Morgunblaðið - 16.11.1986, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Inga Lára Þórisdóttir:
Áttum að
geta betur
INGA Lára Þórisdóttir var fyrir-
liði unglingalandsliðsins í
handknattleik sem tók þátt í
Norðurlandamótinu f Danmörku
í síðasta mánuði. Hún var tekin
tali eftir leikinn gegn Norð-
mönnum á mótinu og fyrst
spurð út f þann leik.
„Það er mikill getumunur á
okkur og Norðmönnum, þær eru
mun líkamlega sterkari og mun
stærri. Flestar þeirra eru yfir 170
cm á meðan flestar okkar eru
undir þeirri hæð. Kvennahand-
bolti í Noregi er mjög góður og
er hann t.d. á hærri „standard"
en karlaboltinn," svaraði Inga.
Um möguleika íslenska liðsins
á mótinu sagði fyrirliðinn: „Við
erum búnar að leika við Norð-
menn og Dani og tapa báðum
þeim leikjum. Þetta eru sterkustu
þjóðirnar á mótinu en þó áttum
við að geta gert betur á móti
Dönum. Við stefnum að því að
ná 3. sætinu, til þess þurfum við
að vinna bæði Svfa og Færeyinga
en Finnar eru að einhverjum or-
sökum ekki með á mótinu."
Dagskrá Norðurlandamótsins
var mjög ströng en ætli stelpurn-
ar hafi ekki haft tækifæri til að
labba eins og einu sinni niður
Strikið?
„Nei, það verður að blða betri
tíma. Við komum hingað á
fimmtudag og tókum það rólega
allan daginn. Á föstudaginn
vöknuðum við í morgunmat og
tókum létta æfingu. Síðar þann
dag spiluðum viö síðan við Dani
og í dag (laugardag) eigum við
tvo leiki. í kvöld ætlum við að
halda smá afmælisveislu því ein
af okkur á afmæli. Á morgun
spilum við síðasta leikinn okkar
í mótinu og förum strax heim,“
svaraði Inga Lára þessum hug-
leiðingum blaðamannsins og
kom honum í skilning um að
keppnisferðir sem þessar eru
mjög strangar.
Næst barst talið að málefnum
kvennalandsliða okkar í hand-
knattleik, en á þeim málum hafði
Inga Lára að sjálfsögðu ákveðnar
skoðanir.
„Það hefur orðið mikil breyting
til hins betra síðan Hilmar
Björnsson tók við yfirumsjón
með þjálfun kvennalandsliðanna.
Morgunblaðiö/VIP
• Fyrirliðinn, Inga Lára Þóris-
dóttir, við öllu búinn.
Hins vegar er neikvætt hugarfar
hjá HSÍ gagnvart kvennaboltan-
um og þurftum við t.d. að skaffa
alla peninga sjálfar til þessarar
ferðar. Það er náttúrlega allt í
lagi að vinna að fjáröflun sjálfar
en HSÍ hefði getað komið til
móts við okkur,“ sagði hún.
Að loknum þessum orðum var
kominn tími fyrir fyrirliðann að
fara í mat þar sem allar þátttöku-
þjóðirnar borðuðu saman og því
þakkaði blaðamaður fyrir spjal.lið
og kvaddi.
Morgunblaðið/VIP
• Hlýtt á þjóðsönginn og horft á fánann. (slenska unglingalandsliðið f kvennahandbolta bíður þess að
leikurinn vlð Norðmenn hefjist.
Norsku risarnir
kafsigldu íslendinga
f síðari hálfleik
— á Norðurlandamóti unglingalandsliða í Danmörku
Norðurtandamót unglinga-
landsliða kvenna f handknatt-
leik fór fram f Danmörku f
sfðasta mánuði. íslenska ungl-
ingalandsliðið tók þátt í mótinu
og hafnaði f 4 sæti.
Skandinavar eiga mjög sterk-
um kvennaliðum á að skipa í
handknattleik og sérstaklega
standa Norðmenn og Danir þar
framarlega. Umsjónarmaður
unglingasíðunnar átti þess kost
að sjá leik íslensku stelpnanna
gegn mjög góðu liði Norðmanna.
Norðmenn byrjuðu þann leik
af miklum krafti og komust í 5:0.
Þrátt fyrir þessa slæmu byrjun
gáfust íslensku stelpurnar ekki
upp og héldu í við andstæðing-
ana það sem eftir lifði hálfleiks-
ins. Staðan í leikhléi var 11 mörk
gegn 6 Norðmönnum í vil.
I fyrri hálfleiknum var vörnin
ágætlega spiluð hjá íslenska lið-
inu og gaf það því norska ekkert
eftir á því sviði ef undan eru skild-
i
'' jit&i, %í mfím
Morgunblaðið/RAX
• Það voru margir sem gripu andann á lofti á unglingasundmóti Ármanns sem fram fór fyrir stuttu og
þessi kappi var einmitt einn þeirra.
Morgunblaðið/VIP
• Varnarleikur fslenska liðsins var yfirleitt góður á Norðurlanda-
mótinu. Hér sjáum við tvær íslensku stúlknanna vel á verði í
vörninni.
ar fyrstu mínútur leiksins. Stelp-
urnar spiluðu vörnina af mikilli
hörku sem kostaði nokkrar fórnir
í formi útafvísana. Sóknarleikur
okkar liðs var hins vegar mun
lakari en Norðmanna, lítil hreyf-
ing var án bolta, boltinn gekk lítiö
út í hornin og því gekk erfiðlega
að brjóta niður hinn hávaxna
norska varnarmúr.
í síðari hálfleik hrundi leikur
íslenska liðsins og norsku risarn-
ir gengu á lagið, kafsigldu okkar
lið og unnu stórsigur, 26:10.
Það kom í Ijós í þessum leik
að við eigum töluvert í land með
að ná Norðmönnum í kvenna-
handbolta, en þar eru frændur
okkar mjög framarlega. Margt
jákvætt sást til íslenska liðsins í
þessum leix þrátt fyrir stórt tap
og við eigum ekki aö láta það
brjóta okkur niður heldur stefna
að því að ná sama styrkleika og
bestu Norðurlandaþjóöirnar.
Mörk íslenska liðsins í leiknum
skoruðu Inga Lára Þórisdóttir 3,
Sigrún Þorsteinsdóttir 2, Hafdís
Guðjónsdóttir 2, Guðný Guð-
steinsdóttir, María Sigurðardótt-
ir og Ósk Víðisdóttir eitt mark
hver.