Morgunblaðið - 17.12.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
13
Nemendafélag
ÍKÍ mótmæl-
ir f lutningi
hótelskólans
á Laugarvatn
Menntamálaráðherra, Sverri
Hermannssyni, hefur verið af-
hent eftirfarandi:
^Almennur nemendafélagsfundur
Iþróttakennaraskóla íslands (ÍKÍ),
haldinn að Laugarvatni þ. 11.12
1986, mótmælir harðlega þeirri
aðstöðu sem nemendum skólans er
ætluð ef Hótel- og veitingaskóli
íslands verður fluttur að Laugar-
vatni.
Eins og ráðherra er eflaust kunn-
ugt býr nú helmingur nemenda ÍKÍ
í því húsnæði sem Hótel- og veit-
ingaskólanum er ætlað. Okkur er
þvi spum: Hvað verður um þessa
nemendur IKÍ ef Hótel- og veitinga-
skólinn kemur til Laugarvatns?
Ekki er rými fyrir þá á heimavist
ÍKÍ en heyrst hefur að ÍKÍ sé ætlað
heimavistarhúsnæði Héraðsskólans
því hann eigi að leggja niður. Við
teljum málið ekki svo einfalt og
skal það aðeins skýrt nánar.
1. Það húsnæði sem Hótel- og veit-
ingaskólanum er ætlað rúmar um
60 manns, en nú eru nemendur
skólans liðlega 100. Af þessu sést
að ekki komast allir nemendur skól-
ans fyrir í húsnæði Húsmæðraskól-
ans, en uppi eru hugmyndir um að
skólinn fái einnig afnot af heima-
vistarhúsnæði Héraðsskólans.
2. í dag fullnýtur Héraðsskólinn
ekki allt sitt húsnæði og hefur
Menntaskólinn fengið afnot af því.
3. Heimavistarhúsnæði Héraðs-
skólans teljum við nemendur ÍKÍ
algjörlega óviðunandi. Gagngerar
endurbætur þyrfti að gera á því.
T.d. vantar í dag viðunandi setu-
stofu, böð, þvottaaðstöðu, svo og
húsbúnað og innréttingar.
Okkur nemendum við ÍKÍ er ekki
ljóst hvemig menntamálaráðherra
hyggst koma öllum þessum nem-
endum fyrir hér á Laugarvatni svo
viðunandi sé.
Það er ekki bara heimavistar-
húsnæði sem við missum. Kennslu-
stofur við ÍKÍ em tvær og ef af
flutningi verður missum við einnig
aðra kennslustofuna okkar, þá stofu
sem rúmar alla nemendur IKÍ. Telj-
um við þá mjög þröngt búið að
nemendum og kennumm ÍKÍ.
í dag er starfandi nefnd á vegum
menntamálaráðuneytisins er vinnur
að því að gera tillögur um gagnger-
ar breytingar á lögum um IKÍ.
Komið hafa upp hugmyndur um að
skólinn verði lengdur um eitt ár og
teknir inn nemendur á hverju ári,
en ekki annað hvert ár eins og nú
er. Með því að flytja Hótel- og veit-
ingaskólann hingað að Laugarvatni
teljum við að menntamálaráðherra
vinni gegn hugmyndum þessarar
nefndar og geri þær með öllu
óframkvæmanlegar. Aðstaða til
uppbyggingar skólans yrði ekki fyr-
ir hendi.
Flutningur Hótel- og veitinga-
skólans að Laugarvatni mundi
koma í veg fyrir eðlilega uppbygg-
ingu ÍKÍ að sinni og aðstaða okkar,
nemenda, versna til muna.
Við nemendur ÍKÍ viljum ein-
dregið hvetja þig, hæstvirti mennta-
málaráðherra, til að endurskoða
hugmynd þína um flutning Hótel-
og veitingaskólans að Laugar-
vatni."
HRINGDU
og fáðu áakriftargjöldin
skuldfærð á greiðslukorta
th Tíifín !TfiTíi7iTTm<rn ittm
SÍMINN ER
691140
691141
Helgi Magnússon
gjornmgar
Hafskip
Gjörningar og
gæsluvarðhald
eftir Helga Magnússon
• Bók um eitt umtalaðasta mál seinni tíma á
íslandi.
• Hvernig leið bókarhöfundi í gæsluvarðhald-
inu?
• Af hverju lentu menn í gæsluvarðhaldi?
• Hverjir voru „gulldrengirnir"?
• Af hverju varð Hafskip gjaldþrota?
• Hvað gerðist raunverulega?
Einstæð bók sem fjallar um stormasama sögu
Hafskips, orsakir gjaldþrots félagsins, tilraunir til
að bjarga því og ekki síst um söguleg eftirmál gjald-
þrotsins.
Frjálst framtakf
Ármúla 18,
sími 82300.
ARÐBÆR OG ÖRUGG
VERÐBRÉFAKAUP:
Bankabnéf Iðnaðaibankans
Bankabréf Iðnaðarbankans eru ætluð bæði
einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja ávaxta
fé sitt á verðbréfamarkaði en geta aðeins
bundið það í skamman tíma í senn. Nafnverð
hvers bréfs er kr. 50.000 en söluverðið frá kr.
47.435 til kr. 49.463 eftir lánstíma. Höfuðstóll-
inn ásamt vöxtum greiðist i einu lagi í lok
lánstímans.
Bankabréfin er hægt að selja hvenær sem er
ef losa þarf fé fyrir gjalddaga.
Kr. 50,000,- ~
Kr. 5Q.O<k?.-
1 K*&**\M
-t
mjög góð ávöxtun, jafngildir 22.3% til
22,8% ársvöxtum
* örugg skuldabréf, veðdeild Iðnaðarbankans
er skuldari
* stuttur binditími, frá 3 mánuðum
* eins einfalt að kaupa bréfin og að leggja fé
á bók
* Iðnaðarbankinn leggur féð inn á banka-
reikning á gjalddaga sé þess óskað
Ðankabréfin eru til sölu í öllum útibúum Iðnaðarbankans
og í Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans hf.
iðnaðarbankinn
-mtim Iwnki
Verðbréfamarkaður
Iðnaðarbankans hf.
ARMÚLA 7, 108 REYKJAVlK, SlMI - 681040
ARGUS/SÍA