að ná með því að Bandaríkin og ísland komi sér sam- an um hlutfallsskiptingu farms sem flytja á sjóleiðis vegna varnarsamn- ingsins". Hjörleifur hélt því fram að með samkomulagi þessu væri verið að tengja herinn og dvöl hans hér, í krafti auðhyggju, „fastar en orðið er við efnahagslega hagsmuni á Islandi...“. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir (Kvl.-Rvk.) sagði Kvennalistann ekki hrifínn af því „að tengja af- komu og hagsmuni íslenzkra skipafélaga við veru hersins hér á landi...“. Hún sagði að „hemaðar- hagsmunir Bandaríkjanna eigi hér óumdeilanlega hlut að máli. Slíkum viðskiptasamningum kunnum við Kvennalistakonur illa...“. Umræður á Alþingi Umræður um samninginn fóru fram í Sameinuðu þingi 14. og 28. október sl. Eyjólfur Konráð Jóns- son, formaður utanríkismálanefnd- ar, mælti fyrir meirihlutaáliti nefndarinnar (sex nefndarmanna af sjö), sem komst að þeirri niður- stöðu, að hér værí um hagstæða lausn á erfiðu máli að ræða. Hjörleifur Guttomrsson (Abl.- Al.) skipaði einn minnihluta nefnd- arinnar. Hann sagði m.a. í þingræðu um samninginn: „Efst á bls. 3 þar sem segir í einum af upptalningarliðunum um þennan samning að „aðilar hans viðurkenni að sanngjörn þátttaka skipa beggja landanna í vöruflutn- ingum vegna vamarsamningsins muni treysta samskipti aðilanna og bæta samvinnu á nauðsynlegum sviðum vamarmála". Takið eftir orðalaginu. Það er verið að hnýta þennan samning við afstöðuna til þess, hvort hér skuli vera her og gefa í skyn að samingurinn treysti samskipti aðilanna á nauðsynlegum sviðum vamarmála...". Gagmýni þingmanna Alþýðu- bandalags og Kvennalista á málsmeðferð og efnisatriði samn- ingsins er sjónarmið út af fyrir sig. Hitt er lakara að þessir talsmenn gerðu mjög takmarkaða grein fyrir því, hvem veg gæta ætti íslenzkra hagsmuna, að þeirra dómi, varðandi siglingar íslenzkra skipafélaga til og frá Vesturheimi, að því er þetta mál varðar. Þeir tíunduðu ekki ann- ann valkost íslenzkrar hagsmuna- gæzlu. Vildu þeir í raun óbreytt ástand, sérréttindi bandarískra skipafélaga umfram íslenzk til farmflutninga á sjó til vamarliðs, sem hér dvelst samkvæmt sérstöku samkomulagi íslands og Banda- ríkjanna, og tengist vamarstefnu íslenzka ríkisins og aðild þess að Atlantshafsbandalaginu, vamar- bandalagi vestrænna ríkja? Giæsilegar finnskar og þýskar terelyne-kápur með loðfóðri TILBOÐ ÓSKAST í CHEVROLET BLAZER S-10 TAHOE árgerð 1983, ásamt bifreið- um, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 18. nóvember kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í CATERPILLAR jarðýtu D-6 m/ripper árgerð 1968. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIOSEIGNA —... Æ TISKUBLAÐ I PRJONI er komið út " Áskriftarsími 29393 Glæsileg hönnun. Uppskriftir, sem allir geta farið eftir f ísv,ysb sss»H

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.